af hverju eru áfengisskattar svona ógeðslega háir?
-
Höfundur - Bannaður
- Póstar: 826
- Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
- Reputation: 23
- Staða: Ótengdur
af hverju eru áfengisskattar svona ógeðslega háir?
Veit að þetta er gömul frétt en þetta á ekkert mikið minna við núna: http://www.ruv.is/frett/afengisskattar-aldrei-haerri
Samkvæmt þessu að þá kostar 1 flaska af tinvoda (vodki) 6.200kr, en að raunverð vörunar sé bara 500 kr. Síðan er afgangurinn bara áfengisskattur og vsk...
verð: 500kr
áfengisgjald: 3.800kr
Vsk: 1.260kr
Þetta er bara svo mikið fokking kjaftæði að þetta er ekki fyndið
Og verst er að núverandi stjórn virðist ekki hafa áhuga á að laga þetta þrátt fyrir að hafa gagnrýnt þetta bull eitthvað á meðan vinstristjórnin var.
Þá segja sumir: "en þetta hjálpar með því að auka skatttekjur ríkisins og þá kostar ekki eins mikið að reka spítala og svona!". Vandamálið er að þetta er kjaftæði. Sala á áfengi skreppur bara saman við svona öfga-skattlagninu og þá er ríkið væntanlega ekki að græða meira. Ef að þessi gjöld væru lærri að þá myndi gróði ríkisins fyrir eina staka sölu ekki vera eins mikil, en heildargróði samt væntanlega meiri það sem að fólk gæti leyft sér meira og myndi kaupa meira.
Eruð þið ánægðir með áfengisgjaldið?

Re: af hverju eru áfengisskattar svona ógeðslega háir?
Hver er ánægður að þurfa að borga meira?
Sjónvarp: LG C3 (OLED48C3) Blu-ray spilari: SONY UBP-X800M2 Soundbar: LG S75QR
Re: af hverju eru áfengisskattar svona ógeðslega háir?
hakkarin skrifaði:Ef að þessi gjöld væru lærri að þá myndi gróði ríkisins fyrir eina staka sölu ekki vera eins mikil, en heildargróði samt væntanlega meiri það sem að fólk gæti leyft sér meira og myndi kaupa meira.
Sem gæti ollið hærri kostnaði á heilbrigðisþjónustu.
Ég myndi segja að skattar vegna áfengisgjald mættu vera háir svo lengi sem að þeim er beint á rétta staði (þ.e. stór hluti þeirra skatta renni í forvarnir gegn vímu- og áfengisvandamálum ásamt rekstri heilbrigðisþjónustu). Ég tel háa skatta á Íslandi ekki endilega vera vandamál, það sem ég sé frekar sem vandamál er ógagnsætt fjármálakerfi sem hefur mjög rangar áherslur á úthlutun fjármagns.
EDIT: Óbeint tengt þessu þá tel ég fáranlegt að ríkið hafi einkarétt á að selja áfengi, ég skil ekki afhverju Hagkaup má ekki selja vín og bjór hjá sér. Ég bjó erlendis þar sem vín var selt i matvöruverslunum og það var mjög hentugt að geta verslað þetta um leið og maður keypti í matinn.
common sense is not so common.
-
Höfundur - Bannaður
- Póstar: 826
- Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
- Reputation: 23
- Staða: Ótengdur
Re: af hverju eru áfengisskattar svona ógeðslega háir?
Gislinn skrifaði:Sem gæti ollið hærri kostnaði á heilbrigðisþjónustu.
Hvernig þá? Ef að færri kaupa áfengi að þá minkar kanski kosnaður tengdur áfengi, en ef salan á áfengi minkar að þá lækka líka tekjur ríkisins...semsagt ríkið sparar ekkert.
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1863
- Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
- Reputation: 85
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: af hverju eru áfengisskattar svona ógeðslega háir?
áfengi og tóbak t.d er munaðarvara.. s.s ekki lífsnauðsynlegt til að lifa af.. fólk ákveður hvort það vill reykja eða drekka sem viðbót við lífið sjálft.. rétt eins og það ákveður hvort það sé peningana virði þegar það tekur þá ákvörðun.. er kippa af bjór 5000 kr virði ? sumum finnst það og fjárfestir þá í bjór. aðrir ekki.
finnst það ekki vera flóknara en það :Þ ...og þetta á að vera dýrt.. svo fólk geri ekki of mikið af þessu eða eitthvað
.
finnst það ekki vera flóknara en það :Þ ...og þetta á að vera dýrt.. svo fólk geri ekki of mikið af þessu eða eitthvað
.
Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.
Re: af hverju eru áfengisskattar svona ógeðslega háir?
hakkarin skrifaði:Gislinn skrifaði:Sem gæti ollið hærri kostnaði á heilbrigðisþjónustu.
Hvernig þá? Ef að færri kaupa áfengi að þá minkar kanski kosnaður tengdur áfengi, en ef salan á áfengi minkar að þá lækka líka tekjur ríkisins...semsagt ríkið sparar ekkert.
Aukin ofneysla á áfengi hefur í för með sér aukið álag á heilbrigðiskerfið í formi lifrasjúkdóma o.þ.h. Ofneysla áfengis er tengd áfengisverði, aðgengi að áfengi og forvörnum.
Hnykill skrifaði:áfengi og tóbak t.d er munaðarvara.. *snip*
Svo er það þetta. Ég tel fullkomlega réttlætanlegt að auka skatta á skaðlegum vímugjöfum í formi munaðarvöru-argumentsins.
common sense is not so common.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 16575
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2137
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Tengdur
Re: af hverju eru áfengisskattar svona ógeðslega háir?
Hnykill skrifaði:áfengi og tóbak t.d er munaðarvara.. s.s ekki lífsnauðsynlegt til að lifa af.. fólk ákveður hvort það vill reykja eða drekka sem viðbót við lífið sjálft.. rétt eins og það ákveður hvort það sé peningana virði þegar það tekur þá ákvörðun.. er kippa af bjór 5000 kr virði ? sumum finnst það og fjárfestir þá í bjór. aðrir ekki.
finnst það ekki vera flóknara en það :Þ ...og þetta á að vera dýrt.. svo fólk geri ekki of mikið af þessu eða eitthvað
.
Er þetta ekki of mikil forræðuishyggja, þ.e. að skattleggja hluti upp úr öllu ef þeir eru ekki "lífsnauðsynlegir" ?
Það er bara endalaust markt sem er ekki lífnauðsynlegt, gæti talið upp fullt af hlutum en nenni því ekki, getið horft 100 ár aftur í tímann og tekið út alla afþreyjingum eins og sjónvarp, útvarp, bíó internet etc...fólk lifði án þess að hafa þessa "lífsnauðsynlegu" hluti.
Áfengi og bjór á ekki að vera munaðarvara sem bara þeir efnameiri geta leyft sér, skrælingjarnir eiga að sætta sig við landa og síaðan spíra.
Þetta er rangt hugarfar.
p.s. Harpan kostaði tugi milljarað að skattfé, það kostar milljarða að reka hana á ári og á bara eftir að aukast eftir því sem hún eldist og viðhald eykst, ríkið borgar 85% með hverju einasta snobbhænsninu sem kaupir sér miða á Sinfó, varla er það lífsnauðsynlegt?
Re: af hverju eru áfengisskattar svona ógeðslega háir?
hakkarin skrifaði:Veit að þetta er gömul frétt en þetta á ekkert mikið minna við núna: http://www.ruv.is/frett/afengisskattar-aldrei-haerri
Samkvæmt þessu að þá kostar 1 flaska af tinvoda (vodki) 6.200kr, en að raunverð vörunar sé bara 500 kr. Síðan er afgangurinn bara áfengisskattur og vsk...
verð: 500kr
áfengisgjald: 3.800kr
Vsk: 1.260kr
Þetta er bara svo mikið fokking kjaftæði að þetta er ekki fyndið
Og verst er að núverandi stjórn virðist ekki hafa áhuga á að laga þetta þrátt fyrir að hafa gagnrýnt þetta bull eitthvað á meðan vinstristjórnin var.
Þá segja sumir: "en þetta hjálpar með því að auka skatttekjur ríkisins og þá kostar ekki eins mikið að reka spítala og svona!". Vandamálið er að þetta er kjaftæði. Sala á áfengi skreppur bara saman við svona öfga-skattlagninu og þá er ríkið væntanlega ekki að græða meira. Ef að þessi gjöld væru lærri að þá myndi gróði ríkisins fyrir eina staka sölu ekki vera eins mikil, en heildargróði samt væntanlega meiri það sem að fólk gæti leyft sér meira og myndi kaupa meira.
Eruð þið ánægðir með áfengisgjaldið?
Ég er ekki ánægður að borga svona mikið, ég kaup áfengi og finnst þetta vera rán, en ég þekki smá til starfsemi átvr, það er ágætt að byrja að fara yfir markmið átvr og pæla í þeim fyrst.
Áfengisálagning fer eftir hversu mikið áfeng varan er, því er t.d. sterkt vín svona hrikalega dýrt miðað við bjóra, um þetta má deila.
Sé áfengið ódýrara þá er hætta á óhófsamari drykkju, vandamálum tengt því, meira líkur á að alkólisti inní sumum kvikni meir o.s.frv. þetta snýst um það að pæla í hvað er þjóðhagslega hagstæðast. Það eru starfsmenn sem sjá um það að reyna reikna það út, rauninni hálfgerð bestun á þessum þætti fyrir þjóðina. Þeir hafa áhrif á þetta og telja þetta vera besta leiðin, þeir hafa enga aðra hagsmuni að gæta nema það sem er best fyrir þjóðina, þeir kaupa líka áfengi eins og við hin o.s.frv. en auðvitað má deila um hvernig áfengisálagning skal vera reiknuð milli tegunda en það er sannalega ástæða fyrir svona háu verði og það er ENGAN VEGIN til að fá meiri tekjur í ríkissjóð þó að sumum pólitíkusum finnist það ekkert slæmt og þeir snúa því yfir í stefnu sína en ástæðan fyrir álagningu er ekki komin úr pólitík hér á landi
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 919
- Skráði sig: Fim 13. Mar 2008 00:39
- Reputation: 17
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: af hverju eru áfengisskattar svona ógeðslega háir?
hakkarin skrifaði:Veit að þetta er gömul frétt en þetta á ekkert mikið minna við núna: http://www.ruv.is/frett/afengisskattar-aldrei-haerri
Samkvæmt þessu að þá kostar 1 flaska af tinvoda (vodki) 6.200kr, en að raunverð vörunar sé bara 500 kr. Síðan er afgangurinn bara áfengisskattur og vsk...
verð: 500kr
áfengisgjald: 3.800kr
Vsk: 1.260kr
Þetta er bara svo mikið fokking kjaftæði að þetta er ekki fyndið
Og verst er að núverandi stjórn virðist ekki hafa áhuga á að laga þetta þrátt fyrir að hafa gagnrýnt þetta bull eitthvað á meðan vinstristjórnin var.
Þá segja sumir: "en þetta hjálpar með því að auka skatttekjur ríkisins og þá kostar ekki eins mikið að reka spítala og svona!". Vandamálið er að þetta er kjaftæði. Sala á áfengi skreppur bara saman við svona öfga-skattlagninu og þá er ríkið væntanlega ekki að græða meira. Ef að þessi gjöld væru lærri að þá myndi gróði ríkisins fyrir eina staka sölu ekki vera eins mikil, en heildargróði samt væntanlega meiri það sem að fólk gæti leyft sér meira og myndi kaupa meira.
Eruð þið ánægðir með áfengisgjaldið?
Vodka er afar ódýrt í Rússlandi og Austur Evrópu yfirleitt, og þar er svakaleg áfengisneysla og slæmar afleiðingar drykkju sýnilegar öllum sem vilja sjá, svo þetta skiptir í raun engu máli hvort verðið er hátt eða ekki. Þeir sem hafa mikinn áhuga á því að drekka gera það sama hvað vínið kostar og eru bara fljótari á leiðinni á geðveikrahælið þar sem fólk er kannski handjárnað við rúmið mánuðum saman. Hérna heima er þó hjálp að fá t.d. hjá SÁÁ og afar sjaldgæft að fólk lendi á hæli, til langdvalar. Það var bara algengt fyrir tæplega þrjátíu árum að hæfileikaríkt og gott fólk lenti á geðdeildum og átti ekki afturkvæmt út í lífið aftur, eftir kannski fimm sex ára ferðalag með Bakkusi. Áfengi þarf að vera dýrt hvað heldurðu að það kosti að halda löggunni úti í bænum um helgar, þeir borga sem nota þú getur bara litið á skattana vem vegatoll og valið leiðina sjálfur
Ekki treysta því að fólk skilji þig þó að það setji upp gáfulegan svip og segji já.
-
- Gúrú
- Póstar: 583
- Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 16:48
- Reputation: 80
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: af hverju eru áfengisskattar svona ógeðslega háir?
Árið 2008 hafði ég ekki séð landabrúsa frá því ég var í menntó '96. Núna sé ég svoleiðis örugglega í annað-þriðja hvert skipti sem ég fæ mér í glas. Enginn áfengisskattur, vsk, eða minni áfengisneysla af því.
Enjoy your job, make lots of money, work within the law. Choose any two.
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1863
- Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
- Reputation: 85
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: af hverju eru áfengisskattar svona ógeðslega háir?
brugga sjálfur bara ef þetta er eitthvað vesen
Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.
-
Höfundur - Bannaður
- Póstar: 826
- Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
- Reputation: 23
- Staða: Ótengdur
Re: af hverju eru áfengisskattar svona ógeðslega háir?
Eitt sem að er þess virði að nefna sem að ég gleymdi að nefna upphaflega. Ef að fólk deyr fyrr vegna óheilbrigðs lífsstíls, að þá væntanlega þarf ekki að borga því neinn lífeyri eða eyða penningum í það eftir að það er orðið (ef að það verður) gamalt. Finnst það vera kaldhæðnislegt að fólk sem að segir að óhollusta kosti samfélagið penning sjái þetta ekki.
-
Höfundur - Bannaður
- Póstar: 826
- Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
- Reputation: 23
- Staða: Ótengdur
Re: af hverju eru áfengisskattar svona ógeðslega háir?
snjokaggl skrifaði:Útaf því að við kaupum það samt.
Ég kaupi mér mjög lítið áfengi vegna þess hversu dýrt það er. Ég kaupi mér kanski svona 1-2 bjóra einu sinni á viku (stundum ekkert). Myndi leyfa mér meira ef að þetta væri ekki svona dýrt.
Re: af hverju eru áfengisskattar svona ógeðslega háir?
hakkarin skrifaði:Ég kaupi mér mjög lítið áfengi vegna þess hversu dýrt það er. Ég kaupi mér kanski svona 1-2 bjóra einu sinni á viku (stundum ekkert). Myndi leyfa mér meira ef að þetta væri ekki svona dýrt.
Í fyrri [áfengis]umræðu þinni talar þú um að þú heimsækir einn ákveðinn bar oft (18. jan s.l.), spurning um að fara að kaupa bjór í ríkinu og fá hann ódýrari?
hakkarin skrifaði:Eitt sem að er þess virði að nefna sem að ég gleymdi að nefna upphaflega. Ef að fólk deyr fyrr vegna óheilbrigðs lífsstíls, að þá væntanlega þarf ekki að borga því neinn lífeyri eða eyða penningum í það eftir að það er orðið (ef að það verður) gamalt. Finnst það vera kaldhæðnislegt að fólk sem að segir að óhollusta kosti samfélagið penning sjái þetta ekki.
Ég nenni ekki einu sinni að bíta á þetta fiskerí.
common sense is not so common.
Re: af hverju eru áfengisskattar svona ógeðslega háir?
hakkarin skrifaði:Eitt sem að er þess virði að nefna sem að ég gleymdi að nefna upphaflega. Ef að fólk deyr fyrr vegna óheilbrigðs lífsstíls, að þá væntanlega þarf ekki að borga því neinn lífeyri eða eyða penningum í það eftir að það er orðið (ef að það verður) gamalt. Finnst það vera kaldhæðnislegt að fólk sem að segir að óhollusta kosti samfélagið penning sjái þetta ekki.
En ef fólk deyr vegna óheilbrigðis heldur það hafi ekki kostað manneskjuna helling af peningum að berjast við kvilla tengdum því? Helduru að manneskjan hafi ekki þurft að leita til læknisaðstoðar og jafnvel leitað inná spítala vegna þess? Jafnvel nánir aðstandendur gætu einnig hafa þurft að borga vefna þátta sem fylgja þessum lífstíl.
Ég hef ekki tölurnar en ég er nokkuð viss um að m.v. meðaltal kostar óhollustun samfélagið miklu meira en það sparar á því að sumir og aðeins sumir þessa einstaklinga munu deyja vegna þess.
Það þarf líka að spá að margir lifa óhullustum lífsstíl og munu ekk lifa jafn lengi útaf því, samt deyr kannski manneskjan úr einhverju öðru, sem sagt ekki vegna óhollustunar, samt kostaði þessi óhollusta samfélagið helling.
Það er margt sem þarf að taka með í reikninginn..
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6799
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Reputation: 940
- Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: af hverju eru áfengisskattar svona ógeðslega háir?
Af því að:
http://www.visir.is/erlendar-skuldir-is ... 1098638414
http://www.visir.is/erlendar-skuldir-is ... 1098638414
Erlendar skuldir Íslands nærri fjórtán þúsund milljarðar
Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 8.206 ma.kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 13.917 ma.kr. Hrein staða við útlönd var því neikvæð um 5.711 ma.kr. og lækka nettóskuldir um tæpa 189 ma.kr. á milli ársfjórðunga. Að frátöldum innlánsstofnunum í slitameðferð námu eignir þjóðarbúsins 2.487 ma.kr. og skuldir 3.048 ma.kr. Hrein staða var því neikvæð um 561 ma.kr. að þeim undanskildum.
I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things
Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB
Ryzen 3600X 2070S 16GB
-
- Bannaður
- Póstar: 5677
- Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
- Reputation: 1
- Staðsetning: ;)
- Staða: Ótengdur
Re: af hverju eru áfengisskattar svona ógeðslega háir?
hakkarin skrifaði:Þá segja sumir: "en þetta hjálpar með því að auka skatttekjur ríkisins og þá kostar ekki eins mikið að reka spítala og svona!". Vandamálið er að þetta er kjaftæði. Sala á áfengi skreppur bara saman við svona öfga-skattlagninu og þá er ríkið væntanlega ekki að græða meira. Ef að þessi gjöld væru lærri að þá myndi gróði ríkisins fyrir eina staka sölu ekki vera eins mikil, en heildargróði samt væntanlega meiri það sem að fólk gæti leyft sér meira og myndi kaupa meira.
Hvaðan fékkstu þær tölur? Mátt ekki nota orðið "kjaftæði" og tala með rassinum í sömu efnisgrein.
Modus ponens
-
- Gúrú
- Póstar: 583
- Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 16:48
- Reputation: 80
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: af hverju eru áfengisskattar svona ógeðslega háir?
Sala á áfengi hefur farið minnkandi skv. fréttum seinustu ár. En í staðinn fyrir að að áætla að það þýði minnkandi neysla, þá þætti mér gaman að sjá einhverja könnun sem spyr að því.
Því að í minni reikningsbók, ef þú berð saman 1L landa fyrir 3000 og vodkaflösku sömu stærðar fyrir 8000, þá er valið frekar einfalt.
Því að í minni reikningsbók, ef þú berð saman 1L landa fyrir 3000 og vodkaflösku sömu stærðar fyrir 8000, þá er valið frekar einfalt.
Enjoy your job, make lots of money, work within the law. Choose any two.
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6799
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Reputation: 940
- Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: af hverju eru áfengisskattar svona ógeðslega háir?
Passið ykkur á bullinnu:
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/ ... ngi_eykst/
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/ ... ngi_eykst/
Sala áfengis í maí jókst um 3,4% miðað við sama mánuð í fyrra. Þá hefur sala áfengis aukist um 1,5% á fyrstu fimm mánuðum ársins í samanburði við sama tímabil á síðasta ári.
Alls seldust 1.637.000 lítrar af áfengi í maí sl. en 1.583.000 lítrar í maí í fyrra. Sem fyrr er lagerbjór fyrirferðarmestur, en í ár hafa verið seldir 5.252.000 lítrar. Það er nánast sama magn og hafði verið selt í maí í fyrra.
Athygli vekur á sala á ávaxtavíni eykst um 114% á milli ára. Í fyrra höfðu verið seldir 12.500 lítrar en í sl. mánuði voru lítrarnir 25.900.
I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things
Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB
Ryzen 3600X 2070S 16GB
Re: af hverju eru áfengisskattar svona ógeðslega háir?
Sallarólegur skrifaði:Passið ykkur á bullinnu:
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/ ... ngi_eykst/
Sala áfengis í maí jókst um 3,4% miðað við sama mánuð í fyrra. Þá hefur sala áfengis aukist um 1,5% á fyrstu fimm mánuðum ársins í samanburði við sama tímabil á síðasta ári.
Alls seldust 1.637.000 lítrar af áfengi í maí sl. en 1.583.000 lítrar í maí í fyrra. Sem fyrr er lagerbjór fyrirferðarmestur, en í ár hafa verið seldir 5.252.000 lítrar. Það er nánast sama magn og hafði verið selt í maí í fyrra.
Athygli vekur á sala á ávaxtavíni eykst um 114% á milli ára. Í fyrra höfðu verið seldir 12.500 lítrar en í sl. mánuði voru lítrarnir 25.900.
Það er samt óþarfi að vera með leiðindi.
En það er rétt sala alkóhóllítra jókst um 0.2% m.v. 2012 vs. 2013 ef skoðað eru heimildir: http://www.vinbudin.is/desktopdefault.a ... _read-348/ Þessi munur er samt varla marktækur og því má segja að salan hefur haldið sér