Smá pæling með hljóð"einángrun" á tölvum?


Höfundur
kanill
Græningi
Póstar: 28
Skráði sig: Fös 01. Okt 2004 14:33
Reputation: 0
Staðsetning: Kóp
Staða: Ótengdur

Smá pæling með hljóð"einángrun" á tölvum?

Pósturaf kanill » Mið 06. Okt 2004 18:50

Ég var að dagrétta hjá mér vélbúnaðinn. Fékk mér 3.0 p4 og móðurborð og allt tilheyrandi. Fékk síðan gefins æðislegan asus kassa sem er með plastskel utan um allar hliðar sem hægt er að smella af. Ég var að spá í að taka þær af og setja þunnan svamp á milli til að hljóðeinangra betur. Er þetta heimskulegt uppá hitann að gera í tölvunni eða hvað? Ég er með eina viftu aftan á kassanum og kem til með að setja líka eina framan á hann. Er eitthvað sem mælir gegn því að einangra hann með svampi milli hliðanna? Myndi þetta hjálpa til með hitadótaríið að gera? Því þá er hann líka betur einangraður upp utanaðkomandi hita að gera. Er það enginn kostur? Endilega þið gaurar og gæjur, sem eruð með milljón plús viftur, hraðastilla og dæmi á vélunum ykkar, fræðið mig aðeins um þetta.




Stebbi_Johannsson
spjallið.is
Póstar: 400
Skráði sig: Fös 16. Apr 2004 18:25
Reputation: 0
Staðsetning: 800 Selfoss
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Stebbi_Johannsson » Mið 06. Okt 2004 19:01

stundar þú dáldið huga kalinn minn?


Intel P4 2.4GHz - 2x512mb DDR333 Elixir - Asus P4S533-X - 80gb WD Caviar - FX5200 128mb - 550w Antec Truepower PSU - MX700 - ViewSonic Viewmate


Höfundur
kanill
Græningi
Póstar: 28
Skráði sig: Fös 01. Okt 2004 14:33
Reputation: 0
Staðsetning: Kóp
Staða: Ótengdur

Pósturaf kanill » Mið 06. Okt 2004 19:11

Stebbi_Johannsson skrifaði:stundar þú dáldið huga kalinn minn?


Já smá. .... Takk fyrir greinagott svar.




goldfinger
spjallið.is
Póstar: 466
Skráði sig: Mán 03. Nóv 2003 10:06
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf goldfinger » Mið 06. Okt 2004 19:17

svamp, hahahaha




Höfundur
kanill
Græningi
Póstar: 28
Skráði sig: Fös 01. Okt 2004 14:33
Reputation: 0
Staðsetning: Kóp
Staða: Ótengdur

Pósturaf kanill » Mið 06. Okt 2004 19:26

goldfinger skrifaði:svamp, hahahaha


Já .. takk takk .. ég er auglóslega fáviti takk fyrir að benda mér á aðrar leiðir en þessi ofurheimskulega aðferð sem mér datt í hug. Greinilegt að ég hefði átt hugsa þetta aðeins betur áður baða út heimskulegum spurningum.

Þakka þér líka kærlega fyrir greina gott svar.



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3833
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 149
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Pósturaf Daz » Mið 06. Okt 2004 19:32

Svampur virkar ágætlega sem hljóðeinangrun, en einangrar líka hita svo þú þarft að fylgjast vel með hitanum í kassanum og á örgjörvanum. Ein vifta að framan til að blása inn (í viðbót við þá sem þú ert með nú þegar) er algert lágmark ef kassin verður svona vel einangraður.
Og þú vilt ekki einangra utanaðkomandi hita, nema þú sért með ískápsmótor inní kassanum og búir í eyðimörk, ef þú einangrar kassan ertu að reyna að hljóðeinangra hann.




Höfundur
kanill
Græningi
Póstar: 28
Skráði sig: Fös 01. Okt 2004 14:33
Reputation: 0
Staðsetning: Kóp
Staða: Ótengdur

Pósturaf kanill » Mið 06. Okt 2004 19:38

Daz skrifaði:Svampur virkar ágætlega sem hljóðeinangrun, en einangrar líka hita svo þú þarft að fylgjast vel með hitanum í kassanum og á örgjörvanum. Ein vifta að framan til að blása inn (í viðbót við þá sem þú ert með nú þegar) er algert lágmark ef kassin verður svona vel einangraður.
Og þú vilt ekki einangra utanaðkomandi hita, nema þú sért með ískápsmótor inní kassanum og búir í eyðimörk, ef þú einangrar kassan ertu að reyna að hljóðeinangra hann.


Cool þú ert svalur. Þið hinir ættuð að taka hann til fyrirmyndar. Hann gerir ekki lítið úr nýgræðingum heldur reynir að hjálpa. Daz þú munt líklega fara beinustu leið til himna meðan hinir fara .. ekkert þeir hverfa bara!



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3833
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 149
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Pósturaf Daz » Mið 06. Okt 2004 19:40

kanill skrifaði:Cool þú ert svalur. Þið hinir ættuð að taka hann til fyrirmyndar. Hann gerir ekki lítið úr nýgræðingum heldur reynir að hjálpa. Daz þú munt líklega fara beinustu leið til himna meðan hinir fara .. ekkert þeir hverfa bara!

Nei ég er á leiðinni niður, kallinn með halann pantaði mig til að hann kælikerfið :D




Höfundur
kanill
Græningi
Póstar: 28
Skráði sig: Fös 01. Okt 2004 14:33
Reputation: 0
Staðsetning: Kóp
Staða: Ótengdur

Pósturaf kanill » Mið 06. Okt 2004 19:47

Daz skrifaði:
kanill skrifaði:Cool þú ert svalur. Þið hinir ættuð að taka hann til fyrirmyndar. Hann gerir ekki lítið úr nýgræðingum heldur reynir að hjálpa. Daz þú munt líklega fara beinustu leið til himna meðan hinir fara .. ekkert þeir hverfa bara!

Nei ég er á leiðinni niður, kallinn með halann pantaði mig til að hann kælikerfið :D


jæja þú ert þá með áfangastað. :D




Vilezhout
spjallið.is
Póstar: 401
Skráði sig: Þri 04. Nóv 2003 02:30
Reputation: 0
Staðsetning: Nethimnaríki
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Vilezhout » Mið 06. Okt 2004 20:44

ég myndi nú ekki halda að svampur í hliðunum ætti ekkert að valda neinu sérstöku hitavandamáli og sérstaklega ef þetta eru plasthliðar og eiginlega eini staðurinn sem ég myndi trúa að svampurinn myndi valda hitaaukningu væri ef hann færi í toppinn sem myndi þá vera skilvirkasti staðurinn ef við förum að hugsa um kassann sem heatsink.

og eitt enn, málið með hugasvarið og allt það er einungis vegna þess að þessi litlu grey kunna ekki né vita meira enn að vera með eitthvað óþarfa skítkast og fatta ekki að þessi vefur byggist á samfélagi manna sem leita hjálpar, vilja veita hjálp, deila gagnlegum(ógagnlegum líka) upplýsingum og bara hreint út sagt monta sig af nýjasta þrekvirkinu við að yfirklukka eða sýna kassa sem þeir hafa klárað að modda.

urr urr og hætta þessu eða ég siga bjössa á þig.



Skjámynd

fallen
ÜberAdmin
Póstar: 1320
Skráði sig: Fös 06. Feb 2004 13:09
Reputation: 8
Staðsetning: eyjar
Staða: Ótengdur

Pósturaf fallen » Mið 06. Okt 2004 21:55



Gaming: Intel i5-4670K @ 4.4GHz | Gigabyte G1.Sniper M5 | Gigabyte GTX 970 4GB | 16GB Crucial BallistiX DDR3 | Samsung 840 EVO 120GB | Corsair 350D | Corsair AX760 | Corsair H100i | BenQ XL2411T 144Hz
unRAID: Intel Xeon E3-1275 v6 | Supermicro X11SSL-CF | 32GB DDR4 ECC | 6x10TB IronWolfs | Samsung 850 Pro 512GB & 256GB | Fractal Node 804 | Corsair SF750 | APC Back-UPS Pro 900

Skjámynd

Stutturdreki
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1696
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 35
Staða: Ótengdur

Re: Smá pæling með hljóð"einángrun" á tölvum?

Pósturaf Stutturdreki » Fim 07. Okt 2004 08:52

kanill skrifaði:Er eitthvað sem mælir gegn því að einangra hann með svampi milli hliðanna? Myndi þetta hjálpa til með hitadótaríið að gera? Því þá er hann líka betur einangraður upp utanaðkomandi hita að gera.


Sko.. ef þú ert að tala um að setja svamp á jaðarinn á öllum opnanlegum hliðum til að koma í veg fyrir titring þá er það sennilega ekkert nema gott mál. Svo lengi sem þú lokar ekki fyrir nein göt þar sem loft á að flæða inn í kássann.

Reyndar er lang best að hafa kassann algerlega loft þéttan nema á þeim stöðum þar sem þú villt fá loft inn, yfirleitt neðarlega að framan og/eða neðar lega á vinstri hliðinni (horft á að framan). Það fer jafn mikið loft inn í kassann og fer út úr honum og loft ferðast styðstu mögulegu leið (náttúran er löt að eðlisfari..) svo til að tryggja að þú fáir kalt loft inn þarf loftintakið að vera eins langt frá úttakinu og hægt er og staðsett neðar í kassanum (heitt loft leitar upp á við). Einnig þarf loftintakið að vera staðsett þannig að kaldaloftið sem kemur inn flæði framhjá þeim stöðum sem mest þarf að kæla; Skjákortið, Örgjörvinn, Northbridge, minnið og hörðudiskana. Svo það ætti í raun að vera gott að loka loftunargötum sem eru nálægt viftunni..

Og þarna varðandi utanað komandi hita, loftið í kassanum þínum verður aldrei kaldara heldur en loftið í herberginu sem kassinn er í (það er að segja nema þú getir nálgast kaldara eða kælt loft annarstaðar frá).



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6466
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 300
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Fim 07. Okt 2004 09:08

hehe.. ég STÓRLEGA efast um að þú getir eitthvað einangrað hita að utan. ekki nema að þú geimir tölvuna hliðiná ofni og sért með loftslöngu til að ná í kaldara loft annarstaðar frá. annars er hitinn sem að fer í gegnum toppinn og hliðarnar á kassanum sama og enginn! þótt þú setjir 20cm þykkan svamp á báðar hliðarnar og toppinn, þá ættiru ekki að sjá neina hitabreytingu. það er ekki fyrr en þú ferð að minka loftflæðið að hitinn fer að aukast.

eins og þú varst að segja þetta, setja svampinn fyrir utan málm hliðarnar og setja svo plast hliðar yfir það. það ætti að hafa 0.000000001% áhrif á hitann. en líklegast lækkar það háfaðann mjög mikið :)


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Sveinn
FanBoy
Póstar: 728
Skráði sig: Sun 07. Sep 2003 20:04
Reputation: 4
Staðsetning: Rvk
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Sveinn » Fim 07. Okt 2004 11:55




Skjámynd

Sveinn
FanBoy
Póstar: 728
Skráði sig: Sun 07. Sep 2003 20:04
Reputation: 4
Staðsetning: Rvk
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Sveinn » Fim 07. Okt 2004 12:07

gnarr skrifaði:ekki nema að þú geimir tölvuna hliðiná ofni

Hehe :$ ég er með mína hliðina á ofni, bara aldrei kveikt á honum :P




Hawley
Nörd
Póstar: 112
Skráði sig: Fös 21. Maí 2004 22:14
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Hawley » Fim 07. Okt 2004 20:05

piiift! hver þarf á ofni að halda þegar að maður hefur nokkrar tölvur í gangi 24/7?

:D




gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Fim 07. Okt 2004 20:25

Hawley skrifaði:piiift! hver þarf á ofni að halda þegar að maður hefur nokkrar tölvur í gangi 24/7?


Akkurat, hef ekki kveikt á ofninum í herberginu mínu í langan tíma, sammt er það alltaf heitara en gangurinn.




ErectuZ
Geek
Póstar: 872
Skráði sig: Mið 24. Mar 2004 21:17
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf ErectuZ » Fim 07. Okt 2004 21:20

Það er ekki kveikt á ofninum í mínu herbergi, og það er alltaf drullukalt hérna. Sérstaklega núna þegar veturinn er að koma :? Kannski spurning um að sleppa að fá sér betri kælingu? Tölvan er allt sem hitar upp herbergið mitt núna :lol:




Hlynzi
vélbúnaðarpervert
Póstar: 983
Skráði sig: Fös 15. Nóv 2002 20:40
Reputation: 41
Staðsetning: RVK
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Hlynzi » Sun 10. Okt 2004 10:52

Kassarnir eiga það til að hitna með hljóðeinangrun, en ef þú ert með gott loftflæði í gegn á það ekki að skipta neinu máli. Það eru til sér mottur í þetta hjá task eða tölvuvirkni minnir mig.


Hlynur


gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Sun 10. Okt 2004 13:46

Fékk svona mottur í Start í gær, reyndar ekki til að setja í tölvukassan sjálfan. Það er til í tveim stærðum í start svo maður þarf ekki að kaupa svaka mikið og vera svo með afgang.



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Sun 10. Okt 2004 14:07

Rainmaker skrifaði:Það er ekki kveikt á ofninum í mínu herbergi, og það er alltaf drullukalt hérna. Sérstaklega núna þegar veturinn er að koma :? Kannski spurning um að sleppa að fá sér betri kælingu? Tölvan er allt sem hitar upp herbergið mitt núna :lol:

Hmm, þegar þú færð þér nýja kælingu, hvað heldurru að verði um hitann?

Eftir smá eðlisfræði(kaflann um ísskáp :)) vitum við að ekki er hægt að ,,búa til" kulda, heldur einungis fjarlægja hita. Þannig ef að þú færð þér nýrri kælingu sem að heldur örranum kaldari þá er hún í raun að leiða hitan hraðar/betur frá örranum. Þar sem að örrin tekur jafn mikið af rafmagni(orku) óháð kælingunni hlítur hann að gefa frá sér jafn mikinn hita(orku) þótt að þú sést með nýju kælinguna. </genius> :D

En já, sama hér, ég er alltaf með slökkt á ofninum. Enda er oft ískalt inni hjá mér þegar maður er með slökkt á tölvunni yfir helgi t.d. :P