Hjálp við skjákortsval

Skjámynd

Höfundur
Audunsson
Græningi
Póstar: 48
Skráði sig: Sun 09. Okt 2011 15:59
Reputation: 0
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Hjálp við skjákortsval

Pósturaf Audunsson » Þri 20. Nóv 2012 14:43

Góðan daginn.

Ég er með 1535MB GeForce GTX 580 (nVidia), og það er alltaf í sirka 70°C, en ég er reyndar að keyra 2 skjái.
Mér finnst samt 70°C vera mikið.
Ég ætla fá mér annað skjákort til að keyra aukaskjáinn á því, en þar sem ég veit nú ekki rosalega mikið um tölvur, þá væri mjög gott að fá hjálp frá ykkur Vökturum.
Ég vill helst ekki borga mikið meira en 50 þúsund.
Vill samt fá frekar gott skjákort, svo allt sé betra.

Endilega komið með hugmyndir af góðu skjákorti.




Cascade
FanBoy
Póstar: 759
Skráði sig: Lau 04. Des 2004 00:02
Reputation: 42
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp við skjákortsval

Pósturaf Cascade » Þri 20. Nóv 2012 15:07

Þú færð varla betra skjákort en þetta fyrir 50þús.

Er eina ástæðan fyrir að þú vilt nýtt hitinn á því?

Er ekki alveg í lagi að keyra það svona heitt? Mér sýnist hámarks hitastig á því vera 97 gráður og ef það nær þeim hita þá klukkar það sig væntanlega niður eða e-ð slíkt.
Ef þú vilt lækka hitann á því, er ekki þá málið bara loftflæðið í kassanum þínum



Skjámynd

Höfundur
Audunsson
Græningi
Póstar: 48
Skráði sig: Sun 09. Okt 2011 15:59
Reputation: 0
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp við skjákortsval

Pósturaf Audunsson » Þri 20. Nóv 2012 15:11

Er að spá í því að fá mér annað eins.

Já eiginlega vegna hitans, mér persónulega finnst 78°C mest vera mikið.

Ég veit ekki hvort að sé í lagi en já þarf að fá mér fleiri viftur, geri það í Desember.




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6352
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 160
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp við skjákortsval

Pósturaf AntiTrust » Þri 20. Nóv 2012 15:17

Er það 70° í idle eða undir load? Ef það er í 70° í idle er það rosalega hátt, og e-ð sem ég myndi kíkja á sem fyrst.



Skjámynd

Höfundur
Audunsson
Græningi
Póstar: 48
Skráði sig: Sun 09. Okt 2011 15:59
Reputation: 0
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp við skjákortsval

Pósturaf Audunsson » Þri 20. Nóv 2012 15:19

"Er það 70° í idle eða undir load?" veit ekkert hvað þetta þýðir, því miður.
En er í COD BO2 núna og að er 85°C, það er mikið.
En vinsamlegast koddu með betri utskýringu félagi. :D




Cascade
FanBoy
Póstar: 759
Skráði sig: Lau 04. Des 2004 00:02
Reputation: 42
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp við skjákortsval

Pósturaf Cascade » Þri 20. Nóv 2012 15:21

Audunsson skrifaði:Er að spá í því að fá mér annað eins.

Já eiginlega vegna hitans, mér persónulega finnst 78°C mest vera mikið.

Ég veit ekki hvort að sé í lagi en já þarf að fá mér fleiri viftur, geri það í Desember.


Framleiðendur hafa alveg vit fyrir fólki og láta kortin keyra sig niður ef þau eru of heit, persónulega myndi ég ekkert spá í þessu hitastigi, fyrr en tölvan fer að restarta sér eða verða leiðileg á einhvern hátt sem þú getur tengt hitastiginu.

Það er ekki dýr uppfærsla að kaupa viftur, eina sem blæs inn og eina út, eða hvernig svosem það myndi passa kassanum þínum

Hagkvæmast upp á meira performance væri örugglega fyrir þig væri að finna notað 580 kort og setja í SLi ef þú hefur möguleikann á því

Nýtt Nvidia 670kort er alveg miklu dýrara en 50þús (þó þú gætir reyndar selt þitt kort þá, þá væri mismunurinn kannski minni en 50þús)




Cascade
FanBoy
Póstar: 759
Skráði sig: Lau 04. Des 2004 00:02
Reputation: 42
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp við skjákortsval

Pósturaf Cascade » Þri 20. Nóv 2012 15:23

Audunsson skrifaði:"Er það 70° í idle eða undir load?" veit ekkert hvað þetta þýðir, því miður.
En er í COD BO2 núna og að er 85°C, það er mikið.
En vinsamlegast koddu með betri utskýringu félagi. :D



idle þýðir að skjákortið sé ekki að gera neitt (t.d. þegar þú ert bara í windows að skoða netið og ekki með neina "grafík" opna), svipað og lausagangur á bíl og load er þegar það er á fullu eins og t.d. í tölvuleik

Þá væri 85°c hitastig undir load þar sem þú ert að spila tölvuleik

Þú ert þá 12°c undir max hitastigi sem þeir leyfa, sem er í lagi svosem, en það er spurning um að kíkja á loftflæðið í kassanum þínum til að lækka þetta



Skjámynd

mundivalur
Vaktari
Póstar: 2327
Skráði sig: Fim 02. Apr 2009 13:16
Reputation: 82
Staðsetning: South side
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp við skjákortsval

Pósturaf mundivalur » Þri 20. Nóv 2012 15:25

Ertu búinn að opna turninn og gá hvort allt sé fullt að ryki og hvernig turn ertu með veistu það :)



Skjámynd

Höfundur
Audunsson
Græningi
Póstar: 48
Skráði sig: Sun 09. Okt 2011 15:59
Reputation: 0
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp við skjákortsval

Pósturaf Audunsson » Þri 20. Nóv 2012 15:30

Okei mun muna þetta Cascade. Takk fyrir það.

Mundi, ég var að rykhreinsa hann í gær og tók samt bara 1 viftu úr þar sem ég er ekki snillingur í þessu, held samt að hún snúi rétt hja mér, eða hún er allavega eins og hún var áður en ég tók hana úr. Ég er með CoolerMaster HAF 922, er ekki með viftu undir né á hliðinni.



Skjámynd

mundivalur
Vaktari
Póstar: 2327
Skráði sig: Fim 02. Apr 2009 13:16
Reputation: 82
Staðsetning: South side
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp við skjákortsval

Pósturaf mundivalur » Þri 20. Nóv 2012 15:38

HAF 922 á að vera með frábært loftflæði og fljótur að safna ryki ,er skjákortið með einni viftu eða fleiri og skoðaðir þú viftuna/ar eða blést í það :)



Skjámynd

Höfundur
Audunsson
Græningi
Póstar: 48
Skráði sig: Sun 09. Okt 2011 15:59
Reputation: 0
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp við skjákortsval

Pósturaf Audunsson » Þri 20. Nóv 2012 16:24

Blés bara í það sko, en og það er bara ein vifta í því.



Skjámynd

mundivalur
Vaktari
Póstar: 2327
Skráði sig: Fim 02. Apr 2009 13:16
Reputation: 82
Staðsetning: South side
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp við skjákortsval

Pósturaf mundivalur » Þri 20. Nóv 2012 16:33

Þá mæli ég með því að taka plast hlífina af og há hvort það sé ekki fast ryk þar sem loftið á að fara í gegn ! Hitinn á að vera ca. 45°c



Skjámynd

Höfundur
Audunsson
Græningi
Póstar: 48
Skráði sig: Sun 09. Okt 2011 15:59
Reputation: 0
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp við skjákortsval

Pósturaf Audunsson » Þri 20. Nóv 2012 16:39

Heyrðu, ég tékka á því, takk fyrir alla aðstoð.



Skjámynd

Höfundur
Audunsson
Græningi
Póstar: 48
Skráði sig: Sun 09. Okt 2011 15:59
Reputation: 0
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp við skjákortsval

Pósturaf Audunsson » Þri 20. Nóv 2012 16:41

En á hitinn að vera 45° með tvo skjái og bara vera inná netinu?



Skjámynd

mundivalur
Vaktari
Póstar: 2327
Skráði sig: Fim 02. Apr 2009 13:16
Reputation: 82
Staðsetning: South side
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp við skjákortsval

Pósturaf mundivalur » Þri 20. Nóv 2012 16:52

já þegar hitinn á ekkert að hækka að ráði nema við leikja spilunn og einhverjum vinnsluforritum :D