lukkuláki skrifaði:TraustiSig skrifaði:Það sem þeir eiga líka að geta gert er að gefa honum inneign samkvæmt upprunalegu sölunótu og hann klárar þá sín mál með því að velja vél sem honum líkar vel við...
Nei það er ekki ásættanlegt og ekki sú leið sem skal fara skv. neytendalögum vegna þess að vélar geta alveg hafa hækkað síðan henn keypti sína.
Sama vél gæti þessvegna hafa hækkað talsvert í verði mv. upprunalega sölunótu.
Skv. neytendalögum á hann að fá eins vél eða betri. Ekki lakari á neinn hátt nema hann sætti sig við það sjálfur skv. samkomulagi við seljandann.
Ég ætla að vona að þú gerir þér grein fyrir því að í flestum tilvikum, þegar að um er að ræða vél sem er í og við 2ára, þá er inneign betri kostur.
Þegar að þú ert t.d. með vél eins og Aspire 5920 sem að var selt ágætlega af 2008 að því sem ég kemst næst þá eru flestar Toshiba low end vélar betri heldur en hún í dag.
Vélin hjá viðkomandi hefur kannski kostað 129.990,- á sínum tíma (ég er ekki að vitna í neinar heimildi varðandi verð eða dagsettningar heldur algengt verð á þessum tíma). Sambærileg vél í dag er kominn langt niður fyrir það verð. Þegar að þú leitar að sambærilegri vél í dag þá ertu oftar en ekki kominn í kringum 79-85þ.
Því spyr ég.. Er inneign ekki betri kostur m.v. það?