Þrífa heatsink og örgjörva


Höfundur
Drulli
Fiktari
Póstar: 77
Skráði sig: Fim 09. Okt 2003 22:48
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Þrífa heatsink og örgjörva

Pósturaf Drulli » Lau 17. Júl 2004 13:48

Nú hef ég aldrei þrifið heatsink eða örgjörva áður, þannig ég spyr ykkur.

Hvernig finnst ykkur best að þrífa þetta ? Notiði hreint bensín í klút eða bómul ? Þarf ég að passa eitthvað sérstakt þegar ég er að þrífa örgjörvann ?
Fyrst ég ætla að þrífa þetta, ætti ég ekki að pússa heatsinkið í leiðinni ? Notiði fyrst grófann og svo fínann sandpappír ?

Endilega deilið smá af reynslu ykkar :)
Með fyrirfram þökk, Hólmar.




Hlynzi
vélbúnaðarpervert
Póstar: 983
Skráði sig: Fös 15. Nóv 2002 20:40
Reputation: 41
Staðsetning: RVK
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Hlynzi » Lau 17. Júl 2004 14:57

Ég segi bara..sleppa því að þvo örgjörvann, setja bara hitaleiðandi efni á "core" , og svo með heatsinkið er nóg að ná sér í pensil og ryksugu og þrífa rykið bara í burtu.

Svo ef þú ætlar að pússa botninn á heatsinkinu, það þarf ekki nema hann sé sléttur (engar rispur), farinn að tærast eða álíka, en það er svosem í lagi að taka yfir þetta með P800 til P1600 sandpappír.


Hlynur


Höfundur
Drulli
Fiktari
Póstar: 77
Skráði sig: Fim 09. Okt 2003 22:48
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Drulli » Lau 17. Júl 2004 17:50

Ég ætlaði náttúrulega alltaf að setja thermal paste á milli.

En á heatsinkið semsagt að vera með rispur/rákir?

Ef það er fita af puttunum á mér á örgjörvanum eða heatsinkinu, skemmir það ekki eitthvað fyrir ?



Skjámynd

elv
Of mikill frítími
Póstar: 1980
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 21:53
Reputation: 19
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf elv » Lau 17. Júl 2004 17:56

Það eiga ekki að vera rispur og fita af puttanum skemmir fyrir



Skjámynd

Stutturdreki
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1696
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 35
Staða: Ótengdur

Re: Þrífa heatsink og örgjörva

Pósturaf Stutturdreki » Sun 18. Júl 2004 01:08

Drulli skrifaði:Hvernig finnst ykkur best að þrífa þetta ? Notiði hreint bensín í klút eða bómul ? Þarf ég að passa eitthvað sérstakt þegar ég er að þrífa örgjörvann ?
Fyrst ég ætla að þrífa þetta, ætti ég ekki að pússa heatsinkið í leiðinni ? Notiði fyrst grófann og svo fínann sandpappír ?


"Best" er afstætt hugtak, en það er líklega gott að hafa ryksugu (með plast röri.. ekki járni ef þú skyldir reka hana í eitthvað) við hendina og brúsa af þrýstilofti eins og fæst í Start og Pennanum (hef ekki séð það annarstaðar). Þú blæst sem sagt inn í kassan með þrýstiloftinu og reynir að ná sem mestu ryki með ryksugunni. Ryksugan má bara ekki koma nálægt neinu því ef hún er nógu öflug þá gæti eitthvað smá dót losnað af móðurborðinu. Svo gæti líka verið ágætt að fara bara með kassann út og blása úr honum þar. Og þar sem ég er með ál heatsink á örgjörvanum hef ég bara tekið það af og skolað með köldu vatni ef það er komið mikið ryk inn í það, veit ekki hvort það væri sniðugt með kopar heatsink.

Ef þú ert þarft að þrífa gamla thermal paste-ið af örgjörvanum er líklega best að nota sama efni og er notað til að þrífa td. les hausa í videó tækjum, man bara ekki hvað það heitir..

Og að slípa botnin á heatsinki.. flöturinn sem snertir örgjörvan á helst að vera alveg sléttur. Ef þú ætlar að slípa hann myndi ég ekki nota neitt sem kallast gróft.. nota vatnspappír(bílapappír) og byrja í svona p400 sem er alveg sæmilega fínt.

Nokkrar greinar sem ég fann á google (leitar orð: heatsink sanding lapping):
http://www.pcviper.net/kit/LappingKitInstructions.htm
http://www.8ballshardware.com/articles/lapping/page1.cfm
http://www.bigbruin.com/html/lapping-guide.htm

Sýndist svona í fljótubragði vera svipaður texti á þeim öllum..




gulligu
Nörd
Póstar: 107
Skráði sig: Fim 05. Feb 2004 19:16
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf gulligu » Sun 25. Júl 2004 12:22

ÉG er að fara að skifta um kælingu á örgjafanum er ekkert nauðsinlegt fyrir mig að þrífa hann áður semsagt svona gamalt kæligums og hversumikið af kælikremi á ég að nota?


Abit An7 Amd 3000xp 1024mb 9600xt vivo


neon_no1
Nýliði
Póstar: 17
Skráði sig: Fös 30. Júl 2004 12:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf neon_no1 » Mið 11. Ágú 2004 18:16

kannski þetta hjálpi: http://arcticsilver.com/arctic_silver_instructions.htm

þarna er eitthvað minnst á isopropol alcohol og aceton og með klút sem leysist ekki upp.
Jafnframt er sagt að það sé gífurlega mikilvægt að hafa báða fletina mjög hreina.




goldfinger
spjallið.is
Póstar: 466
Skráði sig: Mán 03. Nóv 2003 10:06
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf goldfinger » Mið 11. Ágú 2004 20:33

ef ég er að þrifa kassann þá fer ég með hann út i bilskur og nota blásarann hans pabba, helviti öflugur, blæs öllu rykinu úr :D