Ljósleiðari vs. ljósnet

Skjámynd

Höfundur
lifex64
Græningi
Póstar: 35
Skráði sig: Fös 11. Feb 2011 09:04
Reputation: 0
Staðsetning: týndur
Staða: Ótengdur

Ljósleiðari vs. ljósnet

Pósturaf lifex64 » Mið 10. Ágú 2011 18:33

Hefur einhver reynslu af ljósneti Tals, ég er með ADSL frá þeim en ætla að uppfæra nettenginguna í eithvað hraðara, svo mig vantar að vita hver er basic munurinn á ljósneti og ljósleiðara og eða reynslu af þessu ljósneti.
Ég veit að ljósnet er í gegnum copar og ljósið gegnum fiber.



Skjámynd

audiophile
Bara að hanga
Póstar: 1577
Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
Reputation: 130
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ljósleiðari vs. ljósnet

Pósturaf audiophile » Mið 10. Ágú 2011 18:50

Ljósleiðari er betri en hann er bara ekki í boði allsstaðar. Þá ertu með ljósleiðara alla leið inn í hús/íbúð.

Ljósnet er gamla breiðbandið, semsagt ljósleiðari í götu og kopar inn í hús og betri endabúnaður en ADSL sem gerir það hraðar. Það er á mun fleiri stöðum en fullur ljósleiðari.

Ef þér stendur ljósleiðari til boða, taktu hann. Ef ekki þá er Ljósnet Símans það eina sem er í boði, ef það er þá í boði.


Have spacesuit. Will travel.

Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Reputation: 12
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Ljósleiðari vs. ljósnet

Pósturaf gardar » Mið 10. Ágú 2011 19:20

Urgh, tal farnir að kalla þetta ljósnet líka?

afhverju kalla menn þetta ekki bara vdsl eins og þetta heitir?




wicket
FanBoy
Póstar: 778
Skráði sig: Mán 07. Sep 2009 09:30
Reputation: 75
Staða: Ótengdur

Re: Ljósleiðari vs. ljósnet

Pósturaf wicket » Mið 10. Ágú 2011 19:35

Tal er að kaupa þetta af Símanum í heilsölu og endurselja sem sitt. Þeir hafa ákveðið að nota sama nafn.

Annars hefur komið fram hér á Vaktinni að Síminn kallar VDSL2 og gpon tengingar Ljósnet. Eitt nafn yfir tvo hluti, væntanlega til að reyna að einfalda vöruframboðið sitt.



Skjámynd

Höfundur
lifex64
Græningi
Póstar: 35
Skráði sig: Fös 11. Feb 2011 09:04
Reputation: 0
Staðsetning: týndur
Staða: Ótengdur

Re: Ljósleiðari vs. ljósnet

Pósturaf lifex64 » Mið 10. Ágú 2011 20:16

nú eru svipuð verð á þessu og bæði með ALLT að 50 MB/S en ljósleiðari er með 50/50 en vitiði hvað er á ljósnetinu 50/?




halli7
Geek
Póstar: 825
Skráði sig: Fim 13. Jan 2011 01:04
Reputation: 0
Staðsetning: Grafarvogur
Staða: Ótengdur

Re: Ljósleiðari vs. ljósnet

Pósturaf halli7 » Mið 10. Ágú 2011 20:49

lifex64 skrifaði:nú eru svipuð verð á þessu og bæði með ALLT að 50 MB/S en ljósleiðari er með 50/50 en vitiði hvað er á ljósnetinu 50/?

Ljósnet er download: 50 upload: 25


Haf X- i7 2600k @ 4,4 ghz - Noctua NH-D14 - Asus p8p67pro - 2x4GB Kingston - Sapphire HD 6970 2GB - Corsair HX 850w - 120gb SSD

Skjámynd

Höfundur
lifex64
Græningi
Póstar: 35
Skráði sig: Fös 11. Feb 2011 09:04
Reputation: 0
Staðsetning: týndur
Staða: Ótengdur

Re: Ljósleiðari vs. ljósnet

Pósturaf lifex64 » Mið 10. Ágú 2011 21:26

ok takk fyrir svörin, ég veit að það er kominn ljósleiðari í húsið, en ég ætla að prófa ljósnetið og sjá svo til.




sigurfr
Græningi
Póstar: 46
Skráði sig: Sun 13. Mar 2011 23:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Ljósleiðari vs. ljósnet

Pósturaf sigurfr » Fim 11. Ágú 2011 10:54

Hringdu og Hringiðan bjóða upp á 100 Mb/s tengingar á Ljósleiðaranum hjá Gagnaveitunni.