Optoma HD65 skjávarpi - 720p native - HD ready - SELDUR
-
- Besserwisser
- Póstar: 3963
- Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
- Reputation: 0
- Staðsetning: Seltjarnarnes
- Staða: Ótengdur
Re: Optoma HD65 skjávarpi - 720p native - HD ready - Til sölu
Var ekki talað um þetta á öðrum þræði að ef tæki hefur HDMI tengi telst það til sjónvarps flokksins.
"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."
-
- Besserwisser
- Póstar: 3833
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Reputation: 151
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Re: Optoma HD65 skjávarpi - 720p native - HD ready - Til sölu
mind skrifaði:Daz skrifaði:Þar af leiðandi ætti maður að hafa samband og kemst þá að því í hvaða flokk þetta fellur og aftur, ekkert vandamál. ShopUsa fylla út tollskýrsluna með viðeigandi flokki og ganga frá meðhöndlun.
Og ef þeir hafa valið vitlausan flokk fyrir þig þá borgar þú samt kostnaðinn af því, ekkert vandamál!
Rétt. Þeir velja samt flokkinn vonandi miðað við fyrri reynslu, þeir fylla út tollskýrsluna, þeir meðhöndla vöruna. Tollurinn kemur ekki þarna að, nema ef þeir hafa athugasemd við tollskýrsluna, sem ætti ekki að vera vandamál ef hún er útfyllt miðað við eldri hefðir.
Þ.e.a.s. ég geri ráð fyrir að ShopUsa ráðleggi sínum viðskiptavinum eftir bestu vitund og að þeir hafi flutt inn skjávarpa áður. Í hvaða tollflokk þetta fellur nákvæmlega skiptir kannski ekki öllu máli, fannst bara þurfa að taka fram að það er ekki alveg það sama að flytja vöru inn sjálfur eða í gegnum svona millilið, allt aðrar samskiptaleiðir við tollinn.
-
- Kóngur
- Póstar: 4257
- Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
- Reputation: 192
- Staðsetning: við talvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Optoma HD65 skjávarpi - 720p native - HD ready - Til sölu
ManiO skrifaði:Var ekki talað um þetta á öðrum þræði að ef tæki hefur HDMI tengi telst það til sjónvarps flokksins.
Held að það sé bara gömul saga.
Minnir allavega að það sé ekki svoleiðis lengur. Meirihluti skjáa núna á markaði eru með HDMI tengi og er verðið nú ekki hærra á þeim, sé ekki af hverju þeir ættu að setja toll á skjái með HDMI. Eina sem það gerir er að bera hljóð með myndinni.
Re: Optoma HD65 skjávarpi - 720p native - HD ready - Til sölu
Mind er með þetta á hreinu, það eru tollar á skjávörpum, ég man eftir tímanum þegar tollarnir voru lagðir á skjávarpa, þá var mikil umræða um þetta. þá dó meðal annars skjávarpabúðin með Sahara skjávarpana í síðumúlanum. Einnig er ég búinn að kaupa fleiri en einn skjávarpa sjálfur að utan og veit "first hand" hvernig þetta er..
-
Höfundur - Fiktari
- Póstar: 78
- Skráði sig: Fös 19. Sep 2003 20:37
- Reputation: 1
- Staða: Ótengdur
Re: Optoma HD65 skjávarpi - 720p native - HD ready - Til sölu
25% vörugjald, 7,5% tollur og 25,5% virðisaukaskattur á skjávarpa - ef ég man rétt
-
- Stjórnandi
- Póstar: 6352
- Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
- Reputation: 160
- Staða: Ótengdur
Re: Optoma HD65 skjávarpi - 720p native - HD ready - Til sölu
Getur e-r útskýrt afhverju varpar bera auka tolla umfram skjái?
Re: Optoma HD65 skjávarpi - 720p native - HD ready - Til sölu
AntiTrust skrifaði:Getur e-r útskýrt afhverju varpar bera auka tolla umfram skjái?
Skjáir eru ekki undanskildir þessum toll, það einfaldlega falla ekki allir skjáir sjálfkrafa í hann ólíkt skjávörpum. Fáir skjáir sem bera þennan toll virðast vera fluttir inn, enda myndu þeir standa illa samkeppnislega sökum verðmuns.
Hvað útskýringu varðar þá þekki ég það nú ekki hvernig eða afhverju þetta kom til en útskýringin er eitthvað á þessa leið: ef tækið er ætlað til margmiðlunar þá fer það í viðkomandi tollflokk.
Svo sjónvörp, sjónvarpsflakkarar, skjávarpar, ipod touch, mp3 spilarar o.s.f. detta í heild sinni í þennan flokk.
-
- Besserwisser
- Póstar: 3120
- Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
- Reputation: 454
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Optoma HD65 skjávarpi - 720p native - HD ready - Til sölu
Og tölvuskjár telst ekki sem tæki til margmiðlunar?
Come on, íslenska tollarugl.
Það þarf að einfalda þetta kerfi, vera með grófari flokkun. Það er ekki hægt að flokka þetta svona mikið niður án þess að lenda í bulli. Mörg þessara tækja geta nefnilega svo auðveldlega lent í fleiri en einum flokki og hvaða flokkur á þá að gilda? Nú auðvitað sá sem skapar ríkinu mestar tekjur
Come on, íslenska tollarugl.
Það þarf að einfalda þetta kerfi, vera með grófari flokkun. Það er ekki hægt að flokka þetta svona mikið niður án þess að lenda í bulli. Mörg þessara tækja geta nefnilega svo auðveldlega lent í fleiri en einum flokki og hvaða flokkur á þá að gilda? Nú auðvitað sá sem skapar ríkinu mestar tekjur
-
Höfundur - Fiktari
- Póstar: 78
- Skráði sig: Fös 19. Sep 2003 20:37
- Reputation: 1
- Staða: Ótengdur
Re: Optoma HD65 skjávarpi - 720p native - HD ready - Til sölu
Hvað sem tollamálum líður þá er þessi frábæri varpi enn til sölu.
-
Höfundur - Fiktari
- Póstar: 78
- Skráði sig: Fös 19. Sep 2003 20:37
- Reputation: 1
- Staða: Ótengdur
Re: Optoma HD65 skjávarpi - 720p native - HD ready - Til sölu
Tilboð óskast í þennan frábæra skjávarpa!
Re: Optoma HD65 skjávarpi - 720p native - HD ready - Til sölu
Copyright skrifaði:Tilboð óskast í þennan frábæra skjávarpa!
Ennþá til sölu??