inservible skrifaði:Vá! ég held að ég borgi þér nú bara fyrir MOD næst í stað þess að reyna sjálfur.
Gæti alveg tekið þannig verkefni að mér en ég er samt ekki ennþá orðinn pro... Það eru alveg gallar þarna sem ég reyni bara að láta sjást sem minnst eins og smá límklessa þarna við viftugrillið að framanverðu því ég setti þetta smá skakkt á til að byrja með og þegar ég rétti það af þá sást smá á í límið. Front radinn er ekki í línu við þennan efri því ég þurfti að hafa hann smá til hliðar því það var með engu móti hægt að láta hann vera alveg í miðjunni, það sjást smá samskeyti á U-channelinu í kringum gluggana og örugglega einhverjir fleiri gallar sme ég man ekki í augnablikinu.
Áttu myndir af einhverju sem þú hefur verið að reyna að modda?