heimasmíðaður flakkari, spurning um viftu...


Höfundur
FrankC
Ofur-Nörd
Póstar: 230
Skráði sig: Lau 30. Ágú 2003 10:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

heimasmíðaður flakkari, spurning um viftu...

Pósturaf FrankC » Sun 10. Okt 2004 16:11

Sælir... Ég átti WD ext. disk sem dó í vikunni og ég ætla að nota stýringuna úr boxinu og smíða nýjan flakkara úr plexigleri eða einhverju. Ég ætla að hafa þennan http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=733 á disknum sjálfum og eina viftu. Ég ætla að hafa viftuna efst á kassanum, beint fyrir ofan harða diskinn, og ég var að pæla hvort væri meira vit í að blása köldu lofti inn eða heitu lofti út? Eða væri kannski betra að hafa viftuna allt annars staðar?

Annað, haldiði að það sé ekki í lagi að splæsa viftutengi inn í molex tengið fyrir diskinn? Haldiði að diskurinn fái samt ekki alveg nógan straum?



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3760
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Pandemic » Sun 10. Okt 2004 16:51

ÉG myndi setja viftuna ofan á og blása út og göt á kassanum




Zkari
Staða: Ótengdur

Pósturaf Zkari » Sun 10. Okt 2004 18:42

Sendu myndir þegar þú ert búinn að þessu :D




Höfundur
FrankC
Ofur-Nörd
Póstar: 230
Skráði sig: Lau 30. Ágú 2003 10:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf FrankC » Sun 10. Okt 2004 20:35

ég geri það, er búinn að vera að mynda þetta núna, er ekki búinn að gera neitt nema lóða e-ð drasl fyrir viftuna. En getiði sagt mér hvar er hægt að láta sníða fyrir sig plexigler?

Ef e-r rafmagnskall les þetta væri gaman að fá svar við einu. Ég var að pæla í að setja on/off rofa á þetta, sem er ekki á stýringunni fyrir, væri sjens að klippa í sundur 5 og 12 volta vírana á molex tenginu og og setja DPDT rofa þar á milli? Eða er það kannski alveg út í hött?


p.s. það verða engin helvítis ljós í þessu...




Zkari
Staða: Ótengdur

Pósturaf Zkari » Sun 10. Okt 2004 20:53

Getur látið sníða fyrir þig plexígler í Akron




Höfundur
FrankC
Ofur-Nörd
Póstar: 230
Skráði sig: Lau 30. Ágú 2003 10:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf FrankC » Sun 10. Okt 2004 21:51

Hefur e-r látið sníða e-ð fyrir sig hjá akron? Ætli þetta sé dýrt?




mazo
Staða: Ótengdur

Pósturaf mazo » Mán 11. Okt 2004 07:21

öruglega ekki dýrt....:) hringdu bara og athugaðu....http://www.akron.is/ stendur þarna öruglega...




Höfundur
FrankC
Ofur-Nörd
Póstar: 230
Skráði sig: Lau 30. Ágú 2003 10:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf FrankC » Mán 11. Okt 2004 10:47

já þeir ætla að gera þetta fyrir 3þús heyrist mér. Spurning hvort þetta borgi sig ennþá? Það skiptir samt ekki máli, það er kúlið sem skiptir máli...

Plexíglerkassi 3000
Zalman heatpipe 3500
Góð 80mm vifta 1500
viftugrill 500
40gb HDD 6900

að hafa smíðað sinn eigin flakkara... ómetanlegt


mastercard blablabla



það er samt alveg spurning hvort ég þurfi BÆÐI heatpipe-ið og viftuna... kannski myndi annað duga alveg nógu vel...



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6496
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 315
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 11. Okt 2004 11:02

sleppa þessu heatpipe rugli!. ég held að það væri heldur ekki slæm hugmydn að hafa kanski frekar 2 40mm viftur. eina ða aftan og eina að framan. og láta aðra blása inn og hina út. harðir diskar hitna nefnilega eiginlega ekkert að ofan og neðan, aðalega á hliðunum.


"Give what you can, take what you need."


Höfundur
FrankC
Ofur-Nörd
Póstar: 230
Skráði sig: Lau 30. Ágú 2003 10:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf FrankC » Mán 11. Okt 2004 11:20

gnarr skrifaði:sleppa þessu heatpipe rugli!. ég held að það væri heldur ekki slæm hugmydn að hafa kanski frekar 2 40mm viftur. eina ða aftan og eina að framan. og láta aðra blása inn og hina út. harðir diskar hitna nefnilega eiginlega ekkert að ofan og neðan, aðalega á hliðunum.


Stýringin er samt þannig að það væri ekki pláss fyrir viftu að aftan, nema ég myndi hafa þetta e-ð fáránlega breitt og hafa hana alveg til hliðar. En af hverju ertu á móti heatpæpinu? Það leiðir hitann frá hliðunum og upp, og síðan viftu til að blása köldu lofti á pípurnar eða heitu lofti frá þeim og út? Tvær viftur eru alveg off.




Höfundur
FrankC
Ofur-Nörd
Póstar: 230
Skráði sig: Lau 30. Ágú 2003 10:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf FrankC » Mán 11. Okt 2004 13:59

nei ok þetta er planað, ein 40mm að framan blæs inn og ein 40mm ofan á aftast blæs út. Nú er bara spurning hvort ég fái nógan straum frá stýringunni fyrir hdd, tvær viftur og activity leds



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6496
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 315
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 11. Okt 2004 15:05

40mm á 5000rpm er að nota undir 0.9w. svo að þessar viftur nota ekki nema í mestalagi um 1w ef þú ert með þær á 2500rpm. led ljós not líka sama og ekkert rafmagn. svona lítil ljós eru að taka kanski 0.1w. á meðan að harður diskur tekur um 15-20w


"Give what you can, take what you need."


Höfundur
FrankC
Ofur-Nörd
Póstar: 230
Skráði sig: Lau 30. Ágú 2003 10:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf FrankC » Mán 11. Okt 2004 15:22

þá hlýtur þetta að ganga, best að drífa sig niður í miðbæjarradíó og kaupa meira tin...



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6496
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 315
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 11. Okt 2004 15:24

spurðu þá líka í leiðinni um nákvæma wattatölu á viftunum. bara svona til öryggis.


"Give what you can, take what you need."


Höfundur
FrankC
Ofur-Nörd
Póstar: 230
Skráði sig: Lau 30. Ágú 2003 10:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf FrankC » Mán 11. Okt 2004 15:55

ætla reyndar að kaupa vifturnar hjá task, athuga hvort þeir viti það, en hvernig sé ég hvað ég get fengið mörg wött út á molextengið? Ég veit mjög lítið um rafmagnsdrasl, en ég kann þó á lóðbolta :wink:




Höfundur
FrankC
Ofur-Nörd
Póstar: 230
Skráði sig: Lau 30. Ágú 2003 10:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf FrankC » Mán 11. Okt 2004 16:03

ekki vissu taskarar meira en að þær eru 0.09 amper, getur e-r sagt mér hvað það þýðir fyrir litla verkefnið mitt?



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6496
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 315
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 11. Okt 2004 16:22

1.08wött á 12voltum. hvað eru vifturnar gefnar upp fyrir mikinn hraða?


"Give what you can, take what you need."


Höfundur
FrankC
Ofur-Nörd
Póstar: 230
Skráði sig: Lau 30. Ágú 2003 10:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf FrankC » Mán 11. Okt 2004 17:06

spennubreytirinn fyrir stýrispjaldið gefur út 1,5 amper, sem mér reiknast til að séu þá 18w á 12 voltum, er það ekki rétt? Þá hefur harði diskurinn tæp 16w eftir að búið er að bæta 2 viftum við.




Höfundur
FrankC
Ofur-Nörd
Póstar: 230
Skráði sig: Lau 30. Ágú 2003 10:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf FrankC » Mán 11. Okt 2004 17:08

gæti ég þá ekki líka tengt viftunar við 5v á molexinu í staðinn fyrir 12? Þá tekur hver vifta bara 0,45w




Höfundur
FrankC
Ofur-Nörd
Póstar: 230
Skráði sig: Lau 30. Ágú 2003 10:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf FrankC » Mán 11. Okt 2004 18:30

kom í ljós að vifturnar eru 0.07a þannig að þær taka ekki nema 1.68w tvær saman, diskurinn keyrir fínt með vifturnar tvær í gangi, en ég veit samt ekki hvort það er í lagi að hafa þetta svona, anyone?



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6496
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 315
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 11. Okt 2004 21:23

jú, það er í fínasta lagi :) hvað eru þær að snúast hratt umþaðbil? ég mæli með að hafa þær í umþaðbil 2500rpm. það ætti að vera meira en nóg loftflæði og mjög hljóðlátt.


"Give what you can, take what you need."


Höfundur
FrankC
Ofur-Nörd
Póstar: 230
Skráði sig: Lau 30. Ágú 2003 10:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf FrankC » Mán 11. Okt 2004 21:51

gnarr skrifaði:hvað eru þær að snúast hratt umþaðbil?


haha, hvernig á ég að vita það? Þær snúast bara helvíti hratt en eru ágætlega hljóðlátar samt þannig að ég þarf ekkert að tjúna þær niður, verð samt að öllum líkindum með stillitakka framan á kassanum fyrir þær. Núna þarf ég bara að fara og tala við akron, hef samt ekki hugmynd um hvernig ég á að lýsa þessu fyrir þeim! Hefur e-r dílað e-ð við þá? Eru þeir almennlegir með svona dæmi? Kannski ætti ég að fara með málmplötuna sem þetta liggur allt á til þeirra því götin fyrir rafmagn firewire og usb eru á henni auk gatanna sem hún er skrifuð niður í boxið í gegnum.

Hérna eru tvær myndir:
Viðhengi
IMG_2160.JPG
alllt komið saman og farið að virka...
IMG_2160.JPG (75.34 KiB) Skoðað 1258 sinnum
IMG_2153.JPG
búinn að lóða viftutengin inní molexið...
IMG_2153.JPG (54.96 KiB) Skoðað 1258 sinnum



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3760
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Pandemic » Mán 11. Okt 2004 23:09

Svona viftur eru reyndar hrikalega háværar og endast stutt




Höfundur
FrankC
Ofur-Nörd
Póstar: 230
Skráði sig: Lau 30. Ágú 2003 10:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf FrankC » Mán 11. Okt 2004 23:41

mér finnst einmitt alls ekki heyrast hátt í þeim



Skjámynd

dabb
spjallið.is
Póstar: 443
Skráði sig: Lau 21. Jún 2003 17:38
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf dabb » Mán 11. Okt 2004 23:49

Búin að velja box?