Xovius skrifaði:coldcut skrifaði:Á undir 10 mínútum hef ég komist að því hvað þú heitir fullu nafni, þú ert 29 ára, býrð/ert frá Álftanesi, tekur í vörina, finnst gott að fá þér rauðvín, eyddir öllum þínum peningum í tölvudót þann 1.des, ert með mann sem þú getur hringt í og reddað þér bjór og vodka, hvað þú fékkst í jólagjöf, átt ekki bíl, hefur áhuga á tölvum+motorcross+fallhlífastökki, usernameið þitt á bland.is.
Langaði bara aðeins að sýna þér hvað það er í raun auðvelt að grafa upp dót á internetinu. Ég hefði getað grafið dýpra ef ég hefði nennt því og með stjórnendaréttindum grafið upp ennþá meira! Allar þessar upplýsingar fann ég með þeim upplýsingum sem þú gefur upp hérna á vaktinni.
Svo strax og þú ert kominn með nafn gætirðu verið með þjóðskrá (litla forritið með þjóðskrá síðan 2001 eða some) og fundið kennitölur hans og jafnvel allrar fjölskyldunnar hans...
þarft nú bara að logga þig inní heimabankann þinn og fletta honum upp þar. (Það er allaveganna þjóðskrá í landsbankanum)