Sælir vaktarar!
Eftir 4 ára notkun á GTX9800+ hef ég ákveðið að uppfæra skjákortið í ár og hef ég verið að bíða eftir GTX660, en þar sem Diablo III var að koma út og Battlefield 3 orðinn þreytandi í "low" stillingum þá ákvað ég að framkvæma eina mini uppfærslu til þess að tappa af uppfærslufíkninni.
Ég fjárfesti í eitt stk notað HD5850 sem virkar mjög vel fyrir utan smá kurri í kæliviftunni, það kurr reyndist líkara gamalli dísilvél og fyrir mér var hávaðinn óþolandi enda tölvan inni í svefnherbergi.
Eftir smá leit þá komst ég að því að lagerstaða/úrval á íslandi af skjákortskælingum er léleg og þar að auki eru verðin á þeim sem ég fann ekkert svo freistandi heldur.
En ég lét ekki deigan síga og á endanum ákvað ég að rífa plastrhlífina af og festa nýrri viftu ofan á heatsinkið.
Viftan sem varð fyrir valinu heitir Noctua NF-R8, 80mm vifta með þremur hraðaþrepum:
Byrjað var á því að rífa kælinguna alveg af og skipt um kælikrem, original viftan tekin úr sambandi.
Kælingin á kortinu án plasthlífar.
Ég þurfti að beygja endana á álþynnunum uppávið svo viftan gæti blásið almennilega inn í kortið
Hér er ég búinn að beygja upp álið eins beint og ég gat.
Næst var kortið rækilega hreinsað með loftpressu til þess að blása burt allar agnir af áli sem idduðust upp við brasið, viftunni komið fyrir þar sem ég vildi hafa hana.
Ég ákvað að festa niður viftuna með "zip-ties" og reyndist það vera mjög góð lausn.
Endarnir klipptir af plast festingunum.
Þar næst var kortið álagsprufað með FurMark hugbúnaðinum og fékk ég út eftirtaldnar tölur:
37°C idle, 66°C max með viftuna beintengda í móðurborð. Viftan snýst 1800rpm en hljóðið í viftunni á þessari stillingu fannst mér vera of hátt.
Ég smellti á "L.N.A" eða "Low noise adapter" snúrustubb sem fylgdi með viftunni og það keyrði hana niður í 1300rpm en viftan er mun hljóðlátari á þessari stillingu.
Við það hækkaði hitinn í FurMark upp í 79°C og tel ég það vera ásættanlegt þar sem stock kælingin fer hæst upp í 74°C
Yfir heildina litið er ég mjög ánægður með útkomuna þar sem viftan kostaði mun minna heldur en aftermarket kælilausn og vinnan kostaði mig ekki neitt. Ég geri mig grein fyrir því að kortið myndi eflaust verða enn kaldara með aftermarket kælingu en hljóðlátara verður það varla (amk undir álagi)
***Það þarf varla að nefna það að svona æfingar rifta ábyrgðir en hún var þegar runnin út þegar ég byrjaði á þessu***
HD5850 viftu MOD
-
- Geek
- Póstar: 843
- Skráði sig: Sun 20. Jan 2008 04:25
- Reputation: 15
- Staðsetning: Rvk
- Staða: Ótengdur
Re: HD5850 viftu MOD
bwahahha eins og í modið á gamla gefoce 6600 kortið mitt manstu eftir því ? vorum að reyna að ná að spila cod4 mw
i7 6700k @ 4.0 GHz | Custom Loop Water Cooling| AsRock z170 extreme 6+ | G.skill trident z 16 GB DDR4 @ 3200 MHz | Gigabyte Aorus GTX 1080ti| Wallmount | BeQuiet Darkpower pro 850+ | Samsung 950 pro nvme m.2 512gb + Samsung SSD 850 evo 2.5'' 2x250GB SATA3|Acer X34a - BenQ G2450 24'' | W10 x64
Re: HD5850 viftu MOD
Hvað eru notuð 5850 að fara á í dag ?
Gigabyte X570 - Ryzen 5900 @ 4.5ghz all core - 5ghz single core - 64gb TridentZ 3400mhz - AMD 7900XTX
-
- Skrúfari
- Póstar: 2401
- Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
- Reputation: 153
- Staðsetning: Árbærinn
- Staða: Ótengdur
Re: HD5850 viftu MOD
ekkert vesen að koma kortinu í rauf með zip tie þarna undir?
i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180
-
- Kóngur
- Póstar: 6398
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
- Reputation: 464
- Staðsetning: fyrir aftan þig
- Staða: Tengdur
Re: HD5850 viftu MOD
eins ljótt og þetta er, þá er þetta nokkuð nett xD
CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow
-
- Tölvuskreytingameistari
- Póstar: 3942
- Skráði sig: Lau 22. Nóv 2008 11:14
- Reputation: 0
- Staðsetning: Siglufjörður
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: HD5850 viftu MOD
worghal skrifaði:eins ljótt og þetta er, þá er þetta nokkuð nett xD
Loksins einhver sem þorði að segja það sem ég var að hugsa
Asus Sabertooth P67 | Intel Core i7 2700K 3.5Ghz @ 5.2GHz | Custom WC GREEN | Corsair Vengeance 16GB 1866MHz @ 2133MHz | Geforce GTX 680 2048MB | C: Samsung 830 256GB | Corsair AX850 | CM Storm Trooper (Autob0t Sk1ds) | Logitech G700 | Corsair Vengeance K60 |rigmods.com
-
Höfundur - has spoken...
- Póstar: 189
- Skráði sig: Mán 30. Jún 2008 18:19
- Reputation: 22
- Staða: Ótengdur
Re: HD5850 viftu MOD
þetta er meira reddun (skítmix) heldur en mod tbh vildi bara hafa þráð sem ég gat linkað í fyrir vini mína fínt líka fyrir fólk sem lendir í að vifta fari eftir ábyrgðartíma, kortið er ekkert ónýtt bara redda þessu!