Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Allt utan efnis

Höfundur
Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4192
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1322
Staða: Tengdur

Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf Klemmi » Fim 08. Des 2011 20:31

Sælir veriði,

þegar ég lá í baðinu mínu, hlustandi á Kínadrasls vatnshelda MP3 spilarann minn, þá fór ég að hugsa hvort menn hefðu einhverjar skemmtilegar reynslusögur af sínum græjum og lista yfir kosti og galla? :)

1. Vatnsheldur MP3 spilari

Þessa elsku pantaði ég fyrir 3 mánuðum síðan þar sem að fótboltaþjálfarinn var farinn að skikka okkur saman í sund 1x viku.
Ég get ekki sagt annað en að þetta séu með betri kaupum sem ég hafi gert, mér þótti hundleiðinlegt að synda en núna er þetta bara fínn tími til að hlusta á tónlist og zone-a út :beer
Heyrnatólin sem fylgdu með eru þó ekki góð, detta stundum út öðru megin o.s.frv. svo ég keypti mér Philips SHQ3000, sem eru helvíti fínir og gera græjuna skemmtilegri í notkun.

Kostir:
Algjörlega vatnsheldur
Þæginlegt að festa á sundgleraugu
Einfaldur í notkun
Sterkbyggður

Ókostir:
Heyrnatólin sem fylgdu með eru léleg
Fæ bara static á FM (s.s. útvarpið ónothæft)

Verð heimkominn með sendingu, öllum sköttum og tollum og póstumsýslugjaldi:
~5500kr.-

Mynd


2. FM sendir 1

Pantaði mér 2x FM senda þegar ég komst að því að 2006 árgerðin af Mazda 2 sem kærastan keypti sér ER EKKI MEÐ GEISLASPILARA! ](*,)

Allavega, þá prófaði ég þá báða og hélt fyrst að þessi væri algjörlega ónothæfur þar sem ég stillti alltaf bara beint á tíðnina sem ljósið á tækinu gaf til um og þá var bara endalaust suð.
Svo þegar ég fattaði að prófa að láta útvarpið bara leita sjálft af stöðinni að þá komst ég að því að merkingarnar á tækinu eru ca. 0.2-0.3 frá réttu gildi og það meira að segja breytist milli skipta sem græjan er notuð svo maður þarf að fínstilla aðeins þegar maður notar sendinn.

Hins vegar, þegar ég var búinn að komast að þessu, að þá kom sendirinn mér á óvart. Ég átti áður einhverja Radioshack druslu sem kostaði 10$ í USA og svo seinna Belkin græju sem kostaði 4000kall hér heima, en hljómurinn frá þeim var talsvert verri heldur en frá þessum. Radioshackið kom alltaf með suð þegar S-hljóð heyrðist og Belkin vantaði ALLAN bassa. Hljómurinn frá þessum var mjög góður samanborið við þá tvo.

Kostir:
Kostar lítið sem ekkert
Góður hljómur
Er með sígarettukveikjara og batterýmöguleika
Virkar með öllum græjum með 3.5mm jack tengi (venjulegt headphone-tengi)

Gallar:
Ekki rétt-merkt gildi á FM-tíðnum
Flakkar aðeins milli tíðna ef slökkt og kveikt er á honum

Verð heimkominn með sendingu, öllum sköttum og tollum og póstumsýslugjaldi:
1200kr.-

Mynd

3. FM sendir 1

Lítið um þennan að segja nema það var lala hljóð í honum, ekki gott samanborið við hinn sendinn, lítill bassi.

Kostir:
Er með USB tengi til að hlaða í gegnum sígarettukveikjara

Gallar:
Lélegt hljóð frá honum fyrir tónlist... myndi mögulega virka fyrir hljóðbækur :dead

Verð heimkominn með sendingu, öllum sköttum og tollum og póstumsýslugjaldi:
1200kr.-

Mynd



Skjámynd

Klaufi
Stjórnandi
Póstar: 2350
Skráði sig: Mán 28. Des 2009 04:44
Reputation: 54
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf Klaufi » Fim 08. Des 2011 20:37

Svona mp3 spilara verð ég að kaupa mér.
Er búinn að vera að pæla í þessu lengi!

Lýst vel á þennan þráð þó ég muni ekki eftir neinu sem ég get sagt frá..


Mynd


Höfundur
Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4192
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1322
Staða: Tengdur

Re: Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf Klemmi » Fim 08. Des 2011 20:40

Klaufi skrifaði:Svona mp3 spilara verð ég að kaupa mér.
Er búinn að vera að pæla í þessu lengi!

Lýst vel á þennan þráð þó ég muni ekki eftir neinu sem ég get sagt frá..


Já, ég gleymdi líka að taka fram að ég pantaði 3x af þessum spilurum, seldi vini mínum einn á kostnaðarverði og gaf kærustunni annan, var hræddur um að þetta væri bara happa-glappa á að fá gott eintak, en þeir eru allavega allir að virka mjög fínt svo ég get ekki annað en mælt með þessum :D



Skjámynd

Black
Vaktari
Póstar: 2405
Skráði sig: Fös 23. Okt 2009 22:21
Reputation: 150
Staðsetning: 64°59'11.4" N & 18°35'12.0" V.
Staða: Ótengdur

Re: Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf Black » Fim 08. Des 2011 21:04

Mazdann ekki með geislaspilara segiru.. Er kasettutæki? mér fannst allavega betra að vera með svona kasettu heldur en fm sendir í gamla bílnum hennar mömmu :svekktur

Mynd

hverning er annars með headsettinn á þessum spilara, ég var einusinni með philips In-ear headsett í rigningu og ég fékk straum úr öðru þeirra, ertu að kafa með þetta eða ertu bara með þetta á þurru í heitapottinum e-ð :)


CPU:i9 10900k | MB:Asus Z490 A-Pro | GPU:3080ti | RAM: 64gb Corsair | PSU: Seasonic 1000w | Case:Corsair 275R |


Höfundur
Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4192
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1322
Staða: Tengdur

Re: Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf Klemmi » Fim 08. Des 2011 21:07

Black skrifaði:Mazdann ekki með geislaspilara segiru.. Er kasettutæki? mér fannst allavega betra að vera með svona kasettu heldur en fm sendir í gamla bílnum hennar mömmu :svekktur

Mynd

hverning er annars með headsettinn á þessum spilara, ég var einusinni með philips In-ear headsett í rigningu og ég fékk straum úr öðru þeirra, ertu að kafa með þetta eða ertu bara með þetta á þurru í heitapottinum e-ð :)


Ekkert kasettu-tæki heldur, ég var sjálfur með svona kasettu í '93 Corollunni minni og það virkaði einmitt betur en FM-sendarnir, en þarna er þetta eini möguleikinn :/

Varðandi spilarann að þá syndi ég með þetta, fer í kaf í hverju sundtaki :-"

Varð þér eitthvað meint af þessum straum, það er svo svakalega lág spennan og straumurinn í þessu? Kannski aðallega að manni myndi bregða :P



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3117
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 454
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf hagur » Fim 08. Des 2011 21:09

Ég á slatta af þessu hér:

http://www.dealextreme.com/p/ir-remote- ... 220v-12902

Mynd

Kostir:
- Lærir hvaða IR kóða sem er, hægt að nota hvaða fjarstýringu sem er
- Mjög næmur, þarf ekki endilega að beina fjarstýringu beint á þetta
- Get slökkt/kveikt á öllum ljósum og lömpum í stofunni með Harmony fjarstýringu án þess að þurfa að standa upp

Ókostir:
- Bara með UK style plug, þarf því adapter til að stinga í samband við vegg
- Hægt að plögga "venjulegri" kló í þetta en þetta er soldið flimsy og þarf ekki mikið til að klóin detti úr sambandi

Verð:

DealExtreme.com er með world-wide free shipping þannig að þetta er bara:
(4.91 x <gengi dollars> x 1.255) + 550 kr tollmeðferðargjald fyrir eitt stk. Um að gera að panta bara slatta í einu :-)

Fínt að panta svo nokkur svona með: http://www.dealextreme.com/p/flat-to-ro ... ertor-3529



Skjámynd

Black
Vaktari
Póstar: 2405
Skráði sig: Fös 23. Okt 2009 22:21
Reputation: 150
Staðsetning: 64°59'11.4" N & 18°35'12.0" V.
Staða: Ótengdur

Re: Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf Black » Fim 08. Des 2011 21:17

Klemmi skrifaði:
Black skrifaði:Mazdann ekki með geislaspilara segiru.. Er kasettutæki? mér fannst allavega betra að vera með svona kasettu heldur en fm sendir í gamla bílnum hennar mömmu :svekktur

Mynd

hverning er annars með headsettinn á þessum spilara, ég var einusinni með philips In-ear headsett í rigningu og ég fékk straum úr öðru þeirra, ertu að kafa með þetta eða ertu bara með þetta á þurru í heitapottinum e-ð :)


Ekkert kasettu-tæki heldur, ég var sjálfur með svona kasettu í '93 Corollunni minni og það virkaði einmitt betur en FM-sendarnir, en þarna er þetta eini möguleikinn :/

Varðandi spilarann að þá syndi ég með þetta, fer í kaf í hverju sundtaki :-"

Varð þér eitthvað meint af þessum straum, það er svo svakalega lág spennan og straumurinn í þessu? Kannski aðallega að manni myndi bregða :P


Mynd

Þetta var gríðarleg spenna sást bara beinagrindinn mín í 2min, síðan brann ég útum allan líkama, fötinn og allt brunnu utanafmér, hárið bara allt útum allt og er enn, :crazy þú getur allteins sett brauðrist ofaní sundlaugina sko,Gríðarleg áhætta að synda með þetta :lol:


CPU:i9 10900k | MB:Asus Z490 A-Pro | GPU:3080ti | RAM: 64gb Corsair | PSU: Seasonic 1000w | Case:Corsair 275R |

Skjámynd

roadwarrior
Gúrú
Póstar: 567
Skráði sig: Þri 22. Apr 2008 20:00
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf roadwarrior » Fim 08. Des 2011 21:42

Black skrifaði:
Mynd



EF einhverjum vantar svona þá veit ég að við eigum svona á lager þar sem ég vinn. Fæst örugglega á góðu verði :sleezyjoe



Skjámynd

pattzi
Bara að hanga
Póstar: 1503
Skráði sig: Þri 07. Des 2010 00:54
Reputation: 38
Staðsetning: Akranes
Staða: Ótengdur

Re: Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf pattzi » Fim 08. Des 2011 23:08

http://www.ebay.com/itm/Earphone-In-ear ... 826wt_1185

Kostir
EKKI MARGIR

gallar
Slitna Fljótlega

Keypti mér 25 svona heyrnartól í byrjun árs og eru c.a 8 eftir :/

Kostuðu 117 krónur kominn heim stykkið borgaði ekki toll því þetta kom í póstkassan bara

http://www.ebay.com/itm/CAR-FM-TRANSMIT ... 43aba485fb
Mynd
Keypti mér svona og gaf þetta virkar ennþá hjá honum :happy




Sphinx
1+1=10
Póstar: 1186
Skráði sig: Mán 11. Maí 2009 21:06
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf Sphinx » Fim 08. Des 2011 23:55

tja.. ég keypti einusinni stimpil i vespuna mína á ebay hann dugði i 40mín þá bræddi ég úr #-o


MSI GX640 / 15,4" 1680x1050 / Intel Quad I5 2,27GHz / ATI HD5850 1GB / DDR3 2x2GB / seagate 500GB / windows 7 ultimate

Skjámynd

Hargo
</Snillingur>
Póstar: 1068
Skráði sig: Mið 13. Ágú 2008 02:18
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf Hargo » Fös 09. Des 2011 00:11

Keypti 16GB no name USB lykil á ebay á eitthvað klink. Hann virkaði ekki, skrár urðu corrupted þegar þær voru settar á lykilinn. Ég hafði samband við seljandann og hann sendi mér nýjan. Hann var mjög svipaður, kom stundum ekki inn líka. Fékk sendan annan sem var svipaður og að lokum endurgreitt frá eBay.

En annars hef ég oft keypt eitthvað svona kínadrasl á ebay án vandræða.




Páll
/dev/null
Póstar: 1426
Skráði sig: Mán 28. Apr 2008 17:32
Reputation: 0
Staðsetning: Undir töfra regnboganum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf Páll » Fös 09. Des 2011 01:39

Er ekkert vesen að panta svona á Ebay? Hef alltaf haldið það.



Skjámynd

pattzi
Bara að hanga
Póstar: 1503
Skráði sig: Þri 07. Des 2010 00:54
Reputation: 38
Staðsetning: Akranes
Staða: Ótengdur

Re: Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf pattzi » Fös 09. Des 2011 01:51

Páll skrifaði:Er ekkert vesen að panta svona á Ebay? Hef alltaf haldið það.


nihhh ekki ef hann sendir worldwide

annars bara nota shopusa eða viaadress eða bongous




EldJarn
Græningi
Póstar: 32
Skráði sig: Lau 13. Okt 2007 17:47
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf EldJarn » Fös 09. Des 2011 02:11

Mynd

Ég keypti mér svona þráðlaust netkort fyrir stuttu sem er jafn stórt og tvær grænar baunir, svín virkar alveg, maður má reyndar ekkert vera lengra en eins og einum þykkum steipuvegg frá roudernum án þess að sambandið skerðist verulega, en hraðinn er alveg ljómandi fínn.

New Mini 802.11n 150Mbps USB Wifi Wireless N LAN Nano Network Adapter Card
http://www.ebay.com/itm/New-Mini-802-11 ... 4857wt_902



Skjámynd

Danni V8
Of mikill frítími
Póstar: 1797
Skráði sig: Mán 23. Apr 2007 06:36
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf Danni V8 » Fös 09. Des 2011 03:13

Eina sem ég hef keypt á eBay eru bílavarahlutir og eitt skjákort.

Einn af bílavarahlutunum voru LED perur í BMW Angel Eyes ljós. Þegar þeir komu var kassinn sem þær voru í fullur af dagblöðum á kínversku (eða allavega svona tákna tungumáli). Meira Kínadót hef ég ekki keypt.


Asus ROG Strix Z390-F Gaming | Intel Core i5 9600K @ 4,7GHz | Crosshair H100i | Corsair Vengance 16GB | Asus ROG Strix RTX2060 | Corsair RM 650x

Skjámynd

FriðrikH
Geek
Póstar: 895
Skráði sig: Lau 22. Sep 2007 20:25
Reputation: 28
Staða: Ótengdur

Re: Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf FriðrikH » Fös 09. Des 2011 11:24

:happy Sniðugur þráður




Höfundur
Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4192
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1322
Staða: Tengdur

Re: Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf Klemmi » Fös 09. Des 2011 12:45

Páll skrifaði:Er ekkert vesen að panta svona á Ebay? Hef alltaf haldið það.


Ekki ef hann shippar worldwide, þá þarft ekkert að gera nema bara leggja inn pöntun, eBay sér svo um að hann hafi heimilisfangið þitt o.s.frv.

Hefur alltaf tekið 3 vikur í sendingu hjá mér frá Hong Kong/Kina, því svæði, en ca. 2 vikur frá Bretlandi (hef verið að panta bækur þaðan) :)



Skjámynd

Kveldúlfur
Fiktari
Póstar: 56
Skráði sig: Þri 31. Maí 2011 12:51
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf Kveldúlfur » Fös 09. Des 2011 13:37

Var að panta vöru af amazon í fyrsta skipti, það stendur að varan ætti að vera kominn til mín 13 des. Er ekki með mikla reynslu að panta í gegnum netið en er einhvað að marka svona dagsetningar?



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3833
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 149
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf Daz » Fös 09. Des 2011 14:01

Kveldúlfur skrifaði:Var að panta vöru af amazon í fyrsta skipti, það stendur að varan ætti að vera kominn til mín 13 des. Er ekki með mikla reynslu að panta í gegnum netið en er einhvað að marka svona dagsetningar?


Amazon hafa sent meira en eina sendingunni gegnum tíðina, þeirra estimated eru að minni reynslu mjög góð. Oft eru þeir mun fljótari.



Skjámynd

Kveldúlfur
Fiktari
Póstar: 56
Skráði sig: Þri 31. Maí 2011 12:51
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf Kveldúlfur » Fös 09. Des 2011 14:08

Daz skrifaði:
Kveldúlfur skrifaði:Var að panta vöru af amazon í fyrsta skipti, það stendur að varan ætti að vera kominn til mín 13 des. Er ekki með mikla reynslu að panta í gegnum netið en er einhvað að marka svona dagsetningar?


Amazon hafa sent meira en eina sendingunni gegnum tíðina, þeirra estimated eru að minni reynslu mjög góð. Oft eru þeir mun fljótari.


Takk fyrir svarið, var að panta 5 stykki af Nerf vortex mega howler bolta, stutt í jól og litlu frændur mínir ekkert annað búnir að tala um en þessa bolta, verð að viðurkenna að ég greib 1 bolta fyrir sjálfan mig verður gaman að prófa þetta þegar pakkin kemur :)



Skjámynd

ljoskar
Nörd
Póstar: 100
Skráði sig: Fös 06. Feb 2009 11:57
Reputation: 0
Staðsetning: Fásk
Staða: Ótengdur

Re: Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf ljoskar » Fös 09. Des 2011 14:57

Er búinn að panta 7 svona, er ánægður með þetta dót..

1. Vatnsheldur MP3 spilari

Þessa elsku pantaði ég fyrir 3 mánuðum síðan þar sem að fótboltaþjálfarinn var farinn að skikka okkur saman í sund 1x viku.
Ég get ekki sagt annað en að þetta séu með betri kaupum sem ég hafi gert, mér þótti hundleiðinlegt að synda en núna er þetta bara fínn tími til að hlusta á tónlist og zone-a út :beer
Heyrnatólin sem fylgdu með eru þó ekki góð, detta stundum út öðru megin o.s.frv. svo ég keypti mér Philips SHQ3000, sem eru helvíti fínir og gera græjuna skemmtilegri í notkun.

Kostir:
Algjörlega vatnsheldur
Þæginlegt að festa á sundgleraugu
Einfaldur í notkun
Sterkbyggður

Ókostir:
Heyrnatólin sem fylgdu með eru léleg
Fæ bara static á FM (s.s. útvarpið ónothæft)

Verð heimkominn með sendingu, öllum sköttum og tollum og póstumsýslugjaldi:
~5500kr.-

Mynd


2.

Keypti mér svo svona spilara í bílinn í sumar...

Mynd

Helvíti ánægður með þetta. Það fylgdi líka kort með af íslandi og allt.

Vesen að koma þessu fyrir, aðeins stærra þó en orginal tækið og maður þarf að passa að snúrurnar séu á réttum stað áður en þessu er smellt í.

3.

Finn svo ekki það versta inni á EBAY núna e keypti mér 128GB minnislykil fyrir 1 og hálfu ári sem voru svo 4GB þegar upp var staðið.



Hef svo pantað heilann helling en USB kubbarnir eru það eina sem ég hef verið óánægður með en maður gefði átt að vita betur.

You get what you pay for.




schaferman
FanBoy
Póstar: 742
Skráði sig: Sun 09. Des 2007 01:18
Reputation: 0
Staðsetning: vestfirðir
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf schaferman » Fös 09. Des 2011 15:52

Tja,, ég keypti 12 stk af 2600mha AA hleðslurafhlöðum, vanalega var myndavélin mín að taka 40-70 myndir á AA hleðslubatteríum
En þessi sem ég fékk frá kína dugðu fyrir 1-3 myndir fullhlaðin, henti þeim síðan


http://kristalmynd.weebly.com/

Skjámynd

Klaufi
Stjórnandi
Póstar: 2350
Skráði sig: Mán 28. Des 2009 04:44
Reputation: 54
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf Klaufi » Þri 13. Des 2011 02:13

ljoskar skrifaði:Er búinn að panta 7 svona, er ánægður með þetta dót..


Áttu ekki einn auka til að selja?
Svona áður en ég fer að kaupa eitt stk að utan..


Mynd


sxf
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 308
Skráði sig: Sun 26. Sep 2010 21:24
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf sxf » Þri 13. Des 2011 03:12

Kveldúlfur skrifaði:
Daz skrifaði:
Kveldúlfur skrifaði:Var að panta vöru af amazon í fyrsta skipti, það stendur að varan ætti að vera kominn til mín 13 des. Er ekki með mikla reynslu að panta í gegnum netið en er einhvað að marka svona dagsetningar?


Amazon hafa sent meira en eina sendingunni gegnum tíðina, þeirra estimated eru að minni reynslu mjög góð. Oft eru þeir mun fljótari.


Takk fyrir svarið, var að panta 5 stykki af Nerf vortex mega howler bolta, stutt í jól og litlu frændur mínir ekkert annað búnir að tala um en þessa bolta, verð að viðurkenna að ég greib 1 bolta fyrir sjálfan mig verður gaman að prófa þetta þegar pakkin kemur :)


http://www.youtube.com/watch?v=vnhjCYooYX0 held að ég þurfi að fá mér einn svona bolta.



Skjámynd

Akumo
spjallið.is
Póstar: 453
Skráði sig: Fim 07. Okt 2010 19:12
Reputation: 0
Staðsetning: /viewtopic.php?f=9&t=26366
Staða: Ótengdur

Re: Kínadrasl - eBay - Reynslusögur

Pósturaf Akumo » Þri 13. Des 2011 05:11

sxf skrifaði:
Kveldúlfur skrifaði:
Daz skrifaði:
Kveldúlfur skrifaði:Var að panta vöru af amazon í fyrsta skipti, það stendur að varan ætti að vera kominn til mín 13 des. Er ekki með mikla reynslu að panta í gegnum netið en er einhvað að marka svona dagsetningar?


Amazon hafa sent meira en eina sendingunni gegnum tíðina, þeirra estimated eru að minni reynslu mjög góð. Oft eru þeir mun fljótari.


Takk fyrir svarið, var að panta 5 stykki af Nerf vortex mega howler bolta, stutt í jól og litlu frændur mínir ekkert annað búnir að tala um en þessa bolta, verð að viðurkenna að ég greib 1 bolta fyrir sjálfan mig verður gaman að prófa þetta þegar pakkin kemur :)


http://www.youtube.com/watch?v=vnhjCYooYX0 held að ég þurfi að fá mér einn svona bolta.


Þetta er án efa besta auglýsing sem ég hef séð, hahahah \:D/