Ég er með eftirfarandi vélbúnað og mig langar að yfirklukka sem mest af þessu
Móðurborð: Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P
Örgjörvi: AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz
Minni: 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP
Skjákort: EVGA Geforce GTX 760
Fyrst vil ég byrja á einni spurningu varðandi minnið, ég var með 4gb (2 x 2gb) Corsair XMS3 1600mhz en bios-inn stillti það alltaf sjálfkrafa á 1033mhz, svo þegar ég skipti um minni þá fór það nýja sjálfkrafa í 1333mhz, afhverju fer hvorugt í 1600mhz? Er það rétt skilið hjá mér að það tengist öðrum stillingum í bios? Sé að ef ég fikta í cpu frequency þá hefur það áhrif á memory clock minnisins, hef lesið aðeins um það en er samt mikill nýgræðingur í þessu enda bara rétt að byrja svo ég er ekki alveg að skilja allt eins og er. Ég prófaði fyrr í dag að hækka minnið uppí 1600mhz manual og setja rétt timings líka en það virðist gera tölvuna eitthvað óstöðuga
Gleymið þessu fyrir ofan, fattaði ekki að móðurborðið styður bara 1600 og uppúr ef ég yfirklukka í það
Hefur svo einhver hérna yfirklukkað þennan örgjörva? Hef lesið töluvert um yfirklukkun, bæði varðandi þennan örgjörva og bara almennt, en það er pínu erfit að tengja það sem talað er um við réttar stillingar í þessum bios sem ég er með Og hvað með minnið? Einhver til í að fara aðeins í gegnum þetta með mér hérna?
Yfyrklukka AMD Phenom II X4 955 og 8gb minni
-
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1128
- Skráði sig: Lau 30. Okt 2004 16:02
- Reputation: 8
- Staðsetning: Rivertown
- Staða: Ótengdur
Yfyrklukka AMD Phenom II X4 955 og 8gb minni
Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]
-
- Vaktari
- Póstar: 2586
- Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
- Reputation: 481
- Staða: Ótengdur
Re: Yfyrklukka AMD Phenom II X4 955 og 8gb minni
Ég hef látið minn 955 í 4ghz stable með góðri kælingu.
Ég prófaði að fikta í þessu en preset yfirklukkunar stillingar í móðurborðinu voru það fínar að ég notaði þær. Er með eh ódýrt asrock borð.
Ég prófaði að fikta í þessu en preset yfirklukkunar stillingar í móðurborðinu voru það fínar að ég notaði þær. Er með eh ódýrt asrock borð.
-
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1128
- Skráði sig: Lau 30. Okt 2004 16:02
- Reputation: 8
- Staðsetning: Rivertown
- Staða: Ótengdur
Re: Yfyrklukka AMD Phenom II X4 955 og 8gb minni
Var að byrja að fikta aðeins í þessu, byrjaði á að hækka cpu voltage um 0.125, það var í 1.325 og er því nú í 1.45, og hækkaði líka multiplyer-inn um 1, það var í 16 (=3.2ghz) en er núna í 17 (=3.4ghz), er svo kominn með Prime95 í gang. Ætti ég að fikta eitthvað meira áður en ég keyri það í sólahring eða er þetta nóg til að byrja með? Hvenær geta svo minnin farið uppí 1600mhz?
Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]
-
- Kerfisstjóri
- Póstar: 1268
- Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
- Reputation: 143
- Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
- Staða: Ótengdur
Re: Yfyrklukka AMD Phenom II X4 955 og 8gb minni
DoofuZ skrifaði:Var að byrja að fikta aðeins í þessu, byrjaði á að hækka cpu voltage um 0.125, það var í 1.325 og er því nú í 1.45, og hækkaði líka multiplyer-inn um 1, það var í 16 (=3.2ghz) en er núna í 17 (=3.4ghz), er svo kominn með Prime95 í gang. Ætti ég að fikta eitthvað meira áður en ég keyri það í sólahring eða er þetta nóg til að byrja með? Hvenær geta svo minnin farið uppí 1600mhz?
Getur í raun fiktað í öllu dótinu, bara passa sig á voltunum, þau skemma dótið ef þú ferð óvarlega. 1.65V er fín lína sem þú ættir ekki að fara yfir.
Hérna eru einhver timings sem fólk hefur verið að nota.
http://www.tomshardware.co.uk/forum/271 ... -overclock
Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það