SolidFeather skrifaði:Vaktin er ekki vettvangur fyrir fýlupúka
x2
Moldvarpan skrifaði:Þetta er ekkert nema smámunasemi.
AÐ VILJA FÁ BARA Í ÞRÁÐINN geðveikin hef ég aldrei skilið.
KermitTheFrog skrifaði:Ein af aðalástæðunum fyrir því að ég er eiginlega hættur að svara eða lesa þetta spjallborð er að mér finnst það orðið alltof líkt gömlu torrentsíðuborðunum.
Mögulega er einhver málefnaleg umræða í gangi sem gæti verið tveimur síðum styttri bara útaf einhverjum óþverra. Og fullt af einhverjum tilgangslausum þráðum um kvöldmatinn heima hjá fólki og hvernig eigi að ná sér í stelpu finnst mér bara vera að skemma þetta spjallborð.
En til að svara upprunalega póstinum þá finnst mér þetta x2 drasl alveg út í hött. Ef þú ert of góður til að skrifa "ég er sammála þessum gaur," þá máttu alveg sleppa því að pósta mín vegna. Og einnig er þessi "þú átt pm" setning alveg yfirmáta tilgangslaus.
Nú hætti ég röfli.