Sælir drengir,
má til með að plugga hér síðu sem að vinur minn rekur, www.nagli.is
Aðaltilgangur síðunnar er að auðvelda fólki að óska eftir tilboðum frá fagmönnum í verkefni, sem er flott, en hins vegar er ég sjálfur hrifnastur að þeim möguleika að gefa út og halda utan um reikninga, sem þá standast lög og reglur
https://nagli.is/reikningar
Þegar ég hef verið að selja tölvudót hef ég einstaka sinnum verið beðinn um staðgreiðslureikning svo að menn geti skráð hlutina á reksturinn. Þá hefði verið snilld að vita af þessu.
Þarna er líka í boði að senda reikning í banka og alles...
Allavega, vildi bara benda ykkur á þetta, gæti hentað einhverjum sem t.d. eru í sjálfstæðum rekstri
Bestu kveðjur,
Klemmi
Nagli.is - Frí reikningagerð
-
- Besserwisser
- Póstar: 3080
- Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
- Reputation: 47
- Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Nagli.is - Frí reikningagerð
Hvað er business planið? There´s no such thing as a free lunch...
Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 4196
- Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
- Reputation: 1342
- Staða: Ótengdur
Re: Nagli.is - Frí reikningagerð
beatmaster skrifaði:Hvað er business planið? There´s no such thing as a free lunch...
Reikningagerðin er held ég hugsuð sem auglýsing fyrir þá, ef þú lætur kerfið senda e-mail á þann sem reikningurinn er gefinn út á, þá er pósturinn sendur í nafni Naglans, sbr:
Þannig að ég held að hugmyndin hafi aðallega verið að nýta þetta til að fá umfjöllun og fá fólk inn á síðuna Að sama skapi er þetta fín leið til að lokka fagmenn inn á síðuna, þar sem reikningagerðin er frí en þeir taka síðan prósentu af þeim verkefnum sem eru keypt í gegnum síðuna.
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 396
- Skráði sig: Mið 01. Ágú 2012 12:28
- Reputation: 3
- Staðsetning: Mosfellsbær
- Staða: Ótengdur
Re: Nagli.is - Frí reikningagerð
Væri samt svona í lagi að geta séð notendaskilmálana hjá þeim...
Intel® Core™ i5-9400F - RTX™ 2060 6GB - 16GB DDR 4 2666 Mhz ( Dual channel) - 500GB Samsung SSD M.2 Nvme