Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Hugmyndadeild, kvartanadeild og gleðideild

Á regla númer 16 að halda sér?

Atkvæðagreiðslan endaði Mið 04. Maí 2011 09:06

Já hún á að vera
89
48%
Nei burt með hana
96
52%
 
Samtals atkvæði: 185

Skjámynd

Output
Ofur-Nörd
Póstar: 213
Skráði sig: Lau 16. Apr 2011 15:46
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf Output » Sun 01. Maí 2011 20:31

Útaf ég er nýr hérna á vaktinni þá verð ég líka að segja mína skoðun :D Mín skoðun er einfaldlega að það ætti að henda þessari reglu út. Bara útaf nærri allir hérna tala ensku, þannig ég skil ekki hvað fólk hefur á móti að hafa ensku hérna.

Skjámynd

kjarribesti
1+1=10
Póstar: 1145
Skráði sig: Fim 04. Jún 2009 01:55
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogurinn, reglulega fyrir norðan
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf kjarribesti » Sun 01. Maí 2011 20:42

Afhverju mætti ekki hafa enska þræði hérna þegar það er ''móðurmál'' nörda..
sá sem skilur ekki ensku þarf bara ekkert að svara þræðinum..

HINSVEGAR ER ALLT GOTT Í HÓFI.

_______________________________________

Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6396
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 463
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf worghal » Sun 01. Maí 2011 20:45

ég hef ekki orðinn var við að það sé verið að gera marga þræði á ensku, þannig ég skil ekki af hverju að hafa þessa reglu

CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16568
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2135
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf GuðjónR » Sun 01. Maí 2011 20:47

Frábært hvað þið hafið allir sterkar skoðanir :)
Er eiginlega farinn að hallast að því líka að þessi regla sé ekki nógu góð, þ.e. eftir að hafa lesið öll rökin sem þið færið á móti henni.

Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2784
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 128
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf zedro » Sun 01. Maí 2011 20:49

Svo ein góð spurning:
Ef ég ætla að vitna í grein af netinu sem er á ensku þarf ég þá að þýða hana alla á íslensku fyrst?

Kísildalur.is þar sem nördin versla

HelgzeN
</Snillingur>
Póstar: 1083
Skráði sig: Mán 18. Jan 2010 22:05
Reputation: 0
Staðsetning: 101
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf HelgzeN » Sun 01. Maí 2011 20:49

GuðjónR skrifaði:Frábært hvað þið hafið allir sterkar skoðanir :)
Er eiginlega farinn að hallast að því líka að þessi regla sé ekki nógu góð, þ.e. eftir að hafa lesið öll rökin sem þið færið á móti henni.

Why are you red again ?

Turn - Intel Core i5-6400 Quad 3.3GHz - 16GB DUAL DDR4 2400MHz - 256GB SSD M.2 PCIe ADATA SP900 - 2GB GTX960 ITX
Lappi - Macbook Pro Mid 2014
Steelseries V3 | Zowie Gear | Logitech G110 | BenQ XL2411Z 24'' LED FULL HD 16:9 3D 144Hz

Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2581
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 479
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf Moldvarpan » Sun 01. Maí 2011 21:06

Ég tel að það sé skynsamlegra að halda þessari reglu.

capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf capteinninn » Sun 01. Maí 2011 21:19

Ég hef ekki tekið eftir því að þetta sé mikið vandamál hérna. Hef séð einn og einn þráð en það hefur aldrei farið í taugarnar á mér. Mér finnst að síðan eigi að hjálpa fólki á Íslandi að fá hjálp við ýmsum tæknivandamálum eða selja búnað sín á milli og slíkt, hvort sem að fólkið tali íslensku, ensku, dönsku, swahili eða hvað sem er. Ef þú getur ekki lesið ensku þá þarftu einfaldlega ekki að lesa þráðinn.

Ég vill samt ekki hafa síðuna alla á ensku en ef það kemur upp það vandamál að öll síðan verður yfirtekinn af enskumælandi fólki þá getum við farið að skoða þessa reglu en annars finnst mér það fínt að leyfa ensku.

Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4339
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 392
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf chaplin » Sun 01. Maí 2011 21:25

Hef alltaf verið á móti þessari reglu, auðvita eru ekki hægt að ætlast til þess að útlendingar hafi lært íslenskur á nokkrum árum, hvað þá mánuðum enda er það ekkert leyndamál að það getur verið mjög erfitt fyrir fólk að læra íslensku.

Bara sem dæmi að þá talar "djvietice" ekki 100% íslenskur en maður veit vel hvað hann er að segja, enda reynir hann augljóslega að gera sitt besta við að læra tungumálið okkar, afþví hann talar ekki fullkomna íslensku, eigum við þá að sparka honum af spjallinu?

Burt með regluna og etv. ekkert vitlaust að þýða hinar reglurnar yfir á ensku.

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16568
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2135
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf GuðjónR » Sun 01. Maí 2011 21:39

Zedro skrifaði:Svo ein góð spurning:
Ef ég ætla að vitna í grein af netinu sem er á ensku þarf ég þá að þýða hana alla á íslensku fyrst?

:-k
HelgzeN skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Frábært hvað þið hafið allir sterkar skoðanir :)
Er eiginlega farinn að hallast að því líka að þessi regla sé ekki nógu góð, þ.e. eftir að hafa lesið öll rökin sem þið færið á móti henni.

Why are you red again ?

Af því að ég elska Jóhönnu og Steingrím.
daanielin skrifaði:Hef alltaf verið á móti þessari reglu, auðvita eru ekki hægt að ætlast til þess að útlendingar hafi lært íslenskur á nokkrum árum, hvað þá mánuðum enda er það ekkert leyndamál að það getur verið mjög erfitt fyrir fólk að læra íslensku.

Bara sem dæmi að þá talar "djvietice" ekki 100% íslenskur en maður veit vel hvað hann er að segja, enda reynir hann augljóslega að gera sitt besta við að læra tungumálið okkar, afþví hann talar ekki fullkomna íslensku, eigum við þá að sparka honum af spjallinu?

Burt með regluna og etv. ekkert vitlaust að þýða hinar reglurnar yfir á ensku.

True...

Ég ætla það sé bara farsælast að henda henni út, það verður aldrei sátt um hana.

Skjámynd

Zethic
spjallið.is
Póstar: 445
Skráði sig: Sun 05. Sep 2010 17:55
Reputation: 74
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf Zethic » Sun 01. Maí 2011 21:43

Þið eruð bara sadistar og ættuð að skammast ykkar fyrir að flokkast sem Íslendingar ! Bjargið móðurmálinu ! :mad

Nei djók

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3835
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 157
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf Daz » Sun 01. Maí 2011 21:55

Væri fínt ef til væri regla sem ýtti undir að umræður á spjallsvæðinu færu fram á íslensku sé þess kostur, en þó án þess að fæla frá fólk sem er að leita sér upplýsinga eða hjálpar og getur ekki skrifað nothæfa íslensku.

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16568
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2135
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf GuðjónR » Sun 01. Maí 2011 22:05

Daz skrifaði:Væri fínt ef til væri regla sem ýtti undir að umræður á spjallsvæðinu færu fram á íslensku sé þess kostur, en þó án þess að fæla frá fólk sem er að leita sér upplýsinga eða hjálpar og getur ekki skrifað nothæfa íslensku.

Já...

Annars moddaði ég regluna aðeins...hvernig lýst ykkur á hana núna ?

Orri
vélbúnaðarpervert
Póstar: 936
Skráði sig: Fim 11. Okt 2007 17:17
Reputation: 152
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf Orri » Sun 01. Maí 2011 22:07

GuðjónR skrifaði:Annars moddaði ég regluna aðeins...hvernig lýst ykkur á hana núna ?

Het is zeer goed

BEWERKEN: Wacht eens even ... Uw bericht is niet in het Nederlands

Halli13
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 305
Skráði sig: Lau 06. Mar 2010 21:49
Reputation: 11
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf Halli13 » Sun 01. Maí 2011 22:29

Daz skrifaði:Væri fínt ef til væri regla sem ýtti undir að umræður á spjallsvæðinu færu fram á íslensku sé þess kostur, en þó án þess að fæla frá fólk sem er að leita sér upplýsinga eða hjálpar og getur ekki skrifað nothæfa íslensku.

Mér finnst ef að fólki vantar upplýsingar eða hjálp um tölvuna sína eða önnur tæki og talar ekki íslensku geti leitað sér þessarar aðstoðar á erlendum spjallborðum.

En hinsvegar er mikið af erlendi fólki sem á heima á íslandi og vill geta selt eitthvað hérna á vaktinni þá er ekkert mál að þeir fái að hafa söluþræðina á ensku og finnst mér þá tilvalið að hafa "til sölu/óskast enskar auglýsingar" flokk þar sem það fer fram.

S.s ekki hafa þræði hérna á ensku sem eru bara um eitthvað random heldur aðeins "nauðsynlega þræði".

Jim
spjallið.is
Póstar: 494
Skráði sig: Mán 23. Ágú 2010 14:40
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf Jim » Sun 01. Maí 2011 22:40

Afnám þessarar reglu yrði skref aftur á bak. Því miður er íslenskan að þynnast út og almenn íslenskukunnátta hefur aldrei verið verri en í dag. Þetta er íslenskt spjallborð, á Íslandi tölum við íslensku. Þeir fáu útlendingar sem að flykkjast hingað til lands ættu að gera sitt allra besta til að læra tungumálið og kynnast menningunni, annars geta þeir alveg eins verið heima hjá sér... eða á barnalandi.

KristinnK
Gúrú
Póstar: 565
Skráði sig: Sun 03. Apr 2011 00:28
Reputation: 95
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf KristinnK » Sun 01. Maí 2011 22:46

Ég held að það að leyfa erlend tungumál á almennum þráðum sé skref niður hála brekku (hér er um að ræða beina þýðingu á enska orðatiltækinu "a step down a slippery slope"). Þótt það væri allt í lagi, eins og aðrir hér hafa lagt til, að leyfa söluþræði á ensku, vil ég ekki að þetta eina íslenska spjallborðið um tölvur og tengd málefni enskuvæðist.

AMD Ryzen 5 5600X | 2x16GB DDR4 | 1TB Sata SSD | AMD Radeon RX 580

Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf tdog » Sun 01. Maí 2011 22:48

Jim skrifaði:Afnám þessarar reglu yrði skref aftur á bak. Því miður er íslenskan að þynnast út og almenn íslenskukunnátta hefur aldrei verið verri en í dag. Þetta er íslenskt spjallborð, á Íslandi tölum við íslensku. Þeir fáu útlendingar sem að flykkjast hingað til lands ættu að gera sitt allra besta til að læra tungumálið og kynnast menningunni, annars geta þeir alveg eins verið heima hjá sér... eða á barnalandi.

Ég skil ekki hvernig þessi regla myndi ýta undir aukna íslenskukunnáttu á Íslandi, hvað þá á þessu spjallborði. Í tölvubransanum er mikið um slettur og orðsambönd á ensku svo þessi póstur þinn meikar eiginlega ekki sens.

Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4339
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 392
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf chaplin » Sun 01. Maí 2011 22:48

16. gr.

Þetta er kínverkst spjallborð og við skrifum á hollensku, innleggjum á öðrum tungumálum kann að verða eytt eða læst.

Dat is zo veel beter!

Jim
spjallið.is
Póstar: 494
Skráði sig: Mán 23. Ágú 2010 14:40
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf Jim » Sun 01. Maí 2011 22:54

tdog skrifaði:
Jim skrifaði:Afnám þessarar reglu yrði skref aftur á bak. Því miður er íslenskan að þynnast út og almenn íslenskukunnátta hefur aldrei verið verri en í dag. Þetta er íslenskt spjallborð, á Íslandi tölum við íslensku. Þeir fáu útlendingar sem að flykkjast hingað til lands ættu að gera sitt allra besta til að læra tungumálið og kynnast menningunni, annars geta þeir alveg eins verið heima hjá sér... eða á barnalandi.

Ég skil ekki hvernig þessi regla myndi ýta undir aukna íslenskukunnáttu á Íslandi, hvað þá á þessu spjallborði. Í tölvubransanum er mikið um slettur og orðsambönd á ensku svo þessi póstur þinn meikar eiginlega ekki sens.

Skilurðu virkilega ekki hvernig það ýtir undir aukna íslenskukunnáttu að tala íslensku? Ástæða slæmrar íslenskukunnáttu er aukinn þrýstingur frá erlendum miðlum. Í stað þess að láta undan þá ættum við að þýða þessar slettur, halda áfram að búa til nýyrði og vera stolt af fallega tungumálinu okkar!

coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf coldcut » Sun 01. Maí 2011 23:03

Ég er allur með eflingu íslenskunnar og að reynt sé að halda henni hreinni en því miður þá þarf að sletta annars lagið.
Ég þoli t.d. ekki þegar kennarar í forritun nota íslensk "nöfn" yfir hluti. Eins og t.d. "smiður" eða "smali"! Við lesum kennsluefni á ensku og forritunarmálið er á ensku (þannig séð) en samt er verið að þýða þessi orð. :-k

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf Gúrú » Sun 01. Maí 2011 23:10

Jim skrifaði:Skilurðu virkilega ekki hvernig það ýtir undir aukna íslenskukunnáttu að tala íslensku? Ástæða slæmrar íslenskukunnáttu er aukinn þrýstingur frá erlendum miðlum. Í stað þess að láta undan þá ættum við að þýða þessar slettur, halda áfram að búa til nýyrði og vera stolt af fallega tungumálinu okkar!

Ég er fylgjandi lifandi tungumálum og lifandi bardagaíþróttum, þau virka,
svo sue me þegar að ég segi að tungumálanotkun, þegar að því kemur að nota orð,
virkar best þegar að hún er eins frjáls og mögulegt er, þú mátt hinsvegar kvarta undan lélegri stafsetningu eða málfræði eins og þér sýnist.

Modus ponens

Jim
spjallið.is
Póstar: 494
Skráði sig: Mán 23. Ágú 2010 14:40
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf Jim » Sun 01. Maí 2011 23:13

Gúrú skrifaði:

Hvaða þvaður er þetta? Fólk má nota hvaða orð sem því sýnist mín vegna, svo lengi sem þau eru íslensk. Þar sem að þú nefndir stafsetningu þá vil ég koma því á framfæri að stafsetningin hérna er alveg með ólíkindum, fullorðnir aðilar framkvæma sömu augljósu villurnar hvað eftir annað og móðgast bara ef einhver reynir að leiðrétta þá. Ég veit fullvel að enginn er fullkominn og að allir gera mistök en ég hef aldrei séð annað eins. Hvar er metnaðurinn?
Síðast breytt af Jim á Sun 01. Maí 2011 23:26, breytt samtals 1 sinni.

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf Gúrú » Sun 01. Maí 2011 23:25

Jim skrifaði:Hvaða þvaður er þetta?

Er búinn að sökkva mér of djúpt í linguistics, í hnotskurn:

Ef að fólk vill breyta tungumálum, blanda þeim, búa til orð, breyta gömlum orðum, þá mun það gera það og það er heiminum til betrunar.

Það er það sem að lætur tungumál virka, það er það sem að gerir þau lifandi, ef að orðið sem að á við um þig sjálfan er 42 bókstafir
þá mun fólk sjálft breyta því, sama hvað nokkur skapaður maður segir þeim,
það mun enginn segja 42 bókstafa langt orð þegar að það vill segja "ég", þess vegna eru "ég" og "og" oft stystu orð allra tungumála.

Ég er ekki stoltur af fallega tungumálinu mínu, ég óska þess að ég hefði fæðst á Íslandi sem talar frönsku, spænsku eða þýsku, en það er bara ég.

Modus ponens

Jim
spjallið.is
Póstar: 494
Skráði sig: Mán 23. Ágú 2010 14:40
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Skoðanakönnun um reglu númer 16.

Pósturaf Jim » Sun 01. Maí 2011 23:29

Gúrú skrifaði:
Jim skrifaði:Hvaða þvaður er þetta?

Er búinn að sökkva mér of djúpt í linguistics, í hnotskurn:

Ef að fólk vill breyta tungumálum, blanda þeim, búa til orð, breyta gömlum orðum, þá mun það gera það og það er heiminum til betrunar.

Það er það sem að lætur tungumál virka, það er það sem að gerir þau lifandi, ef að orðið sem að á við um þig sjálfan er 42 bókstafir
þá mun fólk sjálft breyta því, sama hvað nokkur skapaður maður segir þeim,
það mun enginn segja 42 bókstafa langt orð þegar að það vill segja "ég", þess vegna eru "ég" og "og" oft stystu orð allra tungumála.

Ég er ekki stoltur af fallega tungumálinu mínu, ég óska þess að ég hefði fæðst á Íslandi sem talar frönsku, spænsku eða þýsku, en það er bara ég.

Ég hef líka mikinn áhuga á tungumálum en mér þætti best að halda þeim eins aðskildum og hægt er.