jæja, þarf ekki að gera einhvern svona þráð um hvernig þetta var gert allt saman
Ég og vinur minn "smíðuðum" tölvu inní túpuskjá sem við höfðum hreinsað inn úr og hampaði það mod í 2. sæti í kepninni. Við skiluðum inn þessum 4 myndum inní keppnina:
Hugmyndin kom eiginlega þannig að ég sá þráðinn um að halda ætti mod-keppni en ég vildi ekki fara eyða morðfjár í það, svo næsta sólarhringinn leit ég í kringum mig og reyndi að finna einhvern kúúl hlut sem ég gæti troðið tölvu inní og tók þá eftir gömlu túpunni heima hjá okkur og fannst að allavega mætti prófa að setja tölvu þar inn. Ég fékk vin minn í lið með mér og hélt ferð okkar í góða hirðinn þar sem við versluðum okkur cirka 18" túpu frá 1998 á 300 kr. Túpan reyndist hins vegar vera ÞVÍLÍKT lóð og varð maður kófsveittur að bera hann að búðarkassanum. Þegar túpan var komin inní skottið á bílnum get ég svarið það, að við fundum fyrir því að bíllinn hallaði aftur á bak! En nóg um það, hér er sem sagt túpan komin ásamt eld gamalli tölvu (kringum 7-10 ára) en við skiptum út harða disknum og settum annan aðeins minna gamlan í staðinn (120gb).
Þá varð það bara að rífa túpuna í sundur. Við vorum algjörlega að henda okkur út í djúpulaugina þar sem við vissum varla hvað leyndist þarna inn fyrir. Ég verð að segja að það sem var þarna inni var hreint og beint subbulegt! það hafði safnast saman þarna ryk í 13 ár án þess að vera rykhreinsað. Við gerðum okkur þær vonir um að ná glerina í túpuskjánum en náðum því ekki eins og þið getið séð hér aðeins neðar. Ég læt hér nokkrar myndir fylgja með "túpuhreinsuninni"
Hér duga engin vetlingatök!
Hér reyndum við að ná glerinu en án árangurs.
Hér sjáiði hversu ógeðslegt þetta var.
Svo við brugðum á það ráð að rykhreinsa
Okkur langaði að sjá inní sjálfa túpuna og brutum bara dótið á endanum af
Og hér séns ógreinilega inní lampann
Hér var "turn on" takkinn á túpunni en við framlengdum einmitt start takkann á tölvunni þangað
allar leiðir voru notaðar til að komast að skrúfunum
og vann hamarinn þá viðureign
enn ein myndin sem sýnir hversu vibbalegt þetta var orðið
nammi namm!, síðan skrúbbuðum við túpuna eftir þetta.
Síðan var að taka tölvuna úr kassanum og festa hana á grindina sem við vorum með:
og byrjað að máta "nýju" grindina
og var þetta kirfilega bint svo ekkert hreyfðist
og varð maður aðeins að máta
var móðurborðið á grindinni sett á hlið á aðra grind og festum við þessar grindur saman
Aflgjafinn festur
Enn og aftur stóðst maður ekki að máta aðeins meir
Jæja þá var að setja gler á þetta og var það límt með tonnataki og varð pikkfast
Settum við bækur ofan á til að fá þrýsting meðan límið harðnaði
start-takinn sem við lengdum síðan
festum járn stykki fyrir harða diska og kemst þá 3 harðir diskar
harði diskurinn tengdur
lentum við í veseni að instala ubuntu í gegnum usb kubb og tengdum því tryllitækið við annan turn
skárum göt til að koma snúrunum út fyrir usb-ið
skjásnúran tengd og einnig sést í power snúruna úr afljafanum en báðar snúrurnar fara út að aftan
næst var að festa viftuna inní
Við lentum síðan í furðu-vandamáli og virtist á tíma við vera búnir að eyðileggja vélbúnaðinn en var það þannig að við kveiktum á tölvunni og ef komið var við kassann, sem er úr plasti eða eitthvað af járnplötunum þá slökkti tölvan bara á sér og hafði bara afl til að kveikja á sér í örfáar sekúndur. Við jarðtengdum okkur og prófuðum aftur en sama gerðist bara, við prófuðum að taka aflgjafann úr og starta vélinni og virkaði það, því einangruðum við aflgjafann alveg frá járnbotninum og festum hann síðan kyrfilega á einangrunarlímbandið.
Hér eru usb-dótið komið þar sem snúrurnar koma í gegnum götin.
viftan að láta ljós sitt skína
Við lengdum start-takann með að klippa vírana og taka aðra víra og vefja þá saman og svo líma og gekk það þrusuvel, var takinn síðan límdur með tonnataki á botnininn beint fyrir framan start-takkann á skjánum og þurftum við nokkrar tilraunir til að stilla hann rétt af en það hafðist í lokin
Þá er vélin bara ready í slaginn
Eins og með allt annað svona þá vissum við varla hvernig þetta myndi koma út og þurftum við að breyta um plan eftir því sem hentaði og lentum við í ógrynni litlra vandamála. Ég myndi giska að þetta hafi tekið svona um 20-25 klst. allt í allt.
Við þökkum fyrir okkur
[CASE-MOD Keppnin] - Túpuskjárinn - 2. Sætið
[CASE-MOD Keppnin] - Túpuskjárinn - 2. Sætið
Intel E5200 @ 2.5 GHz | Radeon HD 4850 | Corsair 2x2 GB RAM 1066 MHz | 480 W aflgjafi | Móðurborð Micro-Star P43 NEO | 500GB Samsung | Windows 7 / Ubuntu
Ruddaleg túpuskjátölva!
Ruddaleg túpuskjátölva!
-
- Kóngur
- Póstar: 4431
- Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
- Reputation: 6
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: [CASE-MOD Keppnin] - Túpuskjárinn - 2. Sætið
þetta er flott hjá ykkur en það angrar mig rosalega að usb stykkið er á ská miðað við ristina
ég hafði einmitt í huga að stinga tölvu inn í ákveðinn hlut.........reindar talsvert minni hlut.......með ofu kælingu
ég hafði einmitt í huga að stinga tölvu inn í ákveðinn hlut.........reindar talsvert minni hlut.......með ofu kælingu
ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!
-
- Besserwisser
- Póstar: 3835
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Reputation: 157
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Re: [CASE-MOD Keppnin] - Túpuskjárinn - 2. Sætið
iMac með external skjá
Sniðugt mod, ekki beint eitthvað sem ég myndi kalla flott, en það er sniðugt og vel útfært!
Múffu?
Sniðugt mod, ekki beint eitthvað sem ég myndi kalla flott, en það er sniðugt og vel útfært!
biturk skrifaði:þetta er flott hjá ykkur en það angrar mig rosalega að usb stykkið er á ská miðað við ristina
ég hafði einmitt í huga að stinga tölvu inn í ákveðinn hlut.........reindar talsvert minni hlut.......með ofu kælingu
Múffu?
-
- Kóngur
- Póstar: 4431
- Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
- Reputation: 6
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: [CASE-MOD Keppnin] - Túpuskjárinn - 2. Sætið
Daz skrifaði:iMac með external skjá
Sniðugt mod, ekki beint eitthvað sem ég myndi kalla flott, en það er sniðugt og vel útfært!biturk skrifaði:þetta er flott hjá ykkur en það angrar mig rosalega að usb stykkið er á ská miðað við ristina
ég hafði einmitt í huga að stinga tölvu inn í ákveðinn hlut.........reindar talsvert minni hlut.......með ofu kælingu
Múffu?
ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!
Re: [CASE-MOD Keppnin] - Túpuskjárinn - 2. Sætið
biturk skrifaði:þetta er flott hjá ykkur en það angrar mig rosalega að usb stykkið er á ská miðað við ristina
ég hafði einmitt í huga að stinga tölvu inn í ákveðinn hlut.........reindar talsvert minni hlut.......með ofu kælingu
haha, var ekki búinn að taka eftir þvi
Intel E5200 @ 2.5 GHz | Radeon HD 4850 | Corsair 2x2 GB RAM 1066 MHz | 480 W aflgjafi | Móðurborð Micro-Star P43 NEO | 500GB Samsung | Windows 7 / Ubuntu
Ruddaleg túpuskjátölva!
Ruddaleg túpuskjátölva!
-
- /dev/null
- Póstar: 1426
- Skráði sig: Mán 28. Apr 2008 17:32
- Reputation: 0
- Staðsetning: Undir töfra regnboganum
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: [CASE-MOD Keppnin] - Túpuskjárinn - 2. Sætið
Áttir að setja skjá þarsem glerið er þá er þetta eins og bara skjár+tölva samanlagt skiluru?
Re: [CASE-MOD Keppnin] - Túpuskjárinn - 2. Sætið
Páll skrifaði:Áttir að setja skjá þarsem glerið er þá er þetta eins og bara skjár+tölva samanlagt skiluru?
mhm, það var ein af mörgum hugmyndum af útfærslum sem við höfðum, en að ná að fá að skjá sem fyllir alveg upp er erfitt, eða þá að ná að fylla uppí þannig það verði ekki ljótt, og svo þarf skjárinn líka að vera þannig að auðvelt sé að tengja hann
Intel E5200 @ 2.5 GHz | Radeon HD 4850 | Corsair 2x2 GB RAM 1066 MHz | 480 W aflgjafi | Móðurborð Micro-Star P43 NEO | 500GB Samsung | Windows 7 / Ubuntu
Ruddaleg túpuskjátölva!
Ruddaleg túpuskjátölva!
-
- Kóngur
- Póstar: 4431
- Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
- Reputation: 6
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: [CASE-MOD Keppnin] - Túpuskjárinn - 2. Sætið
Páll skrifaði:Áttir að setja skjá þarsem glerið er þá er þetta eins og bara skjár+tölva samanlagt skiluru?
hefði verið ógeðslega svalt að taka flatskjá úr sinni eiginlegu umgjörð og fella þarna inn í en það hefði kostað dálítið mikið af vinnu ef vel hefði átt að vera, ég lét mér detta það einmitt í hug en ákvað að hverfa frá
nema mín hugmynd var að taka skjáinn minn og setja inn í tölvukassan
ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!
Re: [CASE-MOD Keppnin] - Túpuskjárinn - 2. Sætið
Hendi þessum þræði upp ef ske kynni að einhverjir fleiri hefðu áhuga að sjá þetta
Intel E5200 @ 2.5 GHz | Radeon HD 4850 | Corsair 2x2 GB RAM 1066 MHz | 480 W aflgjafi | Móðurborð Micro-Star P43 NEO | 500GB Samsung | Windows 7 / Ubuntu
Ruddaleg túpuskjátölva!
Ruddaleg túpuskjátölva!
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 994
- Skráði sig: Sun 05. Jún 2005 20:06
- Reputation: 19
- Staðsetning: RVK
- Staða: Ótengdur
Re: [CASE-MOD Keppnin] - Túpuskjárinn - 2. Sætið
skemmtileg lesning
ASRock Z790 Pro RS WiFi | Intel i5 13600K @ 5.1GHz | Noctua NH-D14 | Gainward GeForce RTX 3060Ti Ghost OC | 2x16GB G.Skill Ripjaws S5 5600MHz DDR5 | 240GB Corsair MP510 NVMe & 250GB Samsung 850 EVO SSD | 2TB & 3TB Seagate | BenQ Zowie 25" XL2546 240Hz | 650W Corsair RM650x PSU.
-
- ÜberAdmin
- Póstar: 1335
- Skráði sig: Fim 11. Sep 2008 14:33
- Reputation: 0
- Staðsetning: Í nafla alheimsins
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: [CASE-MOD Keppnin] - Túpuskjárinn - 2. Sætið
biturk skrifaði:Páll skrifaði:Áttir að setja skjá þarsem glerið er þá er þetta eins og bara skjár+tölva samanlagt skiluru?
hefði verið ógeðslega svalt að taka flatskjá úr sinni eiginlegu umgjörð og fella þarna inn í en það hefði kostað dálítið mikið af vinnu ef vel hefði átt að vera, ég lét mér detta það einmitt í hug en ákvað að hverfa frá
nema mín hugmynd var að taka skjáinn minn og setja inn í tölvukassan
Ég ætlaði að taka bjórkút og henda tölvu inní hann en hafði aldrei nægilegan tíma til
Mercedes er magnað tól
Mergjuð er ásýnd líka
Það eru bara forhert fól
Sem fíla þá ekki slíka
Mergjuð er ásýnd líka
Það eru bara forhert fól
Sem fíla þá ekki slíka
-
- Besserwisser
- Póstar: 3089
- Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
- Reputation: 65
- Staða: Ótengdur
Re: [CASE-MOD Keppnin] - Túpuskjárinn - 2. Sætið
Gaman að sjá þetta.
Til hamingju
Til hamingju
If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.