Tölvufjarstýringar?


Höfundur
hundur
Nörd
Póstar: 117
Skráði sig: Sun 30. Maí 2004 01:31
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Tölvufjarstýringar?

Pósturaf hundur » Lau 19. Mar 2011 00:04

Sælinú. Vitiði um einhverjar góðar tölvufjarstýringar, sem maður getur stjórnað MediaCenterinu (t.d. Boxee, en væri ljúft að geta browsað í explorernum líka). Hef áhuga á fjarstýringu í ódýrari kantinum.
[Edit] Ef einhver veit hvar hægt er að fá stykki til að breyta stóru headphone tengi í lítið, þá vil ég endilega fá að vita (og hvað það kostar) ;)
Síðast breytt af hundur á Lau 19. Mar 2011 01:39, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

beatmaster
Besserwisser
Póstar: 3079
Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
Reputation: 46
Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Tölvufjarstýringar?

Pósturaf beatmaster » Lau 19. Mar 2011 00:15

Ég get mælt með þessari :happy


Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.

Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3089
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Re: Tölvufjarstýringar?

Pósturaf lukkuláki » Lau 19. Mar 2011 00:16



If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.


bixer
</Snillingur>
Póstar: 1022
Skráði sig: Lau 14. Nóv 2009 14:38
Reputation: 1
Staðsetning: 101
Staða: Ótengdur

Re: Tölvufjarstýringar?

Pósturaf bixer » Lau 19. Mar 2011 00:34

Logitech Harmony voru bestu fjarstýringarnar á markaðnum þegar ég var að pæla í tölvufjarstýringum, reyndar hrikalega dýrar en miklu fleiri möguleikar heldur en með þessum ódýrari




Höfundur
hundur
Nörd
Póstar: 117
Skráði sig: Sun 30. Maí 2004 01:31
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Re: Tölvufjarstýringar?

Pósturaf hundur » Lau 19. Mar 2011 01:03

lukkuláki skrifaði:Þráðlaus mús ? :)
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=47&t=23290

Ég varð smá hræddur að lesa þennan þráð sem þú bendir á, því sá sem skrifaði hann heitir sama nafni og ég (erum held ég 5 á Íslandi :popeyed ) og hann var að spyrja um sama hlut meiraðsegja...

En já, líst vel á þessa fjarstýringu sem Beatmaster benti á, er ekkert mál að nota þetta meðan maður flatmagar uppi í rúmi í letikasti?
Annars þá á ég þráðlausa mús, en það er ekki alveg nógu þægilegt að mínu mati - virkar þó alveg þannig séð.



Skjámynd

kusi
Ofur-Nörd
Póstar: 201
Skráði sig: Mið 29. Apr 2009 23:17
Reputation: 25
Staða: Ótengdur

Re: Tölvufjarstýringar?

Pósturaf kusi » Fim 24. Mar 2011 09:46

beatmaster skrifaði:Ég get mælt með þessari :happy


Ég setti upp HTPC um daginn með XBMC Live (Linux) og Harmony fjarstýringu. Keypti þessa fjarstýringu fyrir skynjarann. Ég var ekki mjög hrifinn af fjarstýringunni sjálfri en þar sem hugmyndin var að nota Harmony skipti það ekki máli. Hún gerði þó það sem þurfti og skynjarinn virkar vel með Harmony.
Ég lenti þó í svolitlum vandræðum með að nota þennan skynjara og það tók mig dágóða stund að fá þetta allt til að virka.
1. Shutdown takkinn ræsir tölvuna úr suspend en gerir ekkert ef kveikt er á henni. Þurfti að láta einhvern annan takka virka sem shutdown takka.
2. Það eru frekar fáir takkar á henni sem actually gera eitthvað sem þýðir að ég get ekki stýrt öllu sem ég mundi vilja í XBMC með henni, þ.e. það eru ekki nógu margir mismunandi takkar til að gera þær aðgerðir sem XBMC býður upp á. Það eru semsagt færri takkar en á td. fjarstýringunni frá Microsoft.

Á þessari fjarstýringu er "mús" sem er svoldið sniðugt en ég fann engin praktísk not fyrir það. Það er líka hægt að ýta á takka og þá breytist talnaborðið í lyklaborð, en aftur fann ég engin praktísk not fyrir það.