Vodafone Gagnamagn

Allt utan efnis

Höfundur
Selurinn
Kerfisstjóri
Póstar: 1228
Skráði sig: Fös 24. Feb 2006 15:51
Reputation: 2
Staðsetning: Mhz
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Vodafone Gagnamagn

Pósturaf Selurinn » Fim 28. Nóv 2013 12:42

Smá tuð,

Byrja með 150gb ljós hjá Vodafone.
Í dag virðist allt cappað. :x
Skoða gagnamagn og sé að ég er kominn í 200gb. Úbs

Kemst að því að það er búið að bæta við 3x10gb á tenginguna sem gerir aukalega 5.100 kr.- án þess að ég hafi hugmynd um það. Má þetta? :uhh1

Borga þennan mánuð sirka 12.320 kr.- á meðan 250gb pakkinn er á 8.670 kr.- sem ég virkilega sé eftir að hafa ekki tekið til að byrja með. #-o

Plús oná þetta er netið varla nothæft þessa 3 daga eftir af mánuðinum, ekki nema ég borgi þá aukalega 3.500 kr.- fyrir 30gb. :thumbsd

Yeeeaahh riiiiiight. [-X

Nú þarf ég númerið hjá vælubílnum. :hnuss
Síðast breytt af Selurinn á Fim 28. Nóv 2013 12:50, breytt samtals 1 sinni.




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6350
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Re: Vodafone Gagnamagn

Pósturaf AntiTrust » Fim 28. Nóv 2013 12:48

Þetta er nefnilega alveg ótrúlega siðlaust hjá þeim. Fyrir mér er þetta ekkert nema stuldur. Tal gerir þetta sama en býður þó að minnsta kosti að geta slökkt á þessu. Síminn gerir þetta auðvitað líka en þó skömminni skárri með sín 1x10GB. Ég væri verulega til í að heyra alvöru rök, önnur en "þetta er það sem viðskiptavinirnir vilja" frá talsmanni Vodafone.




bigggan
spjallið.is
Póstar: 454
Skráði sig: Fim 05. Maí 2011 17:43
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Vodafone Gagnamagn

Pósturaf bigggan » Fim 28. Nóv 2013 12:58

Ég hætti hjá Vodafone vegna þessu. Farðu i 10 GB og keyftu ótakmarkað niðurhal með VPN. td lokun.is eða hidemyass.




Tesy
</Snillingur>
Póstar: 1075
Skráði sig: Mán 08. Feb 2010 01:20
Reputation: 12
Staðsetning: 108 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vodafone Gagnamagn

Pósturaf Tesy » Fim 28. Nóv 2013 13:07

bigggan skrifaði:Ég hætti hjá Vodafone vegna þessu.


2x




benediktkr
Ofur-Nörd
Póstar: 279
Skráði sig: Fim 16. Feb 2012 20:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Vodafone Gagnamagn

Pósturaf benediktkr » Fim 28. Nóv 2013 14:54

30 gb fyrir 5.100 kr? Shitt. Og það án þess að spurja...

Ég sel 1 Tb fyrir 2000 kr (www.lokun.is).



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16452
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2086
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vodafone Gagnamagn

Pósturaf GuðjónR » Fim 28. Nóv 2013 15:13

Selurinn skrifaði:Kemst að því að það er búið að bæta við 3x10gb á tenginguna sem gerir aukalega 5.100 kr.- án þess að ég hafi hugmynd um það. Má þetta? :uhh1

Nei, ekki nema þú hafir skrifað undir skilmála sem heimila þeim þetta.
Ef þessi reikningur færi í hart þá gætu þeir aldrei staðið á honum, ég leyfi mér að fullyrða það.




rubey
Fiktari
Póstar: 74
Skráði sig: Lau 16. Jan 2010 00:39
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Vodafone Gagnamagn

Pósturaf rubey » Fim 28. Nóv 2013 15:26

Hvernig er hraðinn hjá lokun og hidemyass?



Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4330
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 383
Staða: Ótengdur

Re: Vodafone Gagnamagn

Pósturaf chaplin » Fim 28. Nóv 2013 15:30

HideMyAss fá 10/10 hjá mér, borga um 800 kr á mánuði, lækkaði bandvíddina hjá úr 150GB í 10GB, spara 3.650kr - (800) eða 2.850 kr á mánuði eftir að ég byrjaði að nota HideMyAss og með algjörlega ótakmarkað niðurhal, mjög góður hraði og fullt of íslenskum speglum.

edit Þú getur auðvitað keypt þér einn mánuð í áskrift til að prufa HideMyAss, kostar um 1.3000 kr og þú getur byrjað að sækja erlendis aftur á fullum hraða. :happy

edit2 Getur einnig sett þetta upp á Routerinn hjá þér, er öll traffík heima hjá þér innanlands. Eini ókosturinn er að ping á erlendum leikjaþjónum er örlítið lakara, þegar þú ert að spila og vilt frá örlítið betra ping getur þú slökkt á þjóninum. :happy


youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS

Skjámynd

MrSparklez
Tölvutryllir
Póstar: 634
Skráði sig: Lau 04. Maí 2013 16:01
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: Vodafone Gagnamagn

Pósturaf MrSparklez » Fim 28. Nóv 2013 15:47

chaplin skrifaði:HideMyAss fá 10/10 hjá mér, borga um 800 kr á mánuði, lækkaði bandvíddina hjá úr 150GB í 10GB, spara 3.650kr - (800) eða 2.850 kr á mánuði eftir að ég byrjaði að nota HideMyAss og með algjörlega ótakmarkað niðurhal, mjög góður hraði og fullt of íslenskum speglum.

edit Þú getur auðvitað keypt þér einn mánuð í áskrift til að prufa HideMyAss, kostar um 1.3000 kr og þú getur byrjað að sækja erlendis aftur á fullum hraða. :happy

edit2 Getur einnig sett þetta upp á Routerinn hjá þér, er öll traffík heima hjá þér innanlands. Eini ókosturinn er að ping á erlendum leikjaþjónum er örlítið lakara, þegar þú ert að spila og vilt frá örlítið betra ping getur þú slökkt á þjóninum. :happy

Hvernig er það samt með leiki, varðandi ping og svona ? :)

Edit: þá er ég að tala um Hidemyass þjónustuna.



Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4330
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 383
Staða: Ótengdur

Re: Vodafone Gagnamagn

Pósturaf chaplin » Fim 28. Nóv 2013 15:48

MrSparklez skrifaði:Hvernig er það samt með leiki, varðandi ping og svona ? :)

Mitt hækkaði um 15ms, en á meðan ég spila leiki slekk ég bara á þjónustunni. ;)


youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS

Skjámynd

ponzer
Kerfisstjóri
Póstar: 1270
Skráði sig: Þri 07. Sep 2004 18:18
Reputation: 13
Staðsetning: Router(config)#
Staða: Ótengdur

Re: Vodafone Gagnamagn

Pósturaf ponzer » Fim 28. Nóv 2013 16:02

chaplin skrifaði:HideMyAss fá 10/10 hjá mér, borga um 800 kr á mánuði, lækkaði bandvíddina hjá úr 150GB í 10GB, spara 3.650kr - (800) eða 2.850 kr á mánuði eftir að ég byrjaði að nota HideMyAss og með algjörlega ótakmarkað niðurhal, mjög góður hraði og fullt of íslenskum speglum.

edit Þú getur auðvitað keypt þér einn mánuð í áskrift til að prufa HideMyAss, kostar um 1.3000 kr og þú getur byrjað að sækja erlendis aftur á fullum hraða. :happy

edit2 Getur einnig sett þetta upp á Routerinn hjá þér, er öll traffík heima hjá þér innanlands. Eini ókosturinn er að ping á erlendum leikjaþjónum er örlítið lakara, þegar þú ert að spila og vilt frá örlítið betra ping getur þú slökkt á þjóninum. :happy



Værirðu til í að fara á myip.is þegar þú ert tengdur og segja okkur IP töluna sem þú kemur út á ? Ég er pínu forvitinn hvar þeir eru að hosta þetta hérna heima..


Specs: Tölva, skjár, lyklaborð, mús og internet.

Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4330
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 383
Staða: Ótengdur

Re: Vodafone Gagnamagn

Pósturaf chaplin » Fim 28. Nóv 2013 16:07

ponzer skrifaði:Værirðu til í að fara á myip.is þegar þú ert tengdur og segja okkur IP töluna sem þú kemur út á ? Ég er pínu forvitinn hvar þeir eru að hosta þetta hérna heima..


Skal gera það við tækifæri já, en þeir eru með held ég nokkra spegla á Íslandi.


youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS


AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6350
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Re: Vodafone Gagnamagn

Pósturaf AntiTrust » Fim 28. Nóv 2013 16:13

Ég er nokkuð viss um að allar nóðurnar sem HMA eru með séu hýstar hjá Thor.



Skjámynd

ponzer
Kerfisstjóri
Póstar: 1270
Skráði sig: Þri 07. Sep 2004 18:18
Reputation: 13
Staðsetning: Router(config)#
Staða: Ótengdur

Re: Vodafone Gagnamagn

Pósturaf ponzer » Fim 28. Nóv 2013 16:16

Jamm það passar, er búinn að grafa eina upp.. 193.107.85.129


Specs: Tölva, skjár, lyklaborð, mús og internet.

Skjámynd

gRIMwORLD
FanBoy
Póstar: 720
Skráði sig: Fös 19. Des 2008 21:19
Reputation: 41
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Vodafone Gagnamagn

Pósturaf gRIMwORLD » Fim 28. Nóv 2013 18:12

Þú gætir hringt í vælubílinn en þetta kemur skilmerkilega fram á heimasíðunni hjá Vodafone og í skilmálum. Nógu mörg hafa svona mál verið í gegnum árin að fólk ætti að hafa það sem sjálfsagðan hlut að kynna sér þessa hluti þegar sótt er um tengingar.


IBM PS/2 8086


AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6350
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Re: Vodafone Gagnamagn

Pósturaf AntiTrust » Fim 28. Nóv 2013 18:34

gRIMwORLD skrifaði:Þú gætir hringt í vælubílinn en þetta kemur skilmerkilega fram á heimasíðunni hjá Vodafone og í skilmálum. Nógu mörg hafa svona mál verið í gegnum árin að fólk ætti að hafa það sem sjálfsagðan hlut að kynna sér þessa hluti þegar sótt er um tengingar.


Þetta er ekki væl, þetta er mjög svo þörf og réttmæt gagnrýni. Þú verður að athuga að þetta er nýtilgerð þjónustubreyting, svo það var ekki nokkur klausa um 3x10GB þegar ég sem dæmi fór í viðskipti við Vodafone. Burtséð frá því, hvað var og var ekki í samning þegar viðskiptavinur stofnar til þjónustu þá er eins og alltaf klausa um að þessum samning megi breyta eftir þeirra eigin hentisemi, svo lengi sem það er gert með fyrirvara. Ég fékk hinsvegar ekkert fréttabréf þess eðlis eða tilkynningu á annað borð um að þessu yrði breytt. Það var örugglega sent út, en ég fékk ekkert slíkt. Þegar ég fæ tölvupóst sem varar mig við gagnamagnsnotkun þá stendur þar sem dæmi orðrétt
Þegar þú ferð umfram keypt gagnamagn munu 10 GB af aukagagnamagni bætast við þjónustuna þína og verða þau rukkuð skv. gjaldskrá Vodafone. Aukaniðurhal gildir út mánuðinn.

Þarna er hvergi minnst á það að þetta muni gerast sjálfkrafa þrisvar sinnum. Ef ég fer inná vodafone.is/gagnamagn og skoða notkunina mína stendur þar til hliðar

Þegar gagnamagn klárast verður 10 GB sjálfvirkt bætt við og því lokast ekki fyrir nettengingu, greitt er fyrir aukalegt niðurhal skv. verðskrá ljósleiðara).

En og aftur ekki minnst stöku orði á að þetta muni ég fá í þrígang, hvað þá kostnaðinn sem þessu fylgir, enda gígantískur, prósentulega séð m.v. áskriftargjaldið.

Þetta er ekki bara spurning um hvað stendur í helvítis samningnum, þetta er spurning um að fyrirtæki fari að tileinka sér "Don't be evil" - eða eðlilega, mannlega viðskiptahætti. Ef sú ákvörðun yrði tekin innan fjarskiptafyrirtækis að viðskiptavinir hefðu nú val um það hvort þetta ferli væri sjálfvirkt eða ekki væri hægt að koma því í gegn á litlum sem engum tíma.

Vandamálið er ekki að fjarskiptafyrirtækin geti ekki boðið fólki upp á að stjórna þessu. Þetta er ekki til þess að auka þjónustu við viðskiptavini, þótt fyrirtækin vilji vissulega meina það. Þetta er ekki hagkvæmt fyrir viðskiptavininn. Þetta er bara enn eitt dæmi af ótal um hvernig stórfyrirtæki misnota traust viðskiptavina, enn eitt vel falið aukagjald. Vodafone eru auðvitað ekki einir um þetta, en þeir eru hinsvegar grófastir með þetta. Fólk er orðið svo löngu vant því að vera tekið í rassgatið að það nennir enginn að lyfta fingri lengur, hvað þá tveim.

Helvítis, fokking fokk..




rubey
Fiktari
Póstar: 74
Skráði sig: Lau 16. Jan 2010 00:39
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Vodafone Gagnamagn

Pósturaf rubey » Fös 29. Nóv 2013 00:00

Ef ég set vpn upp á routerinum fara þá allar tölvurnar á routerinum í gegnum vpn? Er algjör nýliði í þessu..




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6350
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Re: Vodafone Gagnamagn

Pósturaf AntiTrust » Fös 29. Nóv 2013 12:26

Var að renna í gegnum pöntunarferlið á nýju pökkunum hjá 365, þar er hægt að velja strax til um hvort hægist á erlenda þegar gagnamagninu er náð eða hvort það bætist sjálfkrafa við.

Lastið við ferlið hjá þeim er að þeir setja hvorki leigugjald á myndlykli, router né aðgangsgjald. Ennþá verra er að þeir rukka sama aðgangsgjald fyrir Mílu og GR.