Álit óskast - CoolerMaster Silencio550


Höfundur
moc133
Fiktari
Póstar: 55
Skráði sig: Fös 22. Feb 2013 12:30
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Álit óskast - CoolerMaster Silencio550

Pósturaf moc133 » Fim 15. Jan 2015 10:14

Er að spá að kaupa mér þennan turnkassa í þeim tilgangi að minnka lætin í vélinni. Er með ódýran Elite coolermaster kassa eins og er og það eru engin ógurleg læti í honum en samt nóg til að pirra mig. Á einhver hér svona turn eða hefur átt? Er þetta góð lausn fyrir mig?

http://att.is/product/coolermaster-sile ... n-aflgjafa

Öll álit vel þegin :happy

takk



Skjámynd

FreyrGauti
Tölvutryllir
Póstar: 664
Skráði sig: Fim 04. Des 2008 10:29
Reputation: 17
Staða: Ótengdur

Re: Álit óskast - CoolerMaster Silencio550

Pósturaf FreyrGauti » Fim 15. Jan 2015 10:27

Ég er með svona kassa undir server'inn hjá mér, er með tvær corsair sp quiet viftur í honum að framan, og með fan speed reducer, og finnst ég heyra frekar mikið í þeim.
Virðist vera að dust filter'inn orsaki það, um leið og ég tek hann af heyri ég mun minna í viftunum, eins og filterinn sé of restrictive, hvín bara í honum.
Er að horfa á að kaupa Fractal Design R5 þegar að hann kemur til að skipta út coolermasternum, bróðir minn er með þannig og það heyrist eiginlega ekkert í honum.



Skjámynd

Hannesinn
Gúrú
Póstar: 583
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 16:48
Reputation: 80
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Álit óskast - CoolerMaster Silencio550

Pósturaf Hannesinn » Fim 15. Jan 2015 10:30

Af þeim hlutum sem minnka hávaða þá er það mín reynsla að kassinn skiptir minna máli en hljóðlát örgjörvavifta, aflgjafi sem byrjar að snúa viftu við álag, og lágværar kassaviftur.


Enjoy your job, make lots of money, work within the law. Choose any two.


Höfundur
moc133
Fiktari
Póstar: 55
Skráði sig: Fös 22. Feb 2013 12:30
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Álit óskast - CoolerMaster Silencio550

Pósturaf moc133 » Fim 15. Jan 2015 10:40

Þakka snögg svör! Virkilega vel metið!

Ég er með þetta kvikindi eins og er, búinn að vera með hann frekar lengi.

Mynd

Vélin mín er bara svona medium vél myndi ég segja, ekkert super leikjavél eða neitt þannig er aðallega bara notuð í browse og myndagláp etc.

Ég er með viftur að framan og aftan og svo eina á hliðinni, ætli það sé ekki í lagi að taka hliðarviftuna úr? Er með góðan aflgjafa og mjög góða örrakælingu. Þetta eru 2500kr 120mm coolermaster viftur kannski það sé sniðugara að uppfæra í betri viftur þá fyrir peninginn? Einhver viftumeðmæli?



Skjámynd

I-JohnMatrix-I
</Snillingur>
Póstar: 1020
Skráði sig: Fös 05. Apr 2013 19:01
Reputation: 101
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Álit óskast - CoolerMaster Silencio550

Pósturaf I-JohnMatrix-I » Fim 15. Jan 2015 10:43

Þér er alveg óhætt að taka hliðarviftuna úr ef þú ert ekki í neinni brjálaðri vinnslu, þú ert með viftu að framan sem dregur inn kalt loft og viftu að aftan sem blæs heita loftinu út, ætti að vera alveg feikinóg í sjónvarpsgláp og leikjaspilun.




Scavenger
Græningi
Póstar: 48
Skráði sig: Fös 17. Ágú 2007 21:34
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Álit óskast - CoolerMaster Silencio550

Pósturaf Scavenger » Fim 15. Jan 2015 16:04

Ég er með Fractal R4 turn, 5x 140mm Fractal Silent Series viftur og Thermaltake AIO vatnskælingu. Alveg hljóðlaust!

http://tolvutek.is/vara/fractal-design- ... si-svartur
http://tolvutek.is/vara/fractal-design- ... rt-og-hvit



Skjámynd

Xovius
Bara að hanga
Póstar: 1582
Skráði sig: Sun 08. Jan 2012 14:34
Reputation: 58
Staða: Ótengdur

Re: Álit óskast - CoolerMaster Silencio550

Pósturaf Xovius » Fim 15. Jan 2015 17:11

Það getur líka breytt mjög miklu að fá sér fan-speed reducer til að lækka hraðann á viftunum.




Scavenger
Græningi
Póstar: 48
Skráði sig: Fös 17. Ágú 2007 21:34
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Álit óskast - CoolerMaster Silencio550

Pósturaf Scavenger » Fös 16. Jan 2015 14:59

Scavenger skrifaði:Ég er með Fractal R4 turn, 5x 140mm Fractal Silent Series viftur og Thermaltake AIO vatnskælingu. Alveg hljóðlaust!

http://tolvutek.is/vara/fractal-design- ... si-svartur
http://tolvutek.is/vara/fractal-design- ... rt-og-hvit


Gleymdi að taka fram að R4 er með innbyggðum fan controller. Svo að já, gleði. Mikil gleði.




blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1778
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 141
Staða: Ótengdur

Re: Álit óskast - CoolerMaster Silencio550

Pósturaf blitz » Fös 16. Jan 2015 15:29

Scavenger skrifaði:
Scavenger skrifaði:Ég er með Fractal R4 turn, 5x 140mm Fractal Silent Series viftur og Thermaltake AIO vatnskælingu. Alveg hljóðlaust!

http://tolvutek.is/vara/fractal-design- ... si-svartur
http://tolvutek.is/vara/fractal-design- ... rt-og-hvit


Gleymdi að taka fram að R4 er með innbyggðum fan controller. Svo að já, gleði. Mikil gleði.



Mestu lætin koma oft frá PSU / GPU / HDD þannig að þetta þarf allt að haldast í hendur


PS4


Scavenger
Græningi
Póstar: 48
Skráði sig: Fös 17. Ágú 2007 21:34
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Álit óskast - CoolerMaster Silencio550

Pósturaf Scavenger » Mán 19. Jan 2015 13:00

blitz skrifaði:
Scavenger skrifaði:
Scavenger skrifaði:Ég er með Fractal R4 turn, 5x 140mm Fractal Silent Series viftur og Thermaltake AIO vatnskælingu. Alveg hljóðlaust!

http://tolvutek.is/vara/fractal-design- ... si-svartur
http://tolvutek.is/vara/fractal-design- ... rt-og-hvit


Gleymdi að taka fram að R4 er með innbyggðum fan controller. Svo að já, gleði. Mikil gleði.



Mestu lætin koma oft frá PSU / GPU / HDD þannig að þetta þarf allt að haldast í hendur


Það er akkúrat ástæðan fyrir öllum viftunum hjá mér. R4 er svo frábærlega hljóðeinangraður turn, en það þýðir samt að það er engin loftrist á vinstri hlið, við skjákortið. Það var byrjað að heyrast hressilega í því í leikjaspilun hjá mér, alveg steinþagnaði með því að bæta loftflæðið með 3 auka viftum (fylgja tvær með R4). Lækkaði líka hitastigið á því um ca 30°, eða úr ca 70° í 100% load í max 45° í 100% load -- og það er með fan controllerinn stilltan á Low og AIO vatnskælingin, sem er á bakhlið í 35% (alveg hljóðlaus og örrinn fer í max 35° í 100% load)
http://tolvutek.is/vara/thermaltake-water-30-pro-clw0223-vatnsorgjorvakaeling-amd-intel



Skjámynd

billythemule
Fiktari
Póstar: 71
Skráði sig: Mið 28. Ágú 2013 01:15
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Álit óskast - CoolerMaster Silencio550

Pósturaf billythemule » Mán 19. Jan 2015 17:56

Ég er að nota þennan kassa og verð að segja að hann sé ágætur en hann er ekki eins hljóðeinangrandi og nafnið gefur til kynna. Vifturnar skipta lang mestu máli en það fylgdi bara ein með mínum sem er samt helvíti góð. Mæli með að skoða Vifturnar fyrst og fremst.