Hver af þessum er bestur?

Hver er bestur af þessum :?:

Serial ATA 160GB (7.2K RPM)
31
53%
IDE 8MB Buffer 160GB (7.2K RPM)
24
41%
IDE 2MB Buffer 160GB (5.4K RPM)
3
5%
 
Samtals atkvæði: 58


Arnar
Staða: Ótengdur

Pósturaf Arnar » Mán 12. Júl 2004 01:42

MezzUp, sýndu samanburð á sömu týpu af HDD, SATA og PATA.

Hann Kristjanm sýndi að þessi 400gb diskur væri hraðari með SATA.

Sýndu annan sem er hraðari á PATA.




machinehead
Geek
Póstar: 829
Skráði sig: Fim 27. Maí 2004 17:11
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Pósturaf machinehead » Mán 12. Júl 2004 04:05

Ég valdi nú Sata... finnst þeir mun þægilegri



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Mán 12. Júl 2004 09:24

Arnar skrifaði:MezzUp, sýndu samanburð á sömu týpu af HDD, SATA og PATA.

Hann Kristjanm sýndi að þessi 400gb diskur væri hraðari með SATA.

Sýndu annan sem er hraðari á PATA.

Missing th point....... Hann sagði að SATA diskar væru hraðvirkari en PATA diskar, sem að má auðveldalega lesa sem "allir SATA diskar eru hraðvirkari en allir PATA diskar", þ.e. nýgræðlingur(t.d. gaddavir sem spurði) gæti lesið þennan fyrsta póst hjá honum Kristjanm og fengið sér frekar Maxtor MaXLine Plus II (250 GB SATA) heldur en WDCaviar WD2000JB (200 GB ATA-100), þótt að Caviarinn sé að bench'a hærra. SATA og PATA gera alls ekki úrslitamununn hvað hraða varðar.

Og hvernig getið þið vitnað aftur og aftur í Anadtech án þess að tala um að þeir telja að munurinn er "raunverulega enginn", þ.e. innan skekkjumarka, þ.e. ekki marktækann.




Arnar
Staða: Ótengdur

Pósturaf Arnar » Mán 12. Júl 2004 17:19

Semsagt þú veist ekki um neitt dæmi þar sem af PATA disk er að performa betur en sama týpan nema með SATA ?



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Mán 12. Júl 2004 17:50

Arnar skrifaði:Semsagt þú veist ekki um neitt dæmi þar sem af PATA disk er að performa betur en sama týpan nema með SATA ?

nei, veit ekki um neitt, en hinsvegar veit ég um PATA disk sem er að performa verr heldur en SATA diskur, sem gerir staðhæfinguna "Serial ATA 150 er nokkuð hraðvirkara en ATA133, og þess vegna betra að vera með Serial ATA harðan disk." ranga, þar sem að þótt að maður sé með einhvern SATA disk, þýðir ekki það að hann sé betri en hvaða PATA diskur sem.

Misskilningurinn hérna er að ég vill meina að staðhæfingin hjá kristjanm sé að segja að SATA diskar séu betri en PATA diskar yfirhöfuð, sem að við vitum að þeir eru ekki. En hann útskýrði sitt sjónarmið með þessum link á Anadtech, þ.e. að sama módel með sitthvorum tengjum sé SATA hraðvirkara. (þótt að Anadtech séu ekki alveg sammála)
-----------
Svo að ég vitni nú aftur í upprunalega póstinn:
SATA drifið starfar á ATA150 á meðan IDE drifin starfa á ATA133.
Rangt, kaplarnir starfa á þessum hröðum, mjög ólíklegt að drifin geri það.
Serial ATA 150 er nokkuð hraðvirkara en ATA133, og þess vegna betra að vera með Serial ATA harðan disk.
Rangt, margt annað spilar inní(framleiðandi og módel) og er því ekki hægt að segja honum að taka SATA disk afþví að hann á að vera hraðvirkari(við vitum ekkert um hvaða diska hann er að tala!)
Þægilegri kaplar líka.
Sammála, en ekki finnst öllum það..........




axyne
Of mikill frítími
Póstar: 1795
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Reputation: 82
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Pósturaf axyne » Mán 12. Júl 2004 18:19

Sata 1.0 er ekkert annað en þæginlegri kapplar og hana nú

en SATA 2.0 verður skemmtilegt. því þá kemur NCW Native command queuing. getið lesið um það hér.

NCQ í stuttu máli er tækni sem leyfir harða disknum meira "frelsi" hvernig og hvenær hann skrifar gögnin. þetta á að lækka sóknar og snúnings "latency". sem er einmitt það sem heldur hraða harðadiska niðri.



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Mán 12. Júl 2004 18:52

axyne skrifaði:Sata 1.0 er ekkert annað en þæginlegri kapplar og hana nú

en SATA 2.0 verður skemmtilegt. því þá kemur NCW Native command queuing. getið lesið um það hér.

NCQ í stuttu máli er tækni sem leyfir harða disknum meira "frelsi" hvernig og hvenær hann skrifar gögnin. þetta á að lækka sóknar og snúnings "latency". sem er einmitt það sem heldur hraða harðadiska niðri.

jamms, var aðeins búinn að lesa um þetta, er nokkuð spenntur fyrir S-ATA II, en spurning hvort að maður þori að vera fyrstur að prófa :P Hvenær á SATA 2 að koma?




axyne
Of mikill frítími
Póstar: 1795
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Reputation: 82
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Pósturaf axyne » Mán 12. Júl 2004 19:08

MezzUp skrifaði:jamms, var aðeins búinn að lesa um þetta, er nokkuð spenntur fyrir S-ATA II, en spurning hvort að maður þori að vera fyrstur að prófa :P Hvenær á SATA 2 að koma?


- Generation I SATA (150 Mb/s Data Rate, Approx. Introduction: Fall 2002)
- Generation II SATA (300 Mb/s Data Rate, Approx. Introduction: Mid 2004)
- Generation III SATA (600 Mb/s Data Rate, Approx. Introduction: Mid 2007)




kristjanm
1+1=10
Póstar: 1196
Skráði sig: Sun 20. Jún 2004 23:07
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf kristjanm » Þri 13. Júl 2004 00:28

Ég var að meina það að SATA væri (aðeins) hraðvirkara interface en IDE, en ekki það að allir SATA harðir diskar væru (aðeins) hraðvirkari en IDE diskar. Já, það spilar margt annað inn í, en í heild sinni eru SATA drif (aðeins) hraðvirkari en IDE.

Ef hann ætlar að fá sér 160GB harðan disk, annað hvort SATA eða IDE, þá er líklegra að SATA diskurinn sé (aðeins) hraðvirkari.

Þetta hefur kannski byggst á eintómum misskilningi, ég vona það, allavega ef þú ert að lesa þetta sem ég var að segja þannig að öll SATA drif væru (aðeins) hraðvirkari en öll IDE drif. Það meinti ég ekki og veit sjálfur að það er alrangt.

Native Command Queueing er þegar til staðar með nýju 9xx chipsettunum frá Intel. Þú getur lesið grein um Maxtor Maxline III á http://www.anandtech.com, það er fyrsti harði diskurinn með stuðningi fyrir Native Command Queueing.

Harðadiskaframleiðendur eru ekki spenntir út af SATA II, því að eins og SATA yfir IDE, þá býður það ekki upp á mikið annað en aukna bandvídd, bandvídd sem harðir diskar geta ekki enn nýtt í dag.



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6496
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 315
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Þri 13. Júl 2004 04:04

mér fynnst samt best við þessa grein hjá anandtech að Raptor74 er undir í nokkrum prófum.. og í 90% af hinum prófunum er hann alveg jafn hraður. svo í einhverjum 2 prófum eð aeitthvað er hann einhverjum 3-6% hraðari..

greinilega þess virði að eyða meiri pening í þennann disk en maður myndi í 250GB, og fá nánast sama hraða en 1/4 af plássinu ;)

Ég ér samt að býða eftir NCQ, það er eitthvað til að tala um, annað en þetta sata drasl og raptorar..


"Give what you can, take what you need."


axyne
Of mikill frítími
Póstar: 1795
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Reputation: 82
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Pósturaf axyne » Þri 13. Júl 2004 12:19

kristjanm skrifaði:Maxtor Maxline III á http://www.anandtech.com, það er fyrsti harði diskurinn með stuðningi fyrir Native Command Queueing.
.


ég held að seagate hafa verið með fyrsta diskinn. þetta er tækni sem var þróuð frá intel og seagate.




kristjanm
1+1=10
Póstar: 1196
Skráði sig: Sun 20. Jún 2004 23:07
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf kristjanm » Þri 13. Júl 2004 21:46

gnarr skrifaði:mér fynnst samt best við þessa grein hjá anandtech að Raptor74 er undir í nokkrum prófum.. og í 90% af hinum prófunum er hann alveg jafn hraður. svo í einhverjum 2 prófum eð aeitthvað er hann einhverjum 3-6% hraðari..

greinilega þess virði að eyða meiri pening í þennann disk en maður myndi í 250GB, og fá nánast sama hraða en 1/4 af plássinu ;)


Þú verður að athuga það að þetta eru bara benchmarks sem eru aðallega háð vélbúnaði eins og örgjörva eða vinnsluminni, harði diskurinn spilar bara lítið inn í í þeim flestum.



Skjámynd

Lakio
Nörd
Póstar: 117
Skráði sig: Mið 18. Des 2002 20:10
Reputation: 0
Staðsetning: RVK
Staða: Ótengdur

Pósturaf Lakio » Fim 15. Júl 2004 02:43

Afhverju eru þið að miða við ATA133 þið eru flestir með ATA100!


Kveðja,
:twisted: Lakio

Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6496
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 315
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 19. Júl 2004 13:01

vegna þess að ATA100, ATA133 og SATA eru öll að skila nánast 100% sömu útkomu með þeim diskum sem eru á markaðnum núna.


"Give what you can, take what you need."