Ohhh.... djesus.... val á sjónvarpi.


Hauksi
Fiktari
Póstar: 91
Skráði sig: Fös 28. Mar 2008 15:12
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Ohhh.... djesus.... val á sjónvarpi.

Pósturaf Hauksi » Sun 18. Des 2011 18:27

gettra skrifaði:Jæja. Ef þyrfti að velja milli þessara 4 tækja hvað yrði valið:

Panasonic TX-P42GT30Y
http://ht.is/index.php?sida=vara&vara=TXP42GT30Y

Philips 42PFL7606T
http://ht.is/index.php?sida=vara&vara=42PFL7606T

Samsung UE40D6575
http://www.samsungsetrid.is/vorur/408/

Sony KDL40HX723BAEP
http://www.netverslun.is/verslun/produc ... 9,622.aspx

Búin að skoða talsvert og það er e-h við þessi 4 sem mér líkar og get ekki gert upp hugan á milli.

Af þessum fjórum,Panasonic í 1.sætið
Philips þar á eftir.

Á hinn boginn þá er ég lítið fyrir 3D..
þannig að ég myndi velja þetta tæki í stað GT30..ódýrara stærra en aðeins lakari myndgæði..
http://sm.is/index.php?sida=vara&vara=TXP46G30Y

Stutt í að Panasonic 2012 tækin verða kynnt(janúar)
Ef ég ætlaði að kaupa 2011 módel af Panasonic þá myndi
ég athuga eftir áramót,gera betri kaup þá!

PS,
Panasonic GT30 notar "active" 3D gleraugu.
Philips 7606 notar "passive" 3D gleraugu.

Mismunandi tækni með sína kosti og galla..




Höfundur
gettra
Nýliði
Póstar: 18
Skráði sig: Þri 06. Des 2011 11:32
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Ohhh.... djesus.... val á sjónvarpi.

Pósturaf gettra » Sun 18. Des 2011 22:31

Mér heyrist plasma/led umræðan vera á sama stigi:
Þykkt: Kom mér á óvart hvað Panasonic (eina plasma tækið) er þunnt. Er 3 sm nema alveg neðst þar sem það fer í 5 á smá kafla alveg í miðjunni. Hin tækin eru frá 2,5 til 3 þannig að það er ekki afgerandi munur.
Þýngd: 10-12 kg LED v. 18 kg Plasma… Kommon…. Ertu maður eða mús?
Rafmagnseyðsla: Plasma er um 25% eyðslufrekari. Ef maður skoðar reiknivél OR þá er LED 1500 kr. á ári, plasma 2000 kr.

Ég er nánast búin að strika út Sony. Enginn sem mælir með því.
Samsung er out nema ég nái lægra verði á það.

Hvað segja menn um Ambilight? Er þetta bara gimmick eða eh sniðugt?

Panasonic er hægt og rólega að skríða á toppinn.
P.s. það munar eh um 20.000 á 2D og 3D G30 tækjunum. Ekki nóg til að ég taki ódýrara peningana vegna.
Og já – það er rétt að 2012 tækin komi. Held það sé einmitt þess vegna sem þetta Panasonic er á tilboði núna.




stebbi23
has spoken...
Póstar: 156
Skráði sig: Fös 17. Júl 2009 09:59
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Ohhh.... djesus.... val á sjónvarpi.

Pósturaf stebbi23 » Mán 19. Des 2011 01:27

Panasonic tækið er flott en tæki samt Samsunginn alltaf fram yfir.
Samsunginn er 400 CMR sem er betra en 400Hz á meðan pansonic tækið er 600Hz Subfield Motion sem er svipað og 100Hz í LCD og LED í hreyfingum og í rauninni samsett tala af Plasma framleiðendum til að verða ekki á eftir LCD og LED framleiðendum í tölum á spekkum sem heilla kaupendur.
Samsung tækið er bjartara og skýrara á meðan Panasonic tækið er með réttari liti en ekki eins skýrt, þarft bara að velja hvað þú vilt en hins vegar er hægt að stilla Samsung tækið á nánast perfect liti með smá uppflettingum á google.

Veit að það fylgja einnig 2x 3D gleraugu með Samsung 6500 seríu tækjum upp úr kassa frá Samsung(það er 13.999 kr x 2) og það er 10 þús kr. ódýrara í BT
http://www.bt.is/vorur/vara/id/15740 og skv. auglýsingu um helgina í fréttablaðinu þá fylgir 25k Samsung blu-ray spilari með öllum 40" eða stærri tækjum í BT.
Miða við verð á Panasonic gleraugum á HT síðunni er það 19.995 á stykkið.

Panasonic tækið hefur T2 móttakara sem gæti verið gott upp á framtíðina en hins vegar tel ég frekar öruggt eða ef íslenskar sjónvarpsrásir fara að senda út á T2 þá komi sérstakur afruglari/móttakari eins og er á öllum heimilum í dag.
Samsung tækið hefur S móttakara(gervihnatta) og ég held að diskur með uppsettningu og tengingu hjá Eico sé undir 50K í dag, þá geturu tengst Astra28 gervihnettinum sem er með yfir 100+ fríar stöðvar - http://www.eico.is/?category=95

Burn-in er er möguleiki á öllum sjónvörpum í dag og mest á plasma tækjum.
Líkurnar á burn-in eru mestar á sirka fyrstu 200 keyrslutímum tækisins og lækka svo eftir það því þá hafa cellurnar í tækinu náð að harna aðeins. Eftir það er burn-in enþá möguleiki, t.d. er enþá mælt með því að slökkva á tækinu ef þú t.d. stoppar spilun í xbox eða ps3 í smá tíma, hins vegar er yfirleitt hægt að ná burn-in út úr tækinu en það getur tekið tugi klukkutíma ef ekki 1-2 vikur.

Vona að þetta hafi hjálpað eitthvað :)




Höfundur
gettra
Nýliði
Póstar: 18
Skráði sig: Þri 06. Des 2011 11:32
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Ohhh.... djesus.... val á sjónvarpi.

Pósturaf gettra » Mán 19. Des 2011 18:29

Mjög svipað Samsung tæki í Elko. E-h annað vörunúmer en fann það á sænskri síðu og það eru sömu spekkar.
Er þorandi að kaupa sjónvarp hjá BT? Keypti á sínum tíma tölvu þarna og fékk flugeldapakka í kaupbæti. Held að flugeldarnir hafi dugað lengur en tölvan.




stebbi23
has spoken...
Póstar: 156
Skráði sig: Fös 17. Júl 2009 09:59
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Ohhh.... djesus.... val á sjónvarpi.

Pósturaf stebbi23 » Mán 19. Des 2011 19:33

Elko er með 6757 sem er 200 CMR og með T2 móttakara á móti 400 CMR í 6575 og gervihnattamóttakara.

Bræðurnir Ormsson eiga Samsungsetrið og BT og eru umboðsaðilar Samsung sjónvarpa á Íslandi.




Bidman
Nörd
Póstar: 117
Skráði sig: Mán 08. Ágú 2011 20:51
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Ohhh.... djesus.... val á sjónvarpi.

Pósturaf Bidman » Mán 19. Des 2011 20:49

farðu í sjónvarpsmiðstöðina og sjáðu hvernig myndin á panasonic plösmunum gillznauðgar öllum öðrum tækjum í rassgatið þarna á veggnum




blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1760
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 140
Staða: Ótengdur

Re: Ohhh.... djesus.... val á sjónvarpi.

Pósturaf blitz » Mið 21. Des 2011 08:19

Var að fá mér Panasonic ST32 plasma... Jesús kristur.

Hefur alltaf fundist LCD vera með voða fína (ásættanlega) mynd - Boy I was wrong!

Er að klára "break in" með litamyndum, djöfull leiðinlegt en ef þetta skilar mér betri mynd á endanum er það þess virði.


PS4

Skjámynd

ZoRzEr
/dev/null
Póstar: 1404
Skráði sig: Þri 28. Apr 2009 12:11
Reputation: 42
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Tengdur

Re: Ohhh.... djesus.... val á sjónvarpi.

Pósturaf ZoRzEr » Mið 21. Des 2011 09:04

blitz skrifaði:Var að fá mér Panasonic ST32 plasma... Jesús kristur.

Hefur alltaf fundist LCD vera með voða fína (ásættanlega) mynd - Boy I was wrong!

Er að klára "break in" með litamyndum, djöfull leiðinlegt en ef þetta skilar mér betri mynd á endanum er það þess virði.


Til lukku með það!

Ég keyrði einnig color slideshow fyrstu sólahringinn sem sjónvarpið var notað. Svo loopaði ég Toy Story 3 á blu-ray í annan sólahring, þar sem myndin er ekki með letterbox og fyllir skjáinn. Einnig er það stórkostlega flott mynd, miklum litum og mikið contrast.

Eftir það stillit ég sjónvarpið eins og ég vildi og bróðir minn kom og calibrate'aði það fyrir mig með sýnum græjum.

Gæti ekki verið betri mynd, að mínu mati.


13700K | Asus Z790 Prime| 32GB DDR5 | Zotac 4080 | 2TB 960 Pro m.2 | Corsair AX1200i | Fractal North | LG 34GN850-B
Synology DS1817+ | 20TB
USG | US-8-60W | nanoHD | Flex Mini


Höfundur
gettra
Nýliði
Póstar: 18
Skráði sig: Þri 06. Des 2011 11:32
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Ohhh.... djesus.... val á sjónvarpi.

Pósturaf gettra » Mið 21. Des 2011 15:46

Þetta eeeeer alveg að koma…
Fór að skoða betur og er búin að afmarka þetta í 2 tæki:
Samsung
http://www.samsungsetrid.is/vorur/408/

Panasonic
http://ht.is/index.php?sida=vara&vara=TXP42GT30Y


Tók eftir einu merkilegu: Eins og ég hef sagt þá er hugmyndin að tengja tölvu við og nota sem multi-media center. Er með Mac Mini í huga en ætla að taka þá pælingu eftir að sjónvarpið er komið. Þess vegna skiptir meira máli að skjárinn, skerpa, litir og sv. frv. sé mjög gott en einhverjir fidusar eins og 3 USB tengi, móttakari, vefaðgangur… (Tek sjónvarpið gegnum ljósleiðara/vodafone).
Með þetta í huga skoðaði ég 1 klassa „niður“ frá þessum tækjum. Þá var yfirleitt komið í <200 Hz. Vildi þannig til að þegar ég var að skoða birtist creditlisti á sýningamyndinni. Það var MJÖG áberandi hvað hann hökti á <200 en rann smooth á >200.

Munurinn eins og er:
Panasonic er með hlýrri og dýpri liti. Frekar mýkri mynd og náttúrulegir litir eru mjög góðir (húðtónar og slíkt). Ramminn er ekkert spes (og því miður skiptir það máli). Af þessum 2 finnst mér Panasonic með betri mynd en munurinn er verulega óverulegur…

Samsung er með meiri skerpu – sem er bæði gott og vont. Stundum leiðir skerpa til að myndir verða of „teiknaðar“ en á móti kemur að of lítil (eða of lítil stjórn á henni) gerir hluti blurry. Myndin er líka mjög góð. Frábærir húðtónar, mildir litir… Sjónvarpið sjálft er gífurlega fallegt. Með Samsung fylgja gleraugu en ekki með Panasonic þannig að verð á pakkanum er sennilega svipað.
Enn og aftur: Samsung fjarstýringin er viðbjóður að öllu leyti. Allt frá functionality, litur, stærð af hnöppum… OK – veit að ég get notað Galaxy Tab en ég er varla að fara að kaupa 100k fjarstýringu. Furðulegt að fyrirtæki sem leggur svona mikið í lookið sendi svona frá sér.




Quemar
Ofur-Nörd
Póstar: 274
Skráði sig: Sun 08. Mar 2009 13:29
Reputation: 10
Staða: Ótengdur

Re: Ohhh.... djesus.... val á sjónvarpi.

Pósturaf Quemar » Mið 21. Des 2011 17:27

Var að kaupa 50 tommu ST32 tækið... Sweeeeeeeet :D




blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1760
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 140
Staða: Ótengdur

Re: Ohhh.... djesus.... val á sjónvarpi.

Pósturaf blitz » Mið 21. Des 2011 17:49

Quemar skrifaði:Var að kaupa 50 tommu ST32 tækið... Sweeeeeeeet :D


Hvað borgaðiru?


PS4


Quemar
Ofur-Nörd
Póstar: 274
Skráði sig: Sun 08. Mar 2009 13:29
Reputation: 10
Staða: Ótengdur

Re: Ohhh.... djesus.... val á sjónvarpi.

Pósturaf Quemar » Sun 25. Des 2011 13:43

Tæp 300K



Skjámynd

Stingray80
Gúrú
Póstar: 535
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 16:28
Reputation: 13
Staða: Ótengdur

Re: Ohhh.... djesus.... val á sjónvarpi.

Pósturaf Stingray80 » Þri 03. Jan 2012 19:05

gettra skrifaði:Þetta eeeeer alveg að koma…
Fór að skoða betur og er búin að afmarka þetta í 2 tæki:
Samsung
http://www.samsungsetrid.is/vorur/408/

Panasonic
http://ht.is/index.php?sida=vara&vara=TXP42GT30Y


Tók eftir einu merkilegu: Eins og ég hef sagt þá er hugmyndin að tengja tölvu við og nota sem multi-media center. Er með Mac Mini í huga en ætla að taka þá pælingu eftir að sjónvarpið er komið. Þess vegna skiptir meira máli að skjárinn, skerpa, litir og sv. frv. sé mjög gott en einhverjir fidusar eins og 3 USB tengi, móttakari, vefaðgangur… (Tek sjónvarpið gegnum ljósleiðara/vodafone).
Með þetta í huga skoðaði ég 1 klassa „niður“ frá þessum tækjum. Þá var yfirleitt komið í <200 Hz. Vildi þannig til að þegar ég var að skoða birtist creditlisti á sýningamyndinni. Það var MJÖG áberandi hvað hann hökti á <200 en rann smooth á >200.

Munurinn eins og er:
Panasonic er með hlýrri og dýpri liti. Frekar mýkri mynd og náttúrulegir litir eru mjög góðir (húðtónar og slíkt). Ramminn er ekkert spes (og því miður skiptir það máli). Af þessum 2 finnst mér Panasonic með betri mynd en munurinn er verulega óverulegur…

Samsung er með meiri skerpu – sem er bæði gott og vont. Stundum leiðir skerpa til að myndir verða of „teiknaðar“ en á móti kemur að of lítil (eða of lítil stjórn á henni) gerir hluti blurry. Myndin er líka mjög góð. Frábærir húðtónar, mildir litir… Sjónvarpið sjálft er gífurlega fallegt. Með Samsung fylgja gleraugu en ekki með Panasonic þannig að verð á pakkanum er sennilega svipað.
Enn og aftur: Samsung fjarstýringin er viðbjóður að öllu leyti. Allt frá functionality, litur, stærð af hnöppum… OK – veit að ég get notað Galaxy Tab en ég er varla að fara að kaupa 100k fjarstýringu. Furðulegt að fyrirtæki sem leggur svona mikið í lookið sendi svona frá sér.


Þarft ekkert að eiga galaxy tab, Android sími fra samsung er nóg. veit ekki með Low End síma enn ég er að nota Galaxy-inn minn