Elko vs Tölvutek

Allt utan efnis
Skjámynd

daremo
spjallið.is
Póstar: 465
Skráði sig: Mið 27. Okt 2004 00:39
Reputation: 73
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf daremo » Fös 31. Jan 2014 22:07

Ég hef nokkrum sinnum reynt að versla við Tölvutek, en mig virðist aldrei vanta neitt sem er "til á lager". Fór þangað síðast fyrir ca 2 árum síðan, og þeir létu mig bíða í 10mín í afgreiðslunni meðan þeir voru að leita að vöru, sem auðvitað var ekki til á lager. Fann svo sama skjáinn sem mig vantaði hjá Kísildal, 2þús kr dýrari reyndar, en viðskiptin tóku uþb 1 mínútu.




Höfundur
mainman
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 387
Skráði sig: Sun 08. Jan 2006 15:40
Reputation: 83
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf mainman » Fös 31. Jan 2014 23:08

Scavenger skrifaði:Sæll mainman,

Leiðinlegt að heyra hvernig fór með spjaldtölvuna þína.

Mér finnst ég knúinn til að benda á það að þú nefnir að svona spjaldtölva kostar 119.900.- kr. Sem stemmir ekki alveg. Hún var til sölu í Tölvutek á 99.900.- kr, en einnig var til 64GB útfærsla af þessari vél á 119.900.- kr. og versla ég 32GB útgáfuna á sérstöku kynningarverði til starfsmanna á 83.250.- kr þann 19.8.2012 eins og hefur komið fram, en lyklaborðsdokkuna kaupi ég 4. dögum seinna, eða þann 22.8.2012. Þar sem að ég kaupi tölvuna staka og trygginguna á spjaldtölvuna staka gildir tryggingin eingöngu fyrir spjaldtölvuna. Varðandi það að þú færð einungis 83.250.- kr frá tryggingafélagi er það vegna þess að það er "kaupverðið" spjaldtölvunni. Tryggingafélag endurgreiðir einungis fyrir greitt verð, ekki núverandi/þáverandi eða fullt verð. Nú þar sem þessi spjaldtölva er ekki fáanleg lengur hjá birgjum Tölvuteks er mér/þér endurgreitt að kaupverðmæti spjaldtölvunar.

Ef ég man rétt þá var þetta gífurlega flottur pakki sem innihélt spjaldtölvu, tryggingu, lyklaborðsdokku, 2x 32GB Class10 minniskort, bílfestingu, tösku og auka straumbreytir. Rétt um 6 mánaða gamalt. Samþykktum við ekki okkar á milli 90 þúsund? Mig minnir það :)

Þú þá nýtir tölvuna í rúmt ár og verður svo fyrir því óláni að tölvan verður fyrir tjóni en færð hana bætta að fullu fyrir mitt kaupverð á tölvunni sem lágmarkar þitt tjón í þessu.
Eins og ég sé þetta; þú keyptir dúndurflottan pakka á 90 þús. Notaðir hann í rúmt ár, tjónaðist, fékkst greitt 83.250.- kr sem gerir það að heildarkostnaði 6.750.- kr fyrir afnot af þessum búnaði fyrir ár. Nú í versta falli ef þú getur ekki útvegað þér svona spjaldtölvu átt þú samt sem áður 2x 32GB Class10 minniskort að verðmæti meira en 22.000 kr sem nýtist þér áfram, dýra og flotta 10" spjaldtölvu tösku, bílfestingu og USB straumbreyta sem þú getur notað á öll tæki sem taka við hleðslu í gegnum USB. -Ef þú spyrð mig er það ekki slæmt fyrir 6.750.- kr :)

Þar sem ég er að svara þessi í mínum frítíma ætla ég ekki að fara í orðkast út af þessu en skil bara ekki þína aðstöðu í þessu öllu saman.


Kv. Seljandi tölvunar :)


Sæll aftur!
Þráður minn í þessu tilfelli var ekki að væla undan upphæðinni sem ég fékk.
Ég var að benda á muninn á þjónustunni á milli þessara tveggja fyrirtækja.
Í öðru tilfellinu gekk allt snuðrulaust fyrir sig á nokkrum dögum.
Í hinu tilfellinu var allt hummað og hæjað, reynt að komast hjá því að bæta hluti og síðan dregið eins og hægt var að bæta eftir að ákveðið var að bæta.
Svona hlutir eiga ekki að taka svona langann tíma.
þessi þráður var ekki gerður til að hneikslast á tölum heldur þjónustu.

Ég t.d. rek hjólbarðaverkstæði og flyt inn mikið af dekkjum.
Ef ég sel t.d. jeppadekk undir bíl og einhverju seinna kemur bíllinn aftur og sýnir mér nótu og eitthvað dekkið er gallað þá bæti ég það alveg sama hvort það var akkurat þessi maður sem verslaði dekkið eða ekki.
Og ef ég á ekki lengur til þessa tegund af dekkjum þá hringi ég á öll hin verkstæðin og reyni að finna svona dekk, sendi einhvern frá mér með hraði að kaupai það, set það undir bílinn, bið afsökunar á þessu og reyni að gera alla ánægða, það er það sem gerir kúnnann ánægðann og þá kemur hann aftur.
Ég hendi ekki í hann 50 þús kalli og segi honum að redda sér dekkinu sjálfur því ég nenni ekki að flytja það lengur inn eða segi honum að hann fái það ekki bætt því það var fyrri eigandi sem verslaði það hjá mér.
Þetta er meiningin á bakvið þennann þráð.
Munur á þjónustu.



Skjámynd

rango
FanBoy
Póstar: 785
Skráði sig: Lau 14. Júl 2012 22:36
Reputation: 3
Staðsetning: 404 - Location Not found.
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf rango » Lau 01. Feb 2014 00:06

Talandi um hluti sem ekki eru til, Ég ætlaði að kaupa 2Tb disk hjá tölvulistanum og komst þá að því að einhver tæmdi lagerinn þann dag..
Mér sárvantaði 2Tb disk til að flytja yfir af disk sem er að feila.
Skítt svosem enn ég spurði hvort hann væri tilbúinn að lækka verðið á "Expansion 2TB 3.5 " þar sem mér vantaði bara diskinn og hann mætti svosem henda hýsinguni
og þá laus við alla ábyrgð. Hann sagði strax nei og ég tók strætó heim,

Nú sé ég þennan sama disk 200kr ódýrari enn ekki í usb með 2ára ábyrgð þá.
http://tl.is/product/expansion-2tb-35-usb3-svartur

Þannig að nú um mánaðamótin er ég að fara í tölvutek að versla.


Þú fékst góða þjónustu hjá elko verslaðu þá við elko, ef það feilar verslaðu hjá ormson.
tölvutek > tölvulistin > kísildalur etc.
Þangað til þú ert kominn hringinn.




Límband
Fiktari
Póstar: 58
Skráði sig: Fim 02. Ágú 2012 14:14
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf Límband » Lau 01. Feb 2014 00:18

Vaktin, er þetta orðið að einhverskonar væluráðstefnu? Ótrúlegt alveg hvað þið getið vælt yfir fáránlegustu hlutum, fyrirtækin gera í langflestum tilfellum (ef þú talar við yfirmann) allt sem þeir geta sem er SANNGJARNT.
Haldiði í alvöru talað að þetta sé svona? http://www.youtube.com/watch?v=CVhLQIBCckE
Pls. Öll fyrirtækin eru 100% að reyna sitt allra besta, hættið að væla.

Eins og þetta með Tölvulistann, afhverju á hann að selja þér 2TB flakkara á kostnaðarverði útaf þú þarft disk akkurat núna? Þetta er FYRIRTÆKI ekki charity, þeir þurfa að græða eitthvað á vörunum



Skjámynd

rango
FanBoy
Póstar: 785
Skráði sig: Lau 14. Júl 2012 22:36
Reputation: 3
Staðsetning: 404 - Location Not found.
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf rango » Lau 01. Feb 2014 00:21

Límband skrifaði:Eins og þetta með Tölvulistann, afhverju á hann að selja þér 2TB flakkara á kostnaðarverði útaf þú þarft disk akkurat núna? Þetta er FYRIRTÆKI ekki charity, þeir þurfa að græða eitthvað á vörunum


Auðvitað enn,
A eru þeir að selja hann núna á kost?
B ég er ekki ósáttur við að hann hafi sagt nei.

Ég vildi kaupa disk sem stóð á lager sem var svo ekki og þannig búinn að gera mér ferð eftir hlut sem var ekki til.
ég fór heim bara sáttur sko, Enn ég er ekki að fara gera mér aðra ferð.
Síðast breytt af rango á Lau 01. Feb 2014 00:24, breytt samtals 2 sinnum.




Límband
Fiktari
Póstar: 58
Skráði sig: Fim 02. Ágú 2012 14:14
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf Límband » Lau 01. Feb 2014 00:23

rango skrifaði:
Límband skrifaði:Eins og þetta með Tölvulistann, afhverju á hann að selja þér 2TB flakkara á kostnaðarverði útaf þú þarft disk akkurat núna? Þetta er FYRIRTÆKI ekki charity, þeir þurfa að græða eitthvað á vörunum


Auðvitað enn,
A eru þeir að selja hann núna á kost?
B ég er ekki ósáttur við að hann hafi sagt nei.

Ég vildi kaupa disk sem stóð á lager sem var svo ekki og þannig búinn að gera mér ferð eftir hlut sem var ekki til.
ég fór heim bara sáttur sko, Enn ég er ekki að fara gera mér aðra ferð.


Já ok, ég skil :p



Skjámynd

rango
FanBoy
Póstar: 785
Skráði sig: Lau 14. Júl 2012 22:36
Reputation: 3
Staðsetning: 404 - Location Not found.
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf rango » Lau 01. Feb 2014 00:28

Límband skrifaði:Já ok, ég skil :p


Fyrirtæki þarf líka að vilja þig sem kúnna, Hvað ert þú tilbúinn að gera fyrir kúnnan.
Ef þú þjónustar ekki og sendir kúnna burt svektan þá bítur það í eftir á.

þeas þeir hefðu getað sagt við mig "heyrðu já þetta stendur hérna á lager og þetta er ekki til, Enn ég skal slá þúsund krónur af disk í boxi og allir eru sáttir" og ég hefði keypt hann á staðnum.
Þeir hefðu eflaust getað reynt aðeins meira gagnvart OP, enn svona gerist og ég held að OP sé ekki að fara kaupa aftur hjá tölvutek á næstunni.



Skjámynd

MrSparklez
Tölvutryllir
Póstar: 635
Skráði sig: Lau 04. Maí 2013 16:01
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf MrSparklez » Lau 01. Feb 2014 00:39

mainman skrifaði:Ef ég sel t.d. jeppadekk undir bíl og einhverju seinna kemur bíllinn aftur og sýnir mér nótu og eitthvað dekkið er gallað þá bæti ég það alveg sama hvort það var akkurat þessi maður sem verslaði dekkið eða ekki.
Og ef ég á ekki lengur til þessa tegund af dekkjum þá hringi ég á öll hin verkstæðin og reyni að finna svona dekk, sendi einhvern frá mér með hraði að kaupai það, set það undir bílinn, bið afsökunar á þessu og reyni að gera alla ánægða, það er það sem gerir kúnnann ánægðann og þá kemur hann aftur.
Ég hendi ekki í hann 50 þús kalli og segi honum að redda sér dekkinu sjálfur því ég nenni ekki að flytja það lengur inn eða segi honum að hann fái það ekki bætt því það var fyrri eigandi sem verslaði það hjá mér.


Vá hvað ég vildi óska þess að öll fyrirtæki myndu hugsa svona !!!



Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf KermitTheFrog » Lau 01. Feb 2014 10:22

mainman skrifaði:Ég t.d. rek hjólbarðaverkstæði og flyt inn mikið af dekkjum.
Ef ég sel t.d. jeppadekk undir bíl og einhverju seinna kemur bíllinn aftur og sýnir mér nótu og eitthvað dekkið er gallað þá bæti ég það alveg sama hvort það var akkurat þessi maður sem verslaði dekkið eða ekki.
Og ef ég á ekki lengur til þessa tegund af dekkjum þá hringi ég á öll hin verkstæðin og reyni að finna svona dekk, sendi einhvern frá mér með hraði að kaupai það, set það undir bílinn, bið afsökunar á þessu og reyni að gera alla ánægða, það er það sem gerir kúnnann ánægðann og þá kemur hann aftur.
Ég hendi ekki í hann 50 þús kalli og segi honum að redda sér dekkinu sjálfur því ég nenni ekki að flytja það lengur inn eða segi honum að hann fái það ekki bætt því það var fyrri eigandi sem verslaði það hjá mér.
Þetta er meiningin á bakvið þennann þráð.
Munur á þjónustu.


En ef viðkomandi myndi keyra á eitthvað og sprengja dekkið eftir árs notkun?

Þarna ertu að bera saman epli og appelsínur. Í þessu tilfelli vantaði þig nákvæmlega eins vél í dokkuna þína. Hún var hvergi fáanleg.

Ég vil taka það fram að þó ég vinni hjá Tölvutek þá endurspegla skoðanir mínar engan veginn skoðanir fyrirtækisins, né tala ég fyrir hönd fyrirtækisins.




hkr
spjallið.is
Póstar: 407
Skráði sig: Fös 23. Jan 2009 14:22
Reputation: 15
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf hkr » Lau 01. Feb 2014 12:32

KermitTheFrog skrifaði:En ef viðkomandi myndi keyra á eitthvað og sprengja dekkið eftir árs notkun?


Mátt ekki gleyma því að viðkomandi er með tryggingu á hlutnum. Væri því ekki réttara að bæta því við spurninguna, t.d. ,,En ef viðkomandi myndi keyra á eitthvað og sprengja dekkið eftir árs notkun og það væri viðbótartrygging á dekkinu sem coverar skemmdir" eða eitthvað í þá átt.

Tómatur, túmatur?



Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf KermitTheFrog » Lau 01. Feb 2014 14:14

hkr skrifaði:
KermitTheFrog skrifaði:En ef viðkomandi myndi keyra á eitthvað og sprengja dekkið eftir árs notkun?


Mátt ekki gleyma því að viðkomandi er með tryggingu á hlutnum. Væri því ekki réttara að bæta því við spurninguna, t.d. ,,En ef viðkomandi myndi keyra á eitthvað og sprengja dekkið eftir árs notkun og það væri viðbótartrygging á dekkinu sem coverar skemmdir" eða eitthvað í þá átt.

Tómatur, túmatur?


Jú það er rétt. En ábyrgð og viðbotartrygging er sitthvor hluturinn.

En burtséð frá því þá, í þessu tilfelli, var ekki hægt að útvega þessa tölvu. Í þeim tilfellum er fundin sambærileg eða betri tölva, sem er til á lager eða er hægt að útvega. Í þessu tilfelli vildi OP ekki fá aðra tölvu þar sem hans aðstæður (dokkan) hentuðu ekki.

Hann fékk greitt út meira en hann í rauninni hefði átt að fá mv árs+ gamla vél (ný kostaði 99900 en ekki 119900).

Skil ekki alveg réttlætingu þess rants. Biðtiminn er vissulega issue, en enn og aftur erum við að bera saman ábyrgð og tryggingu. Fleiri tengiliðir involved I tjonamalum osfrv. Ég get alveg vottað fyrir að það var enginn að reyna að skorast undan því að bæta þetta tjón.

Félagi minn var með viðbótartryggingu á skjá hjá elko og allt ferlið tók meira en mánuð.
Síðast breytt af KermitTheFrog á Lau 01. Feb 2014 14:42, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

Hrotti
Geek
Póstar: 835
Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
Reputation: 145
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf Hrotti » Lau 01. Feb 2014 14:28

KermitTheFrog skrifaði:Skil ekki alveg réttlætingu þess rants. Biðtiminn er vissulega issue, en enn og aftur erum við að bera saman ábyrgð og tryggingu. Fleiri tengiliðir involved I tjonamalum osfrv. Ég get alveg vottað fyrir að það var enginn að reyna að skorast undan því að bæta þetta tjón.


fyrir utan það að rantið þarf enga réttlætingu svo lengi sem að það er satt, þá er ekki bara verið að bera saman ábyrgð og tryggingu. Það er líka (og að mínu viti aðallega) verið að bera saman viðmót og þjónustu. Sumum er líklega alveg sama um svona hluti en í mínum heimi fengu þessi viðskipti algera falleinkun strax eftir fyrsta skítakommentið um að kærastan væri ekki xxx xxxson. Þar er búið að setja tóninn fyrir því hvaða þjónustulund þú mátt búast við.


Verðlöggur alltaf velkomnar.

Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2581
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 479
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf Moldvarpan » Lau 01. Feb 2014 14:37

Voðalega er snúið útúr öllu.

Ég las einu sinni yfir fyrsta póstinn og skildi nákvæmlega hvað hann var að meina. Svo jarðaði Klemmi þetta með tilvitnum í skilmála Tölvutek.
Þetta snýst ekki um krónur heldur þjónustu.

Ég hef lent í sambærilegu atviki með önnur fyrirtæki, og þar hef ég ekki verslað aftur síðan.
Það er eins og sumar verslanir einblýni aðallega á að hafa ódýrasta verðið til að lokka að kúnna, en svo þegar það kemur að ábyrgðum/tryggingum, þá þarf maður að standa í miklu ströggli við að fá sitt bætt.

Þetta er afar vitlaust viðhorf, því flestir sem lenda í svona veseni að fá vörur bætta, hætta viðskiptum við viðkomandi fyrirtæki.

Og ég fagna því að það er talað um þessa hluti, því það eru starfsmenn hérna inni frá flestum þessum fyrirtækja, og vonandi læra þeir af vitleysunni.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16568
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2135
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf GuðjónR » Lau 01. Feb 2014 16:58

Eitt sem sjaldan er talað um en það er hvernig við sem "kúnnar" högum okkur. Nú ætla ég ekki að leggja dóm á það sem að frama er skrifað en ég veit til þess að það eru til verslanir og þjónustuaðilar sem vilja ekki alla kúnna.

Get talað út frá eigin reynslu en 1999 stofnaði ég lítið trésmíðafélag með félaga mínum, nokkrum árum síðar var ég fenginn til að gefa manni tilboð í framkvæmd á lóðinni hans. Ég mætti á staðinn og mældi allt samviskusamlega upp, gerði smá riss mynd og fór yfir með eigandanum hvernig best væri að hafa pallinn og skjólveggina. Síðan gaf ég honum ítarlet og sundurliðað tilboð í efni og vinnu.

Nú líður heilt ár, en þá hefur hann samband við mig aftur og segist vera í startholunum, hvort ég geti ekki gefið honum uppfært tilboð, reyndar smá breyting á verkinu en svo lítil að ég þurfti ekki að mæta á staðinn. Ég þurfti hins vegar að hafa samband við Húsasmiðjuna/Byko og fá uppfærslu á efniskostnaðinn.

Svo líður annað ár, maðurinn hringir í mig í þriðja sinn og segist núna vera gallharður á því að byrja á verkinu. Spyr mig hvort ég geti ekki komið á staðinn aftur þar sem hann sé með breytingu á verkinu í huga, ég kem því kurteysislega frá mér að ég þurfi að rukka hann fyrir tímann ef hann ætli sér ekki að fara í farmkvæmdir, þetta sé að taka frá mér tíma. Hann sagðist hafa skilning á því en núna væri hann klár, ég mætti á staðinn og rissaðu upp breytingarnar sem hann vildi gera og fór með það heim, ég þurfti að gera nýtt tilboð nánast frá grunni svo miklar voru breytingarnar hjá honum.

Ár líður! en þá fæ ég tölvupóst frá honum í fjórða sinn þar sem hann spyr (án þess að skammast sín) hvort ég geti "uppfært" tilboðið, á þessum tímapunkti var ég búinn að fá nóg af manninum, ég hafði hvorki áhuga á því að senda honum uppfært tilboð né vinna verkið fyrir hann, á öllum mínum vinnuferli kom að því að ég neitaði "kúnna" um þjónustu! Sendi honum kurteysislegt bréf þar sem ég sagði honum að ég myndi ekki uppfæra tilboðið og myndi ekki vinna verkið, óskaði honum góðs gengis og kvaddi.

Hann sendi mér í kjölfarið þvílíkan dónapóst að ég hef aldrei, fyrr né síðar séð annað eins. Ætla ekki að skrifa hér fúkyrðinn sem hann notaði því þau eru ekki birtingarhæf. En hann endaði reiðilesturinn á því að óska þess að ég færi á hausinn og hann myndi segja öllum hversu mikla skítaþjónustu ég byði upp á.
Það getur vel verið að ég hefði á endanum fengið verkið, en miðað við fyrihöfnina ,frekjuna og eftirmálana í tölvupóstinum þá hafði ég ekki áhuga á því.

Hvert er pointið mitt með þessu? Það er að örugglega hefur fullt af fólki fengið "hans" útgáfu af því hversu ómöguleg þjónustan var án þess að ég fengi nokkurntíman að vita það né tækifæri til þess að sergja mína hlið, það eru alltaf tvær hliðar á öllum svona málum. Þess vegna segir þessi þráður mér ekkert um þjónustu Tölvuteks né ELKO, annar maður í sömu sporum með sama vandamál hefði hugsanlega upplifað þetta allt öðruvísi.




Höfundur
mainman
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 387
Skráði sig: Sun 08. Jan 2006 15:40
Reputation: 83
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf mainman » Lau 01. Feb 2014 17:11

Point taken.
En það var enginn reiður í þessu máli og ég man ekki hvort ég minntist á það en strákurinn sem var að gera við og þjónusta mig var óvenju þægilegur og virtist vilja gera allt fyrir mig.
Eini sem var með stælana var þessi sem tók á móti konunni minni í upphafi.
Mín skynjun á þessu var hins vegar sú að svona þjónustuferli virtist ekki hafa neinn forgang í fyrirtækinu.
Ég t.d. þurfti að hringja í endann og segja að núna þyrfti þetta ða gerast strax og að ég ætlaði ekki að bíða lengur. Þá allt í einu gerðist allt á núll komma einni.
Það má ekki gleima að eftir rétt um viku tíma var komin staðfesting á því að tryggingarnar ætluðu að bæta þetta.
Þar með átti bara að bæta þetta one way or another og Tölvutek gat síðan fengið þetta bætt í rólegheitum frá tryggingunum, það á ekki að láta kúnnann bíða eftir því.



Skjámynd

Lusifer
Wine 'em, Dine 'em, Sixty-Nine 'em
Póstar: 69
Skráði sig: Mán 12. Okt 2009 17:35
Reputation: 0
Staðsetning: Selfoss
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf Lusifer » Lau 01. Feb 2014 17:17

Ég versla við þá sem eru með besta verðið og ef þeir eiga ekki hlutinn þá fer ég í næstu búð. Óþarfi að fara að grenja.


My favorite lake is coffee lake!


biturk
Kóngur
Póstar: 4431
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
Reputation: 6
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf biturk » Lau 01. Feb 2014 17:49

Guðjon

Ertu rnnþa með fyrirtæki


ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16568
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2135
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf GuðjónR » Lau 01. Feb 2014 20:39

biturk skrifaði:Guðjon

Ertu rnnþa með fyrirtæki

Ef þú ert að spyrja hvort ég eigi kennitöluna ennþá þá er svarið já, en hún er ofan í skúffu :)
Ef þú hefur áhuga á því að fara eignast "clean" 15 ára gamla kennitölu í byggingum og mannvirkjagerð, með einhverju smá tapi sem fyrnist fyrir 2020 sendu mér þá PM.
p.s. afsakið offtopic.



Skjámynd

Minuz1
Kerfisstjóri
Póstar: 1268
Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
Reputation: 143
Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf Minuz1 » Sun 02. Feb 2014 05:27

Eitt sem kom ekki fram í samanburði við tryggingar á bílum og tölvum, þegar þú selur bíl þinn, þá færðu endurgreitt þann tíma sem þú hefur greitt og farartækið ekki í þinni eigu.
Ef tryggingarfélagið tryggir eign og eignin skiptir um eigendur, þá annaðhvort þurfa þeir að tryggja hlutinn áfram fyrir hönd nýs eiganda eða endurgreiða upphaflega eiganda þann hluta sem af tryggingunni sem er eftirstandandi.
Að mínu mati amk.


Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það

Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf tdog » Sun 02. Feb 2014 15:49

GuðjónR skrifaði:
biturk skrifaði:Guðjon

Ertu rnnþa með fyrirtæki

Ef þú ert að spyrja hvort ég eigi kennitöluna ennþá þá er svarið já, en hún er ofan í skúffu :)
Ef þú hefur áhuga á því að fara eignast "clean" 15 ára gamla kennitölu í byggingum og mannvirkjagerð, með einhverju smá tapi sem fyrnist fyrir 2020 sendu mér þá PM.
p.s. afsakið offtopic.


Ert þú Gervimaður Útlönd?



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7585
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1193
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf rapport » Sun 02. Feb 2014 16:05

Hver vill stofna fyrirtæki með mér...

Neytendaþjónustan... svona einskonar Modus fyrir neytendur?



Skjámynd

Plushy
Vaktari
Póstar: 2277
Skráði sig: Fim 02. Sep 2010 18:20
Reputation: 20
Staðsetning: Grafarvogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf Plushy » Sun 02. Feb 2014 16:08

rapport skrifaði:Hver vill stofna fyrirtæki með mér...

Neytendaþjónustan... svona einskonar Modus fyrir neytendur?


Skýra það bara Nodus þá?



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16568
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2135
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf GuðjónR » Sun 02. Feb 2014 17:09

tdog skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
biturk skrifaði:Guðjon

Ertu rnnþa með fyrirtæki

Ef þú ert að spyrja hvort ég eigi kennitöluna ennþá þá er svarið já, en hún er ofan í skúffu :)
Ef þú hefur áhuga á því að fara eignast "clean" 15 ára gamla kennitölu í byggingum og mannvirkjagerð, með einhverju smá tapi sem fyrnist fyrir 2020 sendu mér þá PM.
p.s. afsakið offtopic.


Ert þú Gervimaður Útlönd?


hehehe ... já ég er útrásarvíkingur númer 1. ... my middle name is Tortola !!



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7585
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1193
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf rapport » Sun 02. Feb 2014 20:44

Plushy skrifaði:
rapport skrifaði:Hver vill stofna fyrirtæki með mér...

Neytendaþjónustan... svona einskonar Modus fyrir neytendur?


Skýra það bara Nodus þá?


Mynd

Fyrirtækið mundi heita (-1/12)^2

Vegna:





Carragher23
Ofur-Nörd
Póstar: 230
Skráði sig: Mið 22. Mar 2006 20:09
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Elko vs Tölvutek

Pósturaf Carragher23 » Mán 03. Feb 2014 03:47

Ég persónulega ætla aldrei að versla aftur við Tölvutek.

Ég keypti Dell vél þar fyrir nokkrum mánuðum síðan. Var einfaldlega ekki nógu sáttur með þá vél þannig ég fór með hana tilbaka og ætlaði að borga mismuninn uppí nýja vél. Þessi Dell vél kostaði 180 þús ef ég man rétt.

Kærastan mín henti óvart frauðplastinu sem kemur ofan á tölvuna í kassanum, þetta er minnsti hluti frauðplastsins sem er í kassanum.

Sölumaðurinn bókstaflega neitaði að taka við vélinni svona, eftir smá þras sagði hann að hann þyrfti að taka 10% af verðinu því það vantaði þetta. 18 þús fyrir frauðplast!!

Svona verkstæði fá inn helling af vélum, bilaðar og þessháttar, og það er enginn að segja mér að það sé ekki hægt að fiffa til eitt helvítis frauðplast af lagernum eða verkstæðinu.

Ég var alls ekki sáttur með það og eftir mikið þras við þennan mann og mikla óánægju hjá mér endaði þetta að ég borgaði 5 þús fyrir plastið. Í sárabót bauð hann mér 10% afslátt af vörum hjá þeim í framtíðinni sem ég ætla ekki að nýta mér.


Cooler Master HAF932 - Gigabyte GA-X58A-UD7 - Intel i7 930 @3,8GHz - Kingston 6GB HyperX DDR3 1730MHz - Crucial RealSSD C-300 128GB og 2x1TB samsung spinpoint F3 í Raid0 - Gigabyte HD5770 1GB - Noctua NH-D14 - Cooler Master Silent ProM 850W - "25" Full Hd I-Inc