eirikur01 skrifaði:Jájá kurteisi kostar ekkert. Mér finnst bara óþolandi að þegar einhver er að selja vöru sem margir halda fram að sé ekki mikils virði séu að spamma söluþráðinn með því. Ef einhver er tilbúinn að borga 7000 kr. þá selst tölvan á því verði og ekki minna. Það er bara mitt mál. Fólk þarf ekki að láta skoðun sína í ljós alltaf. Eitt dæmi hérna. Ef þú sérð ljóta stelpu þá þarftu ekkert að labba uppað henni og segja henni það, Það er ekki þörf á að bömmera hana. Í staðinn helduru bara áfram að ganga þinn veg . Er búinn að fá 2 tilboð uppá 5000 kr. svo það hlítur að styttast í 7000kr. tilboðið. Ekkert að því samt að 1 til 2 séu að segja að maður fái ekkert mikið fyrir svona vélar sem er ágætt að vita svo maður fari ekki í öfgar og segi nei við rausnarleg boð. En annars þá vil ég að þetta sé söluþráður en ekki spjallþráður og ég vil að fólk virði það. Fólk er bæði búið að kommenta góða og slæma hluti um vöruna sem ég er að selja í þetta skipti og það er ekki þörf á fleiri svoleiðis kommentum. Takk fyrir
Þú gerir þér grein fyrir því að allir voru mjög jákvæðir þar til þú sagðir "haha nei!" við 3000 kr. boði. Þá kom komment um að það væri ekki svo mikið úr vegi og þú svarar því með hroka. "haha nei!" við boði sem er ekkert svo vitlaust gefur til kynna að þú sért smá vitlaus, þó verður að átta þig á því að "tongue-in-cheek" kemst rosalega illa til skila þegar þú ert bara að vinna með texta.
Ef þú hefðir bara sagt "nei, er að leita að aðeins meiri pening" þá hefðirðu ekki fengið þessi viðbrögð því að fólk hefði séð að þú værir bara að bíða eftir aðeins hærra boði (sanngjarnt fyrir þig, sem þetta 3000 kr. boð er eiginlega ekki). Hættu nú í bullandi vörn og þá mun þetta allt ganga betur.
Frábær tölva og flestir þessir leikir þarna eru miklu skemmtilegri en margir nýir leikir. Það væri kannski ekki úr vegi að einhver stjórnandi myndi taka til í þessum þræði þar sem hann er farinn út í algjöra vitleysu.