Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
Pfff... öll þessi IQ próf eru bull. Hvernig eiga nokkrar spurningar að geta sagt til um gáfur einhvers? Það er hægt að vera gáfaður án þess að þekkja höfuðborgina í Kasakstan eða að vita ferningsrótina af 96. Mannsheilinn er alltof flókinn og einstaklingsbundinn til þess að það sé hægt að rannsaka hann á örfáum mínútum.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 6354
- Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
- Reputation: 161
- Staða: Ótengdur
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
dori skrifaði:Eða að gleyma því af því að svona próf hjálpar manni þannig séð ekkert?
Hestaflatalan í bílnum mínum. Tíðnin á örgjörvanum mínum. Snúningshraðinn á þvottavélinni minni. IQ talan mín. Þetta eru allt tölur sem skipta mig afskaplega litlu máli, þar sem virknin er sú sem hún er, og vitneskjan mín breytir litlu um hana. Þær hjálpa mér samt sem áður að vega og meta aðstæður.
Persónulega finnst mér líka gaman afþví að sjá IQ töluna mína hækka á milli ára, alveg eins og mér finnst gaman að taka meiri þyngdir í ræktinni á milli ára. Ég get ekki mælt hversu mikið ég er búinn að læra úr bókum og heimildarmyndum, hversu mikið ég er búinn að læra um tölvur, bíla eða aðra hluti síðustu ár. Ég get hinsvegar mælt almenna greind, og séð framfarir þar.
-
- Vaktari
- Póstar: 2485
- Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
- Reputation: 235
- Staðsetning: NGC 3314.
- Staða: Ótengdur
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
thegirl skrifaði:Ég er þá í draumaheimi hér ef það er fólk sem fer ekki á böll og nennir ekki þannig hlutum:p þekki EINA manneskju sem er þannig fyrir utan mig.
En hér er prófið
http://www.piepalace.ca/blog/asperger-test-aq-test/
Hurrr, ég fékk 12.
Main -> || Windows 11 || Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || RTX 3070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 || 34" IPS 3440x1440 180Hz ||
NAS -> || Truenas Scale || i7 8700 || 64GB DDR4 2666 || 2x 12 TB ||
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
NAS -> || Truenas Scale || i7 8700 || 64GB DDR4 2666 || 2x 12 TB ||
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
-
- Stjórnandi
- Póstar: 6354
- Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
- Reputation: 161
- Staða: Ótengdur
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
Jim skrifaði:Pfff... öll þessi IQ próf eru bull. Hvernig eiga nokkrar spurningar að geta sagt til um gáfur einhvers? Það er hægt að vera gáfaður án þess að þekkja höfuðborgina í Kasakstan eða að vita ferningsrótina af 96. Mannsheilinn er alltof flókinn og einstaklingsbundinn til þess að það sé hægt að rannsaka hann á örfáum mínútum.
Að vita hver höfuðborgin í Kasakstan kemur greindarvísitölu ekkert við, ekkert frekar en að kunna uppskrift af súkkulaðiköku. Það er hægt að deila og gagnrýna endalaust IQ próf, en það er ekki hægt að neita því að þetta eru marktæk próf þegar kemur að virkni heilans á einn eða annan hátt. Það er líka búið að sýna fram á tengls á milli þess að skora hátt í IQ prófum og að skora hátt í EQ og CQ prófum.
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
AntiTrust skrifaði:dori skrifaði:Eða að gleyma því af því að svona próf hjálpar manni þannig séð ekkert?
Hestaflatalan í bílnum mínum. Tíðnin á örgjörvanum mínum. Snúningshraðinn á þvottavélinni minni. IQ talan mín. Þetta eru allt tölur sem skipta mig afskaplega litlu máli, þar sem virknin er sú sem hún er, og vitneskjan mín breytir litlu um hana. Þær hjálpa mér samt sem áður að vega og meta aðstæður.
Persónulega finnst mér líka gaman afþví að sjá IQ töluna mína hækka á milli ára, alveg eins og mér finnst gaman að taka meiri þyngdir í ræktinni á milli ára. Ég get ekki mælt hversu mikið ég er búinn að læra úr bókum og heimildarmyndum, hversu mikið ég er búinn að læra um tölvur, bíla eða aðra hluti síðustu ár. Ég get hinsvegar mælt almenna greind, og séð framfarir þar.
Svo kemur aldurinn og hirðir þetta af þér sama hvað þú reynir að halda í þetta...
Síðast breytt af rapport á Mán 07. Mar 2011 00:55, breytt samtals 1 sinni.
-
Höfundur - Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 310
- Skráði sig: Fim 03. Mar 2011 20:20
- Reputation: 0
- Staðsetning: Nígería
- Staða: Ótengdur
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
GuðjónR skrifaði:Annað sem mér finnst ennþá fyndnara, það er að "thegirl" er 23 ára gamall strákur frá Litháen
Hahahah haettu nu alveg tessu rugli :p nokkrie stjornendur tekkja mig teir geta stadfest tad ad eg er kvenmadur
_______________________________________________________________________________________
Ekki taka það alvarlega sem ég skrifa!!! :O Ef það er sjokkerandi sem ég skrifa þá er það líklegast til að sjokkera þig.
Ekki taka það alvarlega sem ég skrifa!!! :O Ef það er sjokkerandi sem ég skrifa þá er það líklegast til að sjokkera þig.
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
AntiTrust skrifaði:Jim skrifaði:Pfff... öll þessi IQ próf eru bull. Hvernig eiga nokkrar spurningar að geta sagt til um gáfur einhvers? Það er hægt að vera gáfaður án þess að þekkja höfuðborgina í Kasakstan eða að vita ferningsrótina af 96. Mannsheilinn er alltof flókinn og einstaklingsbundinn til þess að það sé hægt að rannsaka hann á örfáum mínútum.
Að vita hver höfuðborgin í Kasakstan kemur greindarvísitölu ekkert við, ekkert frekar en að kunna uppskrift af súkkulaðiköku. Það er hægt að deila og gagnrýna endalaust IQ próf, en það er ekki hægt að neita því að þetta eru marktæk próf þegar kemur að virkni heilans á einn eða annan hátt. Það er líka búið að sýna fram á tengls á milli þess að skora hátt í IQ prófum og að skora hátt í EQ og CQ prófum.
IQ próf mæla aðeins einn hlut, og hann er hvað þú ert góður í að taka IQ próf.
Síðast breytt af Jim á Mán 07. Mar 2011 00:44, breytt samtals 1 sinni.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 6354
- Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
- Reputation: 161
- Staða: Ótengdur
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
Jim skrifaði:IQ próf mæla aðeins einn hlut, og það er hvað þú ert góður í að taka IQ próf.
Engan vegin rétt. Kynntu þér mismunandi tegundir og útgáfur IQ prófa.
-
- Vaktari
- Póstar: 2192
- Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
- Reputation: 0
- Staðsetning: /dev/random
- Staða: Ótengdur
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
Jim skrifaði:IQ próf mæla aðeins einn hlut, og það er hvað þú ert góður í að taka IQ próf.
says the guy with the low IQ...
sjálfur fékk ég 140 í score...veit samt að þetta er ekki 100% að marka.
Hins vegar er IQ ekki allt, það er t.d líka til Social IQ.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 6354
- Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
- Reputation: 161
- Staða: Ótengdur
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
Svo má ekki gleyma EQ, sem er sú tala sem virðist tengjast árangri í starfi og í gegnum lífið yfirleitt hvað langbest.
-
- Besserwisser
- Póstar: 3963
- Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
- Reputation: 0
- Staðsetning: Seltjarnarnes
- Staða: Ótengdur
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
thegirl skrifaði:GuðjónR skrifaði:Annað sem mér finnst ennþá fyndnara, það er að "thegirl" er 23 ára gamall strákur frá Litháen
Hahahah haettu nu alveg tessu rugli :p nokkrie stjornendur tekkja mig teir geta stadfest tad ad eg er kvenmadur
Hverjir?
"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
AntiTrust skrifaði:Jim skrifaði:IQ próf mæla aðeins einn hlut, og það er hvað þú ert góður í að taka IQ próf.
Engan vegin rétt. Kynntu þér mismunandi tegundir og útgáfur IQ prófa.
Mæla þau eitthvað annað þegar uppi er staðið? IQ er aðeins tala á blaði og segir voða lítið um gáfur viðkomandi. Ég hef tekið mörg svona próf í gegnum árin og þær niðurstöður sem ég hef fengið samræmast á engan hátt. Ég hef fengið 70 og 130 stig á sama degi í 2 mismunandi prófum. Ég hef reyndar ekki skoðað þessi EQ/CQ próf sem þú minntist á áðan en ég mun gera það núna.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 6354
- Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
- Reputation: 161
- Staða: Ótengdur
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
Jim skrifaði:AntiTrust skrifaði:Jim skrifaði:IQ próf mæla aðeins einn hlut, og það er hvað þú ert góður í að taka IQ próf.
Engan vegin rétt. Kynntu þér mismunandi tegundir og útgáfur IQ prófa.
Mæla þau eitthvað annað þegar uppi er staðið? IQ er aðeins tala á blaði og segir voða lítið um gáfur viðkomandi. Ég hef tekið mörg svona próf í gegnum árin og þær niðurstöður sem ég hef fengið samræmast á engan hátt. Ég hef fengið 70 og 130 stig á sama degi í 2 mismunandi prófum. Ég hef reyndar ekki skoðað þessi EQ/CQ próf sem þú minntist á áðan en ég mun gera það núna.
Alveg öfugt við mína reynslu. Ég hef tekið mörg mismunandi próf (WAIS-III, Stanford-Binet-IV, GIGI og flr.) og mér finnst niðurstöður ekki reika það mikið að tölurnar verði ómarktækar. Mestan mun hef ég séð á prófunum hjá highIQsociety, og þá sérstaklega muninn á milli cultural og non-cultural relative prófunum, en það var samt sem áður enginn stórmunur.
Mér finnst þú líka vera með ranghugmyndir um hvað IQ segir manni. IQ tala segir manni ekki nákvæmlega hversu "gáfaður" (set orðið inn í gæsalappir þar sem þetta er mjög frjálslega notað hugtak) þú ert - heldur hversu vel þú getur tekið upplýsingar og nýtt þér þær við mismunandi aðstæður.
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
Ég veit að ég er miklu gáfaðri en eitthvað próf getur mælt
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
rapport skrifaði:Ég veit að ég er miklu gáfaðri en eitthvað próf getur mælt
x2
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
AntiTrust skrifaði:Jim skrifaði:AntiTrust skrifaði:Jim skrifaði:IQ próf mæla aðeins einn hlut, og það er hvað þú ert góður í að taka IQ próf.
Engan vegin rétt. Kynntu þér mismunandi tegundir og útgáfur IQ prófa.
Mæla þau eitthvað annað þegar uppi er staðið? IQ er aðeins tala á blaði og segir voða lítið um gáfur viðkomandi. Ég hef tekið mörg svona próf í gegnum árin og þær niðurstöður sem ég hef fengið samræmast á engan hátt. Ég hef fengið 70 og 130 stig á sama degi í 2 mismunandi prófum. Ég hef reyndar ekki skoðað þessi EQ/CQ próf sem þú minntist á áðan en ég mun gera það núna.
Alveg öfugt við mína reynslu. Ég hef tekið mörg mismunandi próf (WAIS-III, Stanford-Binet-IV, GIGI og flr.) og mér finnst niðurstöður ekki reika það mikið að tölurnar verði ómarktækar. Mestan mun hef ég séð á prófunum hjá highIQsociety, og þá sérstaklega muninn á milli cultural og non-cultural relative prófunum, en það var samt sem áður enginn stórmunur.
Mér finnst þú líka vera með ranghugmyndir um hvað IQ segir manni. IQ tala segir manni ekki nákvæmlega hversu "gáfaður" (set orðið inn í gæsalappir þar sem þetta er mjög frjálslega notað hugtak) þú ert - heldur hversu vel þú getur tekið upplýsingar og nýtt þér þær við mismunandi aðstæður.
Þessi próf mæla ekki hvað þú sem einstaklingur ert greindur en gefa hinsvegar mjög grófa hugmynd um stöðu þína gagnvart öðrum í samfélaginu. IQ próf snúast einnig venjulega aðallega um rökfræði og það eru margir hlutar heilans sem eru skildir eftir í þessum mælingum. Mozart og Einstein myndu örugglega fá mjög mismunandi niðurstöður úr IQ prófi en þeir eru samt báðir almennt kallaðir snillingar.
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1797
- Skráði sig: Mán 23. Apr 2007 06:36
- Reputation: 123
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
Fékk 14 í AQ prófinu og 113 í IQ prófinu.
Ætli ég hafi ekki fengið nokkur stig í AQ prófinu fyrir að taka vel eftir smáatriðum og bílnúmerum, en aðal áhugamálið mitt eru bílar og ég tek eftir hverju einasta smáatriði á þeim og þekki marga bíla á númerinu einu saman.
Sömuleiðis þá er ég mjög góður að muna afmælisdaga annara.
Og tungumálaörðuleikar gerðu það að verkum að ég skildi ekki allar spurningarnar í IQ prófinu 100%

Asus ROG Strix Z390-F Gaming | Intel Core i5 9600K @ 4,7GHz | Crosshair H100i | Corsair Vengance 16GB | Asus ROG Strix RTX2060 | Corsair RM 650x
-
- Stjórnandi
- Póstar: 3750
- Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
- Reputation: 474
- Staðsetning: Undir hægra megin
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
ManiO skrifaði:thegirl skrifaði:GuðjónR skrifaði:Annað sem mér finnst ennþá fyndnara, það er að "thegirl" er 23 ára gamall strákur frá Litháen
Hahahah haettu nu alveg tessu rugli :p nokkrie stjornendur tekkja mig teir geta stadfest tad ad eg er kvenmadur
Hverjir?
einsog svo vinsælt er að svara hérna.
x2
Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
Mér finnst mjög ólíklegt að stelpur skýri sig thegirl þannig ég finn smá troll lykt af þessu
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
samála þérJim skrifaði:Pfff... öll þessi IQ próf eru bull. Hvernig eiga nokkrar spurningar að geta sagt til um gáfur einhvers? Það er hægt að vera gáfaður án þess að þekkja höfuðborgina í Kasakstan eða að vita ferningsrótina af 96. Mannsheilinn er alltof flókinn og einstaklingsbundinn til þess að það sé hægt að rannsaka hann á örfáum mínútum.
Hinir notendurnir mínir: DK404 og AncientGod
-
- Stjórnandi
- Póstar: 16576
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2137
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
thegirl skrifaði:GuðjónR skrifaði:Annað sem mér finnst ennþá fyndnara, það er að "thegirl" er 23 ára gamall strákur frá Litháen
Hahahah haettu nu alveg tessu rugli :p nokkrie stjornendur tekkja mig teir geta stadfest tad ad eg er kvenmadur
Nefndu þá
-
Höfundur - Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 310
- Skráði sig: Fim 03. Mar 2011 20:20
- Reputation: 0
- Staðsetning: Nígería
- Staða: Ótengdur
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
ManiO skrifaði:thegirl skrifaði:GuðjónR skrifaði:Annað sem mér finnst ennþá fyndnara, það er að "thegirl" er 23 ára gamall strákur frá Litháen
Hahahah haettu nu alveg tessu rugli :p nokkrie stjornendur tekkja mig teir geta stadfest tad ad eg er kvenmadur
Hverjir?
Snuddi, pandemic og intenz.
Þekki snudda fra Ödru spjallbordi og eg er i skola med intenz og pandemic
_______________________________________________________________________________________
Ekki taka það alvarlega sem ég skrifa!!! :O Ef það er sjokkerandi sem ég skrifa þá er það líklegast til að sjokkera þig.
Ekki taka það alvarlega sem ég skrifa!!! :O Ef það er sjokkerandi sem ég skrifa þá er það líklegast til að sjokkera þig.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 16576
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2137
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
thegirl skrifaði:
Snuddi, pandemic og intenz.
Þekki snudda fra Ödru spjallbordi og eg er i skola med intenz og pandemic
Jæja...þar fór sú kenningin út um gluggann
-
Höfundur - Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 310
- Skráði sig: Fim 03. Mar 2011 20:20
- Reputation: 0
- Staðsetning: Nígería
- Staða: Ótengdur
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
GuðjónR skrifaði:thegirl skrifaði:
Snuddi, pandemic og intenz.
Þekki snudda fra Ödru spjallbordi og eg er i skola med intenz og pandemic
Jæja...þar fór sú kenningin út um gluggann
Haha viljidi ekki hafa kolbiladan kvenmann herna inni?
_______________________________________________________________________________________
Ekki taka það alvarlega sem ég skrifa!!! :O Ef það er sjokkerandi sem ég skrifa þá er það líklegast til að sjokkera þig.
Ekki taka það alvarlega sem ég skrifa!!! :O Ef það er sjokkerandi sem ég skrifa þá er það líklegast til að sjokkera þig.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 6354
- Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
- Reputation: 161
- Staða: Ótengdur
Re: Hahaha mér finnst þetta ógeðslega fyndið
Jim skrifaði:Þessi próf mæla ekki hvað þú sem einstaklingur ert greindur en gefa hinsvegar mjög grófa hugmynd um stöðu þína gagnvart öðrum í samfélaginu. IQ próf snúast einnig venjulega aðallega um rökfræði og það eru margir hlutar heilans sem eru skildir eftir í þessum mælingum. Mozart og Einstein myndu örugglega fá mjög mismunandi niðurstöður úr IQ prófi en þeir eru samt báðir almennt kallaðir snillingar.
Jújú, að sjálfsögðu eru þetta viðmiðunartölur m.v. stærri hópa. Eins og ég tók fram hér fyrr í þræðinum er búið að sýna fram á tengls á milli hárra EQ talna og IQ, og Mozart hefur líklega haft bæði. Munurinn á Mozart og Einstein IQ-wise er svo best sem ég veit til um 5 stig, og þar var Mozart hærri aðilinn. Það er líka engin tilviljun að Mozart hafi bæði verið með háa IQ og samið klassíska tónlist, þar sem hlustun/smekkur á klassískri tónlist er yfirleitt sú eina sem fólk með háa IQ deilir, þar sem það kemur inn á rational og spatial hugsun/greind.