Sælt veri fólkið, það er allt að fara á annan endann í heimi yfirklukkunar þessi seinustu misseri. Já, dömur og herrar, það er kominn nýr fógeti í bæinn...
AMD Mobile Athlon örrarnir (2400-M, 2500-M og 2600-M) eru komnir í lausasölu og eru að gera allt vitlaust. Þetta eru örgjörvar sem eru gerðir fyrir fartölvur og er aðeins notuð bestu fáanlegu hráefni í þá. Þeir eru allir byggðir á Barton kjarnanum og eru með ólæstann margfaldara frá verksmiðju. Þar sem þessir örgjörvar eru úr bestu fáanlegu hráefnum þá halda þeir sinni tíðni á frekar lágri spennu. Þeir eru alveg eins í laginu og aðrir AMD Athlon XP örgjörvar og nota sama sökkul.
Það sem er að valda öllu þessu fjaðrafoki er það að jafnvel ódýrustu týpurnar eru að ná allt að 3.0Ghz í hressilegri yfirklukkun... Þið lásuð rétt! 1100Mhz yfirklukk, 69%...
Heyrst hefur að 2.6-2.7Ghz á loftkælingu einni saman sé auðvelt! Eitthvað sem sendir alla Intel menn út í horn grátandi (nei nei, smá grín)... En ég sel það ekki dýrara en ég keypti það...
hér eru hlekkir sem sýna þetta betur...
http://www.fastlanehw.com/reviews.php?action=view&revid=102
http://www.geekextreme.com/modules.php?name=Content&pa=showpage&pid=38
http://www.neoseeker.com/Articles/Hardware/Features/XP-M/
http://www.sudhian.com/showdocs.cfm?aid=504
P.S. : Ætli hægt sé að nálgast þessa gripi hér á landi?
AMD Mobile Athlon XP ?
-
- Besserwisser
- Póstar: 3929
- Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
- Reputation: 0
- Staðsetning: Kópavogur
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
http://www.computer.is voru með einhverja mobile örgjörva, kanski far þessir að koma þangað.
Annars held ég að AMD sjálfir hefðu ekki getað skrifað meiri grein um þetta
Annars held ég að AMD sjálfir hefðu ekki getað skrifað meiri grein um þetta