Mér datt í hug að leita ráða hérna.
Í gærkvöldi heltist heilt rauðvínsglas yfir nýju fartölvuna mína (my bad I know)
Ég tók rafhlöðuna strax úr og lét hana standa þannig að mesti vökvinn lak úr, hafði hana svo á volgum ofni í sólahring rúmlega, opna.
Þarf ég ekki að fara með hana á verkstæði og láta hreinsa hana? Ég þori ekki að setja rafhlöðuna í og reyna að kveikja, hún hlýtur að vera full af rauðvinsklístri ekki satt?
Hverju mælið þið með?
Rauðvín yfir fartölvu o_O
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 956
- Skráði sig: Mið 27. Apr 2011 20:40
- Reputation: 130
- Staða: Ótengdur
Re: Rauðvín yfir fartölvu o_O
Það sem við gerðum á sínum týma þegar það fór kaffi yfir tölvu á heimilinu var að taka batterýið strax úr og skola hana vel með vatni og settum hana sov á ofn í viku og hún virkaði fínt allar götur síðan. Borgar sig sammt örugglega að tala við tryggingarnar strax.
Re: Rauðvín yfir fartölvu o_O
Ef þetta væri mín tölva myndi ég klárlega taka hana í sundur og þrífa hana alla að innan áður en ég myndi ræsa hana aftur.
Auk þess er mjög líklegt að lyklaborðið sé ónýtt.
Ef þú treystir þér ekki til að taka hana í sundur mæli ég með því að fara með tölvuna á verkstæði.
Auk þess er mjög líklegt að lyklaborðið sé ónýtt.
Ef þú treystir þér ekki til að taka hana í sundur mæli ég með því að fara með tölvuna á verkstæði.
-
Höfundur - Græningi
- Póstar: 44
- Skráði sig: Sun 02. Nóv 2008 18:07
- Reputation: 1
- Staða: Ótengdur
Re: Rauðvín yfir fartölvu o_O
Ég veit að á farsíma verkstæðum er allt innvols hreinsað með einhverskonar sýrubaði, var að velta fyrir mér hvort það væri svipuð meðferð með tölvur. Ég treysti mér ekki til að gera nokkuð sjálf.