(SELD) !!! Til sölu Dell OPTIPLEX GX 620

ATH: Einungis er leyfð sala á tölvum og tölvutengdum búnaði.
VARÚÐ: Verðlöggur eru leyfðar með þeim takmörkunum að ýtrustu kurteysi er krafist af þeim.

Höfundur
lyfsedill
spjallið.is
Póstar: 461
Skráði sig: Mán 05. Sep 2011 19:02
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

(SELD) !!! Til sölu Dell OPTIPLEX GX 620

Pósturaf lyfsedill » Fim 13. Sep 2012 23:02

Hæ,

Er með til sölu Dell kassatölvu, Dell OptiPlex GX620

Hefur reynst mér mjög vel. Er um ca 4 ára gömul. Mér varð á fyrir slysni að reka skrúfjárn inn þar sem viftan er og hef eflaust eitthvað eyðilagt viftuna svo gæti trúað að þurfi að skifta um hana. Eg kann ekkert á tölvur annars.

speccar:

Intel (R) pentium (R) 4 CPU 3.20GHz 3.19 GHZ

Minni: 3 gb
32-bit operating systum



computer:
ACPIx86-based PC

Display adapters:
Intel(R)82945G

DVD/CD ROm drives
HL-DT-ST CDSR/DVD GCC4482 ATA device

Sound,video and game controllers:
SoundMAX intergrated Digital Audio

harður diskur 80gb

6 usb aftan - 2 framan

netkort og þráðlaust net.

En semsagt eitthvað þarf að gera því hún er rosa arrrggg hávaðasöm núna. Snýr að viftu og svo þarf að rykhreinsa.

Veit ekki neitt um verð. bara bjóða.

Myndir:

http://i.imgur.com/dFQm4.jpg
http://i.imgur.com/Cg8hO.jpg
http://i.imgur.com/hNawB.jpg


hér í pm.

kv og takk


ATH: Vélin er seld má eyða þræðinum.
Síðast breytt af lyfsedill á Fös 30. Nóv 2012 14:08, breytt samtals 6 sinnum.




omare90
Nörd
Póstar: 104
Skráði sig: Lau 03. Maí 2008 20:02
Reputation: 0
Staðsetning: Akureyri
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Til sölu Dell Tölva (Kassi á borði)

Pósturaf omare90 » Fim 13. Sep 2012 23:05

mynd af kassanum?


Gigabyte GA-P35-DS3L - E2180 @ 2.00 GHz - 2x 1GB GeIL DDR2-800MHz - ATI Radeon R4650 - Samsung Syncmaster 203b - WD 640GB-sata - 2x200gb-ide - Samsung Superwrite Master - Logitech Elite - Logitech G500 mús - Logitech Rumblepad 2

Skjámynd

bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Til sölu Dell Tölva (Kassi á borði)

Pósturaf bulldog » Fim 13. Sep 2012 23:15

ertu alveg viss um að hún sé bara 4 ára ?



Skjámynd

methylman
vélbúnaðarpervert
Póstar: 919
Skráði sig: Fim 13. Mar 2008 00:39
Reputation: 17
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Til sölu Dell Tölva (Kassi á borði)

Pósturaf methylman » Fim 13. Sep 2012 23:25

Er þetta Dimension 4600 vél hvað stendur framan á kassanum meira en Dell ?


Ekki treysta því að fólk skilji þig þó að það setji upp gáfulegan svip og segji já.


playman
Vaktari
Póstar: 2001
Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
Reputation: 76
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Til sölu Dell Tölva (Kassi á borði)

Pósturaf playman » Fim 13. Sep 2012 23:35

Pottþétt Optiplex GX2** eða GX5** Vél
Mynd
eða
Mynd


CPU: Intel Core i7-8700K hexa Core @ 3.7GHz RAM: Mushkin 16GB DDR4 1333MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
HDD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z370 AORUS Gaming 3 GPU: NVIDIA GeForce GTX 1070 4Gb
Main screen: BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9 Secondary screen: BenQ GW2455 - 24" 16:9 Tertiary Screen BenQ GW2455 24" 16:9


Höfundur
lyfsedill
spjallið.is
Póstar: 461
Skráði sig: Mán 05. Sep 2011 19:02
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Til sölu Dell Tölva (Kassi á borði)

Pósturaf lyfsedill » Fim 13. Sep 2012 23:45

Hæ, skelli væntanlega myndum á eftir. Eða í nótt. En neðsta myndin sem er komin þarna er ákkúrat útlitið á henni, Atti einu sinni Optiplex GX2** (eða efri myndina) og þetta er ekki þannig. Sé ekki neitt á kassanum hvaða týpa þetta er nefnilega. Hún gæti verið fimm ára. ca.




playman
Vaktari
Póstar: 2001
Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
Reputation: 76
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Til sölu Dell Tölva (Kassi á borði)

Pósturaf playman » Fim 13. Sep 2012 23:52

lyfsedill skrifaði:Hæ, skelli væntanlega myndum á eftir. Eða í nótt. En neðsta myndin sem er komin þarna er ákkúrat útlitið á henni, Atti einu sinni Optiplex GX2** (eða efri myndina) og þetta er ekki þannig. Sé ekki neitt á kassanum hvaða týpa þetta er nefnilega. Hún gæti verið fimm ára. ca.

það ætti að vera svartur miði á horninnu (vinstrihliðar og framhliðar) á vélinni sem seigir hvaða típa þetta er.
Annars ættiru að geta fundið út týpuna með því að nota "service tag" sem á að vera aftan á vélinni (kannski undir líka) hérna http://www.dell.com/support/home/us/en/19/home2


CPU: Intel Core i7-8700K hexa Core @ 3.7GHz RAM: Mushkin 16GB DDR4 1333MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
HDD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z370 AORUS Gaming 3 GPU: NVIDIA GeForce GTX 1070 4Gb
Main screen: BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9 Secondary screen: BenQ GW2455 - 24" 16:9 Tertiary Screen BenQ GW2455 24" 16:9


Höfundur
lyfsedill
spjallið.is
Póstar: 461
Skráði sig: Mán 05. Sep 2011 19:02
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Til sölu Dell OPTIPLEX GX 620 (Kassi á borði)

Pósturaf lyfsedill » Fös 14. Sep 2012 10:09

Auglýsing Leiðrétt og settar myndir.
Endinlega bjóða.
:) En raunhæf boð takk



Skjámynd

methylman
vélbúnaðarpervert
Póstar: 919
Skráði sig: Fim 13. Mar 2008 00:39
Reputation: 17
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Til sölu Dell OPTIPLEX GX 620 (Kassi á borði)

Pósturaf methylman » Fös 14. Sep 2012 10:12

lyfsedill skrifaði:Auglýsing Leiðrétt og settar myndir.
Endinlega bjóða.
:) En raunhæf boð takk


Ég ætla að byrja í mjög raunhæfu boði 7.000


Ekki treysta því að fólk skilji þig þó að það setji upp gáfulegan svip og segji já.


Höfundur
lyfsedill
spjallið.is
Póstar: 461
Skráði sig: Mán 05. Sep 2011 19:02
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Til sölu Dell OPTIPLEX GX 620

Pósturaf lyfsedill » Fös 14. Sep 2012 15:42

Eg held það sé nú ekki svo raunhæft boð. Ef viftan er ónýt (framvifta ekki aftan sem tengd er rafmagni), þá er hún ekki það dýr. samt ekkert öruggt hún sé ónyt sem er. Eg keytpi þessa vél fyrir um ári á 30.000 kall. Þannig 7000 kall getur ekki held ég talist raunhæft tilboð. Komið með raunhæf boð. kv



Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3089
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Re: Til sölu Dell OPTIPLEX GX 620

Pósturaf lukkuláki » Fös 14. Sep 2012 15:48

Það að þú keyptir vélina á 30.000 fyrir ári síðan er það eina hérna sem er ekki raunhæft :popeyed :popeyed :popeyed :popeyed


If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.

Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3125
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 455
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Til sölu Dell OPTIPLEX GX 620

Pósturaf hagur » Fös 14. Sep 2012 18:38

Mun öflugri vélar hafa verið að fara hérna á helmingi lægra verði, þannig er það nú bara.

Skelltu þessu á barnaland, færð pottþétt meira fyrir hana þar heldur en hér.




playman
Vaktari
Póstar: 2001
Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
Reputation: 76
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Til sölu Dell OPTIPLEX GX 620

Pósturaf playman » Fös 14. Sep 2012 19:01

Ég hef verið að selja þessar vélar rétt undir 10k niðrí vinnu, og selt þær líka á 11-12k ef ég hef "boostað" þær eithvað.


CPU: Intel Core i7-8700K hexa Core @ 3.7GHz RAM: Mushkin 16GB DDR4 1333MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
HDD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z370 AORUS Gaming 3 GPU: NVIDIA GeForce GTX 1070 4Gb
Main screen: BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9 Secondary screen: BenQ GW2455 - 24" 16:9 Tertiary Screen BenQ GW2455 24" 16:9

Skjámynd

bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Til sölu Dell OPTIPLEX GX 620

Pósturaf bulldog » Fös 14. Sep 2012 19:10

hvað vinnurðu playman ?




playman
Vaktari
Póstar: 2001
Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
Reputation: 76
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Til sölu Dell OPTIPLEX GX 620

Pósturaf playman » Fös 14. Sep 2012 22:00

bulldog skrifaði:hvað vinnurðu playman ?

Fjölsmiðjuni á Akureyri.


CPU: Intel Core i7-8700K hexa Core @ 3.7GHz RAM: Mushkin 16GB DDR4 1333MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
HDD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z370 AORUS Gaming 3 GPU: NVIDIA GeForce GTX 1070 4Gb
Main screen: BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9 Secondary screen: BenQ GW2455 - 24" 16:9 Tertiary Screen BenQ GW2455 24" 16:9


Höfundur
lyfsedill
spjallið.is
Póstar: 461
Skráði sig: Mán 05. Sep 2011 19:02
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Til sölu Dell OPTIPLEX GX 620

Pósturaf lyfsedill » Fös 14. Sep 2012 23:24

Þessi vél er góð. Hún er með 3gb minni sem telst gott miðað við aldur þessarar vélar. Ömurlegt hvernig fólk hér rakkar niður náungann í stað að styðja í póstum. Varðandi verð þá var hér fyrr í vikunni önnur dell tölva með 2g. í minni og sett á hana 25 þúsund. og eftir því sem ég best veit fór hún á 15 þúsund.

Þannig ég held að ekki sé rétt að rakka mig hér niður og reyna henda mér á blandið. Eg versla ekki vélar þar og vil ekki selja heldur vélar þar. Vil nota síður sem eru um tölvur en ekki draslsíður eins og bland.is

en, vinir. verið kurteisir og áhugasamir, bjóðið í pm - ekki hér í þræðinum.



Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3089
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Re: Til sölu Dell OPTIPLEX GX 620

Pósturaf lukkuláki » Lau 15. Sep 2012 00:17

lyfsedill skrifaði:Þessi vél er góð. Hún er með 3gb minni sem telst gott miðað við aldur þessarar vélar. Ömurlegt hvernig fólk hér rakkar niður náungann í stað að styðja í póstum. Varðandi verð þá var hér fyrr í vikunni önnur dell tölva með 2g. í minni og sett á hana 25 þúsund. og eftir því sem ég best veit fór hún á 15 þúsund.

Þannig ég held að ekki sé rétt að rakka mig hér niður og reyna henda mér á blandið. Eg versla ekki vélar þar og vil ekki selja heldur vélar þar. Vil nota síður sem eru um tölvur en ekki draslsíður eins og bland.is

en, vinir. verið kurteisir og áhugasamir, bjóðið í pm - ekki hér í þræðinum.



Það er enginn að rakka þig niður þetta heitir að vera raunsær.
3GB minni er kannski alveg þokkalegt en 533 - 667 minni er ekki verðmikið og svo er 80 GB diskur í þessu, sennilega álíka gamall og vélin.
4 - 5 ára gömul vél ..þá er líklegt að þéttar séu orðnir bólgnir á móðurborðinu og allt hefur þetta dót sinn líftíma.
Mynd
http://en.community.dell.com/support-forums/desktop/f/3514/p/19289382/19534914.aspx#19534914
Sé ekki betur en að menn séu að reyna að fara kurteisu leiðina til að segja þér að þetta er of hátt verðlagt hjá þér þannig að þú hlýtur að geta tekið því eins og maður.

Annars er það bara þannig að ef hlutir eru verðlagðir á sanngjarnan hátt þá fara þeir hratt,
ég á það alveg til að setja of hátt verð á hluti eins og margir hérna inni það skilar sér bara í því að þeir seljast ekki fyrr en maður lækkar verðið og sættir sig við það.


If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.


Höfundur
lyfsedill
spjallið.is
Póstar: 461
Skráði sig: Mán 05. Sep 2011 19:02
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Til sölu Dell OPTIPLEX GX 620

Pósturaf lyfsedill » Lau 15. Sep 2012 06:31

ok skil oft ekki hluti hér. þegar einn með 2gb minni setur 25 þús og enginn kvartar um verðlagningu þar en svo er kvartað hjá mér með 3 gb. ég er nátturulega svo heimskur í tölvumálum helt bara að það þætti gott að fá 3 gb vél fyrir sama verð t.d. og sá fékk fyrir 2gb vélina eða 15 þus.



Skjámynd

methylman
vélbúnaðarpervert
Póstar: 919
Skráði sig: Fim 13. Mar 2008 00:39
Reputation: 17
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Til sölu Dell OPTIPLEX GX 620

Pósturaf methylman » Lau 15. Sep 2012 06:53

Stærð skiftir máli jú víst segja stelpurnar. En aldur og reynsla skifta líka máli, en eru ekki sérstaklega eftirsótt þegar um vélbúnað er að ræða.


Ekki treysta því að fólk skilji þig þó að það setji upp gáfulegan svip og segji já.


Höfundur
lyfsedill
spjallið.is
Póstar: 461
Skráði sig: Mán 05. Sep 2011 19:02
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Til sölu Dell OPTIPLEX GX 620

Pósturaf lyfsedill » Lau 15. Sep 2012 07:29

Ok verst þykir mér þá ef ég er svona heimskur í verði að ég hafi látið svindla svona á mér með að kaupa þessa á 40 þús af tölvuviðgerðargrúskara.



Skjámynd

methylman
vélbúnaðarpervert
Póstar: 919
Skráði sig: Fim 13. Mar 2008 00:39
Reputation: 17
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Til sölu Dell OPTIPLEX GX 620

Pósturaf methylman » Lau 15. Sep 2012 07:58

lyfsedill skrifaði:Ok verst þykir mér þá ef ég er svona heimskur í verði að ég hafi látið svindla svona á mér með að kaupa þessa á 40 þús af tölvuviðgerðargrúskara.


Þetta er ekki heimska vinur minn bara reynsluleysi, og lagast með tímanum. það verður ekki hægt að ginna þig með 3 Gig tilboði aftur held ég. En svona til þess að láta þig vera vissan um að við höfum eitthvað til okkar máls er hérna hlekkur á svipaða eða eins vél sem hefur ekki selst á umbeðnu verði s.l. 10 daga eða svo https://bland.is/classified/entry.aspx? ... Id=1346687


Ekki treysta því að fólk skilji þig þó að það setji upp gáfulegan svip og segji já.

Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3089
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Re: Til sölu Dell OPTIPLEX GX 620

Pósturaf lukkuláki » Lau 15. Sep 2012 09:48

lyfsedill skrifaði:ok skil oft ekki hluti hér. þegar einn með 2gb minni setur 25 þús og enginn kvartar um verðlagningu þar en svo er kvartað hjá mér með 3 gb. ég er nátturulega svo heimskur í tölvumálum helt bara að það þætti gott að fá 3 gb vél fyrir sama verð t.d. og sá fékk fyrir 2gb vélina eða 15 þus.


Það sem fléttast saman í verðmati á tölvubúnaði er ýmislegt.
Aldur búnaðarins hefur mjög mikið að segja, flestur tölvubúnaður úreldist á ofurhraða.
Örgjörvinn stærð, gæði og hraði hans hefur mikið að segja þegar maður er að selja turn í heilu lagi.
Minnið ræður miklu þar sem það þarf helst að vera nóg af því og getur eiginlega aldrei verið of mikið en stundum er fólk með of mikið af því miðað við hvað stýrikerfið styður.
Verðið á minninu ræðst af aldri, eftirspurn og framboði DDR2 533MHz og 667MHz minni er til í bílförmum framboðið er allt of mikið til að það fáist gott verð fyrir það þetta er líka gamalt minni og nýrri móðurborð geta ekki notað það þannig takmarkast notkun þess við eldri móðurborð og þeim fer fækkandi. 30% - 50% +/- af verði nýs minnis þar sem það er ódýrast er nokkuð raunhæft að fá.
800 MHz minni eru vinsælli og nýrri en það er líka nokkuð mikið til af þeim þannig að þau fara ekki á mikinn pening þó eru öll þessi minni eftirsóttust í 2 GB kubbum og 1 GB.
Í nýrri vélum er DDR3 minni og þú getur ekki notað DDR2 minni í DDR3 móðurborð.

Harði diskurinn. Stærð (GB/TB) og aldur disksins segir allt um verðið. Diskur sem er orðinn ~4 ára + er farinn að slappast. (Staðreynd)
Vegna flóða í verksmiðjum í Asíu hækkaði verð harðra diska nokkuð mikið nýlega en hefur lækkað eitthvað aðeins undanfarna mánuði en litlir diskar eru svo til verðlausir til að fá eitthvað smá fyrir þá þarf maður að sýna fram á að þeir séu í óaðfinnanlegu ástandi og eigi mikið eftir þá henta þeir ágætlega sem stýrikerfisdiskar í turna en þó ekki svo vel í þennan turn sem þú ert að selja vegna þess að þessi GX620 kassi gerir bara ráð fyrir 1 stk. hörðum diski og þá hugsa ég að flestir vilji hafa hann stærri en 80GB.
Þó svo að þeir vilji kannsi skipta honum niður í partitons.
Þín vél myndi þó alveg geta hentað fyrir afa og ömmu þar sem þau eru að öllum líkindum bara á netinu og pláss á diskinum kannski ekki aðalmálið.

Í tölvum sem eru orðnar 3 - 4 ára + eru þéttar (capacitors) sem eru farnir að gefa sig. Þetta er nánast alveg gefið mál.
Það má skipta um þessa þétta en stundum þá bara tekst það ekki og vélin fer ekki í gang aftur þetta getur kostað nokkra hundraðkalla jafnvel þó þú gerir þetta sjálfur,
mig minnir að hver þéttir í þessa vél kosti um 220 - 230 kr. og oftar en ekki þá þarf að skipta um 4 - 6 stk. og stundum fleiri.
Þegar þessir þéttar eru farnir að gefa sig þá má búast við þeim einkennum að vélin sé farin að drepa á sér alveg upp úr þurru og eða bluescreena.
Vifturnar fara stundum á milljón snúninga og eru þannig í nokkurn tíma jafnvel alltaf og svo eru þær oft hægar og nánast ómögulegt að nota þær.
Þessi bölvun með þessa þétta er einn risa stór galli í móðurborðum og fleiru því þetta á alls ekki að gerast en einhvern staðar heyrði ég að sparnaður í framleiðslu væri orsökin.

Svo er það ýmislegt annað sem skiptir máli í verðlagningu á tölvum til dæmis skjástýring eða skjákort.
Sá sem kaupir svona vél eins og þú ert með er ekki að fara að nota hana í tölvuleiki nema þá solitaire eða eitthvað slíkt vélbúnaðurinn býður ekki upp á mikið meira en það og ef einhver vill kaupa í hana skjákort þá þarf hann að finna low profile skjákort eða riser í vélina og hvorugt er ódýrt eða borgar sig fyrir þetta gamla vél.

Eitthvað varstu að tala um að þú hafir potað í viftuna með skrúfjárni sem er auðvitað ekki mjög sniðugt þar sem þú setur ekki hvaða viftu sem er í þennan kassa
Það er sérstakt tengi á endanum sem tengist í móðurborðið og svo minnir mig (er samt ekki 100%) að þetta sé eitthvað afbrigðileg stærð af viftu í þessum kössum.


Á bland er fólk sem gæti keypt vélina þína á hærra verði en þú færð fyrir hana hérna, einfaldlega vegna þess að þar er fullt af fólki sem veit þetta ekki og trúir seljandanum svolítið eins og þú gerðir víst þegar þú keyptir þessa. Ef þú átt þokkalegan skjá, lyklaborð og mús þá myndi ég halda að þú hefðir stærri markhóp til að selja hana.

Góða helgi. :happy


If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.


Höfundur
lyfsedill
spjallið.is
Póstar: 461
Skráði sig: Mán 05. Sep 2011 19:02
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Til sölu Dell OPTIPLEX GX 620

Pósturaf lyfsedill » Mán 17. Sep 2012 14:11

hingað til hef ég nú virt þig hér Lukkuláki og þótt mikið til þin koma en í þessu finnst mér þú vera fara offari. Eitthvað synist mér líka á pósti sem ég hef fengið að einhverjir séu að misskilja mig hér í verðlagningu þessarar tölvu.

Vissulega segir aldur eitthvað. Ég hef hins vegar átt þessa tölvu í yfir ár og er ein sú besta sem ég hef haft. Er ekki eins og margir að kaupa alltaf nýjustu tölvurnar enda þarf ég ekki svo á nýjasta að halda þar sem ég er lítið í leikjum :)
segi nú svona.

Vissulega er það rett lukkuláki að þessi vel keyrir örugglega ekki leiki enda ekki það sem ég nota vél í, og ekki nefndi ég það heldur í minni auglýsingu að hún keyrði leiki. bara nothæf í venjulegt tölvu og net brúk. :)

Hef keypt t.d. tölvu með 1 gb í minni og með win 7 og það var bara ekki að virka, tölvan fraus á því og taldi ég þessi heimski tölvukall að það hlyti að vera útaf því að 1gb sé ekki nóg til að keyra win 7.

Og jú eflaust vilja flestir hafa stærri disk í svona tölvu sem hefur bara pláss fyrir einn. En á móti kemur 8 usb og það gefur vissulega mikla möguleika á diskum af flökkurum, enda ég notað það mikið þannig.

Þetta með afa og ömmu dæmið móðgaði mig :) Fleirri en afar og ömmur sem gætu vel notað þessa tölvu.

Rengi ekkert sem þú segir um þéttana, þekki ekkert inn á það. :)

Mér skilst að varðandi þetta með potið mitt í viftuna sé ekki eins erfitt þar sem þetta var framviftan, ekki sú sem er tengd við rafmagnið aftan á kassanum, það var mér sagt.

og nei, vissulega var það heimska að setja skrúfjárn þarna í. Stundum gerir maður hluti og hugsar eftir á "hvað var ég að pæla, rugludallur er ég" :) þetta var bara eitthvað gert án þess að hugsa. Og plús að gera þetta með tölvuna i gangi það bara já, fatta mig ekki.

Varðandi blandið jú þá bara þoli ég ekki þá síðu þó ég gæti fengið meira fyrir þetta þar. Vélin er keypt gegnum þessa síðu af einum af þessum sem eru að gera við tölvur, kaupa odyrar og gera við og selja gegnum þessa síðu.

En já, svo það sé á hreinu af því ég fékk póst þess efnis að viðkomandi helt ég vildi jafnvirði 30 þús fyrir þessa vel þá er það alger misskilngur. Eg yrði alveg vel sáttur við 15 þúsund eða þar í kring.

Njótið og jú enn til sölu. :)
bjóðið.



Skjámynd

Kjáni
Ofur-Nörd
Póstar: 294
Skráði sig: Mið 08. Ágú 2012 23:49
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Til sölu Dell OPTIPLEX GX 620

Pósturaf Kjáni » Mán 17. Sep 2012 23:11

Finnst þetta vera illa gert af þér, auglýsir hana hér á 15 þúsund til sölu en svo settur þú 25 á þetta hér á bland, https://bland.is/classified/entry.aspx? ... Id=1352083



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7597
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1193
Staða: Ótengdur

Re: Til sölu Dell OPTIPLEX GX 620

Pósturaf rapport » Þri 18. Sep 2012 02:11

:popp


15 hér en 25 á bland....


Segir sig sjálft að hann ætlar að bjóða mikinn aflátt svo að blandarinn hakdi að hann sé að gera góðann díl ( en gera það ekki allir hér þegar þeir fara á blandið með e-h dót? )