Mundir þú neyta kannabis ef það yrði löglegt?

Allt utan efnis

Mundir þú neyta kannabis ef það yrði löglegt?

Nei.
164
60%
Já, ég mundi fikta nokkrum sinnum á ári.
56
20%
Já, ég mundi neyta þess c.a. mánaðarlega.
29
11%
Já, vikulega
9
3%
Já, oft í viku, jafnvel daglega.
16
6%
 
Samtals atkvæði: 274

Skjámynd

Stuffz
/dev/null
Póstar: 1338
Skráði sig: Lau 11. Mar 2006 18:39
Reputation: 100
Staðsetning: 109 Rvk
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Mundir þú neyta kannabis ef það yrði löglegt?

Pósturaf Stuffz » Lau 02. Ágú 2014 19:46

Hvorki reyki né drekk

samt hlynntur frelsi til að velja ef endanlegur tilgangur þess er að fá niðurstöðu um hvað er gagnlegt og hverju má sleppa.


Intel NUC Hades Canyon 8Tb NVME +8Tb SSD +80Tb HDD, Nvidia Shield Android TV, Xbox Series X, Xiaomi 4K Projector
CAMS: Insta360 X3, X4, FLOW, GO, ACE Pro, Skydio 2. Rafskjótar: E-20, KS-16S, KS-S22, EB Commander
Búnaður: Lazyrolling Armored Jacket, Alpha Motorsport-pants, TSG Pass Pro, Fox Proframe
187 KP Wrist Guards, Leatt Dual-Axis, Kinetic DL EUC Shoes, P65 BOBLBEE Backpack

Skjámynd

kizi86
Vaktari
Póstar: 2226
Skráði sig: Lau 26. Sep 2009 18:08
Reputation: 170
Staða: Ótengdur

Re: Mundir þú neyta kannabis ef það yrði löglegt?

Pósturaf kizi86 » Lau 02. Ágú 2014 22:10

MrSparklez skrifaði:Ég segi að það ætti að lögleiða þetta, ég tala frá reynslu þegar ég segi að það sé léttara að redda sér grasi heldur en áfengi. Flestir bjórsalar sem ég hef kynnst selja bara til 18 ára og eldri.

sem bendir til þess að þessir bjórsalar hafa einhvern smá vott af siðferðiskennd..


ASRock B650E PG-ITX WiFi AMD Ryzen 9 7950X PowerColor "Red Devil" RX 7900 XTX 24GB G.Skill Trident Z5 RGB 32GB (2 x 16GB) DDR5-6000 stýrikerfi: wd black sn850x 2TB WD RED 4TB WD RED 4TB 65" LG B8 OLED TV

Skjámynd

rattlehead
Ofur-Nörd
Póstar: 252
Skráði sig: Fös 02. Des 2011 11:01
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Mundir þú neyta kannabis ef það yrði löglegt?

Pósturaf rattlehead » Lau 02. Ágú 2014 22:43

Nei að leyfa það yrði ekki hvetjandi fyrir mig að byrja.



Skjámynd

intenz
Besserwisser
Póstar: 3337
Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
Reputation: 35
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Re: Mundir þú neyta kannabis ef það yrði löglegt?

Pósturaf intenz » Lau 02. Ágú 2014 23:25

Nei þar sem þetta fokkar þér upp.


i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64

Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 7585
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1193
Staða: Ótengdur

Re: Mundir þú neyta kannabis ef það yrði löglegt?

Pósturaf rapport » Sun 03. Ágú 2014 01:20

intenz skrifaði:Nei þar sem þetta fokkar þér upp.


Ég var einusinni svona intenz í þessum efnum...

Þetta er gatewaydrug, þetta fokkar í haunsum á fólki sem er veikt fyrir, þetta fokkar í hausnum á fólki sem er ekki veikt fyrir og þetta efni er í dag töluvert mikið sterkara en það sem hipparnir voru að reykja.

EN

Það var portúgalskur vinur minn sem nota bene var mjög á móti lögleiðingunni þar, hann er farinn að tala með þessu.

Í stað þess að það sé eitthvað spennandi við þetta fikt, þá er þetta ekki lengur tabú.

Ríkið stjórnar að einhverju leiti hvað er á markaðinum og ef einhver er gripinn skakkur, þá verður viðkomandi að mæta á námskeið innan viku eða greiða háa sekt.

Ef fólk er gripið með meira magn en viku skammt eða e-h álíka og er ekki með leyfi til að selja, þá fær það þungan dóm fyrir sölu og dreifingu.


Með þessu móti er hægt að gera samfélaginu mikið gagn.


En mér fannst voða fyndið þegar hann sagði mér að húsfélög gætu sett reglur um hvort að reykingar væru leyfðar í húsum eða ekki, rétt eins og gæludýrahald.

Grunar samt að hann hafi verið að grínast með það, held hann hafi verið að púlla í löppina á mér þar...




benderinn333
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 314
Skráði sig: Fim 13. Feb 2014 13:21
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Mundir þú neyta kannabis ef það yrði löglegt?

Pósturaf benderinn333 » Sun 03. Ágú 2014 01:33

rapport skrifaði:
Þetta er gatewaydrug


Það er náttúrulega algert kjaftæði :dead :pjuke


Coolermaster scout. // Msi Z77A-G43. // Intel 3570k @4.5ghz. // Msi 750Ti. // Evga GTX470. // Corsair Dominator 2x2GB. Corsair Vantage 2x4GB. // 160GB Segate. 1TB WD Green.

Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 7585
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1193
Staða: Ótengdur

Re: Mundir þú neyta kannabis ef það yrði löglegt?

Pósturaf rapport » Sun 03. Ágú 2014 02:51

benderinn333 skrifaði:
rapport skrifaði:
Þetta er gatewaydrug


Það er náttúrulega algert kjaftæði :dead :pjuke



Allir sem ég þekki sem hafa farið í eitthvað harðara byrjuðu á þessu.

Það eru þó nokkrir en á lífi þó heldur marga vanti, við getum hreinlega bara spurt.



Skjámynd

Danni V8
Of mikill frítími
Póstar: 1797
Skráði sig: Mán 23. Apr 2007 06:36
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Mundir þú neyta kannabis ef það yrði löglegt?

Pósturaf Danni V8 » Sun 03. Ágú 2014 05:32

Er ekki bara málið að fólk sem fer út í það að reyna að útvega sér þetta byrja á kannabis og mun hvort sem er leita af einhverju sterkara?


Asus ROG Strix Z390-F Gaming | Intel Core i5 9600K @ 4,7GHz | Crosshair H100i | Corsair Vengance 16GB | Asus ROG Strix RTX2060 | Corsair RM 650x


marijuana
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 349
Skráði sig: Fim 04. Feb 2010 15:09
Reputation: 7
Staðsetning: Seltjarnarnes
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Mundir þú neyta kannabis ef það yrði löglegt?

Pósturaf marijuana » Sun 03. Ágú 2014 06:35

MrSparklez skrifaði:Ég segi að það ætti að lögleiða þetta, ég tala frá reynslu þegar ég segi að það sé léttara að redda sér grasi heldur en áfengi. Flestir bjórsalar sem ég hef kynnst selja bara til 18 ára og eldri.


WHAT ?
Ég hef aldrei lent á sala sem selur bara til 18 og eldri.. Flott samt hjá þeim finnst mér..

Annars að umræðuefninu þá er ég mótfallinn því að lögleiða eða afglæpavæða Kannabis einungis. Ég vil sjá okkur taka Portúgal til fyrirmyndar í þessum málum og leyfa allt í raun svo lengi sem það sé ekki skaðlegt fyrir aðra líkamlega. Þinn líkami og þú átt að hafa val hvað þú gerir við hann.



Skjámynd

intenz
Besserwisser
Póstar: 3337
Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
Reputation: 35
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Re: Mundir þú neyta kannabis ef það yrði löglegt?

Pósturaf intenz » Sun 03. Ágú 2014 17:13

marijuana skrifaði:
MrSparklez skrifaði:Ég segi að það ætti að lögleiða þetta, ég tala frá reynslu þegar ég segi að það sé léttara að redda sér grasi heldur en áfengi. Flestir bjórsalar sem ég hef kynnst selja bara til 18 ára og eldri.


WHAT ?
Ég hef aldrei lent á sala sem selur bara til 18 og eldri.. Flott samt hjá þeim finnst mér..

Annars að umræðuefninu þá er ég mótfallinn því að lögleiða eða afglæpavæða Kannabis einungis. Ég vil sjá okkur taka Portúgal til fyrirmyndar í þessum málum og leyfa allt í raun svo lengi sem það sé ekki skaðlegt fyrir aðra líkamlega. Þinn líkami og þú átt að hafa val hvað þú gerir við hann.

Já og þegar þú ert orðinn að grænmeti og óvinnuhæfur þá er auðvelt að fara bara á bætur hjá ríkinu. :lol: =D>


i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64

Skjámynd

grimurkolbeins
Gúrú
Póstar: 532
Skráði sig: Þri 04. Feb 2014 19:07
Reputation: 31
Staða: Ótengdur

Re: Mundir þú neyta kannabis ef það yrði löglegt?

Pósturaf grimurkolbeins » Mán 04. Ágú 2014 12:45

Ég myndi segja nei, þar sem ég tala af persónulegri reynslu, var dagreykingarmaður og endaði það nú bara illa eins og hjá flestum sem ég þekki, leyðir útí annað, þetta er oft kallað ''Gatewaydrug''. Ég er hættur þessu í dag þar sem ég sá hversu illa þetta fer með heilsuna eins og meðal annars að vera að reykja þetta með tóbaki og með engum ''Filter'', filterinn er hannaður til Þess að halda tjörunni inní sígarettunni og með þessu getur fólk lifað lengur með því að reykja enn þegar þú ert komin í ófilteraðan andskota máttu alveg fara að passa þig, þannig mitt svar er NEI :)


Lenovo Legion y520 - Corsair 400c, ASUS ROG Strix GeForce® GTX 1080,Intel Core i7 6800K, Corsair H100i v2, ASUS ROG STRIX X99, ADATA SP550 (SSD)1tb, Corsair Force LE SSD (SSD)250gb, Corsair CX750m, Corsair Vengeance RGB 64GB

Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3089
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Re: Mundir þú neyta kannabis ef það yrði löglegt?

Pósturaf lukkuláki » Mán 04. Ágú 2014 12:55

grimurkolbeins skrifaði:Ég myndi segja nei, þar sem ég tala af persónulegri reynslu, var dagreykingarmaður og endaði það nú bara illa eins og hjá flestum sem ég þekki, leyðir útí annað, þetta er oft kallað ''Gatewaydrug''. Ég er hættur þessu í dag þar sem ég sá hversu illa þetta fer með heilsuna eins og meðal annars að vera að reykja þetta með tóbaki og með engum ''Filter'', filterinn er hannaður til Þess að halda tjörunni inní sígarettunni og með þessu getur fólk lifað lengur með því að reykja enn þegar þú ert komin í ófilteraðan andskota máttu alveg fara að passa þig, þannig mitt svar er NEI :)


Verð nú bara fá að hrósa þér fyrir ákvörðunina um að hætta þessu. Flestir eru að réttlæta þetta og segja að þetta sé ekki "gateway" drug sem það er samt svo sannarlega.
Þetta er ekki eins skaðlaust og margir virðast halda.

Ef þetta er notað í læknisskyni fyrir veikt fólk þá er það sér ræktun sem á ekkert skilt við efnið sem er verið að rækta fyrir almenning í dag.
Eins er efnið sem er verið að rækta í dag mikið mikið sterkara en það var á hippa-tímabilinu þegar fólk var að reykja þetta.

Gott hjá þér. :happy


If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.

Skjámynd

SergioMyth
has spoken...
Póstar: 165
Skráði sig: Þri 05. Nóv 2013 20:46
Reputation: 0
Staðsetning: Bækistöðvarnar
Staða: Ótengdur

Re: Mundir þú neyta kannabis ef það yrði löglegt?

Pósturaf SergioMyth » Mán 04. Ágú 2014 13:30

playman skrifaði:Mætti sossum vera líka í þessum lista "Ég mun neyta þess í læknislegum tilgangi" eða eitthvað álíka.
En ég myndi án efa nota það til þess að hjálpa mér að sofna, í stað þess að þurfa að nota svefntöflur með þeirra aukaverkunum, sem er
sem betur fer ekki daglega.


Hvað með að hreyfa sig, taka meladónín og stilla líkams klukkuna? :) Engar aukaverkanir!


Before I do anything I ask myself “Would an idiot do that?” And if the answer is yes, I do not do that thing.

Skjámynd

MeanGreen
Fiktari
Póstar: 68
Skráði sig: Sun 05. Okt 2008 17:46
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Re: Mundir þú neyta kannabis ef það yrði löglegt?

Pósturaf MeanGreen » Mán 04. Ágú 2014 18:44

SergioMyth skrifaði:
playman skrifaði:Mætti sossum vera líka í þessum lista "Ég mun neyta þess í læknislegum tilgangi" eða eitthvað álíka.
En ég myndi án efa nota það til þess að hjálpa mér að sofna, í stað þess að þurfa að nota svefntöflur með þeirra aukaverkunum, sem er
sem betur fer ekki daglega.


Hvað með að hreyfa sig, taka meladónín og stilla líkams klukkuna? :) Engar aukaverkanir!

Ég reikna með því að þú sért að meina Melatonin? Það þarf víst lyfseðil fyrir því, eftir minni bestu vitund, en er selt over-the-counter í BNA, meðal annars. Ef einhver er með svefntruflanir þá er ekki gott að taka Melatonin í hvert skipti sem maður vill sofna. Langbest er að koma sér upp taktföstum svefnvenjum og láta Melatonin hjálpa sér að stilla líkamsklukkuna til að byrja með. Hætta svo að taka pillurnar, þær eru til að hjálpa, ekki fyrir langtímanotkun. Ráðlegast er þó að tala við lækni!

Ég var á tímabili með verulegar svefntruflanir og notaði meðal annars Melatonin vitlaust. Það sem virkaði þó fyrir mig var að hreyfa mig, borða hollt og allt þetta jari jari jari. Ég fór reglulega að sofa klukkan tíu og tók 1.5-3mg af Melatonin með vatnsglasi þegar ég fór að sofa. Einhversstaðar hafði ég lesið að það væri best að nota Melatonin ekki oftar en 5 daga í röð og taka þá 2 daga off og ekki meira en 5 vikur samtals, taka þá break. Þetta reyndist mér ágætlega og fylgdi ég þessu þangað til ég fór að geta sofnað þægilega sjálfur og sofið í gegnum nóttina.

Það er einnig gott að hafa sem minnst í herberginu, ekkert sjónvarp eða tölvu. Ef maður hefur svefnherbergið einungis sem stað til að sofa/kynlíf, klæða sig og þannig þá er oft auðveldara að sofna. Að horfa á sjónvarpið eða lesa upp í rúmi, spila tölvuleiki í svefnherberginu og fleira getur haft truflandi áhrif á svefn.

Jæja, nóg off-topic. Ég segi nei, það að gera kannabisefni lögleg hefur engin áhrif á því hvort ég fari að neyta þeirra. Mitt stance á flestum vímuefnum er að hófleg neysla er í lagi en misnotkun ekki. Því miður þá er misnotkunin alltaf til staðar, hvort sem efnin eru lögleg eða ekki. Að fangelsa fólk sem á við vanda að stríða tel ég ekki góða vímuefnastefnu.



Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3089
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Re: Mundir þú neyta kannabis ef það yrði löglegt?

Pósturaf lukkuláki » Mán 04. Ágú 2014 19:04

SergioMyth skrifaði:
playman skrifaði:Mætti sossum vera líka í þessum lista "Ég mun neyta þess í læknislegum tilgangi" eða eitthvað álíka.
En ég myndi án efa nota það til þess að hjálpa mér að sofna, í stað þess að þurfa að nota svefntöflur með þeirra aukaverkunum, sem er
sem betur fer ekki daglega.


Hvað með að hreyfa sig, taka meladónín og stilla líkams klukkuna? :) Engar aukaverkanir!


Öll lyf geta haft einhverjar aukaverkanir, melatonin getur valdið höfuðverk, svima, syfju/þreytu á daginn, magakrampa og fleira.


If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.

Skjámynd

GönguHrólfur
has spoken...
Póstar: 160
Skráði sig: Fös 07. Jún 2013 14:43
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: Mundir þú neyta kannabis ef það yrði löglegt?

Pósturaf GönguHrólfur » Mán 04. Ágú 2014 22:14

Einu efnin sem ég þarf eru hormón framleidd af líkama mínum, einna helst endorfín, síðan serótónín og þar á eftir koma dópamín og adrenalín :happy