Bannað að gera grín af Transfólki og öðrum minnihlutahópum

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
hakkarin
Bannaður
Póstar: 826
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Bannað að gera grín af Transfólki og öðrum minnihlutahópum

Pósturaf hakkarin » Fös 18. Okt 2013 19:19

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/ ... med_logum/

Mér finnst þetta áhugaverðast:

„Hver sem opinberlega hæðist að, rógber, smánar eða ógnar

Verður þá semsagt bannað að grína grín af fólki? Hvað ef að eitthver gerir grín af útlendingum eða hommum í sjónvarpinu? Verður honum þá stungið í jailið? :shock:



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5590
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1051
Staða: Ótengdur

Re: Bannað að gera grín af Transfólki og öðrum minnihlutahóp

Pósturaf appel » Fös 18. Okt 2013 19:37

Mjög óskýr lög, og óskýr lög eru vond lög.


*-*

Skjámynd

Hrotti
Geek
Póstar: 833
Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
Reputation: 141
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Bannað að gera grín af Transfólki og öðrum minnihlutahóp

Pósturaf Hrotti » Fös 18. Okt 2013 20:12

appel skrifaði:Mjög óskýr lög, og óskýr lög eru vond lög.

Sammála.

Mér finnst samt ekkert að því að það sé bannað að fokka í minnihlutahópum opinberlega en reglurnar þurfa að vera skýrar.

Það er nú samt ekki verið að setja þessi lög núna, bara breyta þeim þannig að kynvitund telji líka, ekki bara trúarbrögð, litarháttur, kynþáttrr, og kynhneigð.


Verðlöggur alltaf velkomnar.

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6795
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 940
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Bannað að gera grín af Transfólki og öðrum minnihlutahóp

Pósturaf Viktor » Fös 18. Okt 2013 20:58

Þessi umræða er á mjög lágu plani. Það er ekkert nýtt hérna, það er einungis verið að bæta þessu orði inn í núverandi lög á nokkrum stöðum.

fyrir:
vegna þjóðernis, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða eða kynhneigðar
eftir:
vegna þjóðernis, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða, kynhneigðar eða kynvitundar


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


biturk
Kóngur
Póstar: 4431
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
Reputation: 6
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Bannað að gera grín af Transfólki og öðrum minnihlutahóp

Pósturaf biturk » Fös 18. Okt 2013 22:11

Algerlega óþarft


ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6795
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 940
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Bannað að gera grín af Transfólki og öðrum minnihlutahóp

Pósturaf Viktor » Fös 18. Okt 2013 22:37

biturk skrifaði:Algerlega óþarft


Nú, ég vissi ekki að þú værir lögfræðingur. Takk fyrir að fræða okkur netverjana um lögfræðileg álitamál.
Hvað ertu að taka á tímann? Væri fínt að gera hringt í þig ef mann vantar einhverntíman lögmann.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


hkr
spjallið.is
Póstar: 407
Skráði sig: Fös 23. Jan 2009 14:22
Reputation: 15
Staða: Ótengdur

Re: Bannað að gera grín af Transfólki og öðrum minnihlutahóp

Pósturaf hkr » Fös 18. Okt 2013 23:55

Sallarólegur skrifaði:
biturk skrifaði:Algerlega óþarft


Nú, ég vissi ekki að þú værir lögfræðingur. Takk fyrir að fræða okkur netverjana um lögfræðileg álitamál.
Hvað ertu að taka á tímann? Væri fínt að gera hringt í þig ef mann vantar einhverntíman lögmann.


Afsakaðu, en vissiru ekki að aðeins lögfræðingar mega hafa skoðanir á netinu?

kv. Netlöggan.
/s




capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Bannað að gera grín af Transfólki og öðrum minnihlutahóp

Pósturaf capteinninn » Lau 19. Okt 2013 01:52

Sallarólegur skrifaði:Þessi umræða er á mjög lágu plani. Það er ekkert nýtt hérna, það er einungis verið að bæta þessu orði inn í núverandi lög á nokkrum stöðum.

fyrir:
vegna þjóðernis, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða eða kynhneigðar
eftir:
vegna þjóðernis, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða, kynhneigðar eða kynvitundar


Er alveg sammála þér, er þetta í alvöru eitthvað issue sem þarf að ræða um.
Veit að það má alveg ræða allt saman og gagnrýna og ég hvet til þess, en er ekki hægt að finna eitthvað aðeins meira áhugavert og mannbætandi heldur en eitthvað svona kjaftæði. Getum við ekki frekar talað um fjárlögin eða hvort við eigum að taka við flóttamönnum eða eitthvað sem skiptir í alvöru einhverju máli.

Biðst afsökunar hakkarin en ég held að ég hafi bara aldrei séð innlegg frá þér sem snýst ekki um einhverja tóma vitleysu eða það er mjög lélegt innlegg í umræðuna sem er til staðar fyrir.

But those are just my two cents



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6795
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 940
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Bannað að gera grín af Transfólki og öðrum minnihlutahóp

Pósturaf Viktor » Lau 19. Okt 2013 02:45

hkr skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:
biturk skrifaði:Algerlega óþarft


Nú, ég vissi ekki að þú værir lögfræðingur. Takk fyrir að fræða okkur netverjana um lögfræðileg álitamál.
Hvað ertu að taka á tímann? Væri fínt að gera hringt í þig ef mann vantar einhverntíman lögmann.


Afsakaðu, en vissiru ekki að aðeins lögfræðingar mega hafa skoðanir á netinu?

kv. Netlöggan.
/s


Þetta er bara ótrúlega barnalegt innlegg og á mjög lágu plani. Þó að þetta snerti hann ekki beint þá sé ég ekki hvernig þetta getur komið sér illa fyrir neinn.
Ég geri ráð fyrir að lögfræðingar hafi betri skilning en biturk á því hvaða lög eru þörf eða óþörf.
Þó að þessi lög komi honum ekki við persónulega, þá þýðir það ekki að lögin séu óþörf.

Ég er nú enginn sérstakur stuðningsmaður transgender fólks og þekki ekki neinn slíkan ennþá, en ég geri ráð fyrir því að það sé öllum til góða að það sé ekki brotið á því fólki frekar en öðrum og því finnst mér ekkert að því að taka það fram í lögum.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

krissi69
Nýliði
Póstar: 18
Skráði sig: Sun 09. Des 2007 04:25
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Bannað að gera grín af Transfólki og öðrum minnihlutahóp

Pósturaf krissi69 » Lau 19. Okt 2013 11:37

Ég tel það jákvætt að við gefum trans fólki sömu vernd og virðingu innan laga okkar eins og öðrum minnihlutahópum.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7501
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1164
Staða: Ótengdur

Re: Bannað að gera grín af Transfólki og öðrum minnihlutahóp

Pósturaf rapport » Lau 19. Okt 2013 12:02

krissi69 skrifaði:Ég tel það jákvætt að við gefum trans fólki sömu vernd og virðingu innan laga okkar eins og öðrum minnihlutahópum.


Sumum finnst bara að í lögum eigi að standa "allir" í stað þess að dregið sérstaklega fram eitthvað sem skilgreinir hópa sem sæta mismunun í samfélaginu.

Þá þarf nefnilega ekkert að gera neitt meira, þá erum við bara öll einn hópur og meðaltalið innan hópsins verður bara fínt, bara hvítir miðaldra karlmenn fyrir ofan meðaltalið og aðrir fyrir neðan það...

... en það má ekki skilgreina hópa ... þannig að einhverjir eru fyrir ofan meðaltalið og aðrir fyrir neðan það.... ekkert eðlilegra ...




Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Bannað að gera grín af Transfólki og öðrum minnihlutahóp

Pósturaf Tbot » Mán 21. Okt 2013 15:42

Þetta er dæmigert kjaftaði sem tröllríður öllu núna:
Pólitískur rétttrúnaður.

Ég sem hélt að það væri meira áríðandi mál sem þingið þyrfti að vinna í, sem snerti stóra hópa landsmanna.
Ekki einhverja 5, 10 eða jafnvel 50 manns.

Eins og rekstur á sjúkrastofnunum á þessu landi og að allir landsmenn geti fengið þjónustu þarna.
Nóg borgar fólk í skatta.




Bjosep
Geek
Póstar: 880
Skráði sig: Þri 16. Maí 2006 17:48
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Bannað að gera grín af Transfólki og öðrum minnihlutahóp

Pósturaf Bjosep » Mán 21. Okt 2013 16:09

Tbot skrifaði:Þetta er dæmigert kjaftaði sem tröllríður öllu núna:
Pólitískur rétttrúnaður.

Ég sem hélt að það væri meira áríðandi mál sem þingið þyrfti að vinna í, sem snerti stóra hópa landsmanna.
Ekki einhverja 5, 10 eða jafnvel 50 manns.

Eins og rekstur á sjúkrastofnunum á þessu landi og að allir landsmenn geti fengið þjónustu þarna.
Nóg borgar fólk í skatta.


Og ef þingmenn hugsuðu svona þá stæði allt fast á stóru deilumálunum ...




Bjosep
Geek
Póstar: 880
Skráði sig: Þri 16. Maí 2006 17:48
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Bannað að gera grín af Transfólki og öðrum minnihlutahóp

Pósturaf Bjosep » Mið 06. Nóv 2013 19:34

Þessi umræða virðist hafa vaknað aftur með áliti ÖSE

http://www.visir.is/apps/pbcs.dll/artic ... 3711069933

og síðan pistill Smára McCarthy

http://www.dv.is/blogg/upplysing/2013/1 ... nnu-birnu/

þ.e. ef öllum er ekki drullusama :fly