Klaufi skrifaði:Tiger skrifaði:Fæ minn í hendurnar þegar ég lendi í Florida annað kvöld. Skal senda inn report fljótlega eftir það
Hvernig eru fyrstu viðbrögð..?
Búinn að vera með hann núna í rúma viku og kom heim í gær. Get staðfest að ólæsti T-Mobile síminn virkar hérna heima með 4G allavegana. Mér finnst hann mjög fínn, maður þarf að venjast stærðinni svolítið og með svona litla putta eins og ég þá er ég stundum að lenda í að þurfa að teygja mig í stafi þegar ég skrifa. Hann er rosalega slick og flottur, eiginlega of slick og því auðvelt að missa hann, ég keypti mér Apple bumper daginn eftir og það er miklu þægilgra.
Það er tvímælalaust búið að bæta fingrafaraskannann (þótt hann var MJÖG góður) því maður lenti stundum í veseni ef maður var blautur eða með raka fingur, það er mun betra núna. Að öðru leiti, ekki stórt stökk frá 5s nema stærðin. Mjög sáttur.