Pælingar varðandi hagstæða lausn fyrir Margmiðlunarefni
-
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1122
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
- Reputation: 1
- Staðsetning: RNB
- Staða: Ótengdur
Pælingar varðandi hagstæða lausn fyrir Margmiðlunarefni
Nú langar mig að koma skipulagi á margmiðlunarefnið mitt. Ég er með bæði kvikmyndir og annað myndefni ásamt tónlist á SitecomNas server núna og er að stream-a tónlistinni með itunes server fídusinum í allar tölvur heimilisins og kvikmyndirnar og myndefni á share-að í AC Rayan media player við tv-ið og í tölvunum er mappan með kvikmyndunum möppuð sem netdrif. Þetta hefur reynst vel svona uppsett en mig langar að gera þetta betur og meðal annars eiga möguleika á að stream-a bæði tónlistinni og myndefninu í gegnum internetið, td Norður til Akureyrar og einnig víðar hérna á Suðurnesjum. Tildæmis ef það væri Media player við tv-ið fyrir Norðan sem gæti spilað efnið af media serverinum hjá mér án vandræða, bara rétt eins og hann væri á sama heimaneti og ég. Sama gildir um minnsta kosti 3 tölvur fyrir Norðan sem gætu komist í sama efni. Eins hérna á Suðurnesjum, Reikna með 2 heimilum hérna sem ég myndi vilja tengja alveg eins við mig eins og Norðan heiða. Myndi ég þurfa að setja upp einhvers konar móttöku server-a á þessum stöðum? Er með vél sem ég gæti notað sem media center server. Ástæðan fyrir því að mig langar að gera þetta svona er sú að ég nenni ekki alltaf að þvælast með USB lykla og flakkara Norður eða hérna á Suðurnesjum til að fylla á TV flakkara og annað, Miklu sniðugara að hafa alla bara up to date af sama efni Endilega ef einhver veit um sniðuga lausn á þessum pælingum mínum þá má hann endilega reply-a :p
- Krissi24
- Krissi24
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 342
- Skráði sig: Fös 07. Ágú 2009 12:53
- Reputation: 17
- Staða: Ótengdur
Re: Pælingar varðandi hagstæða lausn fyrir Margmiðlunarefni
Ég er að nota plex mediaserver og hann virkar ágætlega
-
- Stjórnandi
- Póstar: 6354
- Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
- Reputation: 161
- Staða: Ótengdur
Re: Pælingar varðandi hagstæða lausn fyrir Margmiðlunarefni
Plex. Leysir nánast allt sem þú ert að tala um. Getur haldið áfram að spila þetta eins og þú ert vanur með AC Ryan spilaranum, eða notast við DLNA functionið í Plex ef flakkarinn styður DLNA playback. Já eða skipt honum út fyrir Roku/AppleTV/GoogleTV/HTPC og notað fullblown Plex client.
PlexWeb leyfir þér að horfá allt efnið þitt hvar sem er í gegnum browser, og MyPlex leyfir þér að horfá allt safnið í iOS eða Android með Plex appinu þar. Multiuser aðgangar, hver með sinn myplex aðgang og getur þá horft á þau section sem þú leyfir í sínum Plex tækjum. Þarft engan cache server á öðrum stöðum, bara client er nóg.
Eina issue-ið sem þú gætir lent í er bandvíddarlimitation á uploadinu ef þú ert með mikið af HD efni t.d., en ef þú ert á ljósleiðara ertu með meira en nóg.
PlexWeb leyfir þér að horfá allt efnið þitt hvar sem er í gegnum browser, og MyPlex leyfir þér að horfá allt safnið í iOS eða Android með Plex appinu þar. Multiuser aðgangar, hver með sinn myplex aðgang og getur þá horft á þau section sem þú leyfir í sínum Plex tækjum. Þarft engan cache server á öðrum stöðum, bara client er nóg.
Eina issue-ið sem þú gætir lent í er bandvíddarlimitation á uploadinu ef þú ert með mikið af HD efni t.d., en ef þú ert á ljósleiðara ertu með meira en nóg.
-
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1122
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
- Reputation: 1
- Staðsetning: RNB
- Staða: Ótengdur
Re: Pælingar varðandi hagstæða lausn fyrir Margmiðlunarefni
Þakka fyrir ábendingarnar Var einmitt búinn að skoða soldið Plex og líst helvíti vel á það , Málið er hvernig set ég þetta uppá vélinni? Á að vera stýrikerfi á vélinnieða? Ég er á ADSL tengingu eins og er en ljósnetið er á leiðinni skilst mér. Annars er ADSL tengingin mjög stabíl hjá mér, allt uppí 14mbit/s down og allt að 2mbit/s up þegar best lætur Hvað með erlent niðurhal? Étur þetta nokkuð niðurhalskvótann hjá móttöku aðilum? :p
-
- Besserwisser
- Póstar: 3337
- Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
- Reputation: 35
- Staðsetning: /dev/null
- Staða: Ótengdur
Re: Pælingar varðandi hagstæða lausn fyrir Margmiðlunarefni
krissi24 skrifaði:Þakka fyrir ábendingarnar Var einmitt búinn að skoða soldið Plex og líst helvíti vel á það , Málið er hvernig set ég þetta uppá vélinni? Á að vera stýrikerfi á vélinnieða? Ég er á ADSL tengingu eins og er en ljósnetið er á leiðinni skilst mér. Annars er ADSL tengingin mjög stabíl hjá mér, allt uppí 14mbit/s down og allt að 2mbit/s up þegar best lætur Hvað með erlent niðurhal? Étur þetta nokkuð niðurhalskvótann hjá móttöku aðilum? :p
Setur upp Plex Media Server upp á tölvunni þinni. Já, þú þarft að vera með stýrikerfi á vélinni.
Downloadar servernum hér, installar og ferð svo inn á http://localhost:32400/web/index.html í browsernum þínum.
Nei, étur ekki niðurhalskvóta hjá þeim sem stream'a frá þér, þar sem þetta er p2p og þeir downloada beint frá þér, ekki í gegnum erlendan þjón. Eina sem myPlex (my.plexapp.com) gerir er að koma á tengingu aðila. Eftir það er stream'að beint frá viðkomandi.
i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64
Re: Pælingar varðandi hagstæða lausn fyrir Margmiðlunarefni
En því miður ertu aldrei að fara að spila þetta í tölvu útá landi með ADSL...þ.e.a.s. í gæðum sem hægt er að horfa á. Ég var að ná allt í lagi í símanum mínum.
i7 950 @ 3.2 GHz | Scythe Yasha | GA-X58A-UD3R | Mushkin 12GB kit (3x4GB) DDR3 1333MHz | PNY GTX570 | HDD 1 TB | Tacens 700W | 24" ViewSonic | W7 x64
-
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1122
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
- Reputation: 1
- Staðsetning: RNB
- Staða: Ótengdur
Re: Pælingar varðandi hagstæða lausn fyrir Margmiðlunarefni
Oak skrifaði:En því miður ertu aldrei að fara að spila þetta í tölvu útá landi með ADSL...þ.e.a.s. í gæðum sem hægt er að horfa á. Ég var að ná allt í lagi í símanum mínum.
Ljósleiðarinn er að detta inn þarna á staðnum á Akureyri, á hinum staðnum hérna í Reykjanesbæ er reyndar ADSL tenging sem er eins og hjá mér mjög stabíl, en aftur á móti í hinum staðnum hérna á Suðurnesjum er Ljósnet tenging sem er að mínu mati mjög stabíl því viðkomandi býr mjög stutt frá símstöð :p Svo eins og ég segi þá mun Ljósnetið koma innan skamms eða í byrjun næsta mánaðar hjá mér Kannski mun þetta vera okey þá eða? hehe :p
-
- Stjórnandi
- Póstar: 6354
- Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
- Reputation: 161
- Staða: Ótengdur
Re: Pælingar varðandi hagstæða lausn fyrir Margmiðlunarefni
Þetta snýst allt um tenginguna á servernum. 2mbps UL = léleg gæði, og getur gleymt HD streymi. VDSL er fínt, ljósleiðari betra.
Re: Pælingar varðandi hagstæða lausn fyrir Margmiðlunarefni
Virkar mjög vel á ljósnetinu hjá mér núna
i7 950 @ 3.2 GHz | Scythe Yasha | GA-X58A-UD3R | Mushkin 12GB kit (3x4GB) DDR3 1333MHz | PNY GTX570 | HDD 1 TB | Tacens 700W | 24" ViewSonic | W7 x64
-
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1122
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
- Reputation: 1
- Staðsetning: RNB
- Staða: Ótengdur
Re: Pælingar varðandi hagstæða lausn fyrir Margmiðlunarefni
Skil , En hvernig er það, Má ekki vera Windows 7 Pro á vélinni sem ég hyggst setja Plex í?
-
- Stjórnandi
- Póstar: 6354
- Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
- Reputation: 161
- Staða: Ótengdur
Re: Pælingar varðandi hagstæða lausn fyrir Margmiðlunarefni
krissi24 skrifaði:Skil , En hvernig er það, Má ekki vera Windows 7 Pro á vélinni sem ég hyggst setja Plex í?
Jú, ætti ekki að vera neitt vandamál.
-
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1122
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
- Reputation: 1
- Staðsetning: RNB
- Staða: Ótengdur
Re: Pælingar varðandi hagstæða lausn fyrir Margmiðlunarefni
Jæja þá er ég búinn að setja Plex media server á vélina sem ég ætla að nota í þetta Á ég líka að ná í og setja uppá vélinni Plex media center eða? Og var það eitthvað meira?
-
- Stjórnandi
- Póstar: 6354
- Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
- Reputation: 161
- Staða: Ótengdur
Re: Pælingar varðandi hagstæða lausn fyrir Margmiðlunarefni
Mæli með því að gerast PlexPass member og fá þér PlexHT útgáfuna, bara í boði fyrir PlexPass users. Mikið betri útgáfa en það sem er í boði so far fyrir public.
-
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1122
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
- Reputation: 1
- Staðsetning: RNB
- Staða: Ótengdur
Re: Pælingar varðandi hagstæða lausn fyrir Margmiðlunarefni
AntiTrust skrifaði:Mæli með því að gerast PlexPass member og fá þér PlexHT útgáfuna, bara í boði fyrir PlexPass users. Mikið betri útgáfa en það sem er í boði so far fyrir public.
Já okey Skoða það, Semsagt þarf ég þá ekki að setja Plex media center á vélina líka? :p
-
- Stjórnandi
- Póstar: 6354
- Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
- Reputation: 161
- Staða: Ótengdur
Re: Pælingar varðandi hagstæða lausn fyrir Margmiðlunarefni
Þú þarft aldrei að hafa media center á server vélinni sjálfri. En á Client vélinni þarftu þess auðvitað, og á server vélinni sé server vélin líka HTPC vél. En PlexHT er bara nýja útgáfan af Plex Media Server.
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 317
- Skráði sig: Þri 02. Des 2003 00:26
- Reputation: 0
- Staða: Ótengdur
Re: Pælingar varðandi hagstæða lausn fyrir Margmiðlunarefni
Hver er munurinn á PlexHT og svo bara venjulega plex? hvaða fídusa er plexht með sem mig vantar?
-
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1122
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
- Reputation: 1
- Staðsetning: RNB
- Staða: Ótengdur
Re: Pælingar varðandi hagstæða lausn fyrir Margmiðlunarefni
AntiTrust skrifaði:Þú þarft aldrei að hafa media center á server vélinni sjálfri. En á Client vélinni þarftu þess auðvitað, og á server vélinni sé server vélin líka HTPC vél. En PlexHT er bara nýja útgáfan af Plex Media Server.
hmmm.... HTPC vél?? hehe :p æi afsakaðu fáfræðina....
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 956
- Skráði sig: Mið 27. Apr 2011 20:40
- Reputation: 130
- Staða: Tengdur
Re: Pælingar varðandi hagstæða lausn fyrir Margmiðlunarefni
krissi24 skrifaði:AntiTrust skrifaði:Þú þarft aldrei að hafa media center á server vélinni sjálfri. En á Client vélinni þarftu þess auðvitað, og á server vélinni sé server vélin líka HTPC vél. En PlexHT er bara nýja útgáfan af Plex Media Server.
hmmm.... HTPC vél?? hehe :p æi afsakaðu fáfræðina....
HTPC = Home theater pc.
Allar vélar sem eiga að horfa á þætti/myndir þurfa media center.
Vélin/arnar sem eigar að dreifa efninu þurfa media server.
-
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1122
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
- Reputation: 1
- Staðsetning: RNB
- Staða: Ótengdur
Re: Pælingar varðandi hagstæða lausn fyrir Margmiðlunarefni
arons4 skrifaði:krissi24 skrifaði:AntiTrust skrifaði:Þú þarft aldrei að hafa media center á server vélinni sjálfri. En á Client vélinni þarftu þess auðvitað, og á server vélinni sé server vélin líka HTPC vél. En PlexHT er bara nýja útgáfan af Plex Media Server.
hmmm.... HTPC vél?? hehe :p æi afsakaðu fáfræðina....
HTPC = Home theater pc.
Allar vélar sem eiga að horfa á þætti/myndir þurfa media center.
Vélin/arnar sem eigar að dreifa efninu þurfa media server.
Skil Ég er notla bara með media player við TV-ið en svo er nokkrar tölvur sem ég þá get sett media center program-ið í
Re: Pælingar varðandi hagstæða lausn fyrir Margmiðlunarefni
Þegar að þú byrjar að nota Plex Media Center sjálfur þá áttu aldrei eftir að hætta að nota það eða eitthvað sambærilegt
i7 950 @ 3.2 GHz | Scythe Yasha | GA-X58A-UD3R | Mushkin 12GB kit (3x4GB) DDR3 1333MHz | PNY GTX570 | HDD 1 TB | Tacens 700W | 24" ViewSonic | W7 x64
-
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1122
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
- Reputation: 1
- Staðsetning: RNB
- Staða: Ótengdur
Re: Pælingar varðandi hagstæða lausn fyrir Margmiðlunarefni
Hehe :p, Hlakka til að prófa þetta.... Nú er bara það stærsta eftir því ég á eftir að færa allt af NAS-inum og yfir í server vélina :/
-
- Nýliði
- Póstar: 13
- Skráði sig: Lau 28. Feb 2009 01:48
- Reputation: 0
- Staða: Ótengdur
Re: Pælingar varðandi hagstæða lausn fyrir Margmiðlunarefni
Eruð þið allir á því að Plex sé betra en XBMC???
Hverjir eru kostir og gallar?
Ég hef verið að nota XBMC og er mjög sáttur - bara að athuga hvort ég sé að fara á mis við eitthvað í Plex
kv.
Hverjir eru kostir og gallar?
Ég hef verið að nota XBMC og er mjög sáttur - bara að athuga hvort ég sé að fara á mis við eitthvað í Plex
kv.
-
- Besserwisser
- Póstar: 3835
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Reputation: 157
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Re: Pælingar varðandi hagstæða lausn fyrir Margmiðlunarefni
krissi24 skrifaði:Hehe :p, Hlakka til að prófa þetta.... Nú er bara það stærsta eftir því ég á eftir að færa allt af NAS-inum og yfir í server vélina :/
Þarftu að færa efnið af NASinu, geturðu ekki bara mappað því upp í server vélinni?
gottlieb78 skrifaði:Eruð þið allir á því að Plex sé betra en XBMC???
Hverjir eru kostir og gallar?
Ég hef verið að nota XBMC og er mjög sáttur - bara að athuga hvort ég sé að fara á mis við eitthvað í Plex
kv.
Fer það ekki bara eftir þörfum? Ég setti upp plex og það er voðalega fínt viðmót en hentaði mér ekki því ég hef engin tæki sem er hægt að setja upp Plex viðmót á móti serverinum. Setti upp Serviio í staðinn sem virkar fullkomlega fyrir mitt sjónvarp.