Getur einhver sagt mér hvar ég fæ digital stylus/penna


Höfundur
Notandanafn
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Lau 20. Júl 2013 14:57
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Getur einhver sagt mér hvar ég fæ digital stylus/penna

Pósturaf Notandanafn » Þri 01. Okt 2013 07:16

Er að leita mér að penna sem passar fyrir Microsoft Surface Pro. Kann ekki nægilega vel við þann sem fylgdi með og langaði að forvitnast um hvort einhver hefði hugmynd um hvar hægt er að fá penna sem þessa? Epli.is sem er með umboðið fyrir Wacom á Íslandi virðist enga slíka eiga á lager og þeir sérpanta ekki skv. þeim upplýsingum sem ég fékk á þeim bæ... svo, hjálp! :uhh1

Bestu þakkir!




Stebbieff
Fiktari
Póstar: 66
Skráði sig: Lau 21. Sep 2013 13:37
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Getur einhver sagt mér hvar ég fæ digital stylus/penna

Pósturaf Stebbieff » Þri 01. Okt 2013 09:08

http://www.amazon.co.uk/Quality-Stylus- ... stylus+pen

Ertu að hugsa um eitthvað svona? Mæli með að panta þér bara eitthvað slíkt á amazon, þar færðu þetta mun ódýrara heldur en ef þú finnur þetta hér á landi.




Höfundur
Notandanafn
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Lau 20. Júl 2013 14:57
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Getur einhver sagt mér hvar ég fæ digital stylus/penna

Pósturaf Notandanafn » Lau 16. Nóv 2013 09:58

Jæja, seint svara sumir - en svara þó :/
En skv. minni reynslu að þá færðu engan stylus sem hentar vel með Surface Pro (er með svoleiðis vél sjálfur) á Íslandi.
Eftir að þræða heimasíður hjá (sennilega öllum framleiðendum heimsins) á stylus pennum, þá varð niðurstaðan sú að ég pantaði "Bamboo stylus feel carbon" penna frá Wacom í gegnum netið. Vissulega ekki skemmtilegasta leiðin til að þurfa að fara til að kaupa einn lítinn penna, en þessi dýrgripur gjörbreytir því alveg að nota Surface Pro vélina.