Ég fór betur yfir póstinn sem ég fékk og tók eftir því að það vantaði tracking link (formbréf sem sagði "You can track your package by clicking the link below:" og svo var enginn linkur fyrir neðan). Prufaði alls konar hluti en gat hvergi fundið eitthvað sem vildi tracka þetta númer sem var í bréfinu.
Svo fékk ég núna fyrir helgi póst frá OUYA sem var eitthvað á þá leið að það væri eitthvað að heimilisfanginu mínu (non-roman characters) og að ég ætti að laga það til að tryggja að hún sé send á réttan stað (ath. að þetta kemur rúmri viku eftir að ég fæ staðfestingarpóstinn og hálfum mánuði eftir að þeir segjast hafa sent allar tölvurnar af stað).
Það er greinilegt að þeir hafa verið að ljúga að þeim sem styrktu verkefnið í byrjun (eða í besta falli að fegra hlutina mjög mikið) og halda frá okkur upplýsingum til að líta betur út fyrir "general public". Það er t.d. algjört bullshit að þeir hafi verið búnir að senda allt áfram til dreifingaraðila (DHL o.fl.) 31. maí. Póstþjónustur kunna alveg að höndla pakka og fjöldinn á þessum OUYA tölvum ætti ekkert að vefjast fyrir póstþjónustum í Hong Kong, þetta eru smámunir fyrir þeim. Ég er svolítið bitur. Ekki af því að ég fæ tölvuna "seint", ég get alveg dílað við það, heldur af því að þeir hafa verið að plata mig og gefa það í skyn að ég fengi hlutinn miklu fyrr.
Svo er líka annað sem á kannski minna við okkur hérna heima:
http://www.amazon.com/OUYA-Console/dp/B0050SZD18/Tölvan dettur í sölu á Amazon.com 25. júní sem er eftir viku. Þegar við styðjum við verkefnið er hluti af loforðinu
"Guarantee we will have one available for you, before it gets to stores.". Upphaflega áttum við að fá tölvuna 2 mánuðum (eða eitthvað) áður en hún færi í almenna sölu. Hjá mörgum er það búið að breytast í +/- 10 daga. Það er frekar súrt (sérstaklega fyrir kanann þar sem þeir borga jafnvel minna fyrir þetta á Amazon en þeir gerðu á Kickstarter + að þá fá þeir hlutinn daginn eftir).
Ég ætla rétt að vona að þeir sem eru að sjá um logistics og customer relations þarna séu farnir að skoða aðra möguleika í atvinnumálum. Þetta er eins og lélegur brandari.
Zorky, þú varst væntanlega bara með einn controller?