Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Allt utan efnis
Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf dori » Þri 07. Jan 2014 22:44

hakkarin skrifaði:
worghal skrifaði:nei, þeir eru þjófar að rukka OUT THE ASS en ekki bjóða okkur þær þjónustur sem við VILJUM borga fyrir.

Ef að þú færð ekki þá þjónustu sem að þú vilt, af hverju þá ekki bara að sleppa því að versla við viðkomandi? Ef að þú skrifar undir samning þar sem að þú borgar X mikið á mánuði fyrir X mikið gagnamagn og þú svindlar með því að nota svona VPN til að downloada endalaust að þá ertu að scama netfyrirtækið þitt. Burt séð frá því hvort að þetta sé eða sé ekki bannað samkvæmt lögum að þá er þetta ósiðlegt. Það að segja að maður "eigi það bara skilið að fá þetta og þar að leiðandi sé þetta í lagi" er bara frekja.

Hahaha, þú ert kjáni sem skilur alveg greinilega ekki hvernig internetið virkar.

Skjámynd

Höfundur
hakkarin
Bannaður
Póstar: 826
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf hakkarin » Þri 07. Jan 2014 22:47

KermitTheFrog skrifaði:

Fjarskiptafyrirtækin tapa nákvæmlega engu á þessu. Það skiptir þá engu máli hvort þú sækir 500MB eða 500GB yfir mánuðinn. Það eru þeir sem eru að svindla á þér með þetta gagnamagnsgjald.

Getur þú rökstutt þessa fullyrðingu?

AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6352
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 160
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf AntiTrust » Þri 07. Jan 2014 22:47

dori skrifaði:
hakkarin skrifaði:Ef að þú færð ekki þá þjónustu sem að þú vilt, af hverju þá ekki bara að sleppa því að versla við viðkomandi? Ef að þú skrifar undir samning þar sem að þú borgar X mikið á mánuði fyrir X mikið gagnamagn og þú svindlar með því að nota svona VPN til að downloada endalaust að þá ertu að scama netfyrirtækið þitt. Burt séð frá því hvort að þetta sé eða sé ekki bannað samkvæmt lögum að þá er þetta ósiðlegt. Það að segja að maður "eigi það bara skilið að fá þetta og þar að leiðandi sé þetta í lagi" er bara frekja.

Hahaha, þú ert kjáni sem skilur alveg greinilega ekki hvernig internetið virkar.

Þetta. hakkarin, það er ekki verið að svindla á neinum. Þetta er allt fair play. Internetveitan er ekki að tapa neinu, þetta er allt ódýr innanlands traffík fyrir þá. Sá sem ber kostnaðinn/álagið af erlenda gagnaflæðinu er gagnaverið sem hýsir VPN þjónustuna.

Skjámynd

fallen
ÜberAdmin
Póstar: 1320
Skráði sig: Fös 06. Feb 2004 13:09
Reputation: 8
Staðsetning: eyjar
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf fallen » Þri 07. Jan 2014 22:48

Hnykill skrifaði:Þetta er eins og með snjókornið, sem vill ekki taka á sig ábyrgðina með snjóflóðið. þið eruð að stela efni strákar.. hvernig sem þið viljið horfa á þetta.. þið eruð þjófar og eruð að stela efni !

Þið eruð bara þjófar að stela.. ekkert annað :/

Brot á höfundarétti er einmitt það, brot á höfundarétti. Ekki þjófnaður.

Gaming: Intel i5-4670K @ 4.4GHz | Gigabyte G1.Sniper M5 | Gigabyte GTX 970 4GB | 16GB Crucial BallistiX DDR3 | Samsung 840 EVO 120GB | Corsair 350D | Corsair AX760 | Corsair H100i | BenQ XL2411T 144Hz
unRAID: Intel Xeon E3-1275 v6 | Supermicro X11SSL-CF | 32GB DDR4 ECC | 6x10TB IronWolfs | Samsung 850 Pro 512GB & 256GB | Fractal Node 804 | Corsair SF750 | APC Back-UPS Pro 900

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3835
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 157
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf Daz » Þri 07. Jan 2014 23:02

hakkarin skrifaði:
worghal skrifaði:nei, þeir eru þjófar að rukka OUT THE ASS en ekki bjóða okkur þær þjónustur sem við VILJUM borga fyrir.

Ef að þú færð ekki þá þjónustu sem að þú vilt, af hverju þá ekki bara að sleppa því að versla við viðkomandi? Ef að þú skrifar undir samning þar sem að þú borgar X mikið á mánuði fyrir X mikið gagnamagn og þú svindlar með því að nota svona VPN til að downloada endalaust að þá ertu að scama netfyrirtækið þitt. Burt séð frá því hvort að þetta sé eða sé ekki bannað samkvæmt lögum að þá er þetta ósiðlegt. Það að segja að maður "eigi það bara skilið að fá þetta og þar að leiðandi sé þetta í lagi" er bara frekja.

VPN þjónustan (eins og hún er rædd hér, með VPN endapunkt á Íslandi) veldur því að öll gögn fara í gegnum íslenskan endapunt svo umferðin er íslensk skv skilgreingu netþjónustuaðilans. Það er VPN þjónustuaðilinn sem sér um gagnasamskiptin frá Íslandi og á endanlegan tengipunkt og borga því fyrir þá bandvídd sem er notuð. Það er ekki verið að svindla á neinum, þetta er bara eins og að taka strætó út í Skerjafjörð og fljúga til Akureyrar. Þú ert ekkert að svindla á Strætó, þó hann gangi til Akureyrar líka.

Skjámynd

Revenant
</Snillingur>
Póstar: 1034
Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
Reputation: 132
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf Revenant » Þri 07. Jan 2014 23:04

hakkarin skrifaði:
worghal skrifaði:nei, þeir eru þjófar að rukka OUT THE ASS en ekki bjóða okkur þær þjónustur sem við VILJUM borga fyrir.

Ef að þú færð ekki þá þjónustu sem að þú vilt, af hverju þá ekki bara að sleppa því að versla við viðkomandi? Ef að þú skrifar undir samning þar sem að þú borgar X mikið á mánuði fyrir X mikið gagnamagn og þú svindlar með því að nota svona VPN til að downloada endalaust að þá ertu að scama netfyrirtækið þitt. Burt séð frá því hvort að þetta sé eða sé ekki bannað samkvæmt lögum að þá er þetta ósiðlegt. Það að segja að maður "eigi það bara skilið að fá þetta og þar að leiðandi sé þetta í lagi" er bara frekja.

Íslenskir aðilar peer-a sig í gegnum RIX. Öll traffík sem fer þar í gegn er "ókeypis" þ.e. það þarf aðeins að borga tengigjöldin til RIX.

Skjámynd

intenz
Besserwisser
Póstar: 3337
Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
Reputation: 35
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf intenz » Þri 07. Jan 2014 23:29

AntiTrust skrifaði:
dori skrifaði:
hakkarin skrifaði:Ef að þú færð ekki þá þjónustu sem að þú vilt, af hverju þá ekki bara að sleppa því að versla við viðkomandi? Ef að þú skrifar undir samning þar sem að þú borgar X mikið á mánuði fyrir X mikið gagnamagn og þú svindlar með því að nota svona VPN til að downloada endalaust að þá ertu að scama netfyrirtækið þitt. Burt séð frá því hvort að þetta sé eða sé ekki bannað samkvæmt lögum að þá er þetta ósiðlegt. Það að segja að maður "eigi það bara skilið að fá þetta og þar að leiðandi sé þetta í lagi" er bara frekja.

Hahaha, þú ert kjáni sem skilur alveg greinilega ekki hvernig internetið virkar.

Þetta. hakkarin, það er ekki verið að svindla á neinum. Þetta er allt fair play. Internetveitan er ekki að tapa neinu, þetta er allt ódýr innanlands traffík fyrir þá. Sá sem ber kostnaðinn/álagið af erlenda gagnaflæðinu er gagnaverið sem hýsir VPN þjónustuna.

En raunveruleg spurning er internetveitan nokkuð að tapa á þessu yfir höfuð, er hún rukkuð fyrir hvert byte? Er þetta ekki bara fast mánaðargjald sem þeir borga fyrir þessa erlendu strengi, óháð notkun?

i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16491
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2105
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf GuðjónR » Þri 07. Jan 2014 23:40

hakkarin skrifaði:Var að pæla, fólk sem að niðurhalar/torrentar hundruðum GB af efni á mánuði, hvað gerir fólk eiglega við þetta? Varla getur það horft/hlustað/spilað þetta allt saman á einum mánuði?

Er þetta ekki bara fíkn? Sé engar praktíska ástæðu fyrir því að þurfa að niðurhala svona mikið í einum mánuði. Er að spyrja að því að fokking meðleigjandi minn er búinn að eyða næstum 100GB af 150GB mánaðarlega niðurhalinu okkar nú þegar... ](*,)

Fá allt fyrir peninginn!

AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6352
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 160
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf AntiTrust » Þri 07. Jan 2014 23:43

intenz skrifaði:En raunveruleg spurning er internetveitan nokkuð að tapa á þessu yfir höfuð, er hún rukkuð fyrir hvert byte? Er þetta ekki bara fast mánaðargjald sem þeir borga fyrir þessa erlendu strengi, óháð notkun?

Fast gjald skv. samningum um traffík yfir sæstrengi, amk hjá stærri aðilum. Þori þó ekki að fullyrða um minni strengina, en grunar það.

Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf KermitTheFrog » Þri 07. Jan 2014 23:45

intenz skrifaði:
AntiTrust skrifaði:
dori skrifaði:
hakkarin skrifaði:Ef að þú færð ekki þá þjónustu sem að þú vilt, af hverju þá ekki bara að sleppa því að versla við viðkomandi? Ef að þú skrifar undir samning þar sem að þú borgar X mikið á mánuði fyrir X mikið gagnamagn og þú svindlar með því að nota svona VPN til að downloada endalaust að þá ertu að scama netfyrirtækið þitt. Burt séð frá því hvort að þetta sé eða sé ekki bannað samkvæmt lögum að þá er þetta ósiðlegt. Það að segja að maður "eigi það bara skilið að fá þetta og þar að leiðandi sé þetta í lagi" er bara frekja.

Hahaha, þú ert kjáni sem skilur alveg greinilega ekki hvernig internetið virkar.

Þetta. hakkarin, það er ekki verið að svindla á neinum. Þetta er allt fair play. Internetveitan er ekki að tapa neinu, þetta er allt ódýr innanlands traffík fyrir þá. Sá sem ber kostnaðinn/álagið af erlenda gagnaflæðinu er gagnaverið sem hýsir VPN þjónustuna.

En raunveruleg spurning er internetveitan nokkuð að tapa á þessu yfir höfuð, er hún rukkuð fyrir hvert byte? Er þetta ekki bara fast mánaðargjald sem þeir borga fyrir þessa erlendu strengi, óháð notkun?

Það er allavega það sem ég held, og það sem mér finnst meika mest sens. Þetta tíðkast eiginlega hvergi erlendis, þetta "erlenda gagnamagn".

Skjámynd

intenz
Besserwisser
Póstar: 3337
Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
Reputation: 35
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf intenz » Þri 07. Jan 2014 23:45

AntiTrust skrifaði:
intenz skrifaði:En raunveruleg spurning er internetveitan nokkuð að tapa á þessu yfir höfuð, er hún rukkuð fyrir hvert byte? Er þetta ekki bara fast mánaðargjald sem þeir borga fyrir þessa erlendu strengi, óháð notkun?

Fast gjald skv. samningum um traffík yfir sæstrengi, amk hjá stærri aðilum. Þori þó ekki að fullyrða um minni strengina, en grunar það.

Þannig þeir eru raunverulega ekki að tapa neinu, nema bara að þeir verða af tekjum. Bölvaðir. :x

i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64

Skjámynd

Höfundur
hakkarin
Bannaður
Póstar: 826
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf hakkarin » Þri 07. Jan 2014 23:58

KermitTheFrog skrifaði:
intenz skrifaði:
AntiTrust skrifaði:
dori skrifaði:
hakkarin skrifaði:Ef að þú færð ekki þá þjónustu sem að þú vilt, af hverju þá ekki bara að sleppa því að versla við viðkomandi? Ef að þú skrifar undir samning þar sem að þú borgar X mikið á mánuði fyrir X mikið gagnamagn og þú svindlar með því að nota svona VPN til að downloada endalaust að þá ertu að scama netfyrirtækið þitt. Burt séð frá því hvort að þetta sé eða sé ekki bannað samkvæmt lögum að þá er þetta ósiðlegt. Það að segja að maður "eigi það bara skilið að fá þetta og þar að leiðandi sé þetta í lagi" er bara frekja.

Hahaha, þú ert kjáni sem skilur alveg greinilega ekki hvernig internetið virkar.

Þetta. hakkarin, það er ekki verið að svindla á neinum. Þetta er allt fair play. Internetveitan er ekki að tapa neinu, þetta er allt ódýr innanlands traffík fyrir þá. Sá sem ber kostnaðinn/álagið af erlenda gagnaflæðinu er gagnaverið sem hýsir VPN þjónustuna.

En raunveruleg spurning er internetveitan nokkuð að tapa á þessu yfir höfuð, er hún rukkuð fyrir hvert byte? Er þetta ekki bara fast mánaðargjald sem þeir borga fyrir þessa erlendu strengi, óháð notkun?

Það er allavega það sem ég held, og það sem mér finnst meika mest sens. Þetta tíðkast eiginlega hvergi erlendis, þetta "erlenda gagnamagn".

Rugl. Það er verið að gera þetta í fullt af löndum. Veit að þetta er gert í Kanada.

Skjámynd

Hnykill
Of mikill frítími
Póstar: 1863
Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
Reputation: 85
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf Hnykill » Þri 07. Jan 2014 23:58

Buhuhu.. fenguð ekki góðan díl annarstaðar svo þið ákváðuð að stela bara efninu ! allt þeim að kenna sem gáfuð ykkur ekki góðan díl :-k

Þið eruð þjófar að stela efni og hættið að þykjast vera eitthvað annað.

Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.

AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6352
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 160
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf AntiTrust » Þri 07. Jan 2014 23:59

Þeir rukka heildargagnamagn, ekki innlent/erlent.

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3835
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 157
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf Daz » Mið 08. Jan 2014 00:00

intenz skrifaði:
AntiTrust skrifaði:
intenz skrifaði:En raunveruleg spurning er internetveitan nokkuð að tapa á þessu yfir höfuð, er hún rukkuð fyrir hvert byte? Er þetta ekki bara fast mánaðargjald sem þeir borga fyrir þessa erlendu strengi, óháð notkun?

Fast gjald skv. samningum um traffík yfir sæstrengi, amk hjá stærri aðilum. Þori þó ekki að fullyrða um minni strengina, en grunar það.

Þannig þeir eru raunverulega ekki að tapa neinu, nema bara að þeir verða af tekjum. Bölvaðir. :x

Ef þeir myndu selja okkur ótakmarkað gagnamagn, þá þyrftu þeir meiri bandvídd sem myndi kosta þjónustuaðilann meira sem myndi hækka grunnverðið á áskriftinni. Líklega eðlilegra að reyna að rukka fyrir notkunina og halda grunnverðinu lágu?

Hnykill skrifaði:Buhuhu.. fenguð ekki góðan díl annarstaðar svo þið ákváðuð að stela bara efninu ! allt þeim að kenna sem gáfuð ykkur ekki góðan díl :-k

Þið eruð þjófar að stela efni og hættið að þykjast vera eitthvað annað.

Myndir þú telja það þjófnað að horfa á myndefni í gegnum Netflix?
Myndir þú telja það þjófnað ef efnið er ekki aðgengilegt með öðrum "löglegri" leiðum á Íslandi? (Ég veit að þetta er frekar corner case dæmi, en ég verð að vita þetta svo ég geti hegðað mér löglega skv. skilgreiningu internetsins!)

Skjámynd

Hnykill
Of mikill frítími
Póstar: 1863
Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
Reputation: 85
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf Hnykill » Mið 08. Jan 2014 00:02

Þannig að því þeir selja ekki ótakmarkað gagnamagn þá steluru efninu ??

afsökun fyrir mér :/

fáið ykkur bara fyrirframgreitt visa kort ok kaupið efnið af Ebay

Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.

AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6352
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 160
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf AntiTrust » Mið 08. Jan 2014 00:04

Hnykill skrifaði:Buhuhu.. fenguð ekki góðan díl annarstaðar svo þið ákváðuð að stela bara efninu ! allt þeim að kenna sem gáfuð ykkur ekki góðan díl :-k

Þið eruð þjófar að stela efni og hættið að þykjast vera eitthvað annað.

Hættu þessu trolli. Það hefur ekki stakur aðili hér sagst vera að sækja höfundarréttarvarið efni, eða efni sem þeir ekki rétt á að eiga afrit af nú þegar.

Ps. Stúdíóin og dreifingaraðilar geta nánast kennt sjálfum sér um hvernig þessum málum er háttað í dag. Það þýðir ekki að niðurhal á efninu sé réttlætanlegt, en það má að stórum hluta kenna græðgi Hollywood um, græðgi sem er á svo háu leveli að hún jaðrar við geðveiki.

Hnykill skrifaði:Þannig að því þeir selja ekki ótakmarkað gagnamagn þá steluru efninu ??

afsökun fyrir mér :/

fáið ykkur bara fyrirframgreitt visa kort ok kaupið efnið af Ebay

Kemur gagnamagni ekkert við. Kaupa á Ebay? Erum við alltíeinu komnir aftur til 2005 þegar optical media var hipp og kúl? Það nennir enginn að standa í physical diskum, þegar tæknin er til staðar sem þarf til að streyma þessu beint í stofuna hjá þér í háskerpugæðum á eðlilegu verði.

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6795
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 940
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf Viktor » Mið 08. Jan 2014 09:04

KermitTheFrog skrifaði:
hakkarin skrifaði:
worghal skrifaði:nei, þeir eru þjófar að rukka OUT THE ASS en ekki bjóða okkur þær þjónustur sem við VILJUM borga fyrir.

Ef að þú færð ekki þá þjónustu sem að þú vilt, af hverju þá ekki bara að sleppa því að versla við viðkomandi? Ef að þú skrifar undir samning þar sem að þú borgar X mikið á mánuði fyrir X mikið gagnamagn og þú svindlar með því að nota svona VPN til að downloada endalaust að þá ertu að scama netfyrirtækið þitt. Burt séð frá því hvort að þetta sé eða sé ekki bannað samkvæmt lögum að þá er þetta ósiðlegt. Það að segja að maður "eigi það bara skilið að fá þetta og þar að leiðandi sé þetta í lagi" er bara frekja.

Fjarskiptafyrirtækin tapa nákvæmlega engu á þessu. Það skiptir þá engu máli hvort þú sækir 500MB eða 500GB yfir mánuðinn. Það eru þeir sem eru að svindla á þér með þetta gagnamagnsgjald.

Fjarskipafyritækin þurfa að greiða fyrir erlenda traffík, svo auðvitað tapa þau ef enginn þyrfti að borga fyrir gagnamagnið.

I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things

Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

Jón Ragnar
</Snillingur>
Póstar: 1016
Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
Reputation: 206
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf Jón Ragnar » Mið 08. Jan 2014 09:42

Allir grjótharðir hérna

Torrentnotkun mín hefur snarminnkað eftir að ég fékk mér Huluplus og Netflix.

Ég hreinlega nenni ekki að downloada torrentum lengur.
Kemur samt alveg fyrir :)

CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf dori » Mið 08. Jan 2014 10:10

Sallarólegur skrifaði:
KermitTheFrog skrifaði:
hakkarin skrifaði:
worghal skrifaði:nei, þeir eru þjófar að rukka OUT THE ASS en ekki bjóða okkur þær þjónustur sem við VILJUM borga fyrir.

Ef að þú færð ekki þá þjónustu sem að þú vilt, af hverju þá ekki bara að sleppa því að versla við viðkomandi? Ef að þú skrifar undir samning þar sem að þú borgar X mikið á mánuði fyrir X mikið gagnamagn og þú svindlar með því að nota svona VPN til að downloada endalaust að þá ertu að scama netfyrirtækið þitt. Burt séð frá því hvort að þetta sé eða sé ekki bannað samkvæmt lögum að þá er þetta ósiðlegt. Það að segja að maður "eigi það bara skilið að fá þetta og þar að leiðandi sé þetta í lagi" er bara frekja.

Fjarskiptafyrirtækin tapa nákvæmlega engu á þessu. Það skiptir þá engu máli hvort þú sækir 500MB eða 500GB yfir mánuðinn. Það eru þeir sem eru að svindla á þér með þetta gagnamagnsgjald.

Fjarskipafyritækin þurfa að greiða fyrir erlenda traffík, svo auðvitað tapa þau ef enginn þyrfti að borga fyrir gagnamagnið.

Þau eru samt að feila á því að stærstu pakkarnir þeirra eru 250GB þegar það er augljóslega fólk sem þarf/vill meira. Auk þess sem þau eru ekkert að tapa á þessu, það er fullt af fólki sem notar beinu leiðina bæði í torrent og auðvitað alla aðra traffík. Þeir sem eru með HMA eða álíka nota t.d. örugglega allir upp allan sinn mánaðarlega kvóta líka (eða eins nálægt því og þeir þora).

AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6352
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 160
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf AntiTrust » Mið 08. Jan 2014 11:03

Ég held að vandamálið sé ekki það að fyrirtækin séu ekki tilbúin til að bæta við áskriftarleiðum með hærra gagnamagni, heldur hreinlega bara verðið sem slíkar leiðir myndu kosta. Prósentan sem myndi týma því að versla sér net fyrir meira en 15þ nær líklega ekki einu sinni heilli tölu.

Annars verður þetta allt saman mælt á endanum, innlent/erlent og þá verður bara hver tenging með total cap upp á e-rn helvítis helling, en mun valda vandræðum fyrir stórnotendur.

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6795
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 940
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf Viktor » Mið 08. Jan 2014 11:44

Það sést nú svart á hvítu á verðskránni hjá Hringiðunni að erlent gagnamagn kostar fyrirtækin mikla peninga.

http://vortex.is/ljosleidari/

Ljósleiðari
400Mb/400GB

19.990,-

Ljósleiðari
200Mb/200GB

11.990,-

I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things

Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf dori » Mið 08. Jan 2014 11:52

Borga gagnaverin (og þ.a.l. kúnnar eins og HMA) ekki lægra verð fyrir notkun á sæstrengnum en ISParnir?

AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6352
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 160
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf AntiTrust » Mið 08. Jan 2014 11:56

dori skrifaði:Borga gagnaverin (og þ.a.l. kúnnar eins og HMA) ekki lægra verð fyrir notkun á sæstrengnum en ISParnir?

Jú, svo skilst mér - afhverju veit ég ekki, en það væri vægast sagt áhugavert að fá að vita.

Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Pósturaf tdog » Mið 08. Jan 2014 12:17

Af sömuástæðu og álverin borga smáverð fyrir raforku og flutning en almúginn ekki; til þess að þau komi hingað frekar en annað.

En ástæðan fyrir því að við borgum fyrir erlent gagnamagn, er sú að erlendis tíðkast að borga flutningsgjald af gagnaumferð á milli neta. Hér á Íslandi erum við með einn slíkan tengipunkt, en Íslensku netveiturnar rukka ekki sín á milli fyrir umferð annara veitna um sín net.