HringduEgill skrifaði:Sælir.
Þessi helgi hefur verið mjög slæm eins og þið hafið upplifað. Basically teljum við þetta vera flókna netárás sem kemur og fer og sem reynist afar erfitt að tækla. Það er ömurlegt að þetta vandamál hafi ekki verið leyst af okkar hálfu og hefði verið betra af okkur að gera ykkur grein fyrir stöðunni fyrr um helgina.
Við höfum notið ykkar aðstoðar við að reyna finna út úr þessu sem hefur hjálpað til. Við þiggjum áfram allar ábendingar sem gætuð hjálpað sem þið mættuð annað hvort senda á mig eða gunnih.
Þangað til er það bara risastórt sorry frá okkur.
Maður fyrirgefur þetta nú alveg, þetta var nú ekki ykkur að kenna. Ég fann persónulega fyrir mjög litlum truflunum og þær sem ég fann fyrir voru litlar. Ég get ekkert slæmt sagt um þjónustuna sem ég hef fengið hjá Hringdu og hún hefur alltaf verið mjög fagmannleg, ólíkt því sem ég hef kynnst hjá öðrum ISPum. Ég óska ykkur góðs gengis með að finna út úr þessu og ég skal alveg hiklaust hafa samband og benda á ef ég verð var við eitthvað.