Vesen við tengja Dimmer ....

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
hagur
Besserwisser
Póstar: 3125
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 455
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Vesen við tengja Dimmer ....

Pósturaf hagur » Lau 04. Okt 2014 23:15

Sælir,

Enn á ný leita ég á náðir rafvirkjanna hérna (eða a.m.k þeirra sem kunna meira en ég í þessum efnum).

Ég er að skipta út venjulegum rofa fyrir dimmer. Ég hef marg oft tengt allskonar dimmera og það hefur aldrei verið neitt vandamál, hingað til hafa þeir verið bara með tvo innganga eins og venjulegir rofar og no brainer að tengja þá.

Núna er ég semsagt með JUNG dimmer og hann virðist vera með fjóra innganga, þó svo að a.m.k tveir þeirra séu nú báðir merktir með L. Þetta er eitthvað að flækjast fyrir mér, kannski best að sýna bara mynd:

http://haukurhaf.net/IMG_2787.jpg

Leiðbeiningarnar:

http://haukurhaf.net/IMG_2788.jpg

Ég er semsagt bara með tvo víra sem fóru áður í rofann. Ef ég tengi þessa víra saman, þá kviknar á loftljósinu (eðlilega). Ég tel mig vera búinn að fara eftir leiðbeiningunum, þ.e annan vírinn í L og hinn í N en þetta virkar bara ekki neitt.

Einhverjar hugmyndir? Er reyndar búinn að prófa eitt og annað, spurning hvort ég sé bara búinn að skemma dimmerinn :-"



Skjámynd

Oak
Bara að hanga
Póstar: 1590
Skráði sig: Fim 15. Okt 2009 16:51
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Vesen við tengja Dimmer ....

Pósturaf Oak » Lau 04. Okt 2014 23:22

Hvernig perur ertu að reyna að dimma?
Sparperur?


i7 950 @ 3.2 GHz | Scythe Yasha | GA-X58A-UD3R | Mushkin 12GB kit (3x4GB) DDR3 1333MHz | PNY GTX570 | HDD 1 TB | Tacens 700W | 24" ViewSonic | W7 x64

Skjámynd

Höfundur
hagur
Besserwisser
Póstar: 3125
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 455
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vesen við tengja Dimmer ....

Pósturaf hagur » Lau 04. Okt 2014 23:43

Nei bara glóperu, venjulega.



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vesen við tengja Dimmer ....

Pósturaf jonsig » Lau 04. Okt 2014 23:47

Þetta er sami tengipunktur, L=live/fasi . Þetta eru bara tveir pólar.
tengdu fasann í annaðhvort L, skiptir ekki máli og örin er póll millilínu fyrir ljósið. Þú tengir ekkert N í þetta nema þú viljir drepa dimminn

2. Ekki vera vesenast í lágspennu réttindalaus. Tryggingarnar nýta sér það til fulls.




konice
Fiktari
Póstar: 64
Skráði sig: Fös 04. Feb 2011 15:38
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Vesen við tengja Dimmer ....

Pósturaf konice » Sun 05. Okt 2014 00:01

Ertu með 1 peru, hvað er hún stór þarf að vera lágmarksálag svo dimmerinn virki líklega 60w.



Skjámynd

Höfundur
hagur
Besserwisser
Póstar: 3125
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 455
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vesen við tengja Dimmer ....

Pósturaf hagur » Sun 05. Okt 2014 00:24

Já ég er með 100W peru. Ætla að skoða þetta betur. Það er líka öryggi í dimmernum, ætla að checka hvort það sé nokkuð farið.

Takk fyrir svörin.



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vesen við tengja Dimmer ....

Pósturaf jonsig » Sun 05. Okt 2014 12:51

hagur skrifaði:Já ég er með 100W peru. Ætla að skoða þetta betur. Það er líka öryggi í dimmernum, ætla að checka hvort það sé nokkuð farið.

Takk fyrir svörin.


Ef þetta virkar ekki eins og ég lýsti þessu þá ertu búinn að stúta einhverju með að setja 230V yfir spenninn án álags.



Skjámynd

Höfundur
hagur
Besserwisser
Póstar: 3125
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 455
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vesen við tengja Dimmer ....

Pósturaf hagur » Sun 05. Okt 2014 12:56

Já mér sýnist það. Hann virðist vera alveg dauður, er búinn að prófa að skipta um öryggi í honum en samt ekki neitt. Annaðhvort var hann bara gallaður eða að mér hafi tekist að skemma hann. Kemur í "ljós" (pun intended).



Skjámynd

Oak
Bara að hanga
Póstar: 1590
Skráði sig: Fim 15. Okt 2009 16:51
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Vesen við tengja Dimmer ....

Pósturaf Oak » Sun 05. Okt 2014 13:35

Tengdirðu bláan eitthvað inná hann?


i7 950 @ 3.2 GHz | Scythe Yasha | GA-X58A-UD3R | Mushkin 12GB kit (3x4GB) DDR3 1333MHz | PNY GTX570 | HDD 1 TB | Tacens 700W | 24" ViewSonic | W7 x64

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vesen við tengja Dimmer ....

Pósturaf jonsig » Sun 05. Okt 2014 14:07

hagur skrifaði:Sælir,

Enn á ný leita ég á náðir rafvirkjanna hérna (eða a.m.k þeirra sem kunna meira en ég í þessum efnum).

Ég er að skipta út venjulegum rofa fyrir dimmer. Ég hef marg oft tengt allskonar dimmera og það hefur aldrei verið neitt vandamál, hingað til hafa þeir verið bara með tvo innganga eins og venjulegir rofar og no brainer að tengja þá.

Núna er ég semsagt með JUNG dimmer og hann virðist vera með fjóra innganga, þó svo að a.m.k tveir þeirra séu nú báðir merktir með L. Þetta er eitthvað að flækjast fyrir mér, kannski best að sýna bara mynd:

http://haukurhaf.net/IMG_2787.jpg

Leiðbeiningarnar:

http://haukurhaf.net/IMG_2788.jpg

Ég er semsagt bara með tvo víra sem fóru áður í rofann. Ef ég tengi þessa víra saman, þá kviknar á loftljósinu (eðlilega). Ég tel mig vera búinn að fara eftir leiðbeiningunum, þ.e annan vírinn í L og hinn í N en þetta virkar bara ekki neitt.

Einhverjar hugmyndir? Er reyndar búinn að prófa eitt og annað, spurning hvort ég sé bara búinn að skemma dimmerinn :-"



það er búið að stúta þessum dimmi með fúski .



Skjámynd

Höfundur
hagur
Besserwisser
Póstar: 3125
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 455
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vesen við tengja Dimmer ....

Pósturaf hagur » Sun 05. Okt 2014 14:34

Ég tengdi bara fasann í annað L tengið og svo hinn vírinn (sem fer í ljósið) í hitt tengið. Tengdi aldrei bláan í þetta. En jæja, ég prófa annan dimmi.



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 254
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Vesen við tengja Dimmer ....

Pósturaf depill » Sun 05. Okt 2014 16:54

Ef ég má ræna þessu þræði pinkulítið. Er ég að skilja jonsig rétt að maður eigi að fá sér rafvirkja til að hengja upp/tengja ljós og tengja rofa ?



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6799
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 940
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vesen við tengja Dimmer ....

Pósturaf Viktor » Sun 05. Okt 2014 17:19

depill skrifaði:Ef ég má ræna þessu þræði pinkulítið. Er ég að skilja jonsig rétt að maður eigi að fá sér rafvirkja til að hengja upp/tengja ljós og tengja rofa ?


Mér skilst að þú megir ekki skrúfa neitt svona húsarafmagn í sundur nema vera rafvirki.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vesen við tengja Dimmer ....

Pósturaf jonsig » Sun 05. Okt 2014 21:39

depill skrifaði:Ef ég má ræna þessu þræði pinkulítið. Er ég að skilja jonsig rétt að maður eigi að fá sér rafvirkja til að hengja upp/tengja ljós og tengja rofa ?


Hljómaði ég eins og hálfviti :D ? Þú getur kvartað yfir þessu í mannvirkjastofnun ef þér hentar , eða hringt í brunavarnir ríkissins eða hvað nýjasta nafnið á þeim er akkúrat núna og spurt útí þetta.

Ég þekki til þess dæmi að einhver jólasveinn hafi verið að tengja eitthvað heima hjá sér og valið skaða á mönnum eða dýrum og fengið skaðabótaábyrgð á sig . Sem er fínasta mál, fúskarar eiga ekkert að vera leika sér við hættulegar spennur .

Flottasta dæmið er þegar einhver hálfviti "jarðtengdi" baðkarið heima hjá sér með N í stað PEN og olli skaða , síðan ætlaði hann að kenna rafvirkjanum um moddið sitt haha.



Skjámynd

Gunnar
Vaktari
Póstar: 2347
Skráði sig: Fös 08. Ágú 2008 00:11
Reputation: 59
Staðsetning: 105 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vesen við tengja Dimmer ....

Pósturaf Gunnar » Sun 05. Okt 2014 21:51

Ég ef þurft að laga einfaldann tengil hjá fyrirtæki utaf það var alltaf að slá út lekaliðanum, þá hafði hann tengt N í jörðina og öfugt.



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vesen við tengja Dimmer ....

Pósturaf jonsig » Sun 05. Okt 2014 21:55

Gunnar skrifaði:Ég ef þurft að laga einfaldann tengil hjá fyrirtæki utaf það var alltaf að slá út lekaliðanum, þá hafði hann tengt N í jörðina og öfugt.


Fullt af B og C klassa rafvirkjum , en þeir eru amk tryggðir hafi þeir löggildingu .



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 254
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Vesen við tengja Dimmer ....

Pósturaf depill » Sun 05. Okt 2014 22:00

jonsig skrifaði:
depill skrifaði:Ef ég má ræna þessu þræði pinkulítið. Er ég að skilja jonsig rétt að maður eigi að fá sér rafvirkja til að hengja upp/tengja ljós og tengja rofa ?


Hljómaði ég eins og hálfviti :D ? Þú getur kvartað yfir þessu í mannvirkjastofnun ef þér hentar , eða hringt í brunavarnir ríkissins eða hvað nýjasta nafnið á þeim er akkúrat núna og spurt útí þetta.

Ég þekki til þess dæmi að einhver jólasveinn hafi verið að tengja eitthvað heima hjá sér og valið skaða á mönnum eða dýrum og fengið skaðabótaábyrgð á sig . Sem er fínasta mál, fúskarar eiga ekkert að vera leika sér við hættulegar spennur .

Flottasta dæmið er þegar einhver hálfviti "jarðtengdi" baðkarið heima hjá sér með N í stað PEN og olli skaða , síðan ætlaði hann að kenna rafvirkjanum um moddið sitt haha.


Ekki að kvarta og ekki að kalla þig hálfvita. Meira spyr sá sem ekki veit. Gott að vita samt. Flestir sem ég þekki hika ekki við að skipta og rofa. án þess að vita svona. Ég þarf greinilega að athuga heima hjá mér. Það er allt soldið fúskað frá fyrri eiganda spruning að ég láti taka út hjá mér.



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vesen við tengja Dimmer ....

Pósturaf jonsig » Sun 05. Okt 2014 22:04

Ef það verður eitthvað slys þá fellur það líklega á fúskarann , en þú gætr þurft að taka á þig skaða .

Þessar reglur má líklegast túlka út frá RUR (reglugerð um raforkuvirki ) samkvæmt bókstafnum máttu ekki skipta um peru heima hjá þér nema það sé kannski 12V halógen :)



Skjámynd

Höfundur
hagur
Besserwisser
Póstar: 3125
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 455
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vesen við tengja Dimmer ....

Pósturaf hagur » Sun 05. Okt 2014 22:08

Ég hika ekki við að gera eitthvað sjálfur sem ég treysti mér til, sbr. að setja upp ljós og skipta um rofa og tengla. Ég veit þó alveg að með réttu *ætti* ég að fá fagaðila í þetta. Aftur á móti hika ég ekki við að kalla í rafvirkja ef það þarf að gera eitthvað umfram þetta sem ég nefndi og hef raunar oft fengið rafvirkja til að græja ýmsa hluti fyrir mig.



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vesen við tengja Dimmer ....

Pósturaf jonsig » Sun 05. Okt 2014 22:10

Það er alltílagi að gera hluti ef maður getur tekið ábyrgð á þeim . Sé barasta ekkert að því .