Fullur eða freðinn?
-
- Gúrú
- Póstar: 562
- Skráði sig: Lau 25. Maí 2013 20:39
- Reputation: 29
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Fullur eða freðinn?
alkóhól og sígarettur drepa menn miklu miklu hraðar en kannabis...afhverju banna menn því ekki...ég meina ef alkóhól og sígarettur væru bönnuð og kannabis væri löglegt þá færi þessi hópur (alkóhólistar) yfir að reykja kannabis í staðinn og ...lifa aðeins lengra?
-
- Skrúfari
- Póstar: 2408
- Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
- Reputation: 154
- Staðsetning: Árbærinn
- Staða: Ótengdur
Re: Fullur eða freðinn?
Moldvarpan skrifaði:Það er allt flæðandi í kannabis á íslandi nú þegar, það er staðreynd.
Og ég vissi ekki betur en það væri ólöglegt.
Að því gefnu að halda því framm að lögleiðing væri að styðja undir áframhaldandi tilveru þess er rökvilla.
Annars af þínum skrifum get ég ekki séð að þú hafir þroska í að skilja þetta í víðara samhengi, svo ég ætla ekki að eyða meiri orku í þetta.
Með öðrum orðum af því að ég er á annari skoðun en þið er ég óþroskaður með lélegan skilning á mannlegu eðli ( sem ég hef ekki en fengið nánari skýringu á)
Eru semsagt rökin fyrir því að við eigum að leifa kanabis þau að það er hvort sem er svo mikið af þeim í umferð að það er bara sýndarmenska, vesen og leiðindi að hafa þetta ólöglegt? Hey hér er hugmynd. Afhverju hættum við ekki bara að hafa ólöglegt að stela? Meina. Fólk er hvort sem er að sutunda þetta grimt. Hverjir eru núna með fáránleg rök?
Þið talið um víðara samhengi. Skilning. Þið talið eins og lögleiðing á eyturlifi sé einhverskonar krossferð. Að villutrúarmönnum eins og mér sé ekki viðbjargandi. Emdilega útlistaðu þetta víðara samhengi fyrir mér. Ég get ekki beðið eftir að vera upplýstur.
Kanabis er ekki gott fyrir fólk. Þegar þið getið hnekt þessari staðhæfingu skal ég hlusta á þær pælingar um að lögleiða þetta en þangað til sé ég enga ástæðu fyrir því.
Síðast breytt af littli-Jake á Þri 27. Ágú 2013 22:46, breytt samtals 1 sinni.
i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180
-
- Skrúfari
- Póstar: 2408
- Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
- Reputation: 154
- Staðsetning: Árbærinn
- Staða: Ótengdur
Re: Fullur eða freðinn?
Bjosep skrifaði:littli-Jake skrifaði:Mér er alveg sama þó að menn fari að vitna í einhverjar ransóknir um skaðleisi og einhverjar sögur um vin hans Jóa frænda sem er búinn að reykja gras á hverjum degi í 5 ár og sé í góðu lagi. Ég þekki persónulega þrjá einstaklinga sem eru búnir að fara mjög illa á þessu. Ég er alls ekki að seigja að allir þeir sem reykja gras verði fyrir alvarlegum langvarandi skaða en áhættan er klárlega til staðar.
Tek undir þetta. Óþolandi þegar menn vitna í rannsóknir.
Eða segja nota jákvæðar "anecdotal" sannanir. Neikvæðar anecdotal sannanir eru það eina sem telur eitthvað í umræðunni.
Það er alveg afskaplega vondur siður að taka þátt í umræðu á þeirri forsendu að menn hafi ekki áhuga á umræðu.
Það sem ég er að hinta að með þessu er að þú getur fundið ransókn á nánast hverju sem er og fengið þær niðurstöður sem þér hentar. Man að ég tók mér einusinni hálftíma í að kinna mér niðurstöður næringarfræðings sem hélt því fram að mjólk væri gífurlega heilsuspillandi. Óheppilegt orðaval. Ég tek það á mig.
i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180
-
- Vaktari
- Póstar: 2611
- Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
- Reputation: 494
- Staða: Ótengdur
Re: Fullur eða freðinn?
War on Drugs byrjaði í Bandaríkjunum 1971. Það var klikkhausinn hann Nixon sem kom því í gegn.
Það var Nixon sem sannfærði sameignuðu þjóðirnar að þetta þyrfti að vera allstaðar ólöglegt, ekki bara í USA.
Síðan þá hefur þetta verið notað svona álíka eins og kosningaloforð í USA, til að auka fylgi.
En það er að breytast.
Hérna er fín heimildarmynd um þetta, með Morgan Freeman sem narrator. Þarna koma fram viðtöl við fyrrverandi forseta og fleiri áhrifa menn.
http://deildu.net/details.php?id=81554
Og skal setja líka trailer fyrir þig því þú vilt ekki sjá heimildir.
Innbrot og nauðgun er glæpur. Að neyta einhvers efnis er það ekki, ef þú sérð ekki muninn á að nauðga og reykja kannabis, þá get ég lítið hjálpað þér.
En sjálfur hefuru ekkert sagt nema kjaftasögur af þínum vinum,,,,
Það er til ótal heimildarmyndir um þetta viðfangsefni.
Þú hlýtur að kunna að nota internetið.

- Stjórnandi
- Póstar: 3750
- Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
- Reputation: 474
- Staðsetning: Undir hægra megin
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Fullur eða freðinn?
littli-Jake skrifaði:Eru semsagt rökin fyrir því að við eigum að leifa kanabis þau að það er hvort sem er svo mikið af þeim í umferð að það er bara sýndarmenska, vesen og leiðindi að hafa þetta ólöglegt? Hey hér er hugmynd. Afhverju hættum við ekki bara að hafa ólöglegt að stela? Meina. Fólk er hvort sem er að sutunda þetta grimt. Hverjir eru núna með fáránleg rök?
munurinn á þjófnaði og kannabisreykingum er bara einfaldlega töluvert mikill.
Kannabisreykingar sem að jói stundar einn heimahjá sér (eða með sigga félaga) skaðar engan (nema þá 2)
þjófnaðurinn skaðar alltaf þann sem að er rændur.
semsagt, þjófnaðurinn er glæpur með fórnarlamb
kannabisreykingarnar hafa ekki fórnarlamb.
en á sama hátt, þá bennti ég á það að ég vill gera þetta til þess að minnka svarta markaðinn með þetta og þannig að ríkið hafi eitthvað í staðin.
semagt í staðinn fyrir að eyða óhemju upphæðum í það að reyna að stöðva kannabisræktun, dreifingu og sölu og síðan forvarnir og meðferðarúrræði þá sæi ríkið um þetta sjálft og hefði eitthvað útur því.
semsagt ekki bara klár mínus í kassanum einsog það er núna, heldur eitthvað til baka í kassann (og nei ég geri ekki ráð fyrir því að ríkið sé að fara að græða á kannabissölu) til þess að efla forvarnir og meðferðarúrræði en frekar.
þá væri einnig tími lögreglunnar rýmri, þar sem að það væri ekki verið að eltast eins mikið við stónera og ræktendur.
En það er nú alveg lágmark að leyfa læknum að framvísa þessu til þeirra sem að þetta getur hjálpað og þurfa.
Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !
Re: Fullur eða freðinn?
littli-Jake skrifaði:Mér er alveg sama þó að menn fari að vitna í einhverjar ransóknir um skaðleisi og einhverjar sögur um vin hans Jóa frænda sem er búinn að reykja gras á hverjum degi í 5 ár og sé í góðu lagi. Ég þekki persónulega þrjá einstaklinga sem eru búnir að fara mjög illa á þessu.
littli-Jake skrifaði:Að villutrúarmönnum eins og mér sé ekki viðbjargandi. Emdilega útlistaðu þetta víðara samhengi fyrir mér. Ég get ekki beðið eftir að vera upplýstur.
rapport skrifaði:Samfélagið leyfir þér að tak sénsinn með nammið og vínið en ekki hassið.
Bara að benda á þetta svo að fólk sé ekki að rugla þessu saman, en:
Hass =/= cannabis/marijuana.
Alveg eins og hemp er ekki það sama og kanabis eða hass..
Annars held ég að það sé nú ekki langt í því að cannabis verði löglegt í flestum vestrænum löndum og þá sérstaklega til læknis notkunar.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 16605
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2142
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Fullur eða freðinn?
Maður er farinn að fíla sig eins og á Alcatraz, þarf maður virkilega að fljúga þúsundir kílómetra til að prófa eitthvað sem hugsanlega er skaðlausara en íslenska ríkið er að selja.
Það er eitthvað bogið við þetta...
Það er eitthvað bogið við þetta...
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 943
- Skráði sig: Sun 08. Mar 2009 16:52
- Reputation: 16
- Staða: Ótengdur
Re: Fullur eða freðinn?
GuðjónR skrifaði:Maður er farinn að fíla sig eins og á Alcatraz, þarf maður virkilega að fljúga þúsundir kílómetra til að prófa eitthvað sem hugsanlega er skaðlausara en íslenska ríkið er að selja.
Það er eitthvað bogið við þetta...
Mér þykir nú best þegar maður pantar fæðubótaefni að utan sem eru síðan stoppuð af Matís því þau innihalda baneitruð efni sem drepa Íslendinga við minnstu notkun, samt eru þau lögleg og skaðlaus hinum megin við hafið, ætli fólk þar sé ónæmt fyrir þessum efnum eða ætli Íslenska ríkið sé fast á 18 öld...
"I think the phrase rhymes with Clucking Bell!"
-
- Stjórnandi
- Póstar: 16605
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2142
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Fullur eða freðinn?
oskar9 skrifaði:GuðjónR skrifaði:Maður er farinn að fíla sig eins og á Alcatraz, þarf maður virkilega að fljúga þúsundir kílómetra til að prófa eitthvað sem hugsanlega er skaðlausara en íslenska ríkið er að selja.
Það er eitthvað bogið við þetta...
Mér þykir nú best þegar maður pantar fæðubótaefni að utan sem eru síðan stoppuð af Matís því þau innihalda baneitruð efni sem drepa Íslendinga við minnstu notkun, samt eru þau lögleg og skaðlaus hinum megin við hafið, ætli fólk þar sé ónæmt fyrir þessum efnum eða ætli Íslenska ríkið sé fast á 18 öld...
hehehe góður punktur!
B12 vítamín var t.d. lengi vel ólöglegt hérna nema í litlum skömmtum og með lyfseðli frá lækni.
Re: Fullur eða freðinn?
littli-Jake skrifaði:Með öðrum orðum af því að ég er á annari skoðun en þið er ég óþroskaður með lélegan skilning á mannlegu eðli ( sem ég hef ekki en fengið nánari skýringu á)
Eru semsagt rökin fyrir því að við eigum að leifa kanabis þau að það er hvort sem er svo mikið af þeim í umferð að það er bara sýndarmenska, vesen og leiðindi að hafa þetta ólöglegt? Hey hér er hugmynd. Afhverju hættum við ekki bara að hafa ólöglegt að stela? Meina. Fólk er hvort sem er að sutunda þetta grimt. Hverjir eru núna með fáránleg rök?
Þið talið um víðara samhengi. Skilning. Þið talið eins og lögleiðing á eyturlifi sé einhverskonar krossferð. Að villutrúarmönnum eins og mér sé ekki viðbjargandi. Emdilega útlistaðu þetta víðara samhengi fyrir mér. Ég get ekki beðið eftir að vera upplýstur.
Kanabis er ekki gott fyrir fólk. Þegar þið getið hnekt þessari staðhæfingu skal ég hlusta á þær pælingar um að lögleiða þetta en þangað til sé ég enga ástæðu fyrir því.
Þú ert aðallega kjáni. Það sem ég átti við með að þú sýnir ekki mikinn skilning á mannlegu eðli (og þú hefur í rauninni bara staðfest það með seinni innleggjum í þessa umræðu) er að það virkar ekki að banna eitthvað og ætlast til að það hverfi. Það hefur sýnt sig í gegnum tíðina að alltaf þegar eitthvað, sem fólk vill, er bannað (og það er ekki farið í að banna eitthvað sem enginn reynir að gera) þá hættir fólk ekkert að framkvæma/neyta heldur færist framboðið bara í undirheimana. Því fylgir mikill vandi fyrir utan það að allur eiturlyfjavandinn er áfram. Það þarf ekki mjög mikla greind til að sjá að það er slæmt (ekki eins og tveir mínusar sem gera plús). Auk þess gerir það allt eftirlit með neyslu (þó svo að hún sé slæm) miklu erfiðari og allt að ómögulega.
Af hverju eru allir sem verja kjánalegan málsstað svona æstir í að líkja þeirri iðju sem þeir telja að eigi að vera glæpsamleg við að stela? Núna ert þú kominn á lista yfir fólk með rökfærslusnilli á við Snæbjörn herra litli-jake. Til hamingju.
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6801
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Reputation: 941
- Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Fullur eða freðinn?
rapport skrifaði:Fullur, freðinn eða borða nammi?
Allt getur þetta leitt til fíknar, geðbilunar og kostnaðar fyrir samfélagið.
Samfélagið leyfir þér að tak sénsinn með nammið og vínið en ekki hassið.
Á að fjölga möguleikum fólks til að skemma líf sitt eða fækka þeim?
Möguleikinn er til staðar, það er bara spurning hverjum við viljum gefa ágóðan af sölunni.
I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things
Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB
Ryzen 3600X 2070S 16GB
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 5617
- Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
- Reputation: 1066
- Staða: Ótengdur
Re: Fullur eða freðinn?
Umræðuþráður um maríjúana er guaranteed til að verða vinsæll.
En þetta með áfengi + sígarettur vs. maríjúana... einn punktur þar... maríjúana er notað sem lyf við ýmsum sjúkdómum, en þú gætir aldrei notað áfengi sem lyf við neinu (nema feimni) og sígarettur gera ekkert nema skaða þig.
Ef maríjúana væri löglegt þá gæti ég alveg hugsað mér að prófa að skipta því út fyrir áfengi þar sem það skaðar mann minna

*-*
-
- Kóngur
- Póstar: 4431
- Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
- Reputation: 6
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: Fullur eða freðinn?
gaman að segja frá því að ég þekki tvo einstaklinga sem dóu úr krabbameini ungir, lyf gögnuðust ekki sem þeir fengu löglega svo sársaukinn var hreint út sagt óbærilegur
báðir byrjuðu að reykja gras og það var það eina sem að sló á verkina almennilega svo þeir gætu lifað þokkalega og athafnað sig
það er fáránlegt að það megi ekki nota þetta í lækningaskyni til að hjálpa fólki og hreinlega til skammar
fyrir utan það að þetta ætti að vera löglegt og það er tugir góðra ástæða fyrir því en afskaplega fáar góða ástæður fyrir því að hafa þetta bannað

ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!
-
- Stjórnandi
- Póstar: 16605
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2142
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Fullur eða freðinn?
biturk skrifaði:gaman að segja frá því að ég þekki tvo einstaklinga sem dóu úr krabbameini ungir
WHATT? finnst þér það virkilega gaman??
-
- Kóngur
- Póstar: 4431
- Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
- Reputation: 6
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: Fullur eða freðinn?
Já mér fynnst gríðarlega gaman að missa vini mína....
Kaldhæðni guðjón minn
Sent from my GT-I9100 using Tapatalk 2
Kaldhæðni guðjón minn
Sent from my GT-I9100 using Tapatalk 2
ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!
Re: Fullur eða freðinn?
Moldvarpan skrifaði:Þú ert ekki að fækka eða fjölga.
Þetta er allt nú þegar til staðar.
Þetta er bara spurning um að hafa eftirlit með því, eða hafa árangurslaust eftirlit hjá lögreglu og refsistefnu.
Hvernig mundir þú hafa eftirlit og hver væri t.d. árangursrík leið til að taka á ofneyslu ef engin er refsistefnan?
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 326
- Skráði sig: Mán 22. Sep 2008 16:36
- Reputation: 3
- Staða: Ótengdur
Re: Fullur eða freðinn?
rapport skrifaði:Moldvarpan skrifaði:Þú ert ekki að fækka eða fjölga.
Þetta er allt nú þegar til staðar.
Þetta er bara spurning um að hafa eftirlit með því, eða hafa árangurslaust eftirlit hjá lögreglu og refsistefnu.
Hvernig mundir þú hafa eftirlit og hver væri t.d. árangursrík leið til að taka á ofneyslu ef engin er refsistefnan?
Selja líkt og áfengi, hafa aldurstakmark, hafa það refsigjarnt að selja/gefa unglingum.
Svo á fólk að bera ábyrgð á sér sjálft.
Ef að fólk höndlar ekki að hafa hemil á sér þarfnast það sérfræðiaðstoðar.
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 5617
- Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
- Reputation: 1066
- Staða: Ótengdur
Re: Fullur eða freðinn?
Bjórinn var t.d. bannaður á Íslandi, því menn héldu að ef þeir gætu drukkið léttari drykki þá myndu þeir geta verið fullir allan daginn. Lógíkin fyrir að leyfa sterkt vín á sama tíma var sú að menn drykkju það ekki eins mikið og síður. Umbúðirnar á brennivínsflöskunum voru hannaðar þannig að þær áttu ekki að vekja löngun til drykkju.
Það eimar enn af þessum forræðisfasisma. ÁTVR leyfir ekki sölu drykkja sem eru í "óásættanlegum" umbúðum. Skaðlausari efni eru bönnuð, en skaðlegri eru leyfð.
Svo má alls ekki spila bingó á ákveðnum dögum.
Ísland er fubar.
Það eimar enn af þessum forræðisfasisma. ÁTVR leyfir ekki sölu drykkja sem eru í "óásættanlegum" umbúðum. Skaðlausari efni eru bönnuð, en skaðlegri eru leyfð.
Svo má alls ekki spila bingó á ákveðnum dögum.
Ísland er fubar.
*-*
-
- Stjórnandi
- Póstar: 3750
- Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
- Reputation: 474
- Staðsetning: Undir hægra megin
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Fullur eða freðinn?
rapport skrifaði:Moldvarpan skrifaði:Þú ert ekki að fækka eða fjölga.
Þetta er allt nú þegar til staðar.
Þetta er bara spurning um að hafa eftirlit með því, eða hafa árangurslaust eftirlit hjá lögreglu og refsistefnu.
Hvernig mundir þú hafa eftirlit og hver væri t.d. árangursrík leið til að taka á ofneyslu ef engin er refsistefnan?
hafa Þetta mjög svipað og er með áfengið núna.
þegar að ég segi að ég vilji leyfa kannabis, þá meina ég að sjálfsögðu að þetta verði leyft undir svipuðum formerkjum og áfengið er leyfilegt núna.
og nú ætla ég líka að svara spurningu með spurningu.
hvernig er tekið á ofneyslu með refsistefnu ?
þar sem að þetta er augljóslega bannað, þrátt fyrir það virðist annar hver maður þekkja einhvern sem að er búinn að reykja sig í hel.
er þá refsistefnan svona frábær ?
er ekki hægt að prufa einhverja aðra leið, átta sig á því að þessi er engan vegin að virka og er bara að ýta stoðum undir það að neysla sé í felum og að glæpamenn verði ríkari.
Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1796
- Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
- Reputation: 82
- Staðsetning: DK
- Staða: Ótengdur
Re: Fullur eða freðinn?
urban skrifaði:er ekki hægt að prufa einhverja aðra leið, átta sig á því að þessi er engan vegin að virka og er bara að ýta stoðum undir það að neysla sé í felum og að glæpamenn verði ríkari.
Dæmi um það hvernig hægt er að fara öðruvísi að hlutunum, ekki það sama og umræðan hér hefur verið um en fannst mér verða að koma þessu að.
http://cphpost.dk/local/injection-room-saves-30-lives í staðinn fyrir að hlutirnir séu í felum þá er allt uppá borði og hægt að hafa eftirlit.
Electronic and Computer Engineer
-
- Skrúfari
- Póstar: 2408
- Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
- Reputation: 154
- Staðsetning: Árbærinn
- Staða: Ótengdur
Re: Fullur eða freðinn?
dori skrifaði:littli-Jake skrifaði:Með öðrum orðum af því að ég er á annari skoðun en þið er ég óþroskaður með lélegan skilning á mannlegu eðli ( sem ég hef ekki en fengið nánari skýringu á)
Eru semsagt rökin fyrir því að við eigum að leifa kanabis þau að það er hvort sem er svo mikið af þeim í umferð að það er bara sýndarmenska, vesen og leiðindi að hafa þetta ólöglegt? Hey hér er hugmynd. Afhverju hættum við ekki bara að hafa ólöglegt að stela? Meina. Fólk er hvort sem er að sutunda þetta grimt. Hverjir eru núna með fáránleg rök?
Þið talið um víðara samhengi. Skilning. Þið talið eins og lögleiðing á eyturlifi sé einhverskonar krossferð. Að villutrúarmönnum eins og mér sé ekki viðbjargandi. Emdilega útlistaðu þetta víðara samhengi fyrir mér. Ég get ekki beðið eftir að vera upplýstur.
Kanabis er ekki gott fyrir fólk. Þegar þið getið hnekt þessari staðhæfingu skal ég hlusta á þær pælingar um að lögleiða þetta en þangað til sé ég enga ástæðu fyrir því.
Þú ert aðallega kjáni. Það sem ég átti við með að þú sýnir ekki mikinn skilning á mannlegu eðli (og þú hefur í rauninni bara staðfest það með seinni innleggjum í þessa umræðu) er að það virkar ekki að banna eitthvað og ætlast til að það hverfi. Það hefur sýnt sig í gegnum tíðina að alltaf þegar eitthvað, sem fólk vill, er bannað (og það er ekki farið í að banna eitthvað sem enginn reynir að gera) þá hættir fólk ekkert að framkvæma/neyta heldur færist framboðið bara í undirheimana. Því fylgir mikill vandi fyrir utan það að allur eiturlyfjavandinn er áfram. Það þarf ekki mjög mikla greind til að sjá að það er slæmt (ekki eins og tveir mínusar sem gera plús). Auk þess gerir það allt eftirlit með neyslu (þó svo að hún sé slæm) miklu erfiðari og allt að ómögulega.
Af hverju eru allir sem verja kjánalegan málsstað svona æstir í að líkja þeirri iðju sem þeir telja að eigi að vera glæpsamleg við að stela? Núna ert þú kominn á lista yfir fólk með rökfærslusnilli á við Snæbjörn herra litli-jake. Til hamingju.
Nú ert þú farinn að gera mér upp skoðanir. Ég sagði hvergi að ég héldi að með því að þráast við að halda banni við kanabis uppi mundi það hverfa. Ég geri mér alveg grein fyrir því að kanabis er ekkert að fara að hverfa. En það eru ekki rök til að lögleiða kanabis að það sé hvort sem er til staðar. Þá getum við alveg eins lögleitt kókaín og stera. Nó til af báðu.
i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180
Re: Fullur eða freðinn?
rapport skrifaði:Moldvarpan skrifaði:Þú ert ekki að fækka eða fjölga.
Þetta er allt nú þegar til staðar.
Þetta er bara spurning um að hafa eftirlit með því, eða hafa árangurslaust eftirlit hjá lögreglu og refsistefnu.
Hvernig mundir þú hafa eftirlit og hver væri t.d. árangursrík leið til að taka á ofneyslu ef engin er refsistefnan?
hafa Þetta mjög svipað og er með áfengið núna.
þegar að ég segi að ég vilji leyfa kannabis, þá meina ég að sjálfsögðu að þetta verði leyft undir svipuðum formerkjum og áfengið er leyfilegt núna.
En í dag er áfengi meira böl en kannabis, líklega yrði minni skaði af áfengi ef það yrði gert ólöglegt og bannað alfarið líka.
og nú ætla ég líka að svara spurningu með spurningu.
hvernig er tekið á ofneyslu með refsistefnu ?
Það er ekki gert, en að þú talaðir um að hafa eftirlit með neyslunni og er að spurja hvað gerist ef eftirlitið tekur eftir ofneyslu.
Það er t.d. ekki verið að hafa eftirlit með neyslu áfengis og því ertu ekki að tala fyrir sömu lausn núna og þú varst að tala um fyrr.
þar sem að þetta er augljóslega bannað, þrátt fyrir það virðist annar hver maður þekkja einhvern sem að er búinn að reykja sig í hel.
er þá refsistefnan svona frábær ?
Já, ég þekki til manna sem hafa verið að selja sig til að fjármagna neyslu (og hefðu líka gert það ef efnin hefðu verið lögleg) . Lögreglan gat skorist í leikinn undir formekjunum "e-h ólöglegt að gerast" og komið þessum mönnum undir læknishendur því að skv. lögum þá máttu þeir ekki vera eins og þeir voru, læknarnir gátu svipt þá sjálfræði því að hegðunin sem mikilli neyslu er fíkn = heilbrigðisvandamál.
Það hefði ekki verið hægt að taka þannig á málunum ef neyslan er lögleg, því að þá er líka verið að samþykkja ástandið sem fylgir neyslunni og beiting svona úrræða verður erfiðari og í raun ólögleg.
er ekki hægt að prufa einhverja aðra leið, átta sig á því að þessi er engan vegin að virka og er bara að ýta stoðum undir það að neysla sé í felum og að glæpamenn verði ríkari.[/quote]
Í staðinn fyrir að leyfa þessa vitleysu, afhverju ekki að banna hana algjörlega?
Kjarnorkusprengjur og geislavirkni hafa drepið færri en samt er það bannað með öllu hér á Íslandi.
Við ættum að banna áfengi og vímuefni á heimilum, algjörlega.
ATH - samt...
Ef á að leyfa vímuefni, þá ætti að gera það undir handleiðslu sbr. jöklaferðir.. afhverju er ekki hægt að leyfa vímuefnaneyslu undir handleiðslu og á ábyrgð einhverja sem hægt er að lögsækja ef einhver hlítur skaða af eða í "partýinu".
Þá er vímuefnaneyslan orðin að þjónustu og jafnvel einhver svæði innan borgarinnar þar sem neysla er leyfð og þar er haft strangara eftirlit lögreglu og meiri viðbúnað heilbrigðisstarfsfólks.
En ef einhver finnst með fíkniefni utan svæða, þá verður hann sendur í Hunger Game í Hljómskálagaðinum og öllu sjónvarpað...
-
- Gúrú
- Póstar: 562
- Skráði sig: Lau 25. Maí 2013 20:39
- Reputation: 29
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Fullur eða freðinn?
erum við ekki lengur lata um grass/marijúana..það léttasta... :3 finnst "vímuefni" og "fíkniefni" smá off topic/wide definition... það vill enginn hérna að leyfa hassi, cocaine, heróini blablabla.....vorum bara að tala um grass
-
- Vaktari
- Póstar: 2611
- Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
- Reputation: 494
- Staða: Ótengdur
Re: Fullur eða freðinn?
Þetta er alltaf jafn furðulegt þegar þú byrjar á þessari quote geðveiki Rapport,,,
en ertu þarna að rífast við sjálfan þig?
en ertu þarna að rífast við sjálfan þig?
-
- spjallið.is
- Póstar: 437
- Skráði sig: Mán 20. Júl 2009 04:25
- Reputation: 2
- Staðsetning: Keflavík
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Fullur eða freðinn?
Ef á að leyfa vímuefni, þá ætti að gera það undir handleiðslu sbr. jöklaferðir.. afhverju er ekki hægt að leyfa vímuefnaneyslu undir handleiðslu og á ábyrgð einhverja sem hægt er að lögsækja ef einhver hlítur skaða af eða í "partýinu".
Þá er vímuefnaneyslan orðin að þjónustu og jafnvel einhver svæði innan borgarinnar þar sem neysla er leyfð og þar er haft strangara eftirlit lögreglu og meiri viðbúnað heilbrigðisstarfsfólks.
En ef einhver finnst með fíkniefni utan svæða, þá verður hann sendur í Hunger Game í Hljómskálagaðinum og öllu sjónvarpað...
Ég þekki svo rosalega mikið af fólki sem virðist ekki hafa neina stjórn á hvað það lætur ofan í sig. Eigum við þá ekki bara líka að banna fólki að elda mat, nema hafa réttindi til þess. Það verða bara staðir þar sem þú getur farið og borðað undir handleiðslu næringarfræðings sem segir þér hvað og hversu mikið þú átt að borða. Þannig getum við komið í veg fyrir offitu og ofneyslu á mat. Svo ef einhver sést borða/elda/selja mat án leyfis eða utan svæðis er honum hent í fangelsi.
SHEEPLE
Prime Bbcode Spoiler Show Prime Bbcode Spoiler:
Sorry ég er skakkur
AMD PHENOM II X4 955 @ 3.52GHz - Tacens Gelus III Pro - ASRock M3A770DE - 4GB DDR3 (Dual Channel) - ATI Radeon HD5770 - Tacens Radix III 520W - Windows 7 Ultimate (64bit) - 2TB