pepsico skrifaði:vidirh var með tölvu til sölu og gekk það greinilega of hægt svo hann breytti þræðinum í íhlutasölu með "FER Í PÖRTUM" í stórum stöfum í titlinum.
Ég sendi honum skilaboð ekki klukkustund síðar og bauð uppsett verð í vinnsluminnið og sagðist getað sótt þau innan höfuðborgarsvæðisins og hann las þau skilaboð og hunsaði þau.
Í stað þess að standa við sitt hunsar hann mann en hangir hér á spjallborðinu alla daga og sendir mér loks svar í dag um að
vinnsluminnið sé upptekið í einhverju pakkatilboði sem einhver annar gerði í millitíðinni en er ekki einu sinni afhent.
Engin leið til að stunda viðskipti ef þú spyrð mig.
Hann LAS ÞAU OG HUNSAÐI.. ertu ekki að grínast??
Ef hann var ekki búinn að lofa þér minninnu-fyrir einhverja upphæð, þá hefur hann ekkert að gera á þessum þræði!!
hvernig sveik hann þig??
þó að þú sért sár yfir að fá ekki að kaupa minninn strax þíðir ekki að koma hingað og væla,