Ætla fá mér einhvern góðann media streamer, budget-viðmið 40 000 kr.
Líst vel á WD TV Live Hub
Er það málið eða er eitthvað annað sem væru skynsamari kaup?
Media streamer kauphugleiðingar
-
Höfundur - Fiktari
- Póstar: 74
- Skráði sig: Sun 01. Jan 2006 02:28
- Reputation: 1
- Staðsetning: Sauðárkrókur
- Staða: Ótengdur
Media streamer kauphugleiðingar
32GB G.Skill Trident Z RGB — 500 GB Samsung 980 Pro — Gainward RTX 3070 Phoenix GS — Corsair RM850W — Phanteks 500 Air
BenQ BL3200PT — Logitech Z5500 — Ducky Shine 7 — Logitech G502
Google Pixel 4XL — Samsung Galaxy Tab A 10.1
BenQ BL3200PT — Logitech Z5500 — Ducky Shine 7 — Logitech G502
Google Pixel 4XL — Samsung Galaxy Tab A 10.1
-
- Besserwisser
- Póstar: 3120
- Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
- Reputation: 454
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Media streamer kauphugleiðingar
Ég var að panta þennan um daginn:
http://www.sagetv.com/hd_theater.html
Virkilega flott græja og það sem hann hefur fram yfir alla aðra svona sjónvarpsflakkara er að hann getur virkað í sem client fyrir SageTV server hugbúnaðinn sem ég er að keyra hérna heima og þannig get ég notað þetta til að horfa á sjónvarp og taka upp og hvað eina.
Ef maður er ekki með SageTV server uppsettan, þá er hægt að svissa yfir á svokallað "stand alone mode" en þá hegðar hann sér eins og venjulegur sjónvarpsflakkari. Sem slíkur er hann mjög góður, spilar bókstaflega allt og styður Dolby TrueHD o.fl. Ég átti Popcorn Hour A100 áður, þessi er mikið hraðvirkari en hann. Svo er fjarstýringin með 3 forritanlega hnappa sem eru ætlaðir til að kveikja á sjónvarpinu og hækka og lækka í því, sem er mjög þægilegt.
Er líka á fínu verði, $149 + shipping. Ég veit ekki hvort ég var eitthvað heppinn, eða hvort að tollurinn átti sig ekki á því hvað þetta er, en ég þurfti bara að borga VSK, þannig að þetta endaði í c.a 22þús kalli sem er ekkert fyrir svona græju.

- BMW
- Póstar: 2511
- Skráði sig: Fös 30. Jan 2009 22:20
- Reputation: 14
- Staðsetning: Mosó
- Staða: Ótengdur
Re: Media streamer kauphugleiðingar
Guðni Massi skrifaði:Ætla fá mér einhvern góðann media streamer, budget-viðmið 40 000 kr.
Líst vel á WD TV Live Hub
Er það málið eða er eitthvað annað sem væru skynsamari kaup?
Þessi græja er verð ég að segja, gargandi snilld.
Ótrúlega einfalt og þægilegt notendaviðmót.
Pinkulítið og snyrtilegt útlit, þægileg fjarstýring og spilar 1080p efni án vandræða og getur spilað af USB lykli eða flakkara í gegnum USB tengið á tækinu.
Ef þú tengir netsnúru frá tækinu í routerinn hjá þér þá geturðu tengst tækinu með hvaða vél sem er á heimilinu á einfaldan hátt og fært bíómyndir á milli.
Aðferðin sem ég nota við að setja efni inná þetta er þessi (í windows 7):
Opna My computer > smelli á Network vinstra megin > bíð eftir að tækið birtist þar (tekur 5 sec max) > opna möppuna sem myndin á að vera geymd í og færi á milli, tekur enga stund.
Og þetta kemur með 1TB HDD
Hægt að geyma ljósmyndir og skoða inná þessu ásamt bíómyndir og tónlist.
Svo kemst þetta tæki líka á netið en held samt bara valdar síður (ekki skoðað það nógu vel) t.d. Facebook og youtube.
Virkilega sáttur með þetta tæki, er að uppfylla allar mínar kröfur.. (sem eru töluverðar).
Tölvan mín er ekki lengur töff.