.is = Islamic State

Allt utan efnis
Skjámynd

lifeformes
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 369
Skráði sig: Fim 10. Feb 2011 23:58
Reputation: 25
Staðsetning: 66°N
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf lifeformes » Sun 12. Okt 2014 10:59

Ef mamma ykkar hefur leyft ykkur að skoða þessa síðu http://khilafah.is/ þá held ég að ég sé alveg sammála Appel þetta er ekki eithvað sem við viljum að sé hýst hérna á íslandi :pjuke



Skjámynd

rango
FanBoy
Póstar: 785
Skráði sig: Lau 14. Júl 2012 22:36
Reputation: 3
Staðsetning: 404 - Location Not found.
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf rango » Sun 12. Okt 2014 11:33

Advania eru í raun þeir sem lokuðu á þetta :-"



Skjámynd

beatmaster
Besserwisser
Póstar: 3077
Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
Reputation: 45
Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf beatmaster » Sun 12. Okt 2014 12:10

Af hverju er þessi síða enþá uppi?


Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.

Skjámynd

Kristján
Of mikill frítími
Póstar: 1744
Skráði sig: Sun 02. Jan 2011 12:37
Reputation: 41
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf Kristján » Sun 12. Okt 2014 12:30




Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 253
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf depill » Sun 12. Okt 2014 12:33

Ja eg vona að sem fæstir eru svo vitlausir að halda að Islamic state geti fengið TLD bara sí svona. En hins vegar ég er svona smá sammála ISNIC hérna en appel líka.

Aðallega þá vegna þess að mér finnst ekki að þetta eigi að vera geðþóttaákvörðun ISNIC, heldur ætti lögregla/ríki/blalblab að fá bara lögbann á lénið og svo ISNIC að loka i framhaldi af því. Soldið sem ISNIC var að biðja um.

Hins vegar finnst mér Advania vera í meiri rettindum að loka þar sem þetta er á moti ToSinum þeirra enda efni hýst þar. ISNIC er bara registrar og lénið sem slíkt er ekkert offensive.



Skjámynd

Sidious
Ofur-Nörd
Póstar: 241
Skráði sig: Mið 30. Júl 2003 03:01
Reputation: 14
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf Sidious » Sun 12. Okt 2014 12:59

Var að scrolla yfir síðuna hjá þeim. Gat ekki séð neitt sem ég gæti ekki séð á foxnews eða bbc þarna. Eini munirnn var að þetta var frá "vondu" hliðinni. Annars finnst mér allir þeir sem stunda ofbeldi af einhverjum hætti vera í "vonda" liðinu.



Skjámynd

lifeformes
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 369
Skráði sig: Fim 10. Feb 2011 23:58
Reputation: 25
Staðsetning: 66°N
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf lifeformes » Sun 12. Okt 2014 13:06




Skjámynd

Stigsson
Græningi
Póstar: 41
Skráði sig: Lau 08. Des 2012 13:45
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf Stigsson » Sun 12. Okt 2014 13:23

Af hverju viljum við banna vondar skoðanir? Er það betra?
Hver er hættan við það að vondar skoðanir komi fram?



Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf Gúrú » Sun 12. Okt 2014 13:34

hkr skrifaði:[Stjórnarskrá og hegningarlög]


"Svo eru einhverjir spekúlantar á Íslandi að tala um málfrelsið handa þeim? Málfrelsi til að spúa út hatri sínu á öðrum?"

Já. Nákvæmlega málfrelsi, handa nákvæmlega þeim.

Ef þeir brjóta þau lög sem eru í gildi þá tökum við á því eins og siðmenntaða þjóðfélagið sem við þykjumst vera.

Þú getur ekki bara fyrirgert öllu eðlilegu réttarfari því þér líkar ekki við einhvern.

Hvar finnur þú heimild fyrir því í íslenskum lagabálkum eða stjórnarskrá að yfirvöld fyrirgeri málfrelsi einstaklings eða hóps án dómsúrskurðar?

Hver ætlar að fara inn á þessa síðu og finna allan þennan lögbannaða hatursáróður?


Modus ponens

Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5592
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1053
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf appel » Sun 12. Okt 2014 13:37

Stigsson skrifaði:Af hverju viljum við banna vondar skoðanir? Er það betra?
Hver er hættan við það að vondar skoðanir komi fram?


Vondar skoðanir eru eitt, en að þetta sé opinber vettvangur fjöldamorðingja til að tjá sig og spúa hatri sínu og myndum af glæpum sínum er annað.


*-*

Skjámynd

Revenant
</Snillingur>
Póstar: 1034
Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
Reputation: 132
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf Revenant » Sun 12. Okt 2014 13:48

appel skrifaði:
Stigsson skrifaði:Af hverju viljum við banna vondar skoðanir? Er það betra?
Hver er hættan við það að vondar skoðanir komi fram?


Vondar skoðanir eru eitt, en að þetta sé opinber vettvangur fjöldamorðingja til að tjá sig og spúa hatri sínu og myndum af glæpum sínum er annað.


Eru drónaárásir BNA á óbreytta borgara eitthvað öðruvísi? Bandaríkin skilgreina sem dæmi alla karlmenn frá 18 ára aldri sem óvinastríðsmenn. Í þeirra augum hafa engir óbreyttir borgarar látist.
Afhverju leyfum við BNA að drepa óbreytta borgara en IS ekki?



Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5592
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1053
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf appel » Sun 12. Okt 2014 13:56

ISNIC lokar á lénið:


Mikilvæg tilkynning

ISNIC vill að gefnu tilefni taka fram að þegar hefur verið gripið til viðeigandi ráðstafana varðandi lén sem mikið hefur verið í fréttum undanfarna 2 daga. Lénið virðist tengjast, eða vera á vegum, þekktra öfgasamtaka sem kenna sig við Ríki Islams, stundum nefnt ISIS.

Eftir ítarlega skoðun hefur komið í ljós að skráningu lénsins er ábótavant, ólíkt því sem haldið var í fyrstu. Því getur ISNIC lokað léninu á grundvelli 12. reglu um skráningar .is léna verði skráning þess ekki lagfærð. Verði hún lagfærð mun ISNIC grípa til óvenjulegs úrræðis og kæra skráningu þess til Úrskurðarnefndar ISNIC á þeirri forsendu að skráningin sé ekki gerð samkvæmt meginreglunni, „að skrá lén í góðri trú“ og að núverandi notkun lénsins skaði orðspor höfuðlénsins .is. Við það getur ISNIC ekki búið frekar en aðrir.

ISNIC hvetur alla til að fjalla ekki um lénið með beinum hætti og rita nafn þess ekki á vef. Slíkt gerir lénið enn þekktara. ISNIC getur þó ekki gripið jafnhratt inn í málin og margir vildu helst sjá.

ISNIC

http://www.isnic.is/is/


*-*


hkr
spjallið.is
Póstar: 407
Skráði sig: Fös 23. Jan 2009 14:22
Reputation: 15
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf hkr » Sun 12. Okt 2014 14:39

Gúrú skrifaði:Ef þeir brjóta þau lög sem eru í gildi þá tökum við á því eins og siðmenntaða þjóðfélagið sem við þykjumst vera.

Þú getur ekki bara fyrirgert öllu eðlilegu réttarfari því þér líkar ekki við einhvern.

Hvar finnur þú heimild fyrir því í íslenskum lagabálkum eða stjórnarskrá að yfirvöld fyrirgeri málfrelsi einstaklings eða hóps án dómsúrskurðar?


Ég var nú bara að benda þér á að hatursáróður væri ólölegur, ekkert meira né minna en það. Veit því ekki alveg hvaðan þessar spurning koma..

En svo best sem ég veit að þá gerði íslenska ríkið ekkert í þessu, þetta var alfarið advania og isnic. Persónulega finnst mér það nokkuð siðmenntað hvernig var farið að þessu máli, þessi síða braut skilmála bæði advania og isnic og það er þeirra réttur að slíta þeim viðskiptum sem stangast á við þá.



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6798
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 940
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf Viktor » Sun 12. Okt 2014 14:49

Burtséð frá þessu þá finnst mér almennt mjög umhugsunarvert hversu auðvelt það er fyrir útlendinga að fá IS lén.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

Stuffz
ÜberAdmin
Póstar: 1335
Skráði sig: Lau 11. Mar 2006 18:39
Reputation: 100
Staðsetning: 109 Rvk
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf Stuffz » Sun 12. Okt 2014 15:05

Ég held að það sé nú frekar fjarstæðukennt að .is sé tengt við Islam State, frekar en Israel State eða eitthvern annan af þúsundum möguleika á smakkstöfuninni "IS"

kannski IIS (Icelandic Intelligence Service) ætti að skipta um nafn líka, just in case :ninjasmiley

eða SS pylsur..

Mynd


EDIT:

fann að IIS er búið að skipta um nafn

http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_in ... es#Iceland

spurning hvort það hafi verið nýverið eða?


Intel NUC Hades Canyon 8Tb NVME +8Tb SSD +80Tb HDD, Nvidia Shield Android TV, Xbox Series X, Xiaomi 4K Projector
CAMS: Insta360 X3, X4, FLOW, GO, ACE Pro, Skydio 2. Rafskjótar: E-20, KS-16S, KS-S22, EB Commander
Búnaður: Lazyrolling Armored Jacket, Alpha Motorsport-pants, TSG Pass Pro, Fox Proframe
187 KP Wrist Guards, Leatt Dual-Axis, Kinetic DL EUC Shoes, P65 BOBLBEE Backpack

Skjámynd

Frantic
FanBoy
Póstar: 797
Skráði sig: Mið 04. Mar 2009 17:43
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf Frantic » Sun 12. Okt 2014 15:50

egillth skrifaði:
sérstaklega þegar þessum aðilum verður leyft að búa hér til lén og hýsa vefsíður sínar undir þessu léni


Tjáningarfrelsi gildir jafnt um alla.

Það sem er varhugarvert er ákvörðun Advania að loka fyrir þessa vefsíðu af engri sérstakri ástæðu að því er virðist.

Þeir brjóta skilmála Advania.
Svo hlýtur það að vera ólöglegt að stunda viðskipti við hryðjuverkamenn.



Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5592
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1053
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf appel » Sun 12. Okt 2014 16:03

ISNIC er bara búið að mála sig út í horn með því að hafa ekki betri reglur sem leyfa þeim að loka á svona aðila. Í raun er þetta dæmi um amatörisma, að opna á að hver sem er geti skráð .is lén og hafa reglur sem leyfa þeim ekki einu sinni að hafna að veita ákveðnum aðilum þjónustu án ástæðu. Allir sem starfa á internetinu eru með þannig ákvæði til þess að geta gripið inn í ef upp koma ófyrirséð mál.

En reglur ISNIC skipta engu máli, ég held að forsætisráðherra sé ekkert að pæla í því hvað standi í reglum ISNIC upp á að geta lokað á þetta lén. Hann horfir bara á málið þannig að fyrst þetta kom upp og ISNIC virðist vera ófært um að loka á þetta þá þurfi að færa yfirráð á .is léninu undir stjórn íslenskra stjórnvalda. Menn eru að átta sig á mikilvægi .is lénsins, að þetta sé þjóðarauðkenni, landslén, og óeðlilegt sé að það sé undir stjórn einkafyrirtækis sem passi ekki upp á hagsmuni Íslands og íslensku þjóðarinnar.


*-*

Skjámynd

Stuffz
ÜberAdmin
Póstar: 1335
Skráði sig: Lau 11. Mar 2006 18:39
Reputation: 100
Staðsetning: 109 Rvk
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf Stuffz » Sun 12. Okt 2014 16:56

appel skrifaði:ISNIC er bara búið að mála sig út í horn með því að hafa ekki betri reglur sem leyfa þeim að loka á svona aðila. Í raun er þetta dæmi um amatörisma, að opna á að hver sem er geti skráð .is lén og hafa reglur sem leyfa þeim ekki einu sinni að hafna að veita ákveðnum aðilum þjónustu án ástæðu. Allir sem starfa á internetinu eru með þannig ákvæði til þess að geta gripið inn í ef upp koma ófyrirséð mál.

En reglur ISNIC skipta engu máli, ég held að forsætisráðherra sé ekkert að pæla í því hvað standi í reglum ISNIC upp á að geta lokað á þetta lén. Hann horfir bara á málið þannig að fyrst þetta kom upp og ISNIC virðist vera ófært um að loka á þetta þá þurfi að færa yfirráð á .is léninu undir stjórn íslenskra stjórnvalda. Menn eru að átta sig á mikilvægi .is lénsins, að þetta sé þjóðarauðkenni, landslén, og óeðlilegt sé að það sé undir stjórn einkafyrirtækis sem passi ekki upp á hagsmuni Íslands og íslensku þjóðarinnar.



Hvar vilt þú draga línuna?


Intel NUC Hades Canyon 8Tb NVME +8Tb SSD +80Tb HDD, Nvidia Shield Android TV, Xbox Series X, Xiaomi 4K Projector
CAMS: Insta360 X3, X4, FLOW, GO, ACE Pro, Skydio 2. Rafskjótar: E-20, KS-16S, KS-S22, EB Commander
Búnaður: Lazyrolling Armored Jacket, Alpha Motorsport-pants, TSG Pass Pro, Fox Proframe
187 KP Wrist Guards, Leatt Dual-Axis, Kinetic DL EUC Shoes, P65 BOBLBEE Backpack


egillth
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Fös 02. Apr 2010 02:52
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf egillth » Sun 12. Okt 2014 17:49

appel skrifaði:ISNIC er bara búið að mála sig út í horn með því að hafa ekki betri reglur sem leyfa þeim að loka á svona aðila. Í raun er þetta dæmi um amatörisma, að opna á að hver sem er geti skráð .is lén og hafa reglur sem leyfa þeim ekki einu sinni að hafna að veita ákveðnum aðilum þjónustu án ástæðu. Allir sem starfa á internetinu eru með þannig ákvæði til þess að geta gripið inn í ef upp koma ófyrirséð mál.

En reglur ISNIC skipta engu máli, ég held að forsætisráðherra sé ekkert að pæla í því hvað standi í reglum ISNIC upp á að geta lokað á þetta lén. Hann horfir bara á málið þannig að fyrst þetta kom upp og ISNIC virðist vera ófært um að loka á þetta þá þurfi að færa yfirráð á .is léninu undir stjórn íslenskra stjórnvalda. Menn eru að átta sig á mikilvægi .is lénsins, að þetta sé þjóðarauðkenni, landslén, og óeðlilegt sé að það sé undir stjórn einkafyrirtækis sem passi ekki upp á hagsmuni Íslands og íslensku þjóðarinnar.


Mála sig út í horn? ISNIC hefur reglur og fer eftir þeim.

Það má vel vera að ISNIC loki fyrir lénið út frá einhverjum reglum og þá er það flott mál, en að stjórnvöld ætli sér að loka fyrir þetta án dómsúrskurðar er árás á málfrelsið.

Það er enginn gullinn meðalvegur, ef við lokum á vefsíður útaf því okkur líkar ekki við innihald þeirra þá er það ekkert annað en ritskoðun, sama hvernig það er réttlætt.



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6798
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 940
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf Viktor » Sun 12. Okt 2014 18:09

Ulli skrifaði:Það að menn séu að ræða það að það sé verið að brjóta á þessum hóp fynst mér allveg magnað :face


Það verður eitt yfir alla að ganga.

egillth skrifaði:Það er enginn gullinn meðalvegur, ef við lokum á vefsíður útaf því okkur líkar ekki við innihald þeirra þá er það ekkert annað en ritskoðun, sama hvernig það er réttlætt.


Amen.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


Hamsurd
Bannaður
Póstar: 110
Skráði sig: Fim 13. Sep 2012 19:14
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf Hamsurd » Sun 12. Okt 2014 18:15

ISNIC eru aular, 9 til 5 aumingjar med avisun a manadarlaun og hafa ekkert ad gera i vinunni en ad runka ser og fara snemma heim, ekki er haegt ad reka thetta pakk, thi thad vaeri a botum thar sem eftir er.



Skjámynd

lifeformes
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 369
Skráði sig: Fim 10. Feb 2011 23:58
Reputation: 25
Staðsetning: 66°N
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf lifeformes » Sun 12. Okt 2014 18:35

Afhverju eru menn að verja þetta

þetta er á forsíðuni þeirra :thumbsd



:edit ég fjarlægði myndina, hún á ekki heima hér. (appel)



Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5592
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1053
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf appel » Sun 12. Okt 2014 18:39

egillth skrifaði:
appel skrifaði:ISNIC er bara búið að mála sig út í horn með því að hafa ekki betri reglur sem leyfa þeim að loka á svona aðila. Í raun er þetta dæmi um amatörisma, að opna á að hver sem er geti skráð .is lén og hafa reglur sem leyfa þeim ekki einu sinni að hafna að veita ákveðnum aðilum þjónustu án ástæðu. Allir sem starfa á internetinu eru með þannig ákvæði til þess að geta gripið inn í ef upp koma ófyrirséð mál.

En reglur ISNIC skipta engu máli, ég held að forsætisráðherra sé ekkert að pæla í því hvað standi í reglum ISNIC upp á að geta lokað á þetta lén. Hann horfir bara á málið þannig að fyrst þetta kom upp og ISNIC virðist vera ófært um að loka á þetta þá þurfi að færa yfirráð á .is léninu undir stjórn íslenskra stjórnvalda. Menn eru að átta sig á mikilvægi .is lénsins, að þetta sé þjóðarauðkenni, landslén, og óeðlilegt sé að það sé undir stjórn einkafyrirtækis sem passi ekki upp á hagsmuni Íslands og íslensku þjóðarinnar.


Mála sig út í horn? ISNIC hefur reglur og fer eftir þeim.

Það má vel vera að ISNIC loki fyrir lénið út frá einhverjum reglum og þá er það flott mál, en að stjórnvöld ætli sér að loka fyrir þetta án dómsúrskurðar er árás á málfrelsið.

Það er enginn gullinn meðalvegur, ef við lokum á vefsíður útaf því okkur líkar ekki við innihald þeirra þá er það ekkert annað en ritskoðun, sama hvernig það er réttlætt.


Auðvitað á að vera hægt að loka á meinsemdir, annað væri rugl.


*-*


egillth
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Fös 02. Apr 2010 02:52
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf egillth » Sun 12. Okt 2014 19:05

appel skrifaði:Auðvitað á að vera hægt að loka á meinsemdir, annað væri rugl.


Með dómsúrskurði já. Öllum er frjálst að kæra tilvist lénsins.



Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 5592
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1053
Staða: Ótengdur

Re: .is = Islamic State

Pósturaf appel » Sun 12. Okt 2014 19:51

Jæja, ISNIC búið að loka á þá. Fint fyrir þá. Svo er næsta skrefið auðvitað að vera með varnagla í reglunum varðandi sambærileg mál.

http://ruv.is/frett/isnic-hefur-lokad-vef-is


*-*