Mín heppni .....

Skjámynd

Höfundur
bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Mín heppni .....

Pósturaf bulldog » Þri 15. Feb 2011 12:12

Jæja þá er komið í ljós að ég er fæddur undir einhverju óhappatungli .... Þannig er mál með vexti að það kom dauður pixill á 32" Full hd sjónvarpið hjá mér og ég sendi það samviskusamlega á verkstæði hjá búðinni sem ég verslaði það hjá. Síðan fékk ég að vita í morgun að það hefði verið dæmt ónýtt en félli ekki undir ábyrgð þannig að ég sit uppi með 30 þúsund kr sjálfsábyrgð og ónýtt full hd sjónvarp sem náði eins og hálfs árs aldri !!!!!! Stórkostlegt :mad



Skjámynd

Eiiki
/dev/null
Póstar: 1408
Skráði sig: Þri 09. Nóv 2010 14:23
Reputation: 2
Staðsetning: 1101101
Staða: Ótengdur

Re: Mín heppni .....

Pósturaf Eiiki » Þri 15. Feb 2011 12:16

Hvernig stendur á því að sjónvarpið falli ekki undir ábyrgð?


Asrock Z68 Pro3-M | i7 2600k | Intel 520 Series 120 GB | GTX 560-Ti | 8GB 1866Mhz | Home made Mahogany case |Custom Water Cooling
Build log: http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=1&t=47846


AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6354
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 161
Staða: Ótengdur

Re: Mín heppni .....

Pósturaf AntiTrust » Þri 15. Feb 2011 12:18

1. Hvernig stendur á því að sjónvarp með einum dauðum pixel sé dæmt ónýtt?
2. Afhverju er það ekki undir 2 ára ábyrgð eins og lög kveða á um?



Skjámynd

Höfundur
bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Mín heppni .....

Pósturaf bulldog » Þri 15. Feb 2011 12:18

þeir segja að akkúrat þar sem dauði punkturinn var sé " dæld " eins og eitthvað hafi lent akkúrat á þeim punkti ..... Það sást ekkert nema dauði pixelinn þegar það fór frá mér til þeirra...... :mad :mad :mad :mad :mad :mad



Skjámynd

Höfundur
bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Mín heppni .....

Pósturaf bulldog » Þri 15. Feb 2011 12:19

Það er 2 ára ábyrgð á því eins og lög kveða um en þeir segja að útaf því að það sé eins og högg eða dæld sé á því þá falli það ekki undir ábyrgð. Það fékk aldrei högg og það var svo sannarlega engin dæld á því þegar það fór frá mér.




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6354
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 161
Staða: Ótengdur

Re: Mín heppni .....

Pósturaf AntiTrust » Þri 15. Feb 2011 12:24

bulldog skrifaði:Það er 2 ára ábyrgð á því eins og lög kveða um en þeir segja að útaf því að það sé eins og högg eða dæld sé á því þá falli það ekki undir ábyrgð. Það fékk aldrei högg og það var svo sannarlega engin dæld á því þegar það fór frá mér.


Þá berðu það fyrir þig ef satt og rétt er. Þá ber hugsanlega pósturinn e-rja ábyrgð, en það fer svosem eftir því hvort að sendingin var tryggð aukalega?



Skjámynd

Höfundur
bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Mín heppni .....

Pósturaf bulldog » Þri 15. Feb 2011 15:42

Ég fór með sjónvarpið í Ormsson hérna í Keflavík og þeir sendu áfram á verkstæðið hjá sér. Ég fæ skýrslu frá þeim þegar sjónvarpið kemur til baka frá verkstæðinu. Er forvitinn að sjá hvað stendur þar.



Skjámynd

Glazier
BMW
Póstar: 2511
Skráði sig: Fös 30. Jan 2009 22:20
Reputation: 14
Staðsetning: Mosó
Staða: Ótengdur

Re: Mín heppni .....

Pósturaf Glazier » Þri 15. Feb 2011 15:59

Ertu búinn að fá að sjá tækið sjálfur ?


Tölvan mín er ekki lengur töff.

Skjámynd

Höfundur
bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Mín heppni .....

Pósturaf bulldog » Þri 15. Feb 2011 18:35

fæ að sjá það á morgun eða hinn þegar það kemur til baka ....



Skjámynd

Glazier
BMW
Póstar: 2511
Skráði sig: Fös 30. Jan 2009 22:20
Reputation: 14
Staðsetning: Mosó
Staða: Ótengdur

Re: Mín heppni .....

Pósturaf Glazier » Þri 15. Feb 2011 21:05

Ef þessi dæld er stór og mjög greinileg (það greinileg að þú hefðir augljóslega tekið eftir henni áður en það fór í viðgerð) þá er mjög líklegt að þetta sé þeim að kenna.

Hinsvegar gæti alveg verið að umrædd dæld sé bara virkilega lítil og eitthvað sem þú tókst hreinlega ekki eftir sjálfur áður en þú fórst með það, svo skoða þeir það eins vel og þeir geta þarna á verkstæðinu og sjá þessa dæld og kenna þér um (sem mér reyndar finnst ekkert skrítið).


Tölvan mín er ekki lengur töff.

Skjámynd

Höfundur
bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Mín heppni .....

Pósturaf bulldog » Þri 15. Feb 2011 22:21

þeir segja að dældin sé jafn stór og 1 dauður pixel .... ég skal finna þá í fjöru :mad



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Mín heppni .....

Pósturaf dori » Þri 15. Feb 2011 22:24

haha... halda þeir að þú hafir verið að berja nagla í sjónvarpið? Einn pixill er alveg frekar lítið, þetta hljómar rosalega shaky allt saman.




Dazy crazy
ÜberAdmin
Póstar: 1317
Skráði sig: Fim 29. Nóv 2007 23:46
Reputation: 5
Staðsetning: Lýtó
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Mín heppni .....

Pósturaf Dazy crazy » Þri 15. Feb 2011 22:29

bulldog skrifaði:þeir segja að dældin sé jafn stór og 1 dauður pixel .... ég skal finna þá í fjöru :mad


fáðu bara tækið og tússaðu yfir einn pixel með einhverjum lítið áberandi lit eins og dökkgráum.
Skil ekki af hverju tækið er dæmt ónýtt samt.


Klám og stríð er undirstaða allrar tækni!

Skjámynd

Höfundur
bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Mín heppni .....

Pósturaf bulldog » Þri 15. Feb 2011 22:51

Ég bíð eftir að fá tækið til baka .... Þeir "týndu" því líka í 2 daga ....




braudrist
</Snillingur>
Póstar: 1051
Skráði sig: Mán 06. Sep 2004 13:22
Reputation: 58
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Mín heppni .....

Pósturaf braudrist » Þri 15. Feb 2011 23:05

Tala við neytendasamtökin og hóta að setja þetta í blöðin. Þá verður allt gert fyrir þig


Intel Core-i9 9900k @ 5GHz :: ASUS ROG Maximus XI Formula :: Corsair Vengeance 3200MHz - 32GB DDR4 :: ASUS ROG STRIX RTX 2080 Ti OC :: 1TB Samsung 970 Pro m.2-NVMe :: 27" Acer Predator XB271HU :: Corsair RM850x :: Cooler Master C700m

Skjámynd

Höfundur
bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Mín heppni .....

Pósturaf bulldog » Þri 15. Feb 2011 23:14

Ég geri allt brjál !!!!!! :mad




Gets
spjallið.is
Póstar: 461
Skráði sig: Mið 01. Ágú 2007 21:01
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Mín heppni .....

Pósturaf Gets » Þri 15. Feb 2011 23:30

bulldog skrifaði:Ég geri allt brjál !!!!!! :mad


Mikið rétt um að gera að vera bara nógu brjálaður og öskra stanslaust á allt og alla, helst þannig að enginn komist að, og Bingó þá munu allir falla að fótum þér og gera nákvæmlega allt fyrir þig :santa

Fyrir þá sem ekki skilja, þá er þetta kallað "kaldhæðni" :happy



Skjámynd

Frantic
FanBoy
Póstar: 797
Skráði sig: Mið 04. Mar 2009 17:43
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Mín heppni .....

Pósturaf Frantic » Þri 15. Feb 2011 23:44

Hvernig er hægt að segja að sjónvarpið sé ónýtt útaf dauðum pixli?
Vona að þú fáir þetta bætt.



Skjámynd

Danni V8
Of mikill frítími
Póstar: 1797
Skráði sig: Mán 23. Apr 2007 06:36
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Mín heppni .....

Pósturaf Danni V8 » Mið 16. Feb 2011 03:00

Hvað áttu við með að þú situr uppi með 30þús krónur í sjálfsábyrgð? Þarftu að borga þetta til að leysa sjónvarpið út?


Asus ROG Strix Z390-F Gaming | Intel Core i5 9600K @ 4,7GHz | Crosshair H100i | Corsair Vengance 16GB | Asus ROG Strix RTX2060 | Corsair RM 650x

Skjámynd

Höfundur
bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Mín heppni .....

Pósturaf bulldog » Fös 18. Feb 2011 16:33

Nei þetta tjón fellur ekki undir ábyrgðarskilmálanna heldur fer þetta í gegnum heimilistrygginguna mína í staðinn. Það er sjálfsábyrgð á henni það er það sem ég var að meina.

Það má læsa þessum þræði.



Skjámynd

Nariur
Of mikill frítími
Póstar: 1860
Skráði sig: Sun 08. Jún 2008 01:18
Reputation: 219
Staða: Ótengdur

Re: Mín heppni .....

Pósturaf Nariur » Fös 18. Feb 2011 19:18

segðu nú hvernig fer/fór


AMD Ryzen 9 5950X | Noctua NH-D15 | Nvidia Geforce RTX 3080Ti HOF | MSI MAG X570 Tomahawk | 32GB Corsair Vengeance RGB 3600MHz DDR4 | Corsair RM1000i | Samsung 950 Pro 512GB| Fractal Define R5 | LG CX 48" OLED

Skjámynd

Höfundur
bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Mín heppni .....

Pósturaf bulldog » Fös 25. Feb 2011 15:19

Þeir hjá Ormsson neita að bera ábyrgð á þessu en sendu skýrslu með og tryggingarfélagið sem við erum með heimilistryggingarnar vill miða við allt annað tæki en það tæki sem þeir hjá Ormsson sögðu sambærilegt.

Tækið sem þeir hjá Ormsson sögðu sambærilegt og hefði komið í staðinn fyrir tækið sem ég keypti hjá þeim ( sem þeir eru hættir að selja ) er Sharp LC32LE320E SJÓNVARP 32" LED ( efsta tækið á slóðinni http://ormson.is/default.asp?content=netverslun&fl=352 )

SHARP LC-32LE320E 32" SJÓNVAP
Skjástærð 32"
Full-HD panell (1920 x 1080)
Kontrast; 30000:1
(DVB-T / DVB-C), MPEG2 / MPEG4 H.264
100 Hz tvöfaldar myndtíðnina
Nánari lýsing
Verð: 149.900 kr.

en tryggingarfélagið vill miða við Samsung LE32C455E1W sem er bara hd ready tæki en ekki full hd eins og tækið sem ég var með með eftirfarandi spekka

Háskerpu sjónvarpsmóttakari
DNIe+ stafræn myndleiðrétting
Upplausn: 1366 x 768
Contrast: 60.000:1
Nánari lýsing
Fullt verð: 119.900 kr.
Tilboðsverð: 99.900 kr.

Þeir vilja miða við tilboðsverðið - sjálfsábyrgð þannig að ég á að fá 69.900 krónur út úr tjóninu ....

Hvað finnst ykkur um þessi vinnubrögð ?




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6354
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 161
Staða: Ótengdur

Re: Mín heppni .....

Pósturaf AntiTrust » Fös 25. Feb 2011 15:22

Tryggingarfyrirtækið er ekki í neinni aðstöðu til að rengja verkstæðið/fyrirtækið sem metur þitt tæki og hvaða tæki er sem sambærilegast í dag. Þetta eru skrifstofublækur, ekki tæknimenn.

Segðu tryggingarfyrirtækinu þínu vinsamlegast að hoppa upp í endaþarmsopið á sér, hafi það samviskuna til.



Skjámynd

Höfundur
bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Mín heppni .....

Pósturaf bulldog » Fös 25. Feb 2011 15:26

Ég væri betur settur með skemmt tæki heldur en að fá 70 þús út úr tjóni sem ég hefði átt að fá 120 þús út úr ( 150 þús - 30 þús -> 120 þús )




axyne
Of mikill frítími
Póstar: 1794
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Reputation: 82
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Re: Mín heppni .....

Pósturaf axyne » Fös 25. Feb 2011 15:34

bulldog skrifaði:Ég væri betur settur með skemmt tæki


Hvað varð um tækið þitt ?


Electronic and Computer Engineer