IBM/Lenovo ThinkPad T60

ATH: Einungis er leyfð sala á tölvum og tölvutengdum búnaði.
VARÚÐ: Verðlöggur eru leyfðar með þeim takmörkunum að ýtrustu kurteysi er krafist af þeim.

Höfundur
Gibbi
Græningi
Póstar: 38
Skráði sig: Lau 09. Jan 2010 13:29
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

IBM/Lenovo ThinkPad T60

Pósturaf Gibbi » Sun 26. Apr 2015 22:10

IBM/Lenovo ThinkPad T60 til sölu á lítinn þrjátíukjéll.

-Nýr Intel Core2Duo T7200 örgjörvi | 2.0Ghz klukkuhraði | 4MB flýtim.
-Nýtt 4GB DDR2 Vinnsluminni
-Nýr HDiskur 250GB Seagate Momentus | 7200sn/m | 16MBflýtim. | innb. fallmælir
-Ný rafhlaða (110 cycles komin) | 74Wh | 3+ tímar í langflestum verkefnum
-UltraBay CD/DVD skrifari, hægt að skipta út fyrir aukarafhlöðu eða HDisk
-Bluetooth, fingrafaraskanni og infrarautt port m.a.

Nýyfirfarin, hver einasti íhlutur tekinn úr og hreinsaður.

Mjög vel farið eintak af frábærri vél í skólann, vinnuna, eða bara feisbúkk og tölvupóst. Ekki hugsuð eða hönnuð til að spila 3D skotleiki oþh en er þrælspræk til allra annara verkefna.
Viðhengi
garyrre.jpg
garyrre.jpg (85.23 KiB) Skoðað 698 sinnum
gayra.jpg
gayra.jpg (128.21 KiB) Skoðað 698 sinnum
keyb.jpg
keyb.jpg (67.97 KiB) Skoðað 698 sinnum
lok.jpg
lok.jpg (76.63 KiB) Skoðað 698 sinnum
pwr18.jpg
pwr18.jpg (111.96 KiB) Skoðað 698 sinnum
pwr254.jpg
pwr254.jpg (159.75 KiB) Skoðað 698 sinnum
skjarkeyb.jpg
skjarkeyb.jpg (108.82 KiB) Skoðað 698 sinnum




linenoise
spjallið.is
Póstar: 411
Skráði sig: Þri 12. Júl 2011 16:35
Reputation: 76
Staða: Ótengdur

Re: IBM/Lenovo ThinkPad T60

Pósturaf linenoise » Mán 27. Apr 2015 09:46

  • Er þetta XGA módelið eða er hærri upplausn? 14 eða 15 tommu?
  • Er GPU-inn Intel 950, ATI X1300 eða X1400?
  • Kannski best að henda inn týpunúmerinu bara?

Athugið líka að T60 styður ekki meira en 3GB fyrir stýrikerfi+forrit út af chipsetti. Mér skilst samt að gpu-inn geti notað það sem fer umfram að einhverju marki. Og þetta er ekkert rosa issue. Ég er að keyra T60 með 2GB í minni og hún er drulluspræk.




Höfundur
Gibbi
Græningi
Póstar: 38
Skráði sig: Lau 09. Jan 2010 13:29
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: IBM/Lenovo ThinkPad T60

Pósturaf Gibbi » Þri 28. Apr 2015 05:01

Já vá, takk fyrir ábendinguna, ég speisaði alveg á stærðinni og skjákortinu!

Þetta er 2007-6RG týpan, s.s. 14.1 tommu skjár í 1400x1050 @60Hz á X1400 skjákorti. Það er miklu skemmtilegra en 950 en aftur á móti er umskurður með kókdós miklu skemmtilegri en 950. X1400 er dedicated þannig að ég er nokk visss um að fjórða gígabætið sé meira til skrauts en eitthvað annað, en það er samt alveg á mörkunum að geta kallað X1400 skjákort.

En ég ítreka að þetta er þrælskemmtileg vél þrátt fyrir skjákortið, hún er spræk, með góða rafhlöðuendingu og staðreyndin er að maður finnur varla betri tölvu en IBM ThinkPad til að skrifa á, lyklaborðið er svo gott. Ég er eiginlega að reyna að selja hana fyrir vin minn, en ég sagði honum samt að það væri ekki þess virði að selja hana á 30-35 kall á meðan hún vinnur svona vel við öll tækifæri. Við komumst að samkomulagi um að ég kaupi tölvuna sjálfur á fimmtudaginn ef hún verður ekki seld þá, mér finnst þetta svo ofboðslega skemmtilegt apparat. Í hreinum afköstum getur þessi snýtt sér með mörgum þeim nýju fartölvum sem eru til sölu á 60-80k í tölvuverslunum landsins þó hún sé aðeins lifaðri, og rafhlöðuendingin í þessari er líka betri en í mörgum nýjum tölvum. Og svo er enginn superfish eða neitt í henni.

Ég get boðið upp á ársábyrgð á vélbúnaðinum en þá fylgir sá böggull skammrifi að ég er búsettur á Akranesi--en fer þó oft til RVK í hin og þessi verkefni. Svo var ég að rekast á T4300 örgjörva og var að spá í að sweetena dílinn með því að uppfæraThinkPadinn úr 7200 í 4300.




linenoise
spjallið.is
Póstar: 411
Skráði sig: Þri 12. Júl 2011 16:35
Reputation: 76
Staða: Ótengdur

Re: IBM/Lenovo ThinkPad T60

Pósturaf linenoise » Mið 29. Apr 2015 13:21

X1400 styður 512 MB í HyperMemory, þannig að það ef ég er ekki að misskilja hvernig það virkar ætti það að geta notað helminginn af því sem stýrikerfið nýtir ekki.

Og bara svona til að halda þessu gangandi.. Hvaða wifikort er í henni?

Annars vildi ég líka taka undir notagildið. Frábært lyklaborð, alveg nógu spræk. Þolir allt!! Og ef henni er stolið eða tjónast illa, þá var þetta bara 30 kall. Strákurinn minn er með T61 og fer með hana áhyggjulaus í skólann. Þetta er svona workhorse sem maður má drösla hvert á land sem er.

Ég mæli líka alveg með SSD í skepnuna þó hún sé bara SATA I. Það munar samt. Það þarf þá reyndar að athuga að biosinn sé up-to-date til að TRIM virki. Maður getur svo hent stórum diski í ultrabay-ið ef áhugi er fyrir því.