Svona skemmtilega hressileg álagning á vörum hjá Advania.

Allt utan efnis

Höfundur
nu11
Nýliði
Póstar: 18
Skráði sig: Lau 22. Jan 2005 21:07
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Svona skemmtilega hressileg álagning á vörum hjá Advania.

Pósturaf nu11 » Mán 30. Jún 2014 14:48

Ég er búinn að vera skoða skjái, og tvær tegundir af Dell virðast vera sniðug kaup... neeeema hvað, Advania virðist vera með umboðið hérna, og bíddu halló, erum við að tala um álagningu? Hvaða rugl er þetta í þeim?


30" Dell
Amazon US 148.482 kr. með VSK --- ($1,049.99 verðmiði, eða 118.786 kr.)
Advania 299.990 kr. ~100% álagning*

27" Dell
Amazon US 100.403 kr. með VSK --- ($709.97 verðmiði, eða 80.322 kr.)
Advania 177.890 kr. ~77% álagning*

---- Svo einn annar random skjár úr random búð til samanburðar ----

32" BenQ
Amazon US 123.593 kr. með VSK --- ($873.89 verðmiði, eða 98.875 kr.)
Tölvutek 149.900 kr. ~21% álagning*

(* með sendingarkostnaði)



Ég er í sjálfu sér ekki að leita að neinni lausn, meira svona að pústa bara. En ef þið hafið sniðugri hugmyndir en að versla við Advania, þá væri gaman að heyra þær. Jafnvel ShopUSA kemur út helmingi ódýrari en Advania, en bara verst ef maður þarf svo að skipta.




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6354
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 161
Staða: Ótengdur

Re: Svona skemmtilega hressileg álagning á vörum hjá Advania

Pósturaf AntiTrust » Mán 30. Jún 2014 14:52

Advania, OK, Nýherji, flest stærri umboðin svipuð hvað þetta varðar. Ég veit ekki hvernig það er hægt að bjóða fólki upp á þetta. Svo um leið og maður er kominn með login í gegnum fyrirtækjavefi þá droppar verðið um tugi prósenta. Það er eitt að fókusa á fyrirtækjamarkaði en þessi fyrirtæki eru nánast viljandi að hræða almenna notendur í burtu frá sér.



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6799
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 940
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Svona skemmtilega hressileg álagning á vörum hjá Advania

Pósturaf Viktor » Mán 30. Jún 2014 15:07

Þetta hefur verið svona síðan þessi fyrirtæki voru stofnuð, svo sem engar nýjar fréttir ;) Magnað hvernig þeim tókst að gera DELL að einhverju "gæða" merki hérna á Íslandi - einungis með því að leggja 50-100% á allar vörur. Þetta er low-mid range merki úti.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6354
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 161
Staða: Ótengdur

Re: Svona skemmtilega hressileg álagning á vörum hjá Advania

Pósturaf AntiTrust » Mán 30. Jún 2014 15:12

Mér hefur nú reyndar alltaf fundist Dell vera midrange vélar. Ef maður kíkir inn til stærri fyrirtækja sér maður nánast undantekningarlaust bara HP eða IBM/ThinkPads.

Góð markaðssetning amk.



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6799
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 940
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Svona skemmtilega hressileg álagning á vörum hjá Advania

Pósturaf Viktor » Mán 30. Jún 2014 15:13

AntiTrust skrifaði:Mér hefur nú reyndar alltaf fundist Dell vera midrange vélar. Ef maður kíkir inn til stærri fyrirtækja sér maður nánast undantekningarlaust bara HP eða IBM/ThinkPads.

Góð markaðssetning amk.


Mér finnst ég alltaf sjá Dell borðtölvur, og Thinkpad fartölvur, í þeim fyrirtækjum sem ég hef umgengist.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


Höfundur
nu11
Nýliði
Póstar: 18
Skráði sig: Lau 22. Jan 2005 21:07
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Svona skemmtilega hressileg álagning á vörum hjá Advania

Pósturaf nu11 » Mán 30. Jún 2014 15:17

Sallarólegur skrifaði:Þetta er low-mid range merki úti.


Ekki hvað þessa skjái varðar. Þetta eru high-end panelar, og þessvegna sökkar þetta. Því ég nefnilega get ekki bara farið útí hvaða búð sem er og fengið mér skjá.



Skjámynd

oskar9
vélbúnaðarpervert
Póstar: 943
Skráði sig: Sun 08. Mar 2009 16:52
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Re: Svona skemmtilega hressileg álagning á vörum hjá Advania

Pósturaf oskar9 » Mán 30. Jún 2014 17:38

Alveg eins með premium skrifborðstóla, veit svosem ekkert hvað þeir kosta úti, annað hvort þarf maður að kaupa 10-20 þús króna stól í Rúmfó eða Ikea eða punga út 120-200 þús ef maður vill stól hjá þeim fyrirtækjum sem selja aðalega til fyrirtækja, Penninn, Á Guðmundsson og þannig, allveg eins með Advania og Nýherji og þannig, virðast fókusa eingöngu á sölu til fyrirtækja


"I think the phrase rhymes with Clucking Bell!"


arons4
vélbúnaðarpervert
Póstar: 957
Skráði sig: Mið 27. Apr 2011 20:40
Reputation: 130
Staða: Ótengdur

Re: Svona skemmtilega hressileg álagning á vörum hjá Advania

Pósturaf arons4 » Mán 30. Jún 2014 17:51

oskar9 skrifaði:Alveg eins með premium skrifborðstóla, veit svosem ekkert hvað þeir kosta úti, annað hvort þarf maður að kaupa 10-20 þús króna stól í Rúmfó eða Ikea eða punga út 120-200 þús ef maður vill stól hjá þeim fyrirtækjum sem selja aðalega til fyrirtækja, Penninn, Á Guðmundsson og þannig, allveg eins með Advania og Nýherji og þannig, virðast fókusa eingöngu á sölu til fyrirtækja

http://www.amazon.com/Aeron-Chair-Herma ... ller+aeron
http://www.penninn.is/nanar/?productid= ... dfde85580c

Alveg jafn mikil 12 ára ábyrgð á þessu úti og hérna heima og flutningurinn er frír..



Skjámynd

trausti164
Geek
Póstar: 854
Skráði sig: Lau 13. Okt 2012 23:43
Reputation: 4
Staðsetning: 271 Mosfellssveit
Staða: Ótengdur

Re: Svona skemmtilega hressileg álagning á vörum hjá Advania

Pósturaf trausti164 » Mán 30. Jún 2014 18:22

arons4 skrifaði:
oskar9 skrifaði:Alveg eins með premium skrifborðstóla, veit svosem ekkert hvað þeir kosta úti, annað hvort þarf maður að kaupa 10-20 þús króna stól í Rúmfó eða Ikea eða punga út 120-200 þús ef maður vill stól hjá þeim fyrirtækjum sem selja aðalega til fyrirtækja, Penninn, Á Guðmundsson og þannig, allveg eins með Advania og Nýherji og þannig, virðast fókusa eingöngu á sölu til fyrirtækja

http://www.amazon.com/Aeron-Chair-Herma ... ller+aeron
http://www.penninn.is/nanar/?productid= ... dfde85580c

Alveg jafn mikil 12 ára ábyrgð á þessu úti og hérna heima og flutningurinn er frír..

Amazon sendir ekki til Íslands.


Ryzen 5 2600x - Gtx 1060 6GB - Asus B350M TUF - 8GB Corsair Vengeance 2133Mhz DDR4 - Corsair CX550W

Skjámynd

Hargo
</Snillingur>
Póstar: 1069
Skráði sig: Mið 13. Ágú 2008 02:18
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Svona skemmtilega hressileg álagning á vörum hjá Advania

Pósturaf Hargo » Mán 30. Jún 2014 18:26

Þetta er búið að vera svona lengi hjá umboðunum. Því þá er hægt að gefa "afslátt" enda afsláttarmenningin á Íslandi með eindæmum. Fyrirtækin sem versla af þeim voða sátt með að fá tölvuna á 210þús í staðinn fyrir 300þús sem er kannski uppgefið standard verð á heimasíðu.

Verðin sem eru gefin upp á fyrirtækjavélunum eru yfirleitt aldrei þau verð sem vélarnar eru svo seldar á. Hinsvegar eru verðin á heimilislínunum oft réttari og ekki jafn kræf álagning á þeim.

Nokkuð viss um að allir geti gengið inn í verslanirnar hjá þessum umboðum og bara með því að biðja um afsláttinn þá færðu hann. Kannski ekki jafn mikið og stór kúnni hjá þeim sem verslar tugi véla á ári, en þú endar samt aldrei á að borga uppgefið verð - enda eru þau í flestum tilvikum bara eitthvað bull.