Hiti á örgjörva og afkastageta?


Höfundur
playman
Vaktari
Póstar: 2002
Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
Reputation: 76
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Hiti á örgjörva og afkastageta?

Pósturaf playman » Fim 03. Maí 2012 14:45

þetta poppaði allt í einu hjá mér og mér langaði að vita hverninn þetta væri með
hita á örgjörva og hvaða áhrif hann hefur á örran.

En ég er aðallega að spá t.d. hver er munurinn á 38°c og 42°c
4°c hljómar ekki mikið, en hvað "slappast" örrin mikið við þetta?


CPU: Intel Core i7-8700K hexa Core @ 3.7GHz RAM: Mushkin 16GB DDR4 1333MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
HDD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z370 AORUS Gaming 3 GPU: NVIDIA GeForce GTX 1070 4Gb
Main screen: BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9 Secondary screen: BenQ GW2455 - 24" 16:9 Tertiary Screen BenQ GW2455 24" 16:9

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3835
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 157
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Hiti á örgjörva og afkastageta?

Pósturaf Daz » Fim 03. Maí 2012 14:52

Hiti hefur engin bein áhrif á afkastagetu örgjörvans. Innan skynsemismarka reyndar, ef þú ert kominn yfir hámarkshitann sem framleiðandi mælir með er mjög líkelgt að afköstin hrapi hratt, niður í 0% líklega.

Óbein áhrif eru að því kaldari sem hann er í venjulegri keyrslu, því líklegra er að hægt sé að yfirklukka hann og auka þar með afköstin.




Höfundur
playman
Vaktari
Póstar: 2002
Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
Reputation: 76
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Hiti á örgjörva og afkastageta?

Pósturaf playman » Fim 03. Maí 2012 15:00

Daz skrifaði:Hiti hefur engin bein áhrif á afkastagetu örgjörvans. Innan skynsemismarka reyndar, ef þú ert kominn yfir hámarkshitann sem framleiðandi mælir með er mjög líkelgt að afköstin hrapi hratt, niður í 0% líklega.

Óbein áhrif eru að því kaldari sem hann er í venjulegri keyrslu, því líklegra er að hægt sé að yfirklukka hann og auka þar með afköstin.

Þannig að það er bara eins einfalt og þú seigir, að það sé einginn afkastamunur á 38-42°c?
Jafnvel þó að við værum að tala um 30°c vs 60°c?

Fór bara að spá í þessu að því að maður er búin að sjá svo mikið af fólki sem
er að reyna að komast undir ~45°c t.d.(eða venjulegan keyrsluhita) og sumir sem eru
meyra að seygja að skipta um kælikrem til þess að geta lækkað sig um kanski 5°c
en eru samt ekkert að OCa


CPU: Intel Core i7-8700K hexa Core @ 3.7GHz RAM: Mushkin 16GB DDR4 1333MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
HDD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z370 AORUS Gaming 3 GPU: NVIDIA GeForce GTX 1070 4Gb
Main screen: BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9 Secondary screen: BenQ GW2455 - 24" 16:9 Tertiary Screen BenQ GW2455 24" 16:9


Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4197
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1351
Staða: Ótengdur

Re: Hiti á örgjörva og afkastageta?

Pósturaf Klemmi » Fim 03. Maí 2012 15:04

playman skrifaði:þetta poppaði allt í einu hjá mér og mér langaði að vita hverninn þetta væri með
hita á örgjörva og hvaða áhrif hann hefur á örgjörvan.

En ég er aðallega að spá t.d. hver er munurinn á 38°c og 42°c
4°c hljómar ekki mikið, en hvað "slappast" örrin mikið við þetta?


Þú missir nákvæmlega 2320klst af endingu örgjörvans við 100% notkun...

Nei, það er ómögulegt að segja, auk þess sem yfirleitt eru miklar og tíðar hitasveiflur verri fyrir örgjörvann heldur en stanslaust hitastig í hærri kanntinum.
Það er ein af ástæðunum fyrir því að viftustillingar á móðurborði bjóða oft upp á "target temperature" frekar heldur en nákvæman viftuhraða í snúningum eða hlutfalli af hámarkshraða.

Varðandi afkastagetu að þá, líkt og Daz benti á, þá helst hitastig og afkastageta ekki í hendur nema við förum út í mjög fræðilega hugsun og ómælanlegan mun, þ.e. vegna hitaþenslu fara rafboðin að berast hægar og þar með getur klukkutíðni ekki verið jafn há því ekki er tryggt að síðustu útreikningar einnar lotu klárist áður en fyrstu útreikningar annarar lotu verða o.s.frv.

Hins vegar þá bregst móðurborðið stundum við of miklum hita með því að lækka hraðann á örgjörvanum til að lækka hitastigið og þar með verða afköstin minni, en þetta er aðeins gert í þeirri von að bjarga íhlutum frá skemmdum og á því aðeins við þegar örgjörvinn er kominn yfir hættumörk.




Joi_BASSi!
Ofur-Nörd
Póstar: 224
Skráði sig: Sun 28. Ágú 2011 11:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Hiti á örgjörva og afkastageta?

Pósturaf Joi_BASSi! » Fim 03. Maí 2012 17:03

aðal munurinn er stolt.