Argosy HV339T (næ ekki að tengjast afruglaranum)


Höfundur
GTB1984
Nýliði
Póstar: 7
Skráði sig: Mán 25. Júl 2011 00:13
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Argosy HV339T (næ ekki að tengjast afruglaranum)

Pósturaf GTB1984 » Mán 25. Júl 2011 01:01

Sælir

Ég þarfnast aðstoðar og ég vona að finni hana hérna.

Ég var sem sagt að kaupa mér Argosy HV339T upptöku sjónvarpsflakkara frá Tölvutek og ég á að geta tengt hann þannig að ég geti bæði horft á fríu rásirnar (Rúv, ÍNN og N4) og afruglara rásirnar mínar (Stöð2Sport 1-5 og HD) í gegnum flakkarann og tekið því upp af öllum þessum rásum. Ég er sem sagt með HD Digital Ísland afruglara og á þriggja ára gamalt Phillips sjónvarp sem er með tveimur HDMI tengjum og nota ég þau bæði, annað í sjónvarpsflakkarann og hitt í HD afruglarann. Ég tengi síðan sjónvarpsflakkarann og afruglarann með RCA snúru. Ég næ alltaf að finna opnu rásirnar þegar ég tengi loftnetið við sjónvarpsflakkarann en ekki þær sem þarf að greiða fyrir. Ég finn síðan engar rásir þegar ég tengi loftnetið við afruglarann eins og mér var sagt að gera.

Fattar einhver hvað ég er að gera vitlaust?

Með fyrirfram þökk
Gunnar
Síðast breytt af GTB1984 á Mán 25. Júl 2011 13:50, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3125
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 455
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Argosy HV359T (næ ekki að tengjast afruglaranum)

Pósturaf hagur » Mán 25. Júl 2011 10:24

Er þetta flakkarinn? http://www.argosy.tw/product-detial.php?prod_id=145

Sýnist hann ekki hafa neitt loftnetstengi, hvað þá CAM rauf til að setja afruglarakort í.

Sýnist upptökumöguleikinn aðeins vera í gegnum composite video og RCA audio tengingarnar. Hvaða HD afruglara ertu með? Digital Ísland eða í gegnum Ljós/ADSL?

Þú þarft að tengja composite video (gula tengið) og stereo audio (rautt/hvítt) úr afruglaranum yfir í flakkarann og þá geturðu tekið upp allt sem þú sérð í gegnum afruglarann.




Höfundur
GTB1984
Nýliði
Póstar: 7
Skráði sig: Mán 25. Júl 2011 00:13
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Argosy HV339T (næ ekki að tengjast afruglaranum)

Pósturaf GTB1984 » Mán 25. Júl 2011 13:49

Sæll

Ég gerði þetta að sjálfsögðu vitlaust. Flakkarinn sem ég keypti heitir 339T en ekki 359 eins og sést hér http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=27806.

Ég er annars með Digital Ísland HD lykil frá Vodafone: http://www.vodafone.is/sjonvarp/myndlyklar/kaonhd

Ég er með flakkarann tengdan við afruglarann með gulu, rauðu og hvítu snúrunum.



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3125
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 455
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Argosy HV339T (næ ekki að tengjast afruglaranum)

Pósturaf hagur » Mán 25. Júl 2011 14:17

Ok, þá held ég að þetta sé rétt tengt hjá þér. Græðir lítið á því að tengja loftnetið við flakkarann, því þá myndirðu aðeins ná opnum rásum. Best að láta allt fara í gegnum afruglarann eins og þú ert að gera núna.

DÍ afruglarinn sendir út mynd og hljóð í gegnum gulu, rauðu og hvítu tengin samhliða HDMI og því ætti það ekki að vera vandamál - flakkarinn ætti að vera að fá signal inná sig. Ætli þetta sé ekki eitthvað stillingaratriði í flakkaranum þá, get því miður ekki hjálpað þér með það.




Höfundur
GTB1984
Nýliði
Póstar: 7
Skráði sig: Mán 25. Júl 2011 00:13
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Argosy HV339T (næ ekki að tengjast afruglaranum)

Pósturaf GTB1984 » Mán 25. Júl 2011 17:18

Þakka þér fyrir, skoða þetta enn betur í kvöld.




konice
Fiktari
Póstar: 64
Skráði sig: Fös 04. Feb 2011 15:38
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Argosy HV339T (næ ekki að tengjast afruglaranum)

Pósturaf konice » Mið 27. Júl 2011 10:14

Sæll var mikið að skoða þetta í fyrra haust. Þessi flakkari var ekki með AV in þá (Composite) þá, og virðist ekki vera enn.
Það er þú getur ekki tekið upp eða horft á rásirnar frá afruglar (video tæki, DVD spilara ,gamalli videovél) í gegnum flakaran.
Ég endaði á að kaupa eftir mikla skoðun og verðsamanburð þennan http://www.egreatworld.com/en/product-detail-241.html
Fékk han hjá TRS á selfossi (íslensk 2 ára ábyrgð) kanski ekki sá besti í heimi en gerir allt sem ég var að leita að.




Höfundur
GTB1984
Nýliði
Póstar: 7
Skráði sig: Mán 25. Júl 2011 00:13
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Argosy HV339T (næ ekki að tengjast afruglaranum)

Pósturaf GTB1984 » Fim 28. Júl 2011 11:52

Ég fattaði loksins hvað ég var að gera rangt. Ég var búinn að tengja þetta rétt en ég átti ekki að nota "DTV" valmöguleikann í flakkaranum heldur "Video In" til að skipta yfir á afruglarann og þá get ég horft á og tekið upp af afruglaranum.




jullifus
Nýliði
Póstar: 2
Skráði sig: Þri 05. Jún 2012 17:52
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Argosy HV339T (næ ekki að tengjast afruglaranum)

Pósturaf jullifus » Þri 05. Jún 2012 18:11

ég er í vandræðum með þetta. hvar er þessi video in möguleiki?