Maríjúana

Allt utan efnis
Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 474
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Maríjúana

Pósturaf urban » Lau 02. Mar 2013 01:10

Gúrú skrifaði:
urban skrifaði:ég á nú alveg eftir að sjá það að einn bóndi sé að fara að rækta eitthvað á annað tonn af þurrkuðu kannabis einn


Er ég í ruglinu með það að einn gaur gæti séð um ræktunina ef hann fengi bara húsnæðið/n sitt/sín látin í friði?

Veit það væri of stórt verk fyrir einn mann að klippa/þurrka/vigta/poka samt. :)


stutta svarið, já.

langa svarið, þú mátt gera ráð fyrir því að ná úr ræktun innandyra svona ca 50 - 120 grömmum(þurrkuðu) úr plöntu (miðað við það sem að ég hef lesið mér til, ekki bögga mig á því, það er alveg pottþétt fullt af fólki hérna sem að á frænda sem að heitir Einar sem að hefur náð 400 grömmum útúr plöntu)

segjum þá bara 80 grömmum úr plöntu að meðaltali

Það er talað um að plantan eigi að skila sínu besta á ca 3 - 7 mánuðum (eftir ræktunarmögurleikum)
sem að þýðir að þú getur náð úr hverjum potti ca 2 sinnum á ári.

þá eru það 160 grömm á ári á hvern pott (pott as in blómapott)
1 tonn eru milljón grömm, sem að þýðir að þú þarft miðað við það rúmlega 3000 plöntur sem að blómstra 2 sinnum á ári hver til þess að fá 1 tonn af þurrkuðu grasi.

nú eru allar þessar tölur með rosalega miklum skekkju mörkum þannig að segjum að plönturnar séu bara 2000

1 maður er ekki að fara að rækta, klippa, þurrka, og vigta það á einu ári, alveg sama hversu aktívur hann er.

aftur á móti gætu ca 5 manns það líklegast
svo að maður tali nú ekki um það að þeir geri þetta skipulega eða bæti við sig mannskap í að klippa það (rosalega takmarkaður tími í að klippa ef að þetta er rækað rétt)

og inní þetta vantar auðvitað að ef að þetta yrði löglegt að þá kæmi neysla til með að aukast líklegast fyrstu 2 - 5 árin (á meðan að tískan væri að klárast) og síðan væri mjög líklegt að það myndi aukast hérna ferðamannastraumur útaf kannabis.

þannig að líklegast (að mínu mati) kæmi talan 1 tonn meðað aukast um ca helming fyrstu árin.

ég yrði ekki hiss, að ef að þetta yrði lögleitt og ríkið myndi taka að sér að rækta þetta (eða hafa umsjón með ræktun og bjóða hana út) þá kæmu ca 20 - 50 mans til með að vinna við það.


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

oskar9
vélbúnaðarpervert
Póstar: 943
Skráði sig: Sun 08. Mar 2009 16:52
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Re: Maríjúana

Pósturaf oskar9 » Lau 02. Mar 2013 01:32

Ég myndi halda að ef ríkið myndi lögleiða þetta efni og hefja sölu í Apótekum, ÁTVR eða slíkum stöðum að það myndi draga verulega úr þessum "götusölum" sérstaklega ef verðið er samkeppnishæft.
Og hvað í ósköpunum á eitthvað bann að gera ? ef einstaklingur vill eitthvað, þá reddar hann sér því, allveg óháð leyfi frá Ríkinu...
Ég get allveg viðurkennt það að ég hef prufað þetta efni, svona kannski 1-3 á ári í bústaðarferðum með góðum vinum, nautasteik, 2-3 bjórar, heitur pottur og ein græn er ávísun á gott kvöld, allir temmilega rólegir en samt hressir og gaman.

ég var mjög gagnrýnin á þetta áður en ég prufaði þetta, er kannski ekki að mæla með einhverri daglegri neyslu en þetta er fín tilbreyting úr þessu venjulega áfengissulli og ógeðinu sem því fylgir.

ég myndi hiklaust versla þetta af ríkinu ef verðið væri ekki allveg sky high, til að redda sér þessu núna þarf oft að hringja í fólk sem maður vill kannski ekki endilega hanga mikið með sem er svona helsti ókosturinn við þetta og ég held að með lögleiðingu myndum við ekki sjá einhverja sprengingu í neyslu, ríkið gæti þá fylgst bara mun betur með notkun milli ára t.d.


"I think the phrase rhymes with Clucking Bell!"