Að borga hugbúnaðarverkfræðing 1.milljón fyrir...

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
GönguHrólfur
has spoken...
Póstar: 160
Skráði sig: Fös 07. Jún 2013 14:43
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Að borga hugbúnaðarverkfræðing 1.milljón fyrir...

Pósturaf GönguHrólfur » Sun 03. Ágú 2014 16:13

Ég er að fara að stofna nýtt fyrirtæki á næsta ári, og upprunalega pælingin var að borga hugbúnaðarverkfræðing 1.milljón ISK, fyrir að búa til forritið sem ég er með í huga + 15% hlut í fyrirtækinu.

Eru einhverjir hérna sem eru með þessa menntun og gætu hugsanlega tekið þetta í mál? Annars væri líka fínt að heyra hvað öðrum hérna finnst.

Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Að borga hugbúnaðarverkfræðing 1.milljón fyrir...

Pósturaf tdog » Sun 03. Ágú 2014 16:14

Ertu viss um að það sé ekki svona forrit til á markaðinum nú þegar?

Skjámynd

Höfundur
GönguHrólfur
has spoken...
Póstar: 160
Skráði sig: Fös 07. Jún 2013 14:43
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: Að borga hugbúnaðarverkfræðing 1.milljón fyrir...

Pósturaf GönguHrólfur » Sun 03. Ágú 2014 16:51

tdog skrifaði:Ertu viss um að það sé ekki svona forrit til á markaðinum nú þegar?

Ef svo er, þá er það ekki mjög opinbert því ég hef leitað nokkuð gaumgæfilega..

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3833
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 149
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Að borga hugbúnaðarverkfræðing 1.milljón fyrir...

Pósturaf Daz » Sun 03. Ágú 2014 17:02

Voðalega erfitt að segja til um svona tilboð, fer aðalega eftir því hversu mikil vinna þetta er fyrir "starfsmanninn" og hversu mikið þú ætlar að leggja fram annað en hugmyndina.

Skjámynd

intenz
Besserwisser
Póstar: 3337
Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
Reputation: 35
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Re: Að borga hugbúnaðarverkfræðing 1.milljón fyrir...

Pósturaf intenz » Sun 03. Ágú 2014 17:08

Það er ekki hægt að segja svona. Ef þetta verkefni tekur ár í vinnu gerir það ~520 kr. í tímakaup. Best er að negla niður lista yfir allar kröfur í kerfinu og fá hugbúnaðarverkfræðing til að leggja tíma hversu lengi hann væri að útfæra allar kröfurnar. Út frá því er hægt að sirka út hversu langan tíma þetta tekur og áætlaðan kostnað. Út frá því er hægt að ræða laun ofl.

i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64

Skjámynd

Höfundur
GönguHrólfur
has spoken...
Póstar: 160
Skráði sig: Fös 07. Jún 2013 14:43
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: Að borga hugbúnaðarverkfræðing 1.milljón fyrir...

Pósturaf GönguHrólfur » Sun 03. Ágú 2014 17:14

intenz skrifaði:Það er ekki hægt að segja svona. Ef þetta verkefni tekur ár í vinnu gerir það ~520 kr. í tímakaup. Best er að negla niður lista yfir allar kröfur í kerfinu og fá hugbúnaðarverkfræðing til að leggja tíma hversu lengi hann væri að útfæra allar kröfurnar. Út frá því er hægt að sirka út hversu langan tíma þetta tekur og áætlaðan kostnað. Út frá því er hægt að ræða laun ofl.

Góðir punktar. Það væri líka snilld ef einhver með þessa menntun gæti gefið sitt álit á þessu; ég efa ekki að það sé svoleiðis menn að finna hér á vaktinni.

Arkidas
Tölvutryllir
Póstar: 668
Skráði sig: Fös 04. Feb 2005 23:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Að borga hugbúnaðarverkfræðing 1.milljón fyrir...

Pósturaf Arkidas » Sun 03. Ágú 2014 17:59

Sæll, athugaðu einkapóstinn þinn.

blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1760
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 140
Staða: Ótengdur

Re: Að borga hugbúnaðarverkfræðing 1.milljón fyrir...

Pósturaf blitz » Sun 03. Ágú 2014 20:40

Stutt ábending, farðu mjög varlega í að segja fólki frá hugmyndinni ef þú ert ekki búinn að spjalla við lögfræðing sem er með þekkingu á einkaleyfum og einkarétti.

PS4

Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3759
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Að borga hugbúnaðarverkfræðing 1.milljón fyrir...

Pósturaf Pandemic » Mán 04. Ágú 2014 00:09

blitz skrifaði:Stutt ábending, farðu mjög varlega í að segja fólki frá hugmyndinni ef þú ert ekki búinn að spjalla við lögfræðing sem er með þekkingu á einkaleyfum og einkarétti.

Ég er ekki sammála, það eru oftast fyrstu mistökin sem gerð eru þegar kemur að frumkvöðlastarfi að segja engum frá hugmydinni. Þú vilt skapa áhuga á hugmyndinni og fá fólk með þér til að vinna í henni annars verður hún aldrei að veruleika. Það er framkvæmdin sem skiptir máli ekki hugmyndin.
Svo er milljón og ein leið til að komast framhjá einkaleyfum í hugbúnaðargeiranum og ómögulegt að framfylgja þeim ef þetta er einhverskonar þjónusta, vefsíða eða app.

"Ideas Are A Dime A Dozen, Execution Is All That Matters" - höfundur óþekktur

Annað sem ég velti mér fyrir er af hverju það þarf sérstaklega að vera hugbúnaðarverkfræðingur, getur þetta ekki verið tölvunarfræðingur eða jafnvel sjálfmenntaður forritari með mikla reynslu? Allt fólk með svipaða reynslu/menntun

Skjámynd

Höfundur
GönguHrólfur
has spoken...
Póstar: 160
Skráði sig: Fös 07. Jún 2013 14:43
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: Að borga hugbúnaðarverkfræðing 1.milljón fyrir...

Pósturaf GönguHrólfur » Mán 04. Ágú 2014 00:41

Pandemic skrifaði:Annað sem ég velti mér fyrir er af hverju það þarf sérstaklega að vera hugbúnaðarverkfræðingur, getur þetta ekki verið tölvunarfræðingur eða jafnvel sjálfmenntaður forritari með mikla reynslu? Allt fólk með svipaða reynslu/menntun

Jújú, ég var nú bara að leggja áherslu að ég er að leita að einhverjum sem kann sitt fag, ferilskrá gefur t.d góða hugmynd um kunnáttu..

dadik
Tölvutryllir
Póstar: 636
Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
Reputation: 112
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Að borga hugbúnaðarverkfræðing 1.milljón fyrir...

Pósturaf dadik » Mán 04. Ágú 2014 02:58

Áður en þú færð einhvern til að meta umfangið á verkefninu er sniðugt að láta viðkomandi skrifa undir non-disclosure agreement (NDA). Þessir samningar eru yfirleitt allaf notaðir þegar fyrirtæki skiptast á upplýsingum varðandi hugverkarétt til að tryggja að annar aðilinn geti ekki stolið hönnun, algrímum eða kóða frá hinum til þess að framleiða svipað eða sambærilega vöru.

ps5 ¦ zephyrus G14

Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1557
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 230
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Að borga hugbúnaðarverkfræðing 1.milljón fyrir...

Pósturaf depill » Mán 04. Ágú 2014 16:31

Pandemic skrifaði:
blitz skrifaði:Stutt ábending, farðu mjög varlega í að segja fólki frá hugmyndinni ef þú ert ekki búinn að spjalla við lögfræðing sem er með þekkingu á einkaleyfum og einkarétti.

Ég er ekki sammála, það eru oftast fyrstu mistökin sem gerð eru þegar kemur að frumkvöðlastarfi að segja engum frá hugmydinni. Þú vilt skapa áhuga á hugmyndinni og fá fólk með þér til að vinna í henni annars verður hún aldrei að veruleika. Það er framkvæmdin sem skiptir máli ekki hugmyndin.
Svo er milljón og ein leið til að komast framhjá einkaleyfum í hugbúnaðargeiranum og ómögulegt að framfylgja þeim ef þetta er einhverskonar þjónusta, vefsíða eða app.

"Ideas Are A Dime A Dozen, Execution Is All That Matters" - höfundur óþekktur

Annað sem ég velti mér fyrir er af hverju það þarf sérstaklega að vera hugbúnaðarverkfræðingur, getur þetta ekki verið tölvunarfræðingur eða jafnvel sjálfmenntaður forritari með mikla reynslu? Allt fólk með svipaða reynslu/menntun

x2. Hefurðu annars kíkt í Innovation House, Klak-Innvoit eða í eithvað af þessum nýsköpunarhúsum til að fá smá feedback á hugmyndina þína. Ómögulegt að segja hvort að 1 milljón sé glatað, geðveikt eða sanngjarnt. Það er soldið eins og spurja hvort það sé sanngjarnt að borga bifvélavirkja 20.000 kr fyrir að gera við bílinn þinn án þess að vita neitt meira.

Skjámynd

Höfundur
GönguHrólfur
has spoken...
Póstar: 160
Skráði sig: Fös 07. Jún 2013 14:43
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: Að borga hugbúnaðarverkfræðing 1.milljón fyrir...

Pósturaf GönguHrólfur » Mán 04. Ágú 2014 17:31

depill skrifaði:

Málið er að hann fær 15% í fyrirtækinu, sem ég persónulega mundi taka í staðin fyrir hærri greiðslu fyrir vinnuna. Peningar deyja en fyrirtæki, eiga það stundum til að vaxa.. ýmindaðu þér að hafa átt bara 0.01% í facebook þegar það var að byrja t.d.

Ég var líka að lesa grein um daginn, um hvernig Sumir aðalleikara Star Wars fengu einhverja 8000 dollara fyrir hlutverk sín eins og James Earl Jones, í staðin fyrir hlut úr gróðanum, á meðan að náunginn sem lék Obi Wan, gerði samning um að fá prósentu frá öllu sem myndin þénaði, hann varð milljónamæringur og fjölskyldan hans er ennþá í dag að fá fúlgu fjár borgað.

Bara svona smá dæmi..

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7403
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1128
Staða: Ótengdur

Re: Að borga hugbúnaðarverkfræðing 1.milljón fyrir...

Pósturaf rapport » Mán 04. Ágú 2014 22:47

http://www.nmi.is/studningur/enn-ad-hug ... -hugmynda/

Af hverju hugbúnaðarverkfræðing en ekki bara kláran forritara/tölvunarfræðing?

Skjámynd

Höfundur
GönguHrólfur
has spoken...
Póstar: 160
Skráði sig: Fös 07. Jún 2013 14:43
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: Að borga hugbúnaðarverkfræðing 1.milljón fyrir...

Pósturaf GönguHrólfur » Þri 05. Ágú 2014 01:04

rapport skrifaði:http://www.nmi.is/studningur/enn-ad-hugsa/einkaleyfi-verndun-hugmynda/

Af hverju hugbúnaðarverkfræðing en ekki bara kláran forritara/tölvunarfræðing?

Ég svaraði þessari spurningu áður í þræðinum, en takk fyrir slóðina, mjög hjálpsamlegt.

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Að borga hugbúnaðarverkfræðing 1.milljón fyrir...

Pósturaf dori » Þri 05. Ágú 2014 11:33

GönguHrólfur skrifaði:
depill skrifaði:
Pandemic skrifaði:
blitz skrifaði:Stutt ábending, farðu mjög varlega í að segja fólki frá hugmyndinni ef þú ert ekki búinn að spjalla við lögfræðing sem er með þekkingu á einkaleyfum og einkarétti.

Ég er ekki sammála, það eru oftast fyrstu mistökin sem gerð eru þegar kemur að frumkvöðlastarfi að segja engum frá hugmydinni. Þú vilt skapa áhuga á hugmyndinni og fá fólk með þér til að vinna í henni annars verður hún aldrei að veruleika. Það er framkvæmdin sem skiptir máli ekki hugmyndin.
Svo er milljón og ein leið til að komast framhjá einkaleyfum í hugbúnaðargeiranum og ómögulegt að framfylgja þeim ef þetta er einhverskonar þjónusta, vefsíða eða app.

"Ideas Are A Dime A Dozen, Execution Is All That Matters" - höfundur óþekktur

Annað sem ég velti mér fyrir er af hverju það þarf sérstaklega að vera hugbúnaðarverkfræðingur, getur þetta ekki verið tölvunarfræðingur eða jafnvel sjálfmenntaður forritari með mikla reynslu? Allt fólk með svipaða reynslu/menntun

x2. Hefurðu annars kíkt í Innovation House, Klak-Innvoit eða í eithvað af þessum nýsköpunarhúsum til að fá smá feedback á hugmyndina þína. Ómögulegt að segja hvort að 1 milljón sé glatað, geðveikt eða sanngjarnt. Það er soldið eins og spurja hvort það sé sanngjarnt að borga bifvélavirkja 20.000 kr fyrir að gera við bílinn þinn án þess að vita neitt meira.

Málið er að hann fær 15% í fyrirtækinu, sem ég persónulega mundi taka í staðin fyrir hærri greiðslu fyrir vinnuna. Peningar deyja en fyrirtæki, eiga það stundum til að vaxa.. ýmindaðu þér að hafa átt bara 0.01% í facebook þegar það var að byrja t.d.

Ég var líka að lesa grein um daginn, um hvernig Sumir aðalleikara Star Wars fengu einhverja 8000 dollara fyrir hlutverk sín eins og James Earl Jones, í staðin fyrir hlut úr gróðanum, á meðan að náunginn sem lék Obi Wan, gerði samning um að fá prósentu frá öllu sem myndin þénaði, hann varð milljónamæringur og fjölskyldan hans er ennþá í dag að fá fúlgu fjár borgað.

Bara svona smá dæmi..
Málið er samt að 90+% svona fyrirtækja feila. Það væri auðvitað frábært ef þetta myndi ganga upp og þú fengir einhvern sem væri spenntur fyrir þessu til að vinna með þér en það er erfitt að segja til um hvort þetta sé "góður díll" eða ekki.

Hvernig sem þú horfir á það þá er þetta aldrei rosa góð laun fyrir þann sem tæki þetta að sér þannig að þú þarft að selja einhverjum hugmyndina. Og ekki reyna að vera of grimmur í því að halda prósentunum þínum því að það gæti verið betra að taka einhvern/einhverja góða inní þetta en að láta verkefnið feila af því að sá eini sem þú fannst sem vildi taka þetta að sér getur ekki deliverað.

Skjámynd

zazou
Græningi
Póstar: 49
Skráði sig: Fim 06. Ágú 2009 13:38
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Að borga hugbúnaðarverkfræðing 1.milljón fyrir...

Pósturaf zazou » Sun 10. Ágú 2014 17:09

Hefurðu skoðað LinkedIn?

Lenovo P50 - Xeon E3-1535m, 64GB, 2x 970 Pro RAID0
Lenovo X1 Carbon - i7-8650U, 16GB 1TB PM981