Orri skrifaði:Auðvitað er þetta fáránlegt af hálfu Sony ef allt þetta sem þú lest á netinu er satt.
Spurningin er þó auðvitað hvað er satt og hvað ekki. Það eru end-end-endalaust af kjaftasögum í kringum þessar árásir í gangi.
<span>[url=<a class="smarterwiki-linkify" href="http://en.wikipedia.org/wiki/PlayStation_3_system_software]HÉRNA[/url]">http://en.wikipedia.org/wiki/PlayStation_3_system_software]HÉRNA[/url]</a> sérðu að Other OS fídusinn var settur inn með hugbúnaðaruppfærslu 1.6 ári eftir að PS3 kom út í Bandaríkjunum. </span>
Svo var fídusinn tekin út tæpum 2 árum seinna.
Vissulega mega þeir sem keyptu PS3 á þeim tíma sem hún var auglýst með Other OS vera fúlir, en ég fyrir mína parta hef aldrei séð PS3 auglýsingu þar sem Other OS er eitthvað sérstaklega tekið fram.
Eins og ég hef sagt nokkrumsinnum áður í þessum þræði, þessar árásir eru óréttlætanlegar og að styðja þær er vægast sagt óþroskað.
Það er líka gaman að sjá hvað þið sem styðjið þessar árásir svarið bara því sem ykkur hentar.
Það breytir öllu ef að
ÞÚ hefur aldrei séð auglýsingu þar sem Other OS fídusinn var tekinn fram!
Nokkrir punktar fyrir þig:
- Frá 11. nóv til 22. mars er ekki ár heldur fjórir mánuðir og 11 dagar!
- Hver er að tala um kjaftasögur? Það er búið að birta gögn sem sýna gögnin sem voru tekin í nýjustu árásinni!
- Official statement frá Sony þegar Other OS fídusinn var settur inn: "It was fully intended that you, a PS3 owner, could play games, watch movies, view photos, listen to music, and run a full-featured Linux operating system that transforms your PS3 into a home computer."
- Smá fun fact fyrir þig: Sony auglýsti líka og montaði sig af því að það var hægt að keyra Linux á PS2!
Hvernig erum við að svara bara því sem okkur hentar? Ég er að fara með staðreyndir meira og minna!
Ætla vona að Sony fái ekki að taka kreditkortaupplýsingar í BNA því að þeir hafa brotið öll lög varðandi það. Þeir gætu þá kannski farið einhverjar krókaleiðir en annars er playstation platformið dautt!
Því miður mun bara Microsoft koma í staðinn fyrst að Sony gat ekki drullast til þess að hafa siðferðið og securityið hjá sér í lagi!
Svo snýst nýjasta árásin ekkert um PSN!
Og eitt í viðbót Orri...
Hefur þér aldrei fundist
ÞÚ illa leikinn af Sony? Það breytir náttúrulega öllu.
Ég er ekki að segja að eftirfarandi dæmi sé nákvæmlega það sama en ekki svo fjarri lagi: "Ég hef ekkert á móti morðingjum, nauðgurum og barnaperrum því þeir hafa ekkert gert sem skaðar mig."
Ég meina come on...Sony setti rootkit á geisladiska og minnislykla sem þeir seldu. Svo kærðu þeir alla þá sem heimsóttu ákveðna heimasíðu! Svo geyma þeir viðkvæmar persónuupplýsingar, hluta af þeim máttu þeir ekki geyma, án encryption. Nýjasta dæmið --> Ekkert encryption og ekki vörn gegn SQL-injection!
Nenni varla að eyða meira púðri í þig þar sem ég er orðinn nett pirraður á þessum hugsunarhætti þínum að þú sért eini viðskiptavinur Sony sem skiptir máli. Horfðu á heildarmyndina!
Sony er bara eitt af þeim fyrirtækjum sem þurfti að kenna lexíu og viti menn, það var gert með stíl!