halldorjonz skrifaði:biturk
Þú meikar bara ekki neitt sens.
Kv.
Ég tek undir þetta. Maðurinn í í þvílíkri afneitun að ég hef sjaldan séð annað eins. Nema þá helst hjá pabba mínum sem er reykingamaður til rúmlega 50 ára og þetta mun sennilega drepa hann miðaðvið hvernig hljóðið er í honum í dag ef hann lifir þá fer hann trúlega á súrefni innan fárra ára. Tengdapabbi dó 2008 úr lungnakrabbameini hann var reykingamaður hann og tengdamamma voru bæði hætt að reykja, á ég að segja þér hvað varð til þess að þau hættu ? Börnin mín, þá mjög ung, sennilega 2-3 ára sögðu þeim að það væri vond lykt af þeim og þau fengu sjokk ! Þau hættu bæði að reykja með það sama og ég er ákaflega stoltur af þeim að geta hætt svona fyrirvaralaust en það bjargaði því miður ekki tengdapabba.
Börn á þessum aldri kunna ekki að ljúga og hafa ekki vit á að þegja yfir svona hlutum og eru hreinskilin stundum of hreinskilin.
Það er viðbjóðsleg lykt af fólki sem reykir, ekki vegna þess að það reykir heldur vegna þess að það er í reyknum og lyktin sest í fatnaðinn það er ógeðslyktin
Það að þú 'biturk' hefur eða þykist ekki hafa fundið lyktina sýnir bara hve mikilli afneitun þú ert og þú myndir aldrei viðurkenna annað jafnvel segja að lyktin sé góð bara til að leggja áherslu á að það sé ekkert að reykingum.
Foreldrar mínir reykja bæði, ég reyki ekki og enginn í kringum mig dags daglega en þegar ég fer til þeirra þá þarf ég að skipta um föt þegar ég kem heim.
Þessa lykt fann ég ekki fyrr en ég var fluttur að heiman þá fór ég að taka eftir þessu.
Að sumu leiti skil ég afstöðu þína til mannréttinda eins og leyfa fólki að gera það sem fólk vill en þegar fólk er fífl þá vill það kannski að einhver hafi vit fyrir sér ?